Alþýðublaðið - 30.12.1969, Qupperneq 1
Alþýðublaðið hefur það eftir
heimildum í Ólafsvík, að í ráði
sé, að HraðfrystDiús Ólafsvík-
ur h.f. kaupi hraðfrystihúsið
Kirkjusand þar vestra, sem er í
eigu Sambands íslenzkra sam-
vinnuféiaga. Kirkjusandi var
lokað og allri starfi-ækslu húss-
ins hætt í byrjun ágúst í sumar
og var þá öllu starfsfólki sagt
upp störfum. Biaðinu tókst ekki
að fá fulla staðfestingu á þess-
um eignabreytingum hjá við-
komandi aðiium í gær, enda
mun enn ekki vera búið að
skrifa undir samninga þar að
lútandi.
í Eins og fyrr segir mun vera
í bígerð, að Hraðfrystihús Ól-
afsvikur kaupi allar eignir
Kirkjusands og þar á meðal
eignarhluta þess í síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunni á staðn
um. Hins vegar mun vera gert
ráð fyrir því, að einhver hluti
freðfisks-framleiðslu Kirkju-
sands verði áfram seld í SÍS-
umbúðum.
Tveir bátar, sem verið hafa
í eigu Kirkjusands í Ólafsvík,
hafa þegar verið seldir. Valafell,
sem er 70—80 tonna skip, mun
Jónas Guðmundsson skipstjóri í
Ólafsvík hafa keypt, og verður
það því væntanlega gert áfram
út frá Ólafsvík, en Guðmundur
Þórðarson, sem er um 300 tonna
skip, mun hafa verið seldur til
Grindavíkur, og munu íbúar Ó1 •
afsvíkur því ekki njóta þessa
framleiðslutækis í framtíðinni.
Tíðindamaður blaðsins í Ól-
afsvík tjáði blaðinu í gær, að
þessi uppskipti vektu mikla at-
hygli þar í byggðarlaginu og
þættu mikil tíðindi.
I
I
I
1
Alþýðublaðið spyr:
Hver er sjónvarpsmaður ársins!
Magnús Bjarnfreðsson
efstur með 15 afkvæð!
í sambandi við áramót er oft
venja að spyrja fólk hver sé
maður ársins. Þegar við á rit-
stjórninni fórum að hugleiða
hvort þessi spuming skyldi bor
in upp, þá fannst okkur í fljótu
bragði að sviptingar í þjóðlíf-
inu hefðu ekki verið það miklar
á því ári sem er að líða, að al-
menningur ætti auðvelt með að
svara spurningunni. Þess vegna
datt okkur í hug að spyrja; —
Hver er sjónvarpsmaður ársins?
Við spurðum 66 viðs vegar á
landinu, og fengum að sjálf-
sögðu margvísleg svör. í flest-
um tilfellum gekk greiðlega að
fá svör, einstaka vildi alls ekki
gera upp á milli fréttamann-
anna, en þeir voru efst í hug-
um margra. Eitt svar var ó-
venjulega snjallt, og við látum
það fljóta hér með: „Gylfi Þ.
Gíslason er hiklaust sjónvarps-
máður ársins, þvi: íað hann
kemst betur út úr þeim vanda-
málum sem lögð eru fyrir hann
en sjálfur dýrlingurinn.“ Við
gerum enga kröfu til að „skoð-
anakönnun“ okkar sé tekin há-
alvarlega, en óskum Magnúsi
Bjarnfreðssyni og öðrum þeim
sem nefndir eru, til hamingju.
31 maður hlaut atkvæði, en
eitt kom okkur sérstaklega á
óvart; enginn nefndi Kimble
flóttamann!
Eiður Guðnason 8
Svavar Gests 1
Chaplin 1
Magnús Bjarnfreðss. lö
Armstrong 3
Ben. Gröndal 2
Hannibal Valdimarss. 2
Gylfi Þ. Gíslason 6
Björgvin Halld. 1
Bjarni Ben. 2
Markús Örn 4
Ingimar Eydal 1
Kristín Pétursd. 1
Ronnie Corbett 1
Somes 1
Þór Magnússon 1
David Frost J!
Harðjaxlinn 2
Sigurbjörn biskup 1
Lassí 1
Dýrlingurinn 1
Ólafur Gaukur 1
Ólafur Bagnars 1
Eggert G. Þorst. 1
Herbert Lomm 1
Har. J. Hamar 1
Andrés Indriðason 1
Frh. á 4. síðu.
Magnús nr. 1
Eiður nr. 2.
veður
’amGiufu
□ Gert er ráð fyrir stilltu
veðri og úrkomulausu um ára-
mótin, að sögn spekinganna á
Veðurstofunni í morgun, cg
vægu frosti.
33 brennur verða í borg-
inni um áramótin, þ. e. a. s.
brennur sem lögreglan hefur gef
ið leyfi fyrir, en auk þeirra
verða 15 bállcestir í borginni.
Stærsta brennan verður borg-
arbrennan við Kringlumýrar-
braut/Miklubraut, en í henni
verður kveikt kl. 22.30. Að svo
mæltu óskum við lesenðum okk
ar gleðilegs nýs árs. —
Gylfi nr. 3.
BSŒFf&m
„Ekki mega aiiglýsistgar misnota vanþroska eða frúgirni barna", segir í reglum sjónvarpsins
í auglýsingaflóði sjónvarps-
ins fyrir jólin birtust auglýs-
ingar frá Sana-verksmiðjunum
á Akureyri sem valdið hafa
miklu umtali og í mörgum til-
fellum hneykslan. Myndirnar
voru þrjár, og var ein þeirra
tekin mjög fljótt úr umferð, þar
sem inntak myndarinnar var
upglingum sérstök hvatning til
að drekka Thule öl. Ekki þótti
fólki það nóg og bárust svo
margar kvartanir vegna mynd-
arinnar, þar sem bófi í snöru
átti þá síðustu ósk að fá Thule,
að ákveðið var í morgun að
hætta sýnmgum á þeirri
mynd, og stendur þá eftir síð-
asta myndin, þar sem fulltrúi
vizkunnar, sjálfur Sókrates,
getur ekki neiíað sér um að fá
sér einn Tliule!
Margir bentu réttilega á að
snöruimyndin væri mun hættu-
legri en myndin þar sem ung-
lingarnir voru að drekka bjór-
inn. Börn taka auglýsingar
mjög alvarlega og -herma gjarn
an eftir því sem birtist á skerm-
inum. Sjá allir að slík mvnd
er alltof hættulegt fordæmi, —
enda segir svo í reglum um
flutning auglýsinga í sjónvarpi:
„7. gr. Auglýsingar skulu
miðast við, að börn sjái þær, og
mega á engan hátt misbjóða
þeim. Ekki mega auglýsingar
misnota vanþroska eða trúgirni
bama eða vekja hjá þeim trú,
að þeim sé eitt eða annað nauð-
synlegt af annarlegum ástæðúm,
svo sem samanburði við önnúr
börn eða vegna útlits.“ Emi
fremur segir í reglunum að
auglýsingar „skuli látlaust orð-
aðar, lausar við skruin og hæpn
ar fullyrðingar, en segi það eitt
eða sýni, sem satt ev og rétí í
öllum greinum,“