Helgarpósturinn - 06.07.1995, Síða 28
Posturihn
af þeim sem telj-
ast til jet-set-liðs
heimsborganna
dvöldu í góðu yfirlæti á
Hótel Borg um síðustu
helgi. Þetta eru ritstjóri
franska Vouge, Johanne
Buck, en með henni í för
var maður að nafni James
Truman, háttsettur starfs-
maður ameríska Vouge,
sem að auki er sagður
eiga heiðurinn af tímaritinu
Details. Þó að þau hafi að-
eins dvalið í þrjá daga á ís-
landi lögðu þau leið sína í ævin-
týraferð upp á Snæfellsjökul. Þar að
auki eyddu þau töluverðum tíma á
Skuggabarnum og létu þau einkar vel af
„djamm“-andrúmsloftinu þar. Eftir því sem
næst verður komist voru þau hér aðeins í þeim tilgangi að
skemmta sér, en hvur veit nema að ísland sé komið á hug-
myndakort þeirra varðandi skrif í nánustu framtíð...
Skýrsla Borgarendurskoðunar
dregur upp dökka mynd af
rekstri borgarfyrirtækja sem
mörg hver fara langt fram úr fjár-
hagsáætlunum og hafa gert það til
fjölmargra ára. Þrjár stofnanir eru
sérstaklega nefndar til sögunnar fyr-
ir að eyða „stöðugt11 um efni fram.
Mestu framúrkeyrslurnar eru hjá
Listasafni Reykjavíkurborgar hjá
Gunnari Kvaran, sem fór 72,7 millj-
ónir fram úr heimildum á síðustu
fjórum árum og Árbæjarsafni sem fór 43,3 milljónir fram
úr á sama tíma. Hlutfallslega er framúraksturinn þó mest-
ur hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkurborgar sem hefur marg-
falt minni fjárheimildir en tókst þó að fara 25,5 milljónir
fram úr heimildum. Þar ræður ríkjum EyjÓLFUR Kolbeins-
SON en hann var áður yfirgjaldkeri Útvegsbankans og er
auk þess þekktur fyrir að vera frændi Davi'ðs ODDSSONAR,
forsætisráðherra og fyrrum borgarstjóra...
Rokkkóngur íslands, Helgi
BjÖRNS, sem af augljósum
ástæðum hefur stundum ver-
ið nefndur í sömu andrá og helsta
núlifandi rokkgoð heims, MlCK Jag-
GER, komst eins nærri því að hitta
goðið í París um síðustu helgi og
hugsast getur. Málið er þannig til-
komið að Helgi, sem brá sér ásamt
eiginkonu sinni Vilborgu Halldórs-
DÓTTUR, HALLI HELGASYNI Og HALL-
GRÍMI Helgasyni rithöfundi á tónleika með Rolling Stones í
París, var ásamt hersingunni fyrir tilviljun staddur inn á
hóteli því sem Rollingar höfðust á í París, í þeim tilgangi
að sækja þangað svokallað VlP-kort. Þótt hvergi hafi sést
til fjórmenninganna var þar samankomið allt aðstoðarlið
Rollinganna; bakraddasöngkonur og hljóðfæraleikarar,
auk eiginkona Jaggers, fyrirsætan JERRY Hall og dóttir
Greiddu atkvæði!
39,90 kr. mlnútan
Síðast var spurt:
He/ðiveriðrétt*
hjáFlugleið-
umaðhjálpa
Emuaðkom-1
ast til íslands?
[ hverju tölublaði leggur Morgunpósturinn spurningu fyrir lesendur,
sem þeir geta kosið um í síma 904 1516.
Nú er spurt:
Hvort segir satt um samtai
Vigdísar og taívönsku
laðakonunnar?
1. Forsetaskrifstofan
2. Taívanska dagblaðið
þeirra. Munu íslendingarnir hafa eytt drjúgum
tíma í félagsskap þeirra og skemmt sér vel en
haldið svo á tónleikana. Fór svo sögum af því
að Helgi og félagar hafi skemmt sér frábær-
lega á tónleikunum enda ku þau hafa náð
stæðum fremst við sviðið. Þá fór einnig sög-
um af því að litlu hefði munað að Helgi Björns
hefði náð gítarnögl af Keith Richards, svo ná-
lægt gengu Rollingarnir að sviðsbrúninni. En
þegar tónleikunum lauk var kvöldið rétt að
byrja því á eftir var haldið partí með VlP-geng-
inu (mikilvæga liðinu) þar sem íslendingarnir
munu hafa drukkið töluvert af kampavíni í fé-
lagsskap jet-sett liðs Parísarborgar...
ú hefur JoSEP Georg Adessa verið
dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að
berja fangavörð með járnröri. Josep
Georg á sér langa afbrotasögu og hefur
tengst fíkniefnabrotum um langt skeið þó
hann sé einungis 17 ára gamall. í janúar sló
hann kúbeini í andlit manns á Akureyri og
hlaut fyrir það 109 daga skilorðsbundinn
dóm. Þann 11. febrúar réðist hann að Krist-
JÁNI VALSSYNI með hnífi í Hafnarstræti og
stakk hann í síðuna og braut þannig skilorð-
ið. Litlu síðar var hann í gæslu í Síðumúla-
fangelsi vegna hnífstungunnar og þá réðist
jafnaldri hans, Örn Úlriksson á kynferðisaf-
brotamanninn Steingri'm Njálsson á lausa-
ganginum í Síðumúla vopnaður tannbursta
sem hann hafði slípað til þannig að hann var
vel oddhvass. Hann stakk Steingrím marg-
sinnis með verkfærinu án þess að alvarleg
sár hlytust af. Fangavörður kom að þeim fé-
lögum og ætlaði að skakka leikinn en var
hindraður af áðurnefndum Josep Georg sem
réðist á fangavörðinn. Síðar barði hann
fangavörð með járnröri svo hér er um æði
ofsafenginn ungling að ræða. Auk fangavistar
var hann dæmdur til að greiða fangaverðin-
um 100 þúsund krónur auk greiðslu saka-
kostnaðar...