Alþýðublaðið - 18.12.1969, Qupperneq 14
14 Alþýðublaðið 18. desember 1969
Framhaldssaga eftir Ellzabelh Messenger
Á f jallahótelinu
■— En hefði nú barnið konrið fram í kvöld eins
og til stóð, og og alt hefði heppnazt, þá var hún
alveg jafn nær, sagði Pat. — Ég var þó hérna enn
þá.
Lögreglufulltrúinrr hvessti augun á hana.
— Við það er víst réttast að setja spurningar
merki. Virginia myndi hafa haft einn eða tvo klukku-
tíma eftir að hún hafði falið peningana, þangað til
drengurinn kom heim. Hnífurinrr, sem ég minntist
á áðan — símhringing yfir í herbergl yðar, þar sem
þér voruð beðnar um' að koma yfir til skrifstou hr.
Frame — en þangað hefðuð þér aldrei komizt.
Það varð dauðaþögn andartak. Loks sagði Pat
eins og við sjálfa sig:
— Stephen, hann fékk mig til að koma hingað.
Hann hefur hagað sér furðulega....
— Sá herramaður, sagði lögregluforinginn, —
hefur um nokkurra ára skeið haft lífsviðurværi af
vitneskju þeirri, sem hann hefur í hjáverkum sínum
viðað að sér um fólk, sem síðan hefur orðið að borga
honum' ríkulega fyrir að þegja. Það er aldrei að vita,
nema hann hafi heyrt yður tala um Jinny og samvist
ir ykkar í skólanum, er þið voruð saman um borð.
Þar sem hún vildi bersýnilega ekkert hafa með hann
að gera, hefur hann hugsað með sér, að ef til vill
gæti hann srruðrað eithvað uppi, sem hann gæti
hagnazt á. Það var einnritt vegna svon uppátækja
hans, sem honum var hent út úr fjallahótelinu í Sviss
þar sem hann vann síðast.
Svo að það var þess konar aðstoð, sem Stephen
hafði verið að vonast til að fá hjá henni! Patricia
var orðlaus, svo mjög var henni brugðið.
Það var andartaks þögn í stofunni. Loks sagði
—frú Carlton þreytulega:
-— Og þetta var þá tengdadóttirin, sem við vild
um umfram allt elska og dekra við! En við höfum þó
Peter, og honum sleppum við ekki, Hún haljaði vang
anum upp að dökku höfði drengsins: — Hann er
ekki okkar af blóðskyldleika, en við ætlum að gera
hann að fóstursyni okkar, ef það er nokkur leið. Það
er einlægur ásetningur minn.
— Það skal áreiðanlega heppnast, sagði hr. Carl
ton. — Engin auðæfi í heimi geta keypt barn frá
foreldrum þess, en í þessu tilfelli hefur móðirin sam
þykkt að láta drenginn frá sér. Hvort svo sem það
hefur verið hennar vegna, eða vegna drengsins —
um’ það er ekki gott að segja, en sömu rökin eru þó
alltaf fyrir hendi.
36. KAFLI.
LOGREGLUFORINGINN gekk fram að dyrunum. Hann
leit sem snöggvast vingjarnlega á frú Carlton og
drenginn, en þau sáu ekkert nema hvort annað. Pat
gekk út á eftir honum. Við aðaldyrnar sá hún Meg og
Jerry, sem voru í áköfum samræðum. Hún gekk til
þeirra.
— Er þetta ekki stórkostlegt? sagði hún.
— Dásamlegt, svaraði Jerry og leit ekki af kaf-
rjóðu andliti Meg,
'Pat hló.
, i— Þú ert alveg óforbetranlegur, Jerry. Hún strauk
hendinni unv vanga hans og s neri sér sðan að Meg:
— Ég er svo ósegjanlega glöð ykkar vegna.
Hún gekk gegnum glerdyrnar út á breiðar tröpp-
urnar. Skyndilega var John Webley kominn upp að
hlið hennar. Þegjandi tók hann undir handlegg henn-
ar. Stjörnurnar tindruðu yfir höfðum þeirra, og mán
inn, sem var rétt kominn upp fyrir fjallsbrúnina, varp
aði birtu á snjóinn.
— Hvað mér þykir leiðinlegt, að allt þetta skuli
hafa verið lagt á vesalings gömlu hjónin, sagði Pat,
en svo mundi hún allt í einu eftir öðru og leit upp á
hanrr. — Það var líka fiörm'uiegt, að þetta skyldi
koma fyrir þig, sagði hún lágt.
— Fyrir mig? Hvað áttu við? spurði John.
— Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir þig að
hlusta á allt þetta um stúlkuna, sem þú varst í þann
veginn að kvænast.
Hann sneri sér við og leit á hana:
— Hverri ætlaði ég að fara að kvænast?
— Virginiu! Hún sagði mér það sjálf!
— Og hvenær sagði hún þér það?
— Fyrsta daginn minn hérna, daginn, sem þú
ihjálpaðir mér til í kaffistofunni. Það mætti segja
mér, að hún hafi séð það á mér, að mér geðjaðist
mjög vel að þér. Svo að þetta hefur átt að koma í
veg fyrir, að ég færi að gera mér nökkrar vonir.
— Svo að Virginia sagði þér, að ég ætlaði að gift
ast henni?
Það korn' kökkur í hálsinn á Patriciu.
— Stóð það ekki til?
— Nei, alls ekki„ svaraði John. — Ég hef aldrei
haft neinar hugrenningar í þá átt — satt að segja
var mér í nöp við hana frá því ég sá hana fyrst, en
ég varð að umgangast hans, vegna gömlu hjónanna,
því að það er nú einu sinni hluti af starfi mínu að
sjá um að allt fari vel og skikkanlega fram, ekki
sízt þegar þau eiga í einhverjum erfiðleikum eins og
núna upp á síðkastið.
Hann þagnaði og horfði lengi innilega á Pat.
— Hvað varðar stúlkuna, sem ég ætla mér að
kvænast, þá hef ég á allri minni lífsleið aðeins hitt
eina stúlku, sem ég umhugsunarlaust myndi ganga
að eiga á stundinni. Það er stúlka með slétt hár,
sem sindrar eins og tunglsljós á snjónum, með augu
sem eru fögur, hlýleg og hreinskilnisleg. Sem allt-
af eru reiðubúin að brosa. Þess konar ást hef ég
aldrei verið sérlega trúaður á, það er að segja, ást
við fyrstu sýn — að maður geti sagt á stundinni:
þessi stúlka er stúlkan mín! En svona hefur nú
samt fariðJyrir mér. Það kom stúlka til fjallahótels-
ins, og á samri stundu og ég sá hana, vissi ég al-
vég fyrir fullt og fast, að það var þessi stúlka, sem
ég myndi ganga að eiga, ef þá hún vildi giftast
mér — vilt þú giftast mér, Patricia? Ástin mín!
Hann laut niður og kyssti hana og Patricia leið
inn í faðm hans, svo gagntekin hamingju, að hún
átti engin orð.
Hvað okkur, hugsaði hún, er sagan ekki á enda,
hvað okkur srrertir, er þetta byrjunin.... Það var
einu sinni... .á fjallahóteli....
SÖGULOK.
Smáauglýsingar
TRÉSMÍÐAÞ J ÓNUSTA
Látíð fagmann annast viðgerffir og viðhald á tréverki húseigna
yffar, ásamt breytingum á nýju og eidra húSnæffi. —
Sími 41 0 5 5 '
VOLKSWAGENEIGENDUR!
Höfum fyririiggjandi: Bretti — Hurffir — Véfarlok — Geymslu
lok á Volkswagen f allflestum litum. Skiptum á einunt ðegi
meff dagsfyrirvara fyrir ákveffiff verff. Reyniff viffskiptin.
Bílasprautun Garðars Sigmundssonar,
Skipholti 25 — Símar 19099 og 20988.
PÍPULAGNIR . '
Tek aff mér viðgerffir og uppsetningu á hreinlætistækjum,
frárennslis- og vatnslögnum.
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
Simi 18 717
I
I
i!
i
i
i
PÍPULAGNIR.
Skipti hitakerfum. Nýlagnir, viffgerffir, breytingar á vatns-
leiffslum og hitakerfum. Hitaveitutengingar. Þétti heita og
kalda krana. Geri viff WC-kassa. — Sími 17041. '
HILMAR J. H. LÚTHERSSON,
pípulagningameistari.
Jarðýtur - Traktorsgröfur
l
i
l
Höfum til leigu litlar og stórar jarffýtur og traktorsgröfur
cg bílkrana, til allra framkvæmda, innan og utan borgar-
innar.
F.eimasímar 83882 33982.
Jarðvfnnslan sf.
Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080.
Matur og Bensín
ALLAN SÓLARHRINGINN .
VEiTINGASKÁLINN, Geilhálsi