Helgarpósturinn - 20.07.1995, Qupperneq 22
FIMMTUDAGUR
17.30 Fréttaskeyti
17.35 Leíðarljós
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Ævintýri Tinna
19.00 Ferðaleiðir
19.30 Hafgúan
20.00 Fréttir & veður
20.35 Hvíta tjaldið
Krúttleg Vala Matt kynnir sjón-
varpsáhorfendum nýjar kvik-
myndir og tekur viðtöl við leikar-
ann Richard E. Grant og leik-
stjórann Tim Sullivan.
21.05 Veiðihornið
21.10 Vinur krónprinsins
Bresk mynd um einn umdeildasta
glaumgosa 18. aldarinnar á Bret-
landseyjum. Liz Taylor leikur
vissulega í myndinni.
23.00 Ellefufréttir
FÖSTUDAGUR
17.30 Fréttaskeyti
17.35 Leiðarljós
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Draumasteinninn
19.00 Væntingarog
vonbrigði
20.00 Fréttir 8r veður
20.40 Sækjast sér um líkir
21.15 Lögregluhundurinn
Rex
22.05 Útskúfun
Frönsk mynd byggð á metsölu-
bók eftir Guy Des Cars. Myndin
segir frá konu sem hefur náð
langt í lífinu en verður svo allt I
einu holdsveik. Horfið og gremj-
ist yfir ótrúlega óréttlátum örlög-
um einnar manneskju. Fyrri hluti.
23.45 Lipstikk á tónleikum
Upptaka frá tónleikum hljóm-
sveitarinnar á Tveimur vinum I
júni. Þeir sem misstu af konsert-
inum geta nú tekið gleði sina á
ný.
LAUGARDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
10.50 Hlé
16.30 Hvíta tjaldið (e)
Vala Matt óbreytt frá fimmtu-
degi.
17.00 Mótorsport
17.30 Iþróttir
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Flauel
19.00 Geimstöðin
20.00 Fréttir & veður
20.35 Lottó
20.45 Simpson
21.15 Útskúfun
Seinni hluti frönsku myndarinnar
sem sýnd var á föstudaginn.
23.00 Svikamyllan
Bandarísk snuðraraspenna.
Lögga í Arizona kikir á dularfullt
morðmál, flækir málin, gerist
klár og leysir þau.
SUNNUDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
10.30 Hlé
17.40 Islandsmótið í
hestaiþróttum
18.10 Hugvekja
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Haraldur og borgin
ósýnilega
Norsk tilraun til að gera barna-
efni.
19.00 Úr ríki náttúrunnar
Sænskir fuglaskoðarar náðu
óvart hinum stygga og sjaldséða
fugli, stjörnuhegra eða sefþvöru,
á filmu og sýna nú afraksturinn.
19.25 Roseanne
Bolluvaxin Roseanne lætur
gamminn geisa og áhorfendur
geispa.
20.00 Fréttir & veður
20.35 Áfangastaðir
Gengið, skokkað eða hlaupið
Laugaveginn.
21.05 Finlaylæknir
22.00 Helgarsportið
22.20 Enak
Pólsk bíómynd um einmana
geimfara sem neitar að koma til
jarðar. Ekki nema vona að mað-
urinn sé einmana.
Líf á ný í Iðnó
Járnfákurinn ‘95 er útihátíð
sem haldin verður að Reykholti í
Biskupstungum helgina 28.-30.
júlí af mótorhjólaklúbbnum
Væringjum.
„Við byrjum hátíðina á föstu-
dagskvöldinu með diskóteki í
Aratungu og verðum með varð-
eld og fleira en hin eiginlega dag-
skrá hefst ekki fyrr en á laugar-
deginum," segir Guðmundur Þór-
arinsson, einn Væringja. „Á laug-
ardeginum geta þeir sem vilja
farið í svett og síðan verður boð-
ið upp á alls konar leiki og fleira
fyrir börnin. Um kvöldið spila
síðan hljómsveitirnar KFUM and
The Andskotans og Langbrók og
halda þær uppi stuðinu langt
fram eftir nóttu.“
Væringjar gefa sig út fyrir að
vera mótorhjólatöffarar af
ábyrgu gerðinni og gömlu ein-
kunnarorðin sex, drugs and
rock ‘n’ roll eru ekki hátt skrifuð
hjá þeim. „Það er gamla, þreytta
lumman sem hefur bara ófögnuð
í för með sér,“ segir Guðmund-
ur.
„Menn enda bara í fangelsum
eða meðferð ef þeir ætla að fara
að reyna að vera með einhverja
Hells Angels-stæla. Væringjar
eru aliir þroskaðri og edrú. Hjól-
in tengja okkur saman og við
spjöllum 50/50 um hjólin og and-
leg málefni. Það fer mjög vel
saman en við erum flestir
spennufíklar og þar koma hjólin
til sögunnar. Að hjóla á Þingvöll
og aftur til baka á löglegum
hraða er eins og að „gera það“
200 sinnum sama kvöldið.“ Guð-
mundur segir þó alls ekki nauð-
synlegt að ríða mótorfák til að
vera gjaldgengur á mótinu.
„Þetta er fyrir alla sem hafa
áhuga á að skemmta sér edrú en
ef einhver verður uppvís um
vímuefnaneyslu verður viðkom-
andi beðinn um að vera annars
staðar." Aðgangseyrir að hátíð-
inni er 1800 krónur fyrir alla þrjá
dagana. ■
Frá 18. ágúst til 3. september
verður haldin Óháð listahátíð í
Reykjavík. Hátíðin hefst með lát-
um á afmælisdegi borgarinnar
og verður hátíðarskrúðganga
niður Laugaveginn, með áherslu
á sögu landvættanna, opnunar-
atriði annars fjölbreyttrar dag-
skrár. Listahátíðin er öllum opin
nú sem fyrr og skiptir engu hvort
menn eru góðir eða slæmir,
þekktir eða óþekkt-
ir, gamlir eða ungir
listamenn en ungt
og íslenskt fólk er
þó mest áberandi
meðal þátttakenda,
að sögn Halldórs
Auðarsonar, fyrir-
manns hátíðarinn-
ar. Fyrir utan að
smala saman lista-
fólki og koma sam-
an dagskrá hafa
Óháðir ráðist í það
vandasama verk að
endurbæta Iðnó í
því tilefni að fá að
nota húsið undir
sína starfsemi. Að-
standendur hátíð-
arinnar þurfa með-
cd annars að leggja
allt rafmagn sjálfir í
húsið þar sem raf-
kerfi þess er ónýtt.
Þegar Halldór var
spurður af hverju
það væri þeim
þetta hjartans mál
að púkka upp á
Iðnó sagði hann
þau fyrst og fremst
vilja færa líf inn í
húsið en líka sanna
að það þyrfti ekki
mikla peninga til að
komast þangað inn. „Við vildum
sýna fram á að það væru nógu
margir í bænum til að halda hús-
inu í notkun allt árið. Það þarf
ekkert að leggja mikla peninga í
Iðnó og það þarf ekkert að mið-
stýra húsinu. Við erum búin að
gera húsið upp að utan og það er
búið að teikna það að innan en
það virðist ætla að verða svolítið
þungt í vöfum og dýrt í uppbygg-
ingu. Peningarnir eru ekki til en
við viljum sýna fram á að það sé
hægt að nýta það á einfaldan
hátt. Við erum fyrst og fremst að
gefa húsinu líf og hafa gaman af
þessu,“ segir Halldór.
Að sögn Halldórs er fjölbreytt-
ur hópur sem kemur til með að
verma húsið en Leifur Þórarinsson
verður heiðursgestur hátíðar-
innar og verða frumflutt ný tón-
verk eftir hann ásamt því sem El-
ísabet Jökulsdóttir og Sindri Freys-
son munu sjá um bókmenntadag-
skrá, svo athyglisverð dæmi séu
tekin af fjölskrúðugum og löng-
um lista listamanna sem þarna
koma fram. ■
Óháða listahátíðin er búin að taka Iðnó
uppá arma sína og hyggjast listamenn
troða upp í gamla leikhúsinu á óháðu há
tíðinni sinni í ágúst.
Síam
við Skólavördustíg
Medaltal ★★★ 1/2
Kristlaug María Sigurðardóttir „Ég kann mér ekki magamál þegar ég
fer þangað, maturinn er alveg æðislegur. Maður er þarna á hnjánum og
treður í sig, leggst síðan út af og slappar af undir borðinu þar til maður er
tilbúin að fara; ég hef aldrei verið hrifin af þessu franska, stífa petit-eldhúsi,
það slær mig alveg kalda. Mér finnst allir réttirnir sem ég hef smakkað mjög
góðir; núðlurnar eru alltaf skotheldar og allir panang og masman réttirnir
líka. Þjónustan er sérstaklega persónuleg og þótt óratími líði milli þess að
þú komir, man eigandinn alltaf eftir þér." ★★★
Matsölustaðirnir Síam og Meman
Kwai sérhæfa sig í tælenskri matar-
gerð. Sælkerar PÓSTSINS hafa ekki
látið staðina fram hjá sér fara og vilje
ólmir deila reynslu sinni með lesend-
um. Báðir státa staðirnir af hefð-
bundnum tælenskum mat þar sem
Mentan Kwai
við Smiðjustíg
Meðaltal ★★★ 1/2
Víðir Þorgrímsson „Tælenskur matur er mjög sérstakur. Þetta er mjög
gott hjá Boga, hann stendur sig mjög vel. Honum hefur líka tekist ágætlega
upp í því að skapa Tæ-stemmningu þarna inni. Það er svolítið öðruvísi fyrir
fólk að prófa þessi tælensku krydd því þau er gjörólík því sem gerist í kín-
verskum mat, það er allt önnur uppbygging í þeim. Ég hef fengið heilsteikt-
an karfa þarna, hann var virkilega góður og sýndi að karfi getur verið úrvals
matur ef hann er meðhöndlaður rétt." ★★★ 1/2
Eitthvað
qott að
borða
Böðvar Björnsson „Þetta er minn uppáhalds austurlenski matsölustaður.
Aðrir staðir sem ég hef prófað eru oft mistækir. Þetta er eini staðurinn þar
sem þú færð raunverulegan tælenskan mat enda víkur kokkurinn aldrei und-
an hefðinni þegar um ákveðin krydd eða kryddblöndur er að ræða. Maður-
inn er náttúrlega bara klár að elda. Þú getur treyst því að fá fyrsta flokks
mat þarna." ★★★★
Dóra Jóhannsdóttir „Þetta er góður og notalegur staður, ekki of dýr og
ekki of fínn. Ég kann best að meta þægilega þjónustuna og allt látleysi stað-
arins. Maturinn er sá besti sem er í boði af austurlenskum mat en meðlætið
mætti vera fjölbreyttara." ★★★★
Guðrún Gylfadóttir „Umhverfið á Síam er mjög afslappandi og þægilegt,
þjónustan er heiðarleg og maturinn bragðmikilí. Mér finnst best að sitja í
„púðakróknum"; þá fer maður úr skónum og lætur fara vel um sig meðan
borðað er. Það er helst að maður verði of heimilislegur þarna; ef maður er
ástfanginn þarf maður að passa sig." ★★★ 1/2
áhersla er lögö á upprunalegar thai-
lenskar kryddjurtir og kryddblöndur.
Maturinn er ekkert foreldaður. Á Sí-
am geta þeir sem vilja setið í makind-
um á þægilegum pullum og slakað á,
en á Meman Kwai eru lifandi frum-
skógarhljóð sem sefa matargesti
meðan þeir borða. Eigandi Meman
Kwai hefur einmitt innréttað staðinn
með það í huga að gestirnir upplifi
raunverulega tælenska stemmningu.
Kjartan Guðjónsson „Mér finnst alveg frábært að koma í þessa stemmn-
ingu sem er inni á staðnum, lyktin, dýrahljóðin, tónlistin, og svo maturinn,
mynda mjög skemmtilega fléttu. Ég hef ekki borðað oft þarna en síðan ég
fór síðast hef ég verið á leiðinni aftur." ★★★ 1/2
Guðrún Gylfadóttir „Ég hafði borðað á skyndibitastaðnum niðri og
fannst það ólystugt. Ég bjóst við einhverju svipuðu á efri hæðinni þar sem
þetta er sama fyrirtækið. Uppi er hins vegar allt annað í boði og mun betra.
Þar er boðið upp á alvöru tælenska rétti sem ég'hef ekki smakkað hérlendis
nema ef til vill á Síam. Ég saknaði þess reyndar að geta ekki setið á gólfinu
og ég skora á eigendurna að koma sér upp slíkri aðstöðu." ★★★
Sigríður Sigurðardóttir „Mér finnst staðsetning staðarins og aðkoman
ekki alveg nógu góð. Stólarnir voru heldur ekki nógu þægilegir. Hins vegar
var þjónustan mjög þægileg og maturinn alveg frábær; sterkustu réttirnir
eru sterkir og ég mæli með þeim þótt ég muni ekki hvað þeir heita." ★★★