Helgarpósturinn - 05.01.1995, Blaðsíða 6

Helgarpósturinn - 05.01.1995, Blaðsíða 6
6 MORGUNPÓSTURINN FRÉTTIR FIM1WTUDAGUR 5. JANÚAR 1995 1 Er virkilega svo erfitt að búa á Vestfjörðum að íbúar þar þurfi sérstaka aðstoð? Minnsta atvinnu- leysið, flestar félags- legaríbúðir, mesta framkvæmdaféð, hæstu styrkimir, flest láninog tekjumar Vestfírðingar hafa undanfarið notið margvíslegrar, sérstakrar að- stoðar sem meðal annars hefur verið rökstudd með slæmu atvinnu- ástandi á Vestfjörðum. Hinn n. maí 1994 voru samþykkt lög um að veita ríkissjóði heimild til að láta Byggða- stofnun hafa allt að 300 milljónir króna til þess að standa straum af víkjandi lánum til sjávarútvegsfyrir- tækja á Vestfjörðum vegna slæmrar stöðu þeirra. Þetta voru; „Lög um ráðstafanir til að stuðla að stœkkun atvinnu- og þjónustusvœða á Vest- fjörðum í kjölfar samdráttar í þorsk- afla.“ Ætlunin var að greiðslan tengdist sameiningu sveitafélaga. í ágúst síðastliðnum var síðan auglýst eftir umsækjendum um lán frá Byggðastofnun. Samkvæmt fjár- aukalögum fær Byggðastofnun 370 milljóna króna aukaframlag og eru 300 milljónir þeirra teknar frá fyrir Vestfirðina í samræmi við áður- nefnd lögin frá því í maí. Röksemdir fyrir þessum sértæku aðgerðum vegna Vestfjarða voru þær að at- vinnuástandið væri illa statt þar. Undanfarna daga hafa heyrst um- kvörtunarraddir frá mönnum sem telja að Vestfirðingar hafi notað Vestfjarðaaðstoðina til að kaupa kvóta úr öðrum landshlutum. Minnsta atvinnuleysið Staðreyndin er hins vegar sú að atvinnuleysið er hvergi minna en á Vestfjörðum. Meðalfjöldi atvinnu- lausra þar í nóvember var 1,5 pró- sent af áætluðum mannfjölda ef stuðst er við nóvembertölur Vinnu- málaskrifstofu félagsmálaráðuneyt- isins. Það er lægsta talan á landinu. Til samanburðar má nefna að hæsta meðaltalið var á Norðurlandi eystra, 5,8 prósenta atvinnuleysi. Hafði at- Lán Byggðastofnunnar Suðurl.ind ' i ■ Austurland |ll||l|| Norðurl. oystra | - E Norðurl. vcstra, 3 i Vo«tfirðlr||j| 11 Vcsturland1; ' Reykjanos > Rcykjavík ||||j 5( : 30 1. i 000 1.5 nilljónir krór i00 2.000 la vinnulausum á Vestfjörðum fækkað um 4,4 prósent ef miðað var við nóvember í fyrra og er nú 1 prósent atvinnulausra landsmanna á Vest- fjörðum. Vestfirðingar eru 3,6 prósent landsmanna ef miðað er við mann- fjölda í árslok 1993. Þar hefur verið samfelld fólksfækkun í langan tíma þrátt fyrir augljósar stuðningsað- gerðir við byggð þar. Fólkið virðist eigi að síður telja lífið vænlegra ann- ars staðar, atvinnuleysið flyst ein- faldlega í burtu. Ekki er það hús- næðið sem togar fólkið í burtu því þrátt fyrir að Vestfirðingar séu nú aðeins 3,6 próesent landsmanna þá eru hlutfallslega flestar félagslegar íbúðir á Vestfjörðum eða 3.595 íbúð- ir sem er 13,13 prósent af öllu íbúðar- húsnæði þar og 5,2 prósent af félags- legu íbúðarhúsnæði á landinu. Það blasir hins vegar við að ef á að byggja félagslegar íbúðir fyrir Vestfirðinga þá verður að gera það annars staðar á landinu þar sem þeir eru að færa sig um set. Hæstu meðallaunin í þessu sambandi er einnig for- vitnilegt að benda á að meðallaun á Vestfjörðum hafa um langt skeið verið með þeim hæstu á landinu. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóð- hagsstofnun voru meðaltekjur þar 1.548 þúsund krónur árið 1993 sem var 7,3 prósentum hærra en landsm- eðaltalið. Þetta er athyglisvert að skoða í ljósi samantektar sem Þjóð- hagsstofnun gerði árið 1988 en þá voru laun á Vestfjörðum greidd á árinu 1987 6,3 prósent hærri en landsmeðaltalið. Miðað við það ár hafa Vestfirðingar sótt í sig veðrið. Rétt er þó að taka fram að þeir höfðu þá lækkað, því árið 1986 voru meðallaun á Vestfjörðum 9,4 pró- sent hærri en landsmeðaltalið. Launin á Vestfjörðum voru 14,1 prósenti hærra en á Norðurlandi vestra þar sem þau voru lægst. Fyrir vikið má gera ráð fyrir að Vestfirð- ingar greiði hærri skatta en aðrir landsmenn. Ef álagningaryfirlit ein- staklinga eru skoðuð þá kemur í ljós að 3,6 prósent tekjuskatts einstak- linga kemur til á Vestfjörðum og vill svo skemmtilega til að það er sama prósentutala og íbúafjöldinn. Vest- firðingar greiða hins vegar aðeins 1,2 prósent eignaskatts á landinu. Þeir fá hins vegar 1,98 prósent vaxtabóta og 3 prósent barnabótaauka. En það kostar einnig meira en annars staðar að reka skattstofuna þar eða rúmar 3000 krónur á íbúa sem er 27 prósentum hærra en rekst- ur Skattstofunnar í Reykjavík. Að- eins Skattstofa Vestmannaeyja er dýrari, með 3358 krónur á hvern íbúa. Matthías Bjarnason alþingismaður Vestfirðinga „Það hefur verið gengið á Vestfirði um- fram aðra landshluta og þetta er búið að margsanna af mönnum utan Vestfjarða svo við skulum lofa Vestfirðingum að vera utan við þetta. Ef Vestfirðingar mættu eiga sín mið sjálfir þá þyrftu þeir enga aðstoð; ekki nokkra. Hvorki í vegagerð, heilbrigðismál- um, fræðslumálum eða neitt, þeir þurfa bara að fá að eiga sín fiskimið, einir og sér.“ En ef maður lítur á atvinnuleysistölur á Vestfjörðum þá virðast þeir standa öðrum betur? „Það er vegna þess að fólkið er farið í burtu. Ef við hefðum beðið eftir því að allir væru farnir þá væri auð- vitað ekkert atvinnuleysi og þar af leiðandi ekki þörf fyrir neitt, all- ar eignir yfirgefnar. Það er búið að margsegja það og sanna af hlutlausum aðilum að enginn landshluti hefur farið ver út úr fisk- veiðistjórnuninni en Vestfirðingar. Ástæðan er sú að þorskveið- arnar eru hlutfallslega svo miklar á Vestfjörðum og þar hefur nið- urskurðurinn orðið mestur. Það er dálítið furðulegt að heyra í þessum aumingja manni þarna fyrir vestan sem hefur haft hærra en nokkur annar. Ég veit ekki betur en að þetta skip hafi áður átt heima á Vestfjörðum, þá var ekki talað um það. Þessi Vestfjarðaraðstoð er nú lítið komin til skjalanna ennþá, það er búið að afgreiða þrjú lán og búið. Svo má nú líka geta þess að það eru allir togararnir farnir burt frá Vestfjörðum nema einn fyrir utan ísafjarðardjúpið." En hvað myndirþú segja við þeirri fullyrðingu að Vestfirðingar hafi notið viðtækari aðstoðar og styrkja en aðrir i gegnum tiðina. Meðal annars frá Byggðastofnun og i gegnum sértækar aðgerðir? „Ég veit ekki til þess að Vestfirðingar hafi fengið neina sérstaka aðstoð. Vestfirðingar hafa bara orðið að þola það að vera skornir niður á sama tíma og ýmsir aðrir landshlutar hafa fengið stórfellda aukningu í loðnu og síld sem enginn hefur komist að. Vestfirðing- ar voru háir í rækjunni en nú eru komin fyrirtæki sem ekki voru í rækjunni en eru nú orðin með þeim stærstu. Það hefur verið geng- ið á Vestfirði umfram aðra landshluta." Óskabörn Byggða- stofnunar Vestfirðingar hafa um árabil not- ið sérstakrar fyrirgreiðslu í Byggða- stofnun enda hart gengið eftir því að forystumenn þaðan séu í stjórn stofnunarinnar og gegni þar helst formennsku. þetta kemur fram í meðfylgjandi töflum en þessu til viðbótar má benda á að árið 1987 fóru 21,9 prósent af útlánum Byggðastofnunar til Vestfjarða. Hefur þessu fyrirkomulagi off verið líkt við sérstakt ráðherraemb- ætti. Þetta kjörtímabil hefur Matt- hías Bjarnason „Vestfjarðagoði" haft þar formennsku. Varaformað- ur er Karvel Pálmason fyrrver- andi þingmaður Vestfirðinga. Sömuleiðis er Ólafur Þ. Þórðar- son, þingmaður Vestfirðinga, í stjórn þannig að af 7 manna stjórn eru 3 af Vestfjörðum. Þetta tengist að sjálfsögðu atkvæðavægi Vest- firðinga sem eiga 6 menn á Alþingi eða 9,5 prósent þingmanna sem er reyndar óvenju mikið þar sem „flakkarinn“ féll þeim í skaut að þessu sinni. Það breytir ekki þeirri staðreynd að hver Vestfirðingur hefur áttfalt atkvæðavægi miðað við Reyknesinga. Ef fyrirgreiðsla Vestfirðinga er skoðuð sést að þeir hafa um árabil notið fyrirgreiðslu frá Byggðastofn- un langt umfram það sem mann- fjöldi þar gefur tilefni til. Stór hluti útlána og styrkja Byggðastofnunar hafa lent á Vestfjörðum og skiptir þá litlu hvaða málaflokkur er til umræðu. Má taka sem afmarkað dæmi að af útborguðum heildar- styrkjum Byggðastofnunar til ferðamála árið 1993 þá fengu Vest- firðingar 22,7 prósent af heildinni. Ekki liggja á borðinu neinar upp-

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.