Alþýðublaðið - 03.08.1969, Blaðsíða 7
Hallur
Símonarson:
VIÐ GRŒNA BORÐIÐ
ítalski læknirinn Guiseppe Messina
stendur nokkuð í skugga þeirra Bella-
donna og Garozzo, en að mínu áliti er
hann ekki síðri spilari, jafnvel fremri á
ýmsum sviöum. Hann spilar Leghorn-tíg-
ulinn, kerfi, sem hann og félagi hans Ben
ito Bianchi, hafa samið, og er ekki í
mörgu frábrugðið öðrum ítölskum kerfum,
aðeins það, að tígullinn er þar hin sterka
sögn og svarið er með kontrólum, þar
sem eitt kontról. Kóngur, er talið hálft
stig. Við skulum líta hér á eitt spil, sem
þessi ítalski lækrrir, Messina, spilaði á
Evrópumeistramótinu í bridge, en eins og
fram kemur — ekki af spilinu heldur
starfi hans — er hann ekki atvinnumaður
í bridge, eins og flestir aðrir í ítölsku
sveitinni.
Spilið kom fyrir í leik Italíu og Englands
á Evrópumeistaramótinu í Osló og unnu
ítalir þannr leik með miklum yfirburðum.
Spilið er þannig:
S K107
H ÁK
T Á84
L KDG73
S G974 S D62
H D8432 H G7
T 65 T KDG1032
L 54 L 62
S Á83
H 10965
T 97
L Á1098
Sagnir hjá þeim Messina og Bianchi
gengu þannig:
Norður Suður
Messina Bianchi
pass
1 T 2 H
3 L 4 T
6 L pass
Eins og áður segir er einn tígull kröfu-
sögn í Leghorn-tíglinum. Tvö hjörtu sýna
fjögur kontrol, sem hlutu að vera tveir
ásar, þar sem Messina hefur sjálfur þrjá
kónga. Þrjú lauf er spurnarsögn, og
fjögurra tígla sögnin sýnir að minnsta
kosti fjögur lauf, þar sem háspil er íyrir
hendi.
Messina spilaði spilið mjög vel, en spil
að var út í tígli, og tók læknirinn þegar á
ásinn og spilaði tígli aftur. Hann trompaði
tígul áður en hann hreyfði hjartað og
komst þá að þýðingarmiklum upplýsingum.
það er að Au. var með 6 tígla. Það gerði
það að verkum að hann tók rétta afstöðu
í hjartanu og fékk því þrjá slagi í þeim
lit — það er eftir að hafa tekið ás og
kóng, spilaði hann tíunni og þegar Vestur
lét lítið kastaði læknirinn spaða að heim-
an. Hörð sögn, en þessir ítölsku spilarar
geta lagt ýmislegt á sig, því úrspil þeirra
er frábært eins og fyrrgreint spil sýn<r.
í næsta blaði
verður enn haldið áfram
að segja frá
skemmtilegum spilum á
Evrópumeistaramótinu í bridge
Alþýöublaðil — Helgarblai 7