Helgarpósturinn - 20.07.1995, Síða 11
Fl IvllvITU DAGu R 2Ö7TJ u tl 1995
\
11
Stigvaxandi óánægja með störf Sigurðar Guðmundssonar, formanns Félags starfsfólks, í veitingahúsum
emsog
heimaríkur
hundur"
í gær var haldinn aðalfundur
hjá Félagi starfsfólks í veitinga-
húsum, um það bil þremur mán-
uðum of seint, samkvæmt lögum
félagins, sem kveða á um að aðal-
fundur sé haldinn fyrir lok apríl
ár hvert. Þetta var reyndar fyrsti
aðalfundur félagsins i tæp tvö ár
því síðasti aðalfundur var í okt-
óber 1993. Mikil óánægja kom
fram á fundinum með ýmislegt í
starfsemi félagsins en formaður
þess, Sigurður Guðmundsson, hef-
ur löngum verið umdeildur.
Sigurður hefur gegnt starfi for-
manns Félags starfsfólks í veit-
ingahúsum í um það bil 15 ár en
hann er einnig framkvæmda-
stjóri Lífeyrissjóðs starfsfólks i
veitingahúsum. Samkvæmt heim-
ildum blaðsins hefur verið stig-
vaxandi óánægja með starfs-
hætti Sigurðar síðustu ár en
hann þykir vera mjög einráður
og hafa lítið samráð við stjórn fé-
lagsins.
HEFUR BÁÐIÐ ÖLL
BORIU SIIU TIL STARFA
Meðal þess sem bent hefur
verið á er að Sigurður fer algjör-
lega sínar eigin leiðir þegar kem-
ur að því að ráða starfsfólk til fé-
lagsins og ákveða kjör þess.
Þannig hafa til að mynda öll þrjú
börn Sigurðar verið á launaskrá
hjá félaginu og lífeyrisjóðnum
um iengri eða skemmri tíma, en
um þessar mundir starfar þar
sonur hans og tengdasonur við
ýmis störf. Einnig þykir ráðning
Guðbjörns Jónssonar, sem oft hef-
ur verið nefndur félagaskelfir,
dæmigerð fyrir vinnubrögð Sig-
urðar en þeir félagar hittust
meðan báðir dvöldu sér til
hressingar á heilsuhælinu í
Hveragerði. Mun Sigurði hafa lit-
ist svo vel á Guðbjörn að hann
réð hann umsvifalaust til starfa.
Annað atriði sem tengist
skyldmennum Sigurðar og þykir
umdeilanlegt er sala á bifreið fé-
lagsins fyrir nokkrum árum. Bif-
reið þessi var af tegundinni Su-
baru Legacy og hafði Sigurður
haft hana til umráða ailt þar til
hann seldi hana bróður sínum
án þess að hafa um það samráð
við stjórnarmenn, hvorki um
söluverð né hvort yfirhöfuð ætti
að selja bifreiðina.
FEKK LOGFRÆÐIALIT
ASII HAUSIIURI
Heimildarmenn blaðsins segja
að skýringuna á háttarlagi Sig-
urðar sé eflaust meðal annars að
finna í því hversu lengi hann hef-
ur verið formaður félagsins, eða
eins og einn heimildarmanna
orðaði það: „Hann er orðinn eins
og heimaríkur hundur sem
finnst hann ekki þurfa að taka til-
lit til eins eða neins nema eigin
skoðana.“ Sami heimildarmaður
nefndi sem dæmi að í fyrra hafi
Sigurður meinað einni starfs-
konu á skrifstofu félagsins að
hefja störf að loknu sex mánaða
barnseignarleyfi og sagt að það
væri betra ef hún kæmi ríflega
tveimur mánuðum seinna til
starfa en hún ætlaði sér. Konan
undi því ekki að vera þann tíma
launalaus og sneri sér til Bryndís-
ar Hlöðversdóttur, lögfræðings
ASl, sem benti á að Sigurði væri
ekki stætt á því að banna henni
að hefja störf. í kjölfar þess
mætti umrædd starfskona til
vinnu en fékk ekki að fara í þau
verkefni sem hún hafði áður
gegnt, þar sem sonur Sigurðar
Skrifstofur Félags starfsfóiks í veitingahúsum. Sigurður
Guðmundsson hefur verið formaður félagsins um árabil en
hann hefur meðal annars sett öll börn sín á launaskrá hjá
félaginu.
hafði tekið þau yfir. Þessi kona
er nú hætt störfum hjá félaginu
en heimildir blaðsins herma að
hún hafi ekki talið sér vært þar
lengur vegna framkomu Sigurð-
ar.
Innan vébanda Félags starfs-
fólks veitingahúsa eru að jafnaði
um það bil 1.000 manns en mikið
rót er yfirleitt á félagsmönnum
sem margir hverjir staldra stutt
við í vinnu á veitingastöðum.
Mæting á aðalfundi hefur alltaf
verið dræm og sagði einn félags-
manna í samtali við blaðið að
áhugaleysi hins almenna félags-
manns væri aðallega um að
kenna hversu lengi Sigurður hef-
ur tollað í starfinu.
Þegar haft var samband við
Sigurð á meðan vinnslu fréttar-
innar stóð brást hann hinn
versti við og sagðist ekki hafa
upplýsingaskyldu gagnvart
blaðamanni og vildi ekkert láta
hafa eftir sér um málavexti. ■
Kauptu blaö og ffáöu bil
Gerist áskrifendur að Mánudagspóstinum og Helgarpóstinum og takið þátt í áskrifendahappdrætti.
í ágúst verður þessi glæsilegi hálfsjálfskipti Renault Twingo að verðmæti 968.000 krónur dreginn út
Allir áskrifendur - gamlir og nýir - eiga jafna möguleika á að eignast þennan bíl fýrir áskriftarverðið - 999 krónur á mánuði.
Pósturmn
Ódýrasta fréttablaðið
á landinu, það
hraðasta, sprækasta
og langskemmtilegasta.
PÖsturihn
Fjölbreytt blanda af
fréttum, úttektum,
greinum, viðtölum og
skemmtiefni.
Ungt blað og lifandi.
Suðurlandsbraut 14 Sími 568 1200 & 581 4060
ath.
ATHUGASEMD
Kristín Ástgeirsdóttir
hafði samband við rit-
stjórn PÓSTSINS og vildi
koma því á framfæri
vegna fréttar blaðsins síð-
asta mánudag að hún hafi
þegið boð franska sendi-
ráðsins á bastilludaginn í
fyrra. Því séu staðhæfing-
ar um að mótmæli hennar
við kjarnorkutilraunum
Frakka hafi verið hjákát-
ieg, úr lausu lofti gripnar.
AFSÖKUNAR-
BEIÐNI
f Morgunpóstinum birt-
ust ógætileg ummæli um
Dag heitinn Sigurðarson
og Ástu Sigurðardóttur rit-
höfund fimmtudaginn 6.
júlí 1995 í grein sem bar
yfirskriftina „Skrítin borg
Reykjavík". Morgunpóst-
urinn harmar þau ummæli
er hér um ræðir, þau eiga
ekki við nokkur rök að
styðjast og eru fráleit
þegar hugað er að högum
beggja á umræddu tíma-
bili. Milli beirra tveggja,
Dags og Ástu, var aldrei
slíkt samband sem við-
mælandi blaðsins gaf í
skyn.