Alþýðublaðið - 28.04.1970, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 28.04.1970, Blaðsíða 3
Þriðjudagur ,28. apríl 1970 3 sl-y Menntamálaráðherra á blaðamannaiundi í gær: Óskir stúdenta veröa teknar til athugunar □ „Ég tel, að þær upplýsiugar, sem borizt hafa fjölmiðlum frá ýmsum hópum íslenzkra námsmanna erlendis og stjórn SINE, Samhandi íslenzkra náms- manna erlendis, séu í veigamiklum atriðum svo vill- andi, að nauðsynlegt sé, að ég skýri málið svolítið frá sjónarmiði ríkisstjórnarinnar“, sagði dr. Gylfi Þ. Gíslascn, menntamálaráðherra, í upphafi blaðamanna fundar, sem hann hélt í gær. „Þess er fyrst að geta, að sá aðili. sem á að hafa skipti við mennta'málaráðimeytið fyri-r hönd íslenzkra stúdenta erlend- is, er stjórn SÍNE. Hún er að vissu leyti löggiltur fulitrúi þeirra, því áð lögum samkvaemt á hún ful’ltrúa í stjórn Lána- sjóðs íslenzkra námsmanna. Þá er þess að geta, að þær óskir, sem fundirnir við sendi- ráð íslands erlendis áttu að undirstrika, hafa aldrei verið sendar menntamálaráðuneytinu af stjóm SÍNE. Hins vegar skrifaði stjórn SÍNE Lánasjóði íglenzkra námsmanina á síðast- liðnum vetri — 24. nóvember 1969 — þai' sem ósldr eru sett- ar fram um 100% námsaðstoð vegna svo'kallaðrar umfram- fj árþarfai' á fjórum árum. Þar eð þá var búið að taka ákvörð- un um fjármál sjóðsins 1970 og auka ráðstöfunarfé hans úr 62 milljónum krónum í 86 milljónir króna, tjáði Stjóm Lánasjóðsins stjóm SÍNE, að þessar óskir kæmu of seint fram og þær yrði ekki unnt að taka til meðferðar fyrr en við undirbúning fjárlaga 1971. MÁLIÐ TEKIÐ UPP Á NÆSTA ÞINGI Mér var skömmu síðar afhent a'flrit af þessu bréfi til Lána- sjóðsins af formanni SÍNE og formanni Stúdentaráð; og sagði ég þeim þá, að málefni sjóðsins hefðu þegar verið afgi'eidd fyr- h' árið 1970, en þetta mál skyldi að sjáifsögðu verða tekið upp fyrir undirbúning fjárlaga 1971.“ FYRIRVARALAUS FUNDARHÖLD 17. þ.m. — eða fyrir tíu dög- um — barst ráðuneytinu bréf frá Lánasjóðnum um þetta mál, en í stjóm Lánasjóðsins eiga sæti bæði fuBtrúar stúdenta heima og erlendis. Með öðrum orðum — áður en ráðuneytinu og ríkisstjórn- inni gefst nokkuð ráðrúm til þess að kynna sér og athuga hugmyndir Lánasj óðsiins, etru hafin fundairhöld úti um heim um málið og óskað eftir tafar- lausri afstöðu". \ AÐSTOÐIN HÆKKI í ÁFÖNGUM Bréf Lánasjóðs íslenzkra námsmanna, sem ráðherrann vitnan- í, er dagsett 11. apríl s.l. ög er á þessa leið; Eftirfarandi samþykkt var í dag gerð einróma: „Stjórn Láuiasjóðs ísl. náms- manna samþykkii' að beina þeim tilmælum til menntamál'a ráðuneytisins, að á næstu árum Skuli námsaðstoð hækka í á- föngum þannig að mankmiði 2. gr. laga um námslán og náms styrki verði náð við úthlutun á árinu 1975“. Undir umræðum um mál þetta kom fram, að það er ein- róma álit sjóðsstjórnarinnar, að samfara aukinni námsaðstoð beri að gera erm meiri ki'öfur til framvindu í námi en nú er gert. Sömuleiðis, að fyllilega komi til greina að setja sérstak ar reglur um endurgi-eiðslu lána þeirra námsmanna, sem ánnaðhvort hætta námi eða ljúka því að vísu, en hefja starf erlendis. Stjórn sjóðsins mun við gerð tillagna sinna til fjárlaga fyrir næsta ár byggja á þessari sam- þykkt og leggja fyrir hið háa- ráðuneyti útreikninga sína þar að lútandi“. I AÐSTOIN HEIMA OG ERLENDIS Þá sagði dr. Gylfi Þ. Gísla- son, menntamáliaráðherrá, á- fram: Ég hef hér tölur um það, hversu miklu námsaðstoðin hef ur numið heima og erlendis undanfarin þrjú ár í hlutfalli af heildarfjárþörf og sömuleið- is um það, hve hið óbrúa$a bil er stórt. i Hvað námsmennina erlendis snertir, hefur námsaðstoðin numið því, sem hér segik; og er þá miðað við heildarfjár- þörf; Árið 1967 — 36% 1 árið 1968 — 42% árið 1969 — 45%. , Óbmaða bilið var því á iþess- um árum: Árið 1967 — 31% , árið 1968 — 32% , árið 1969 — 26%. c H'já stúdentum heiima eru tölurnar þessar: Árið 1967 — 21% , árið 1968 — 26% érið 1969 — 30%. j Óbrúaða bilið; j 1967 — 27% ( 1968 — 30% 1969 — 28%“. Framh. á bls. 15 Sementsverksmiðjan ij j býður bæjar- og sveitar félögum sement til gatnagei;ðar á árinu 1970 með mjög :: hagstæðum kjörum Sementsverksmiðja ríkisins Akranesi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.