Alþýðublaðið - 11.10.1969, Blaðsíða 13
RitstjórS s öm Eiðsson
MRMINN I
ISI20ÁRAAF |
MÆLISI DAG |
Nýlega eru liðin 20 ár frá því
Knattspyrnufélagið Þróttur var
stofnað, en það var 5. ágúst
1949, sem stofnfundur félags-
ins var haldinn suður á Gríms
staðaholti. Á fundinum voru
mættir 35 áhugasamir ungir
menh, sem æft höfðu knatt-
spyrnu á malarvellinum á Holt
inu, þar sem nú eru bústaðir
prófessoranna við Háskóla ís-
lands. Aðalhvatamenn að
stofnun félagsins voru þeir
Halldór Sigurðsson, fyrrum
fiskkaupmaður og Eyjólfur
Jónsson, lögregluþjónn og
sundkappi, og var Halldór
fyrsti formaður félagsins.
Fyrstu árin kepptu Þróttarar
bæði í knattspyrnu og hand-
knattleik, aðallega við starfs-
mannafélög, en árið 1951 verð-
ur félagið aðili að íþróttasam-
bandi íslands og Þróttur tek-
ur þátt í fyrsta opinbera kapp-
mótinu sama ár. Fyrsti búning-
ur félagsins var þannig að menn
mættu í hvítum sunnudags-
skyrtum og stuttbuxum.
Tveir áratugir eru ekki lang-
ur tími í sögu félags, en Þrótt-
ur er lang yngsta knattspyrnu-
félagið í Reykjavík, Fram, KR,
Valur og Víkingur eru öll
stofnuð á fyrstu árunum eftir
1900, en svo líður allt fram
til 1949 að Þróttur er stofnað-
ur.
Enn eru margir félagsmenn
starfandi, sem voru meðal
brautryðjendanna bæði sem
keppendur og stjórnarmenn og
ekkért annað félag á sögu sína
skráða jafn skýrum stöfum.
Fyrsti formaðurinn, Halldór I
Sigurðsson, fylgist enn með
því sem gerist og hefur vak-
andi auga með vexti og við-
gangi félagsins.
Halldór var gerður að heið-
ursfélaga Þróttar árið 1961, og
er hann eini maðurinn, sem
þann heiður hefur hlotið. — Á
fimmtán ára afmæli félagsins
afhenti borgarstjórinn í
Reykjavík, Geir Hallgrímsson
félaginu til afnota nýtt félags-
svæði við Njörvasund og er
þess skemmst að minnast, að
athafnasvæði þetta var form-
lega tekið í notkun í sumar.
Hefur félagið þá verið flutt frá
æskustöðvunum á Grímsstaða-
holtinu og hafa félagsmenn nú
haslað sér völl „við sundin
blá.“ Binda Þróttarar miklar
vonir við öflugt félagsstarf á
hinu nýja svæði, en það hefur
háð starfsemi félagsins á und-
anförnum árum, að vantað hef-
ur aðstöðu fyrir hina margvís-
legu félagsstarfsemi og æfing-
ar. Bíða nú mörg verkefni ó-
leyst og hlakka félagsmenn til
að takast á við þau, og eru
margar hendur á lofti fúsar
til að leggja félaginu lið til
hagsbóta fyrir æskulýðinn á
nýja félagssvæðinu.
Á morgun klukkán 15 býð-
ur stjórn félagsins velunnur-
um sínum og samstarfsaðilum
til kaffidrykkju í Átthagasal
Hótel Sögu og um kvöldið
verður haldið afmælishóf fyr-
ir félagsmenn og gesti. Núver-
andi formaður Þróttar er Guð-
jón Sverrir Sigurðsson.
I
I
I
[
I
I
I
:
I
I
I
■
Þær eru hörkulegar á svipinn þessar handboltaskvísur, og stæðu líklega mörg-
um karlmanninum fyllilega á sporði. Ekki er okkur kunnugt um með hvaða
liðum þær leika, en eftir þessari mynd að dæma mætti sennilega senda þær
gegn hvaða íslenzku karlaliði sem ei*.
Satt bezt
að segja
□ Nú fer í hönd tími ársþinga
og aöalfunda hjá íþróttahreyfing-
unni. Nýlega er afstaöiö ársþing
Handknattlelkssambands íslands,
en framundan er ársþing Körfu-
knattleikssambandsins. Sérsambönd
ÍSÍ eiga öll í erfiöleikum, sér-
staklega er fjárhagurinn slæmur cg
staklega er fjárhagurinn slæmur og
svip á þingin.
Handknattleikur er önnur vinsæl
asta íþróttagreinin hérlendis, bæöi
hvað snertir aösókn að leikjum og
iökrendur, en áhugi fer mjög vax-
andi á handknattleík um land allt.
Þetta er skemmtileg íþrótt og býsna
auðlærð og því eðlilegt, að hún sé
almennt iðkuð.
Á ársþingum kom í Ijós, að tap
Handknattleikssámbandsins var 360
þúsund á liðnu starfsári og alls
nema skuldir um 600 þúsund krón-
um. Þetta er alvarleg staðreynd og
raunar alvarlegra mál, en menn
gera sér almennt grein fyrlr. íþrótt-
irnar eru orðinn snar þáttur í þjóð-
lífinu og þátttaka í þeim fer stöð-
ugt vaxandi, enda fátt hollara og
skemmtilegra fyrir æskuna en hóf-
leg iðkun íþrótta. Þessi alvarlega
staðreynd um fjárskort hreyfingar-
innar er því ekkert dægurmál, sem
menn geta yppt öxlum yfir. Velferð-
arþjóðfélag nútímans krefst þess,
að æskufólkið hafi eitthvað fyrir
stafni í frístundum og fátt er því
htílara og gagnlegra en iðkun
íþrótta. Æfingarnar styrkja líkam-
ann og hófleg keppni veitir nauð-
synlegum metnaði útrás.
íþróttasamband íslands hefur ný-
lega skorað á menntamálaráðherra
og Alþingi að auka styrki til íþrótta
hreyfingarinnar, en styrkir hins op-
inbera til hinnar frjálsu iþróttahreyf
ingar eru hvergi minni á Norðurlönd
um en hér, 90 krónur gep 19 á
hvern íbúa, ef við tökum Finnland,
þar sem þeir eru mestir á Norður-
löndum. ‘
Framhald á bls. 11.