Alþýðublaðið - 10.03.1970, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 10.03.1970, Qupperneq 13
RITSTJÓRI: ÖRN EIÐSSON © m er IHR9TTIR Þessi mynd er frá HljómSkálahlaupi ÍR, sem háð var á sunnudaginn. Þátttaka 1 var mikil, íen nánar verður skýrt frá úr slitum í hlaupinu síðar. Einar Sæmundsson endurkjörinn formaður KR: KR-INGAR UNNU 2967 STUNDfR Í SJÁLFBOÐAVINNU VIÐ ÍÞRÓTTAHÚS FJÁRHAGUR FÉLAGSINS Það kom fram í reikningum fé- lagsins, að fjárhagur KR stend- ur traustum fótum, þar sem hrein eign þess er bókfærð á 8.6 millj. kr., og ennfremur að ' tekju.afgangur varð hjá félaginu á starfsárinu. Er það í fyrsta skipti í mörg ár, að ekki er rekstrarhalli á ársreikningi fé- lagsins í heild, en það mun að nokkru stafa af nýjum tekjulið á árinu, þ. e. getraunastarf- semi, en KR-ingar hafa gengið ötullega fram í sölu getrauna- seðla. ( byggingar- FRAMKVÆMDIR , j KR-ingar eiga í smíðum nýjan ' íþróttaskála á félagssvæði sínu við Frostaskjól, og var unnið við byggingu þessa fyrir tæpar j Í/4 millj. kr. á starfsárinu, þann ig að samtals hafa verið lagðar í þessa nýju byggingu um 4 millj. kr. KR-ingar hafa drjúgum unn- ið sjálí'boðavinnu við bygging- arframkvæmdir sínar, og hafa þeir lagt fram 2367 stundir í sjálfboðavinnu við nýju bygg- inguna. Þá voru ísleifi Þorkels- syni færðar þakkir fyrir ágætt starf og forgöngu að uppsetn- ingu ljósaskiltis með félags- merkinu á KR-heimilið. KR 70 ÁRA KR varð 70 ára á s. 1. ári, og höfðu KR-ingar uppi mikil há- tíðahöld í tilefni þessa afmælis. Haldin var vegleg afmælishátíð á Hótel Sögu, flestar íþrótta- deildir félagsins héldu afmælis- mót og sýningar og myndarlegt félagsblað var gefið út í umsjá Ellerts B. Schram og Þórðar Sigurðssonar. f tilefni afmælis- ins var Sigurður Halldórsson, fyrrv. formaður Knattspyrnu- deildar félagsins, gerður heið- ursfélagi KR fyrir frábært starf í þágu félagsins, Sveinn Björns- son sæmdur stjörnu KR, en Gullmerki með lárviðarsveig hlutu Ólafur Þ. Guðmundsson, Þórir Jónsson, Árni Magnússon, Sigurgeir Guðmannsson og Hans Kragh. 10 ÍÞRÓTTADEILDIR Alis eru nú starfandi 10 íþrótta deildir innan KR og mikill dugn aðu.r og áhugi ríkir innan þeirra, þó að afrek og.fjör sé misjafnt eins og gengur. Knattspyrnufélag Reykjavík- ur hélt aðalfund sinn fyrir starfs | árið 1969 í KR-heimilinu við . Frostaskjól mánudaginn 26. jan. I s. 1. Fundinn sátu 87 fulltrúar j frá 10 deildum félagsins, aðal- * stjórn og hússtjórn. Fundarstjóri I var Haraldur Gíslason, en fund | arritari Gunnar Felixson. í upphafi fundar minntist for | maður KR, Einar Sæmundsson, I fjögurra KR-inga, sem létust á ■ starfsárinu, þeirra Davíðs Ólafs 8 sonar, Nieljohníusar Ólafssonar, | Helga Guðmundssonar og Ge- I orgs Kjartans Hannessonar. I Risu fundarmenn úr sæíum sín- | um til að votta þessum látnu , félögum virðingu og þakkir fyrir I störf í þágu félagsins, en tveir I þeir fyrsttöldu voru heiðursfé- ■ lagar KR. Gunnar Sigurðsson, ritari að- I ' alstjórnar, flutti skýrslu aðal- I " stjórnar . og ennfremur úrdrátt úr skýrslu hinna einstöku deilda, I en allar deildir höfðu haldið að- I ■alfundi sina, áður.en aðalfundur I félagsins varð haldinn. Sveinn I Björnsson flutti skýrslu og I reikninga hússtjórnar, og gjald- 1 Framhald á bls. 11. FANN VEILUNA VÖRN - og vann sigyr m: □ íslandsmeistararnir ÍR hefndu ófaraTina frá fyrri um- ferð íslandsmótsins gegn KR í fyrrakvöld, og sigruðu með 15 stiga mun, 85—70. ÍR tók strax forystu í leikn- um, 10-6, 24-12, 35-16, og í hálflei’k var 18 stiga munur, 44-26. Nú gekk leiikaðferð f'R- ingann'a gegn svæðisvörninni, sem KR lék, alveg glimrandi vel, O'g munaði þar mest um að Kristinn Stefánsson, sem leikur lykiifhlutveírk í vörninni, sat meiddur á bekknum, en þeir sem hlupu í skarðið reyndust ekki valda hlutverkli Kristins. Flest stig ÍR voru skoruð undir .körfu, og tókst ÍR-ingum, með Kristin Jönindsson og Sigurð Gíslason í broddi fylkin'gar að plata varnarmen'n KR, þá sem gæt'a áttu svæðisins undir körf- unni, upp úr skónum, ef svo má að orði komaist. ÍR-Lngar voru líka tiibúnir að mæta Eih- ari Bollasyni, sem reyndiEt þeim svo erfiður í fyrri leikn- □ Kristinn Jörundsson skor- aði 31 stig gegn KR á sunnu- daginn, og átti mjög góðan ieik. Þessi ungi maður er orð- inn ein af máttarstoðum ÍR- liðsins. og hefur vafeið at'hygli fyrir frábæna hæfileika í körfu- Jsnattleiknum. um, enda veittist þeim það léttj riú, þegar Kristins StefánsBonar naut ekki við. Síðari hálfleikur var hnifj afn, og reyndar vann KR hann með. 3 stigum. Nú fóru KR-ingar að skjóta meira fyrir utan í stað. þess að troða boltamum inn á? miðju til Einars, þar sern hann- lenti venjulega í höndum ÍR- ih'ga. Gekk þá mun betur, en vörn KR vair sú sama. Flestar sóknarlotur ÍR-inga emduðu inni undir körfu KR, þar sem lítið var um varnir og ÍR-ingar unnu léttan siigur, 85-70. ÍR-in'gar vissu hvar veilian var í vöminni hjá KR, þegar Kristin Stefánsson vantaði, og notfærðu sér það óspart. Af sömu orsökum veittist þeim vömin létt. Þessi munur er of mikill til að hann gefi rétta hug mynd um styrkleika liðianna, en ef að líkum lætur gefst körfu- kniatt'leilksunn'endum kostur á að sjá þau aftur í keppni inn- an skamms. Þó getur undan- keppnin fyrir þriggja leikja úr- slitin gert strik í þamn reikn- ing eins og kunnugt er. Kristinn Jörundsson var lan'g bezti maður ÍR, og átti alveg sérstakt'ega góðan leík. Hann skoraði 31 stiig, en Si’gurður Gíslason, sem kunni frjálsræð- inu undir körfu KR vel, skor- aði 18 stig. Birgir Jaknhsson var ekki mjög virkur í þessum lerilk, en skoraði samt 15 stig, en Þorsteinn Ha'llgrímsson átti' mjö'g góðan varnarleik, og skor- aði auk þess 14 stig. Einar Bollason skoraði 20 stig fyrir KR, en næstir komu Bjamí Jóhannesson með 15, Stefán Hallgrímsson með 14 og Kol- beinn Pálsson, bezti maður liðs- ins með 13 stig. — gþ. VELJUM ÍSLENZKT-/MV ÍSLENZKAN IÐNAÐ U»4/

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.