Alþýðublaðið - 10.03.1970, Page 3
Þriðjudagur 10. m,arz 1970 3
LOÐNUAFLINN SL. LAUG-
ARDAG 12 ÞÚS. IONNUM
MINNIEN IFYRRA
í msrfjíi var heildaraflinn að nálgast
80.000 fORD
□ Samkvæmt upplýsingum
Fiskifélags íslands höfðu alls
bprizt á ía.nd á laugardaginn,
56,885 tonn af loðnu. en á sama
tíma í fyrra var heildarloðnu-
aflinn 69,722 tonn.
62 bátar eru komnir á skrá
hjá FÍ með einhvern afla og
ðar af hafa 26 bátar yfir 1000
tonn.
Hæstur er Gísli Arni (skip-
stjóri Eggert Gíslason) með
1909 tonn, þá Súlan (skipstjóri
Hrólfur Gunnarsson) með 1761
tonn, Birtirígur með 1669, Gígja
1631 og Hilm.ir með 1570.
Hæstu löndunarstaðir eru
Vestmannaeyjar með 23.450
tonn, Neskaupstaður 7,861
tonn og Fáskrúðsfjörður með
3,508 tonn.
Allar tölur eru miðaðar við
s. 1. laugardag, en síðan hafa
komið á land um 20.000 tonn.
Ágætur afli síð-
asta sólarhring
[~| Síðasta sólarhring fengu
25 bátar 5920 tonn af loðnu á
tv.eim veiðisvæðum fyrir Suð-
urlandi. Við Ingólfshöfða feng-
us.t 2300 tonn, en hitt á svæð-
inu milli Skaftáróss og Skarðs-
fjöruvita.
í morgun.var veður farið að
versna við Ingólfshöfða og lík-
lega ekki vinnuveður, en á ves't
ursvæðinu var sæmilegt veður.
Loðnan stóð frekar djúpt við
Ingólfshöfða í gær og aflinn qr
að mestu fenginn í gærkvöldi.
Þessir bátar fengu afla: Gígja
250 .tonn. Reylcjaborg 320, Dag-
faxá 260, Örn 300, Örfirisey 330,
Huginn. II 220, Hafrún 230,
Helga II 290. Ásgeir 240, Giss-
ur hvíti 200, Krossanes 200,
Hilmir 100, ísleifur IV 200,
Höfrungur II 210, Gjafar 220,
Alcurey 300, Þorsteinn 250,
Bára 130, Bergur 200, Halkion
210, Súlan 400, Jörundur III
240, Bjarmi II 200, Héðinn 250
og Gullver 170 tonn. —
ÍSLENDINGAR
MEÐ BRETUM
í deilunni um laxveiðar á N.-Ailantshafi
P Wilson, forsætisráðherra
Breta, er bjartsýnn á að við-
ræður geti hafizt við Dani, er
leiði til lykta deiluna um lax-
veiði við Grænland. Kom þetta
fram í fyrirspurnartíma í brezka
þinginu í vikunni sem leið.
Laxveiðideiluna bar einnig á
góma í viðræðum Wilsons og
Willy Brandts, kanzlara V,-
Þýzkalands, en Þjóðverjar
styðja Dani í þeim efnum.
Finnst þeim krafa þeirra ríkja,,
er hagsmuna eiga að gæta vegna
laxaræktar í ám og vötnum, ó-
aðgengileg. Það eru Bretar og
Kanadam.enn, sem einkum eru í
forsvari fyrir þau ríki, og krefj-
ast þau 10 ára banns við lax-
veiði í úthöfum.
ísland er í hópi þeirra 15
ríkja, sem andvíg eru þessum
veiðum, og sæti eiga í nefnd
þeirri; er ákveða skal framtíð.
laxveiði á Norður-Atlantshafi.
Þessi myndl var tekin í Kópavogi er sameiginlegt prófkjör flokkanna fór
fram um 'helgina. •—
Hinn 15. apríl fer
M.S. Gullfoss í sérstaka
skemmtisiglingu með
skíðafólk til fsafjarðar.
í ferðinni verður skíða-
kennari, sem leiðbeinir
þeim, sem þess óska.
Farþegar búa i M.S. Gulifossi
allan tímann.
Kvöldvökur, dans og margs
konar skemmtanir fyrir
farþega um borð
f skipinut
Veizlumátur á borðum.
Verð frá kr. 3.370,00 Fæði og þjónustugjald innifalið.
Allar nánari upplýsingar veitir: FARÞEGADEILD EIMSKIPS, SÍMI 21460
H.E EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
Skíðaferð
Skemmtisigling til ísafjarðar