Alþýðublaðið - 03.08.1969, Page 10

Alþýðublaðið - 03.08.1969, Page 10
MARIE CELESTE Framhald af bls. 6 Afdrif áhafnarinnar á „Marie Celeste" virt ust ætla að verða þoku hulin. Ýmsar furðulegar skýringar komu þó fram, flestar þess eðlis, að varla tók að Ijá þeim eyra. Hér skal ekki farið lengra út í þá sálma en að vitna í eftirfarandi klausu, sem að vísu var rituð mörgum árum síðar: „Því var trúað af mörgum, að eirrhver sæslanga eða að minnsta kosti kolkrabbi hefði teygt sig upp á þilfarið og hrifsað burtu manninn við stýrið, þann eina, sem var á verði, og hefði síðan, er einn af öðrum kom upp á þiljur til að aðgæta, hvers vegna skipið hefði breytt stefnu sinni, gripið þá, hvern á fætur öðrum og dregið fyrir borð. Förin á borðstokknum hefðu getað verið eftir a.m.k. einn af skipshöfninni, sem hefði reynt að veriast ófreskjunni.1' Fjölörmungar eða kolkrabbar, stundum nefndir „sædjöflar," eru mjög algengir í Miðjarðarhafi, og skipið fannst ekki langt þaðan. En venjulega eru skepnur þessar smávaxnar og halda sig við strendurnar. Önnur skýring, sem líklega hefur veriö byggð á raunverulegum atburði, öðrum hræðilegum sorgarleik úti á reginhafi, var sú, að skipstjóranum hefði í æðiskasti tekizt að setja alla skipshöfnina, sem var ofan þilja, í járn árla dags, og er hann hafði fleygt henni í sjóinn, hafi hann hrak ið hina útbyrðis með sverði sínu, kona hans og barn hefðu síðan hlaupizt fyrir borð í óttaæði og hann sjálfur kastað sér á eftir. En sú skýring, sem hiklaust má þó telja langsennilegasta, kom þó fram í nóv embermánuði 1913 í tímaritinu „Strand Magazirre." Var hún eftir A. Howard Lin- ford, skóiastjóra Peterborough Lodge, stærsta undirbúningsskólans í Hampstead. Mr. Linford kvaðst firra sig allri ábyrgð á sannleiksgildi þess, er í greininni stæði en gamall þjónn hans, Abel Fosdyk að nafni, hafi látið eftir sig skjöl nokkur í handraða sínum, og væri við þau stuðzt í frásögninni. í piöggum sínum heldur Fosdyk því fram að hann hafi verið skipverji á „Mar- ie Celeste" í hinni sögulegu sjóferð. Hann var þar þó öllu fremur bryti en háseti. Á fimmtánda degi eftir að þeir lögðu af stað frá New York, skall á þá ofsalegt rok, sem stóð samfleytt í fjóra sólar- hringa. Þá batnaði veðrið um tíma, en síð- an hófust aftur snarpir sviptivindar og ofsastormar, sem stóðu allan síðari hluta október- og fyrri hluta nóvembermánað- ar. Meðan óveðrið hélzt, veiktist kona skipstjórans, frú Briggs, og lagðist í rekkju, en náöi sér fljótlega eftir að veðr ið tók að skána. En þá var það, að Briggs skipstjóri fékk einhvers konar taugaáfall. Svo sem nærri má geta fékk það mjög á konu hans og gerðist hún alláhyggjufull. Það gerðist og um svipað leyti, að skipverjar sáu teikn mikil á lofti. Þegar veður fóru að kyrrast að nýju, tók skipssmiðurinn sig til og reisti eins konar lyftirrgu eða pall úr timbri frammi á skipinu, svo að litla stúlk- an, dóttir skipstjórans, gæti leikið sér þar og andað að sér fersku lofti, án þess að óttast þyrfti um hana. Bygging þessi var í gamni nefnd „Barnsbrúin," og þarna lék barnið sér venjulega, en móðir þess sat hjá og saumaði eða leit í bók. Heilsu skipstjórans fór rrú stöðugt hrak andi, og dag nokkurn — eða nánar tiltek- ið hinn 5. desember — lýsti hann því yfir í einhverju ofdirfsku brjálæði, að hann hygðist synda alklæddur í kringum skipið. Hann var sundmaður góður, en svo vildi til, að stýrimaðurirrn var það líka, og hefur þessi skyndilega ákvörðun skipstjór ans ef til vill sprottið af einhverjum met- ingi þeirra á milli. Frú Briggs og stýrimaðurinn reyndu ár- angurslaust að fá hann ofan af þessu heimskulega uppátæki, en þegar auðsætt var, að engu tauti varð við hann komið, fór frúin þess á leit við stýrimanninn, að hann synti með honum. Stýrimaðurinn varð við þessari ósk, og alklæddir stungu þeir sér báðir út af skipshliðinni, en öll áhöfnirr safnaðist saman kringum frú Briggs og barnið í „Barnsbrúnni" til að fylgjast með keppn- inni og til að vera nærstaddir, ef eitthvað bæri út af. Þegar sundgarparnir komu — að lík- indum á kappsundi — fyrir skutinrr á skip inu og stefndu yfir að hinni hlið þess, þustu áhorfendurnir í „Barnsbrúnni" út á þá hliðina. En þetta þoldi timburpallurinn ekki; hann sporðreistist og fleygði þeim öllum í sjóinrr — í einni bendu — og féll síðan sjálfur sömu leið með miklum bægsia- gangi. Fosdyk tókst við illan leik að ná taki á pallinum og gat hangið í honum. En hann var sá eini, sem það heppnaðist. Vafalaust hafði pallurinn borizt, bæði af sínum eigin fallhraða og fyrir öldunum, alllangan spöl frá skipirru. Og í sama bili gerði golu, sem fyllti seglin. Fosdyk taldi engan vafa leika á því, að hákarl hefði orðið skipstjóranum að bana, og hafi það við rök að styðjast, er ekki ósennilegt, að sá meinvættur hafi séð fyrir fleirum. Hins vegar getur allt eins verið, að skipstjórinn og stýrimaður- inn hafi drukknað, er þeir syntu frú Briggs og barninu til hjálpar. En svo mikið er víst, að enginn þeirra, sem í sjóinn fóru, gátu náð aftur til skips ins, sem flaug nú fyrir fullum seglum und an vaxandi vindi. Öll hafa þau því farizr, að Fosdyk undanteknum. Honum tókst að hanga utan í pallinum og með honum barst hann alla leið að ströndum Afríku. Var þá ekki eftir nema ein míla eða svo til lands. Eftir því, sem Fosdyk segir björguðu honum þrír negrar, er hjúkruðu honum, unz hann náði aftur heilsu og kröftum. Komu þeir honum til Algier, og þaðan komst hann heilu og höldnu til Marseille. Árið 1874 komst hann svo til Englands, Framhald á bls. 14. 10 AlþýSublaOiO — HelgarlliB

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.