Alþýðublaðið - 06.12.1969, Page 15
Alþýðublaðið 6. desember 1969 15
[ Frh. 12. síðu.
' Suður
f Garozzo
1 S
2 H
pass
Vestur Norður
Eisenberg Forquet
pass
pass 1 gr.
pass 3 H
1 Austur
Goldman
pass
pass
r
Þrátt fyrir lítil spil hjá Suðri
er opnunin örugg samkvæmt
kerfinu og Garozzo vann þrjú
hjörtu. Það er ekki hægt að
segja, að Bandaríkjamennirnir
geri neitt af sér, en samt töp-
uðu þeir tíu stigum. Eftir spaða-
sögn Garozzo er ómögulegt fyr-
ir þá að komast í fjóra spaða.
Á miðvikudaginn lauk hjá
Bridgefélagi Reykjavíkur tví-
menningskeppni og urðu hinir
kunnu bridgespilarar Bene-
dikt Jóhannsson og Jóhann Jóns
son sigurvegarar — eftir nokk-
uð harða keppni. f síðustu um-
ferðinni kom eftirfarandi spil
fyrir og þar fengu þeir Bene-
dikt og Jóhann „topp.“
fl** S DG104
f~ H KD87652
f— T 4
r* L 6
S 853 S 92
H 103 H Á4
T KG65 T ÁD1093
L KD107 L ÁG82 I
( S ÁK76
H G9
T 872
1 L 9543
Benedikt og Jóhann voru með
1 spil Norðurs/Suðurs, en mót-
herjar þeirra voru Rarl Sigur-
hjartarson og Jón Ásbjörnsson.
Þegar umferðin hófst voru þess-
ir spilarar með mjög svipaða
stigatölu í tveimur efstu sæt-
unum. Þetta var dýrt spil fyrir
Jón og Karl. Þeir dobluðu tvö
hjörtu hjá Benedikt, sem auð-
vitað átti létt með, að fá 10
slagi. Tvö hjörtu dobluð með
tveimur yfirslögum gaf 1070 og
topp. Nokkrir spilarar í Norð-
ur fengu að spila þrjú hjörtu
dobluð — sem auðvitað
vannst rpeð yfirslag, en það gaf
ekki „nema” 930.
SJÓNVARP
Framhald úr opnu.
Umsjónarmaður Ásgeir
Ingólfsson.
23.00 Dagskrárlok,
Laugardagur 13. desember.
15.30 Endurtekið efni:
Jólabaksturinn.
16,10 Albert Schweitzer.
17.00 Þýzka í sjónvarpi
17.45 íþróttir.
20.00 Fréttir
20.25 Smart Spæjari
20.50 Salvador Dah.
Mynd um ævi eins frægasta
merkisbera súrrealismans í
málaralist.
21.45 Tíðindalaust á vestur-
vígstöðvunum.
Verðlaunamynd frá árinu
1930, ggrð eftir skáldsögu
Eric Maria Remarque.
Óharðnaður þýzkur ungling-
ur býður sig fram til herþjón
ustu, ásamt bekkj arbræðrum
sínum, þegar heimsstyrjöldin
fyrri brýzt út. Fullur af eld-
móði og ættjarðarást heldur
hann til vígvallanna og kynn
ist þar grimmd og vitfirringu
stríðsins.
Myndin er ekki ætluð börn-
um.
23.25 Dagskrárlok.
MINNING
Framhald bls. 12.
mitt nú fyrir þá skaphöfn, sem
henni var í eðli lögð, lífþöfn
barnanna. Fyrir ekkert kont að
ætla að tala tæpitungu við| til-
veruna. Þessi kona þekkti skyld
AXMINSTER býður kjör við allrn hœfi
GRENSASVEGI 8
SIMI 30676
ur sínar. Hún hafði ríka samúðar
kennd með þeim, sem bágstadd-
ir yoru í lífinu; unni hinum
sannmælis, sem betur voru sett-
ir. En þessi kona þekkti einnig
rétt sinn, hún var jafnaðarkona,
í fegurstu merkingu þess orðs,
sú sama og kom til Eyvindar-
múla forðum. Engar hliðarhug-
sjónir um að komast í nefnd eða
ráð, engar sérgæzlculégar frama
vonir eða auðgunarsjónarmið
vörpuðu skugga á afstöðu henn
ar; krafan snerist um tilveru-
rétt.
Hún fór í enga launkofa með
skoðanir sínar, hvorki fyrir há-
um né lágum, heldur varði þær
af þeirri mælsku og rökfimi,
sem sannfæringarkraftur einn
getur látið í té. Lognmolla og
tepruskapur voru henni Vfðs
fjarri skapi; gustmikil reisn og
einarðleg festa fylgdu orðum og
athöfnum; þar sem hún fór, þar
var líf. Ekki gekk of greiðlega
að kyngja því; eða hvað vildi
þessi ómenntaða alþýðukona
upp á dekk? Virðulegt fas og
fleipurlaus málflutningur gátu
þó ekki annað en vakið aðdáun,
jafnvel þótt undan sviði á stund
um.
Bjartári tfmar renna upp.
Harðsækinn karlleggur sækir
fram í námi og starfi, kvenlegg-
urinn fylgir fast eftir; andi móð
urinnar svífur yfir vötnum,
minning látins föður vísar veg-
inn. Börnin hverfa eitt og eitt
af heimilinu, stofna sín eigin.
Móðirin er ein eftir með tveim-
ur yngstu dætrunum. Þá dimm-
ir sviplega yfir ranni; yngsta
dóttirin deyr frá ómálga barni.
Óslitgjörn knýtast bönd milli
móður og dóttur, þegar lítið
barn er skírt við hvíta kistu.
Gömul kona situr á rúm-
stokknum. sínum og horfir blind
um augum í gaupnir, sér. Hún
hefur lifað hálfa íslandssöguna;
MOLI LITLI — EFTIR RAGNAR LÁR.
En. Moli litli flaug með bréfaklemmuna niður að
Tjörn, þar sem Jói beið við sleðann. Þetta er sko
aldeilis fínn skauti, sagði Jói. En nú vantar okkur
tvær bréfaklemmur til viðbótar. Já, ég skal sækja
þær, sagði Moli, en fyrst verð ég að hvíla mig, þær
eru svo anzi þungar þessar bréfaklemmur, skal ég
segja þér. j
lngólfs-Caf BIN GÓ é II / llj
á morgun sunnudag kl. 3.
Aðalvinningur eftir vali.
11 umferðir spilaðar.
Borðapantanir í síma 12826.
tama styrjalda og fatæktar, hat-
urs og heimsku, mannvonzku og
miskunnarleysis. Samt hefur
ekkert megnað að veikja trú
hennar á mannúð og kærleika.
Hún hefur alltaf séð það góða í
því; vonda, ljósið í myrkrinu.
Þar á glaðlyndi hennar hlut að
máli,. fullt af góðlátlegri kímni
og smjtandi kæti. Hún hefur
yndi af því að rifja upp liðna
tíð, ljóð og sögur, menn og mál-
efriii Minnið er óbrigðult, hugs
unin tær og skörp, þótt dagleg
önn sé ekki eins hugtæk og áð-
ur. Ekki héfúr réttlætiskenndin
daprazt henni; hárbeitt mælskan
verst óg sækir með oddi og egg.
Tilsvorin efú; hnýttifr; oft hvat
skeytleg eða jafnvel höstug, eða
það brennur við, að rökum and
mælandans er ekki sýnd nein
óþarfa tillitssemi. En að baki
býr einatt góðvild og framsýni,
þótt ekki skiljist það alltaf jafn
harðan. Stórbrotnum persónu-
leikum er vandfylgt.
0
Hún situi- þarna ein, á stokkn
um sínum, rær fram í gráðið og
héfur yfir gamlan sálm eða
stökiir sjálf er' hún hagmælt,
þótt lítil grið gæfust til yrkinga.
. jgleði og eftirvænting . af himn
feskum toga færist yfir andlitið,
■ þegar ættingi, eða fornvinur,
' gengur innar til hennar, sezt á
stokk og sameinast henni í orð-
ræðu. Sálin er enn ung og heit,
líkaminn einn hefur elzt. Enn
er gleði, enn harmur. Skýja-
bakka dregur upp á bjartan vor-
næturhimin, sem þó er í ætt við
heiðríkjuna.
Nú er sól hennar hnigin til
viðar í þessum heimi. Vonandi
birtir um leið í öðrum, þar sem
drenglund og mannúð þykja
nokkurs virði.
Megi almættið blessa þá för.
Hilmar Pétur Þormóðsson.
Tilkynning frá Áfengis- og tóbaksverzlun
ríkisins:
KAUPMENN KAUPFELÖG
Mánudaginn 8. og þriðjud'aginn 9. dfesember
höfum vér sérstaka sýningu í Iðnaðaridleild
vorri, Borgartúni 7, 1. hæð á öllum þeim
ilmvatnstegundum, sem emn eru óseldar hjá
oss.
Vörusýningin stendur aðeins yfir þfessa tvo
dága frá íkl. 9 — 19. Þar verður tekið á móti
pöntunum, s'em afgreiddar verða næ'sta dag.
Notið þetta sérstaka tækifæri.
igis- og tóbaksverzlun ríkisins.
:t iic