Alþýðublaðið - 18.10.1969, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 18.10.1969, Blaðsíða 9
Alþýðublaðið 18. október 1969 9 I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I POPHEEMURINN Umsión: Björn og Hilmar Hafa gert samning fil fveggja ára við SG - næsfa plafa í janúar n Urn seinustu helgi kom út hjá SG-'hljómplötum fyrsta plata Tatara og mun haía komið á óvart. Tatarar eru lítt þe'kiktir, koimu lítið eitt fram í fyrra, en hófu að spila fyrir alvöru í ágúst s.l. eftir miklar æfimgar auðheyri lega. Meðlimir Tatara eru: Árni Blandon, 18 ára gítar- l'a Ikari og stundar nátm í MH. Magnús S. Magnússon 20 ára trommu'leikari og er í MR, Stefán Eggertsson 18 ára, söngvari er í MH, Þorsteinn Haulksson, 20 ára, leikur á orgel, píanó og stundium igít- ar og er í MH, Jón Ólafsson, 17 ára bassaleikari og hefur lclkið gagnfræðaprófi. Eins cg sjá má er þetta okkar bók- lærðasta pophljómsyeit — Á fyi’rnefndri plötu eru tvö lög. Annað eftir Árna Blandon, texti eftir Magnús S. Magn- ússon. Hitt er erlent og text- inn þýddur af einhverjum sem kallar s'g „m“. Upptak an fór fram í útvarpinu og er með skársta móti, en aðspurð ir kváðust Tatarar ánægðir með útlkomuna, því þeir hefðu átt á öllu verra von. Platan er seld í glæru plast- umslagi og fylgir á'tta blað- síðna pési, með lagatextum, mvndum og upplýsingum um hljómsveitarmeðlimi. Á eimu sviði ætla Tatarar að ger- ast brautryðjendur hér á landi, en það er sú hugmynd að stona aðdáendaklúbb (fan elub). í útlöndum þylkir þetta omissandi og verður gaman að vita hvaða þróun þetta fær hér. Tatarar hafa skrifað undir tveggja éra samning hjá SG og er gert ráð fyrir 2—3 plötum, 2ia O'g 4ra laga á ári. Ef allt gengur að óskum, mun næsta plata Tatara koima út í jan- úar n k. — 10 vinsælustu LP í Bretlandi í síðustu viku: (—) 1. Abbey Road Beatles (Apple) (1) 2. At San Quentrn Johnny Cash (CBS) (4) 3. Through the Past, Darkly (Big Hits Vol. 2) The Rolling Stones (Deca) (2) 4. Blind Faith (Polydore) (3) 5. Stand up Jethor Tull (Island) (7) 6. Hair London Cast (Polydore) (11) 7. According to My Keart Jim Reeves (RCA) (6) 8. Nice (Immediate) 9. From Elvis In Memphis Elvis Presley (RCA) (Decca) ★ Enn heldur orðrómurinn áfram um að Ginger Baker trommuleikari hjá Blind Faith muni hætta og í hans stað komi fyrrum trommu- leikari Traffic, Jim Capaldi. Ilefur þessu verið neitað harðlega af umboðsmönnum Blind Faith. ★ PlastiC Ono Band — Eric Clapton, Klaus Voorman, Al- an White, John og kona hans Yoko eru búin að syngja inn á nýja plötu lagið „Turkey“ og er lagið eftir John. Esther og Abi Ofarim, sem áttu nr. 1 lagið „Cinder- ella Rockefella;“ hættu fyrir stuttu að koma fram. Ástæðan fyrir því var að það slitnaði upp úr 10 ára gömlu hjónabandi þeirra. Esther er nú búin að gefa út nýja plötu á eigin spýtur, sem hcitir „Saturday Night at the World.“ ★ Nýverið hættu Amen Corner að starfa saman. Und aiifarin 4 ár hefur þessi hljómsveit verið afar vinsæl lijá yngri pop-iinnendum jafnt seni eldri. Má þar til marks nefna „Hello Susie“, sem er nýjasta lagið frá þeim og hefur verið ofarlega á vin sældalistum í Bretlandi. Má einnig nefna lögin „Half as nice“, „High in the sky“ „Gin liouse“, sem þeir fé- lagar hafa sent frá sér og hlotið töluverðar vinsældir fyrir. Nú er liðið ár síðan byrjað var að sýna söngleikinn „Hair,“ og var platan úr söngleiknum kcmin í 6. sæli vinsældalistans í síðustu viku. Hefur platan selzt í 250.000 eintökum, bæði vestan hafs og austan. Meðfylgjandi mynd er af leikurunum í söngleiknum. ^

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.