Alþýðublaðið - 10.12.1969, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 10.12.1969, Blaðsíða 3
Al'þýðublaðið 10. dlaSember 1969 3 islenzki skautbúningurinn er þjóðartákn - það segir frú Elísabef Einarsdóftir sem p befur saumað fvo glæsilega skauibúninga er sýndir verða á jolafundi Húsmæðrafé- lagsins að Héfel Sögu í kvðld. □ „Þetta er allt henni Níní að kenna“. „Níní“ er Þuríður Pálsdóttir, okkar velþekkta söngkona, og það er reyndar önnur söng- kona sem talar, frú Elísabet Einarsdóttir. v Hún hikar eilítið þegar hún er beðin um smáviðtal. „Æ, er það ekki eins og ég sé að trana mér eitthvað fram?“ En það er nú öðru nær. „Jæja, ’ kallaðu mig þá að minnsta kosti ekki Elísabetu Waage — ég hef ekki borið Waage nafnið í hér um bil 40 ár, og svo er til örin- ur Elísabet Waage og alltaf ver ið að rugla okkur saman". Frú Elísabet. er systir Maríu' Markan og hefur sungið glæsi- ‘ legá undir nafninu Elísabet Ein arsdóttir um áratuga skeið, þann ig að óþarft ætti að vera að ruelast neitt í þessu. I þetta sinn kemur þó fram önnur hlið á hæfUeikum henn- ar, því að í kvöld sýna þær frú Þuríður og hún sjálf á jólafundi Húsmæðrafélagsins að Hótel Sögu tvo listilega saumaða skaut búninga sem Elísabet á heiður- inn af. Hún hefur saumað 22 búninga um ævina, og ef til vill er sá þeirra frægastur sem for- setafrúin, Dóra heitin Þórhalls- dóttir, bar með reisn við fjöl- mörg tækifæri innanlands og utan. / i ÓVIÐRÁÐANLEG LTTAGLEÐI „Níní verður öll gyllt, en ég með mislitt í staðinn“, segir frú Elísabet. „Þar koma fram tvær mismunandi gerðir af listsaumi. Ég saumaði fyrsla skautbúning- inn minn þegar ég var 27 ára gömul, og hann var balderað- ur. Ég er orðin leið á balder- ingu, enda er hún miklu óþægi- legri, pergamentið er svo stíft, að það er erfitt að hreyfa sig, og þar að auki endist balderingin ekki nærri eins vel og kúnstsilk ið. Það fellur á hana með tím- anum, en litirnir í góðu kúnst- silki haldast óbreyttir". Litagleðin er svo mikil hjá henni, að blómin virðast ljós- lifandi á búningnum. Það er líka mikið af skærlitum listsaum uðum myndum á veggjunum. „Þa.ð var yíst eins gott, að ég fór eidii út í að mála —ég hefði orðið alveg óviðráðanleg. ,Aldrei hef ég séð manneskju setja sam an eins brjálaða liti og þig‘, hef ur verið við mig sagt. Já:, já, ég er frek, ag ég verð bara djarfari með aldrinum. Mér finnst líka búningarnir verða fallegri og fallegri hjá mér, og engir tveir eru eins. Ég saumaði þrjá í sumar — þegar birtan er góð get ég setið við að sauma 10—12 tíma í einu, því að ég verð aldrei þreytt ef ég hef eitt hvað að gera sem gaman er að fást við. Ég hef alltaf unnið mik ið í höndunum, aldrei reykt, og ég fór ekki í hús nema að háfa með mér saumaskap, þ. e. a. s. fyrir utan stórveizlur nátt- úrlega“. ÞTOÐARTAKN EINS OG FÁNfNN Mynztrin eru eftir Sigurð Guð- mundsson málara, og Kristrún Jónsdóttir hefur teiknað þau á bþningana. Þeir eru úr. mjúku silki, léttir og þægilegir. „Ef búningurinn á að lifa, verður hanri að vera þannig að mann- eskjan geti látið sér líða vel í honum“, segir frú Elísabet. „Það væri fáránlegt að sauma hann úr boldangi og klæði nú á dög- um. Við þurfum engar kafþykk- ■ ar uiiartreyjur tii að halda á ”Mer er iI!a vi5 l38ssar myndatökur _ má ég ekki snúa hnakkanum i ykkur?" spurði frú Elísabet, en lét svo okkur hita eins og formæður til leiðast að sýna þó annan vangann. Hérna er hún með skautbúninginn, sem hún ætlar a ðbera á sýningunni Frh. á 15. síðu. ' kv8ltl> en Því mi3ur siast ekl<i litirnir á myndinni. (Mynd: Gunnar Heiðdal). Snorri Sigfússon FERÐIN FRA BREKKU MINNINGAR II. BINDI í þessu bindi endurminninga sinna greinir höfundur frá fjölþættum störfum sínum á Flateyri ásamt kynnum og störfum víðar um Vestfirði, s. s. á ísa- firði. Eru minningar hans snar þáttur atvinnu- og félagsmálasögu á Vestfjörðum í nálega tvo áratugi. Ásgeir Ásgeirsson, fyrrverandi forseti íslands, ritar formála fyrir þessu bindi, og farast honum orð m. a. á þessa leið: „Snorri minnist fjölmargra manna í þessum ævisöguköflum, staðhátta, kaupstaða og sveitabrags, margs, sem ekki mátti gleymast með genginni kynslóð. M.inni hans er traust um allt, sem ég þekki til. Og frásögnin fjörleg, Ijós og lifandi, eins og Snorra var von og vísa, fjölskrúðug og hóf- sarnleg." Fyrra bindiS af endurminningum Snorra hlaut góSa dóma. Var ’það mjög samhljó^a niðurstaða, að „Ferðin frá Brekku vaeri góð bók og merkfleg" og „mikils væri misst, ef ekki hefði orðið af útgáfu," eins og margir gagnrýnendur komust að orði. A IÐUNN argus auglýsingastofa

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.