Alþýðublaðið - 10.12.1969, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 10.12.1969, Blaðsíða 9
ir í því augnamiði að fólk geti sent þá til vina sinna erlendis. Innihaldið er eins og áður er sagt, sitt lítið af hverju — harð- fiski, hangakjöti, reyktum laxi, kavíar, síld í tómatsósu og reyktri síld, rækjudós, lifrar og kindakæfu að ógleymdri dós með sviðum. Verzlunarstjóri matardeild- arinnar í Hafnarstræti 5, upp- lýsti að gjafakassar þessir væru mjög eftirsóttir, og þætti fólki gott að geta fengið þess- ar tegundir allar á einu bretti. Fólk verður sjálft að sjá um sendingu á kössum, vegna þess að meðan verzlunin sá um að senda slíka pakka fyrir við- skiptavini sína, hér áður fyrr, flís af sauðáá sköpuðust stundum leiðindi ef pakkinn glataðist af einhverj um orsökum. Umbúðirnar eru með álímd- um miða fyrir heimilisfang móttakanda og einnig eru á kassanum upplýsingar um inni- hald og að þetta sé gjöf. Sagði verzlunarstjórinn að þetta nýja fýrirkomulag heíði gefizt mjög vel og hefðu mörg fyrirtæki notfært sér það, til að senda erlendum viðskipta- j vinum sínum íslenzkan jóla- . mat. Verð kassans er kr. 890. AÍþýðu'blaðið 10. desember 1969 9 Heillaráð O Ef kakóið á að bragðast sem súkkulaði, er það bak- að upp í svolitlu smjöri, áður en heitu mjólkinni er blandað saman við. □ Hendur, sem eru orðnar hrjúfar af þvottum og öðrum. heimilisverkum verða fljótt fallegar og mjúkar, ef þær eru nuddaðar upp úr kaffi korg, þvegnar og þurrkaðar og síðan borinn á þær góður handáburður. O Hörn og jafnvef fullorðnir líka, eiga oft bágt með að taka inn bragðsterk meðul. — Það er reynandi að sjúga ís mola áður. Kuldinn gerir það að verkum að bragðið finnst ekki eins sterkt. □ Það er gott að prjóna sterkan tvinna með garn- inu í hælana á vetrarsokkun- um, þá þarf ekki að byrja eins snemma að stoppa í. □ Þegar búið er að slökkva undir pottunum á eldavél- inni, er ágætt að nota hitann á plötunni til að hressa npp á vínarbrauðin frá því í gær. Á plötuna er lagður álpappír, síðan vínarbrauðin og skál hvolft yfir. Þessa aðferð má einnig nota á gamalt brauð. □ Fyrir þær sem þurfa að handhræra eitthvað, er gott að setja skálina ofan í skúffu, loka henni síðan mátu- lega, þannig að skálin sitji föst. Þá er auðvelt að hræra. □ Setjið vaselín á skrúfu- gang naglalakksglassins strax og þið kaupið það. Þá þurfið þið ekki að erfiða við að reyna að opna glasið þegar lokið er límt fast. VELJUM ÍSLENZKT-||^|^ ÍSLENZKAN IDNAÐ „Ungamamma“ skrifar: Þetta er nú kannski ekki til- heyrandi húsmæðrahorninu, en ég sendi þetta að gamni mínu, í orðastað eldri dóttur minnar, sem stundum heyrist tauta eitt- hvað á þessa leið: Það er nú ekki alltaf gaman að vera stórasystir. Þó finnst mér stundum að litla systir sé sæt og góð, en ekki þegar hún tætir dótið mitt og rífur bæk- urnar mínar, eyðileggur teikn- ingarnar mínar og fer í leyfis- leysi í „leyndarmálaskúffuna!‘ mína. En það versta er, að þegar ég tek harkalega á henni fyrir þetta, þá kemur nú hljóð úr horni og mamma hrópar; Ertu frá þér að vera svona vond við barnið, sem er óviti, en þú svona stór stelpa. Svo situr litla væluskjóðan i fangi mömmu og þurrkar af sér skælurnar meðan hún horfir sigri hrósandi á mig, sem er augljóslega sú, sem sökina á. Mér finnst að það ætti að kenna henni að bera einhverja virðingu fyrir eignarrétti ann- arra, þá skyidi ekki standa á mér að segja já, þegar hún kem- ur svo blíð og ísmeygileg og segir — Viltu leika við mig? Dóra hefur sent uppskrift af Ijúffengum smákökum sem hún, nefnir Hafrakökur: i' 60 kr. haframjöl 100 gr. sykur 100 gr. hveiti 100 gr. smjörlíki (brætt) V2 dl. rjómi V2 dl. sýróp 1 deserskeið vanilla V2 tsk. ger Öllu blandað saman í skál og hrært vel. — Sett á plötu með teskeið, bakað við hægan hita. HUSMÆÐUR Jólaþvottur ODYRT ÓDÝRASTA HÚSHJÁLPIN STYKK J AÞVOTTUR: BLAUTÞVOTTUR: Sendið ennfremur: SÖLUSKATTUR INNIFALINN 30 stk. slátt-blandaö tau, stór og lítil stykki sem má sjóða saman. AÖEINS Á KR. 324.00- Minnst 9 kg. tau, sem má sjóða saman. Aðeins á kr. 162,00. Þurrkaður, hristur upp og tilbúinn til strauningar. Aðeins á kr. 189,00 Hvert kg„ sem fram yfir er á kr. 21,00. j B0RÐDÚKA: kosta kr. 27,00 ,nr. meter. SKVRTUR: FULLKOMINN FRÁGANGUR á kr. 30.00. ÞVOUM EINNIG ALLAN ANNAN ÞVOTT FYRíR EINSTKLINGA OG AÐRA. Sótt og sent um alla borgina, hvor ferð kr. 35,00. Félag þvottahúsaeigenda í Reykjavík. TRYGGIÐ YÐURRÉTT VERÐ BEZTU OG ÖRUGGUSTU ÞJÓNUSTUNA Þvottahúsið A. Smith Bergstaðastræti 52, Sími 17140. Þvottahúsið Skyrtur og sloppar Ármúla 20, Sími 34442. (LÍN) Þvottahúsið Þvottahúsið Ðrífa Eimir Baldursgötu 7, Sími 12337. Síðumúla 4, Sími 31460. Þvottahúsið Þvottahúsið Grýta Laug Laufásvegi 9, Sími 13397. Laugavegi 48A, Sími 14121. Fannhvítt frá miíSMSB ( •t*. •'•j, Langholtsvegi 113, Sími: 82220 — 82221.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.