Alþýðublaðið


Alþýðublaðið - 24.08.1969, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 24.08.1969, Qupperneq 13
land væri komið. —o— Það bar við einu sinni að haustlagi nokkru eftir göngur, að fjórir sexæringar réru til fiskjar frá Flatey, eins og þá var siður. Fimmti báturinn, sem á sjóinn fór um morguninn, var frá Vík á Flateyjardal. Gunnar Guðmundsson, sjógarpur mikill, var með Víkurbátinn, og hafði hann að heita mátti völdum há- setum á að skipa. — Faðir minn var þá bóndi á Hofi, og var hann háseti hjá Gunnari um haustið. Heyrði ég bæði hann og fleiri segja frá þessum eftirminnilega degi, og hefi ég frásögn þessa eftir honum að mestu leyti. Bátarnir fóru á sjóinn snemma um morguninn nokkru fyrir dag og héldu út á miðin á að gizka mílu vegar austur af Flatey. Allir voru bátar þessir vel mannaðir og sex menn undir árum, nema Krosshúsabáturinn, og vantaði þar sjötta hásetann um morguninn. Fyrir þeim báti var Jón bóndi Ingjaldsson, garp ur mikill og kappsamur. En ein- hverra orsaka vegna var hann á sjó þennan dag við fimmta mann. Af því liði, sem hann hafði, voru tveir óharðnaðir ung lingar, þá fóstursonur hans, Sig- urjón að nafni, harður og rösk- ur maður, og loks Þorsteinn Grímsson. Er nú skemmst frá því að segja, að þegar fram á daginn kom. létti til í lofti og skall þá á með ofsa suðvestan rok. Höfðu siómennirnir ekki önnur ráð en að snúa á móti veðrinu og taka barning upp að Flatey — upp á líf og dauða. — Eftir því sem á daginn leið, harðnaði veðrið og gekk upp með foráttubrim. Var lengi tvísýnt um daginn, að bát.ar þessir næðu landi, og var bað allt undir bví komið, hvað menn hefðu mikið þrek til bess að berja. Kölluðu Flateyingar betta laugardagsbylinn. og var hann í minnum hafður í mörg ár. bótt hann yrði mönnum ekki að fjörlesti. Á endanum náðu menn lend- ingu í Flatey um kvöldið eftir margra klukkutíma barning og mikið vos, og svo mikla þreytu, að nokkrir menn, sem á sjó voru þennan dag, þóttust aldrei hafa náð sér að fullu á eftir. Verður nú að víkja sögunni sem snöggvast að bátunum og afstöðu þeirra, þegar rokið skall á. Voru þeir þá staddir þar skammt fyrir austan eyjuna. (Að öðrum kosti var það al- talað, að þeir hefðu aldrei náð landi). Er það nú af Þorsteini Gríms- syni að segja, að þegar rokið skall á, varð hann hræddur, og lofaði hann Jóni Ingjaldssyni því, að hann skyldi róa það, sem hann mögulega gæti, í þeirri von, að þeir gætu náð landi. — Þorsteinn réri á andófsþóftunni á stjórnborða, og hafði í hönd- um sterka og mikla rauðaviðar- ár, sem treysta mátti í hvað sem færi. — Skipaði þá Jón háset- um þannig niður, að hann færði annan liðléttinginn á borð með Steina, og setti hann það upp við hann. að hann yrði nú að verja borðið á móti þeim þrem- ur. Verður að taka það fram, að formaðurinn var talinn tveggja manna maki að burðum og yfir 3 álnir á hæð. Lofaði Jón Þorsteini því, ef þeir næðu lifandi til lands, að hann skyldi bá gleðja hann með því að gefa honum eitt munntóbakspund og nottköku aukreitis því. sem honum væri venjulega skammt að. með því móti að hann dygði i ráðum alla leið og bryti þó ekki í sundur árina, því það gat kostað þá lífið. Var það haft eft- ’r Jóni Ingjaldssyni, að hann hefði óttast það mest, eftir að rokið skall á. að árin mvndi þá nrr begar hrökkva í sundur í h^ndunum á Steina. og hefði hann aldrei séð jafn fallega og sterklega róið um sína daga. Allt. af hefði Þorsteinn varið borð- ið og rétt bátinn í horfið; hefði bó áslátturinn verið hans megin og liðléttingurinn að kalla mátti unDgefinn á miðri leið. enda bakkaði Jón Þorsteini Gríms- syni bað. að þeir hefðu náð landi um kvöldið, ekki seinna en hin- ir bátarnir. Sögur gengu af því, hvað Þor- steinn Grímsson hefði þurft að borða mikið, þegar hann kom heim, og sögðu gárungarnir, að hann hefði gleypt í sig 15 merk- ur af mjólkurgraut og étið 4 kjötbita og 2 væna blóðmörs- keppi. Daginn eftir var Þorsteinn sagður svo , latur“, að hann nennti hvorki að sækja vatn í fötu eða bera út skólp eða ösku, og var ómögulegt að drifa hann til þess að standa við kvörnina. — Hefði þó mönnum átt að geta dottið það í hug, að hann væri eitthvað eftir sig í kroppnum, eftir alla áreynsluna daginn áð- ur. —o— Það fór lítið óorð af Þorsteini Grímssyni fyrir það, að hann á- sækti kvenfólk, en þó gekk ein- hver orðasveimur út af því á yngri árum hans, að hann hefði átt vingott við kerlingu nokkra, er Valgerður hét, og gerðu gár- ungarnir að því mikið skop. Þegar ég man fyrst eftir Þor- steini, var hann farinn heldur að reskjast og afturfararlegur fyrir aldur fram; gafst mér ekki tæki- færi til þess að sjá hann í reglu- legum hamförum við árina. Þó skal ég geta þess, að einu sinni í mínu minni fékk Þorsteinn lán- aða byttu til þess að fara á í skotturóður (á sunnudegi); hann skrapp á byttunni þó nokkuð langt austur fyrir eyjuna. Veður var kyrrt og gott um morguninn, og sást vel til hans þar austur í flóanum. En þegar fram á daginn kom, rýkur hann allt í einu á með snarpa vestan- hviðu, og urðu þá margir hrædd ir um, að karlinn næði ekki landi. Aftur treystu aðrir því, að hann myndi hafa orku til þess að berja að minnsta kosti á móti tveimur fullgildum mönnum, ef hann nennti því á annað borð. — Heyrði ég, að nokkrir stungu upp á því, að mannaður væri út sexæringur eftir karlinum. Varð þó ekkert af þeirri ráða- gerð. Sáu menn, að Þorsteini miðaði furðanlega áfram á bytt- AiþýffublaffiV — Helgarblaff 13

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.