Helgarpósturinn - 20.07.1995, Side 7
7
|FIMMT^Dm?0Rw2T0TT)^J^:^1r9'9’5,
Sterkari bjór kominn á markað:
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hélt lokaðan fund fyrir nokkru með fólki úr félagshyggjuflokkunum.
Röbbuðu þau um mögulega sameiningu flokkanna.
felldasta
frétt
GELDIÐ ÞA
Ógeðfelldasta frétt vikunn-
ar hlýtur að vera af kvörtun
ónefnds karlmanns til Jafnrétt-
isskrifstofu vegna meintrar
mismununar kynjanna í styrk-
veitingum til hárkollukaupa.
Tryggingastofnun hefur um
árabil styrkt konur sem misst
hafa hárið vegna læknisfræði-
legrar meðferðar eða sjúk-
dóma. Þessar konur hafa
fengið greiddan 70 prósent af
kostnaði við tvær hárkollur á
ári með þvi skilyrði að ekki fari
hærri upphæð en 10.000
krónurtil hárkollukaupanna.
Nú vill umræddur karl að
hann og kynbræður hans fái
aðgang að sömu styrkveitingu
vegna hárleysis af arfgengum
orsökum. Hvað er eiginlega
að þessum manni? Hefur eng-
inn bent honum á að margir
af helstu stórsjarmörum kvik-
myndanna hafa verið bersköll-
óttir? Telly Savalas heitinn,
sem varð þekktastur fyrir túlk-
un sína á hinum harðskeytta,
sleikjósjúgandi lögreglumanni
Kojak, er einn úr þessum
flokki og Yul Brinner er ann-
að sköllótt glæsimenni sem
var stórtækurtil kvenna áður
en hann hvarf á vit feðra
sinna. Ef nefna á hárlaus, nú-
lifandi kyntröll, er auðvelt að
benda á Sean Connery, sem
konur fullyrða að verði sífellt
þokkafyllri með fækkandi hár-
um og fjölgandi árum, og ekki
þykir Bruce Willis neitt slor,
en hann gengur bersköllóttur
með Demi Moore, eina flott-
ustu konu heims, upp á arm-
inn.
En það er ekki eins og það
þurfi að fara alla leið til Holly-
wood til þess að finna sköll-
ótta töffara. Ragnar Hall-
dórsson, fyrrverandi forstjóri
Álversins, ber gælunafnið ál-
skalli með reisn og þykir flott-
ur og langt er síðan rithöfund-
urinn og málarinn Hallgrím-
ur Helgason týndi sínum
lokkum en hann á sér harð-
skeyttan aðdáendahóp af
veikara kyninu.
Af þessari upptalningu má
vera Ijóst að sköllóttir karl-
menn þurfa ekki að óttast
samkeppnina við hærða kyn-
bræður sína frekar en þeir
sjálfir kjósa. Þeir sem óttast
hana eru ekki sannir karl-
menn. Þeim má benda á að
það er löngu kunn læknis-
fræðileg staðreynd að hægt er
að stöðva hárlos karla með
því að fjarlægja eistu þeirra og
ef til vill erTryggingastofnun
frekar tilbúin að kosta slíka
aðgerð einu sinni heldur en
kaup á tveimur hárkollum á
hverju ári.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri
„Ingibjörg er sú kona í íslenskum stjónmálum sem
hefur mesta leiðtogahæfileika og er jafnframt í
fremstu röð íslenskra stjórnmálamanna hvað varðar
rökræðuhæfileika. Auk þess hefur hún skynsamlegar
hugmyndir sem er heldur sjaldgæft," segir Margrét S.
Bjömsdóttir, sem sat fundinn. „Kostirnir eru skyn-
semi, yfirvegun, réttsýni, greind og góðir stjórnunar-
hæfileikar," segir Jóhanna Sigurðardóttir, Þjóðvaka.
„Hún er afskaplega greind, getur verið mjög skemmti-
leg og kann mjög vel að vinna. Ingibjörg er líka mjög
sjarmerandi manneskja," segir Anna Ólafsdóttir
Bjömsson, fyrrverandi þingkona Kvennaiistans. „Ég
er afskaplega ánægður með Ingibjörgu og hennar
störf. Ég treysti henni fyllilega í þetta mikilvæga starf
sem hún er í og engum betur,“ segir Sveinbjöm Ein-
arsson, tengdafaðir Ingibjargar.
„Ingibjörg mætti vera meira áberandi,
sýnilegri, í sínu starfi sem borgarstjóri.
Stjómmálamenn verða stöðugt að stunda
markaðsstarf með sig og sínar hugmyndir,“
segir Margrét S. Björnsdóttir. „Gallinn er sá
að hún áttar sig ekki nægjanlega vel á því
að hugmyndafræði Kvennalistans er of
þröngur vettvangur fyrir hennar pólitísku
skoðanir,“ segir Jóhanna Sigurðardóttir.
„Hún hefur stundum tekið þátt í of mörgu
og átt erfitt með að bremsa sig af. Hún
kann ekki alltaf að segja nei, þótt það geti
líka verið kostur,“ segir Anna Ólafsdóttir
Björnsson. „Ég get ekki sagt neitt um það
sem betur mætti fara,“ segir Sveinbjörn Ein-
arsson, tengdafaðir Ingibjargar.
Höskuldur veit ekkert; ATVR segir engan hafa umboðið
en H. Ólafsson og Bernhöft segjast vera umboðsmenn.
H. Ólafsson og Bernhöft, fyrir-
tæki undir stjórn eiginmanns
Svövu Bernhöft, innkaupastjóra
ÁTVR, flytur inn Prins Christian
bjór sem er sterkari en aðrir
bjórar á markaðnum.
„Ég hef ekki haft hugmynd um
að þessir aðilar séu umboðs-
menn fyrir þennan bjór. Reglurn-
ar breyttust mun fyrr en Prins
Christian kom á markað,“ sagði
Höskuldur Jónsson, forstjóri
ÁTVR, þegar hann var spurður
hvort sú staðreynd, að fyrirtæki
Arnar Bernhöft hafi umboð fyrir
bjórinn, hafi haft þau áhrif að nú
sé heimilt að flytja inn sterkari
bjór en áður.
Hafðir þú ekki hugmynd um að
fyrirtæki Arnar Bernhöft hefði
umboð fyrir Prins Christian?
„Nei, ekki hugmynd um það,
ekki hugmynd. Ert þú viss um að
það sé rétt? Umboðsmenn hafa í
sárafáum tilfellum samband við
okkur. Þetta eru tilboð sem
koma erlendis frá og oftast höf-
um við samband við framleið-
endurna og í þessu tilfelli er það
örugglega aðili í Danmörku.“
Hjá innkaupadeild ÁTVR feng-
ust þær upplýsingar að enginn
umboðsmaður sé fyrir þennan
bjór hér á landi. Þetta stangast
algjörlega á við þær upplýsingar
sem fengust hjá H. Ólafssyni og
Bernhöft, en fulltrúi fyrirtækis-
ins staðfesti að það hafi umboð
fyrir bjórinn.
HÖFUM EKKI LEITAÐ
SKYRIIUGA
„Þessi bjór er víst sterkari. Við
höfum ekki ieitað skýringa á
þessu, við erum ekki komnir það
langt,“ sagði Jóhannes Tómasson,
framkvæmdastjóri hjá Agli
Skallagrímssyni, um þá stað-
reynd að farið er að flytja inn
sterkari bjór en framleiðendur
og innflytjendur töldu að væri
heimild fyrir að selja hér á landi.
Þegar bjór var heimilaður, 1.
mars 1989, var gengið út frá því
að bjór mætti ekki vera sterkari
en 5,6 prósent. Þetta staðfestir
Jóhannes Tómasson og fyrrum
stjórnendur Viking brugg.
LESA EKKI ..
OPINBER PLOGG
„5,6 prósent var mark í upp-
hafi þegar bjórsala var leyfð á Is-
landi. Við tókum ekki til sölu
sterkari bjór í verslununum. Við
höfum hins vegar sérpantað
sterkari bjór.
Eftir að nýjar innkaupareglur
tóku gildi, 1. mars 1994, var öll-
um þessum mörkum sleppt. það
má bjóða í reynslusölu bjór af
hvaða styrkleika sem menn vilja.
Hann kemst aðeins inn á aðal-
lista að einhver vilji kaupa
hann,“ sagði Höskuldur Jónsson.
Nú hafa menn, sem rætt hefur
verið við og starfa við fram-
leiðslu og innflutning á bjór, ekki
hugmynd um þessar breytingar.
„Þær hafa verið birtar opin-
berlega í Stjórnartíðindum. Það
er þá vegna þess að menn lesa
ekki opinber plögg.“
„Það hefur verið vilji til að
selja sterkari bjór en vegna fyrir-
mæla frá ÁTVR hefur það ekki
verið gert. Til dæmis hefur verið
vilji til að hafa sterkari bjór þeg-
ar sérstök tilefni gefast, til dæm-
is um Þorrann. Það töldu allir að
það væri ekki heimilt. Þess
vegna eru menn undrandi nú
þegar eiginmaður innkaupastjór-
ans fær að flytja inn sterkari
bjór,“ sagði maður sem vildi ekki
láta nafns síns getið vegna við-
skipta sinna við ÁTVR.
„Ég held að það séu ekki lög
fyrir þessu, heldur einungis fyr-
irmæli. Við álitum að það þýddi
ekki að vera með sterkari bjór,
það var búið að gefa út að það
væri ekki leyft,“ sagði Jóhannes
Tómasson. „Það hlaut að koma
að þessu. Eflaust munum við ein-
hvern tíma koma með sterkari
bjór, við höfum varla undan því
sem við erum að gera í dag, en
eflaust einhvern tíma í framtíð-
inni.“B
að eiginmaður innkaupastjórans sé
umboðsmaður fyrir sterka bjórinn.
Debet
Kredit