Helgarpósturinn - 20.07.1995, Síða 15

Helgarpósturinn - 20.07.1995, Síða 15
Rósa IngóKsdóttir lífskúnstner „Mitt tímabil er rokokkó-tímabilið í Mið-Evrópu á tímum frönsku Lúðvíkanna, þess fjórtánda, fimmtánda og sex- tánda. Ég væri hefðarkona, sem nyti sín innan um silki, pur- pura, ilmolíur og handunninn kristal. Alla ævi væri ég um- vafin karlmönnum, og ég myndi vissulega njóta lífsins, því þannig viðheldur manneskjan æskunni best. Ég væri ekki tilbúin að taka þátt í úrkynjun aðalsins því slíkt samræmist ekki lífshugsjónum mínum. Umhverfi mitt yrði að einkenn- ast af fögru mannlífi þar sem einstaklingar mótuðu eigin stefnu og ekki yrði vart við stríðsrekstur og ófrið. Listræn fagurfræði hefði mikið gildií þessum heimi." Oddný Sen kvikmyndagerðarmadur „Ég hefði viljað vera uppi á ftalíu á endurreisnartímabilinu. Ég hefði unnið þar við málara- eða byggingarlist og þá hefði ég auðvitað neyðst til að vera karimaður. Samhliða þeim störfum hefði ég viljað vera erindreki og sendiboði og ferðast milli hirða í Evrópu með mikilvæg leynileg skilaboð." Bödvarsson byggingarverkfræðingur „Ég hefði viljað vera karlmaður og arkítekt á miðöldum í Þýskalandi og átt þátt í að reisa fallegustu kirkjur heims, en þær er að finna í Köln og Nurnberg. Þeir sem vilja fræð- ast um arkítektúr eiga að skoða þessar kirkjur, við hönnun þeirra unnu færustu mennirnir. Ég hefði viljað vera einn af þeim." Edda Sverrisdóttir í Flex „Ég hefði viljað vera yfirstéttarkona í Bandaríkjunum upp úr síðustu aldamótum. Þar stundaði ég samkvæmislífið af kappi í fallegu fötunum mínum, með fallegu hattana mína og fallegu skartgripina. Ég hefði farið í siglingar og reið- túra og safariferðir. Þetta væri yndislegt iðjuleysislíf sem þó hefði tilgang því ég gerði allt þetta í nafni góðgerðar- starfsemi." Hrafn Braga- SON hefur sætt tölu- verðri gagnrýni frá því að hann tók við sem forseti Hæsta- réttar. Hefur hann þótt koma einkenni- lega fram fyrir hönd þessa æðsta dóm- stóls landsins og hafa látið mörg um- mæli falla sem ekki sæma manni í svo hárri stöðu. Fyrir skömmu var mál fyr- ir Hæstarétti sem hjón nokkur á Akur- eyri höfðuðu á hend- ur íslandsbanka. Var búist við að dóms- haldið tæki skamm- an tíma en að sögn munu ótrúlegar spurningar og at- hugasemdir dómara, einkum Hrafns, hafa valdið því að flutn- ingur málsins tók þrjá tíma. Meðal ann- ars þótti Hrafn koma fram með afar nei- kvæðar athugasemd- ir í garð Islands- banka og lögmanns hans, JÓNS Briem. Munu ein ummælin hafa verið eitthvað í þá veru, samkvæmt heimildum PÓSTS- INS: „Hvað er þetta eiginlega með ís- landsbanka, getur hann aldrei komið al- mennilega fram gagnvart sínum um- bjóðendum?"...

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.