Alþýðublaðið - 11.10.1969, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 11.10.1969, Qupperneq 14
14 Alþýðu'blaðið 11. október 1969 EFTIR FRANCES OG 1 RICHARD LOCKRIDGE Smáauglýsingar r 1 STÚLKANí GULU KÁPUNNI reyna að ná í yður en þér höfðuð ekki svarað. — ■,— Á þeirri stundu sat ég á matstaðnum með Bib Campbell, hugsaði Loren leið. — Lét hr. Sayers liggja nokkur skilaboð? — Hann ætlar að hringja aftur, — Loren þakk- aði fyrir og lagði á. Eins og alltaf þegar hún hafði misst af Peter eða hann af henni, fann hún til tómleikatilfinningar. Peter hefði trúað mér, hugsaði hún. Ef ég segi honum upp alla söguna — en það er ekki nóg að segja bara frá: Ég verð að sanna honum að þetta hafi raunverulega gerst. Hún tók símaskrána ofan úr hillu og opnaði hana. Hún lét vísifingur renna niður eftir síðunni með símnotendum að nafni Mason. Það var engin Bertha Mason með hi. Aðeins Berta Mason, hún bjó í Banka strætj. Ef til vill hafði Bertha 'breytt stafsetn- ingunni á nafninu sínu, sem henni hafði fundizt svo Ijótt. Það er bezt að ég reyni, sagði Loren við sjálfa sig. Hún valdi númerið. Um leið og hún heyrði fyrstu hringinguna, var símtólinu lyft. — Halló? — Það var kvenrödd, sem anzaði. Jafnframt heyrði Loren suðandi raddir og hávaða. — Þetta er Loren Hartley, sagði hún hátt. Það dró ekkert úr hávaðanum. En stúlkan í sím- anum hrópaði: Svona krakkar, þegið þið nú eitt augnablik. — Hver sögðuð þér að þetta væri. Ég heyrði ekki nafnið. — Loren Hartley ... — Það var andartaks þögn og svo heyrði Loren gamalkunnan áhyggjulaus- an hlátur Berthu Mason. — Það var óvænt ánægja Loren. En hvað það var gaman að þú skyldir láta heyra í þér. Heyrðu hvernig væri að þú kæmir hingað til mín? Við er- um einmitt að halda hátíðlega jarðarför. — Jarðarför? Það er leitt að heyra Bertha . . . Bertha skellihló. — Við vorum bara að jarðsyngjn síðasta leikritið mitt. Að öðru leyti líður okkur prýðilega. Jæja, hvað um það. Kemurðu? Hér er fullt af fólki og nóg að drekka. — Kliðurinn jókst enn við þetta. Þar sem Loren þóttist viss um að stíft væri drukkið í veizlunni sagði hún: — Taktu það ekki illa upp fyrir mér Bertha, en ég get alls ekki komið í dag. — Svona engar vífilengjur, þú kemur. Við höfum ekki sézt í eilífðartíma. — Nú Bertha Mason hafði þá ekki verið hjá Alíce Jackson, þegar allt kom til alls.... — Bertha, bað Loren — geturðu hlustað á rnig, bara í eina mínútu, bara eina einustu mínútu. — Hvað er að? Þú ert svo alvarleg . .. — Bertha, varstu boðin í hádegismat til Alrce Jakcson í dag? — Það var stutt þögn. Þá spurði Bertha Mason. Hver er Alice Jackson? — Hún var víst með okkur í skóla. Eg hitti hana. Og síðan sagði Loren Berthu það þýðingarmesta í fáum orðum. — í fyrsta lagi — svaraði Bertha Mason — man ég ekki eftir neinni Alice Jackson. Og í öðru lagi borðaði ég hádegisverð með umboðsmanninum mín- um í dag. — Sagði þessi Alice Jackson að ég myndi koma til hennar? — Já, þess vegna fór ég með henni. — Einkennilegt . . . En taktu nú eftir Loren. 'Þú þarft ekki annað en fara í gamla skólann okkar og líta í skólaskýrsluna. Þar eru myndir af öllum gömlum nemendum og helztu atriði varðandi þá. Kannski kemstu þannig að því, hver þessi Alice Jack- son er. Og síðan: Er þetta annars svo þýðingarmikið. Hún lagði á. — Já — sagði Loren lágt, — ég held að það sé mjög þýðingarmikið. Hún lagði á. Morguninn eftir vaknaði Lorerr með sömu óþæg- indatilfinninguna og hún hafði sofnað með. Hún var áhyggjufull án þess að muna strax hvers vegna. Svo komu endurminningarnar aftur . . . . Hún hafði sofið illa. Óljósir draumar höfðu kvalið hana. Hún hafði hlaupið eftir endalausum göngum og hafði lesið á mörg hundruð nafnskilti. Og feiti húsvörðurinn hafði elt hana. Loren fór fram úr rúminu og gekk inn í baðher. bergið. Hún fékk sér kalt steypibað. Meðan hún var að þurrka sér, hringdi síminn. Það mynduðust litlir pollar á gólfinu eftir fætur hennar, þegar hún hljóp og anzaði. — Ég vona að ég hafi ekki verið að vekja þig, Það var rödd Bobs Campbells. Mig langaði rétt til að vita hvernig þér iiði. ___ Þakka þér fyrir, ég var að koma á fætur, þú afsakar hvað ég var leiðinleg í gærkvöldi. — Það gerir ekkert til, sagði Bob og hló. — Þetta getur alltaf komið fyrir. Mannstu annars nokk uð frekar frá í gær? ___ Nei, hún hugleiddi hvort hún ætti að segja frænda sínum frá samtalinu við Berthu Mason, en lét það eiga sig. Smám saman var henni sjálfri farið að finnast allt, sem gerzt hafði, heldur óraunveru- Jegt... _ ,Nú aðalatriðið «r, að þú ert búin að ná þér, Loren. Ég hringi einhverntíma seinna tilifjfn. Eftir að hafa talað við Bob, klæddi hún sig. Hún málaði sig með mikilli umhyggju. Þejar hún leit í i ~ .... TRÉSMÍÐAWÓNUSTA Latið f agmann annast vlðgerðir og vlðhaid & tréyerkl húseigna yðar, ásamt breytingum á nýýu og eldra húsnæði. — Sími 41055. VOLKSWAGENEIGENDUR! Höfum fyrirliggjaaidi: Brettl — Hurðir — Véiarlok — Geymslulok á Voikswagen í allflestum lltum. Skiptum á einum degi með dagsfyrirvara fyrir á- kveðið verð. — Reynlð viðskiptin. Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholtl 25, Símar 19099 og 20988. NÝÞJÓNUSTA í HEIMAHÚSUM Tek að mér allar viðgerðir og klæðningar á bólstruðum húsgögnum í hermihúsum. — Upp lýsingar í síma 14213 kl. 12—1 og 7—8 á kvöldin. AGNAR ÍVARS) húsgagnabólstrari. PÍPULAGNIR Tek að mér viðgerðir og uppsetningu á hrein lætistækjum, frárennslis- og vatnslögnum. Guðmundur Sigurðsson Sími 18717 IPÍPULAGNIR. - Skipti hitakerfum. Ný- lagnir, viðgerðir, breytingar á vatnsleiðslum Iog hitakerfum. Hjitavéitutengingar. Þétti heita og kalda krana. Geri við wc-kássa. — Sími 71041. — Hiknar J. H. Lúthersson, pípulagningameistari. ■ Jarðýtur - Traktorsgröfur IHöfum til lelgu litlar og stórar jarðýtuæ traktorsgröf- ur og bílkrana, til allra framkvæmda, lnnan og utan Iborgarinnar. Heimasímar 83882 — 33982. I Jarðvinnslan st. ■ I Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31089. I I I MATUR OG BENSÍN allan sólarhringinn. vr-.tnllaAanenvK'i ry VEITINGASKALINN, Geithálsl

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.