Helgarpósturinn - 24.08.1995, Page 8

Helgarpósturinn - 24.08.1995, Page 8
8 Sá útbreiddi misskilningur virðist vera uppi um að PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON hafi horfið af landi brott strax eftir loka- dansleikinn með Milljónamæringun- um í Perlunni á dög- unum. Af þessum sökum hefur Páll ekki fengið frið fyrir forvitnu fólki sem spyr furðu lostið þegar það sér hann út á götu hvort hann sé hættur við. Hið rétta í málinu er að Páll er á leið utan, en ekki fyrr en í byrj- un næsta árs; hann er enda samnings- bundinn í hlutverki Heródesar í söng- leiknum um Jesúm fram að jólum. Vegna anna að und- anförnu hefur Egg- ERT ÞORLEIFSSON endrum og sinnum hlaupið í skarð hans en það verður þó ekki mikið lengur því Páll hyggst sinna hlutverki sínu af full- um krafti það sem eftir lifir leiktímans. Annars er það að frétta af söngleikn- um í Borgarleikhús- inu að tíuþúsundasti gesturinn mun verða heiðraður þar með tilheyrandi blómum og krönsum á föstu- dagskvöld. Það þýð- ir með öðrum orðum að Jesús Kristur Sú- perstar er á góðri leið með að bjarga fjárhag Borgarleik- hússins... Mathieu Morverand nam skútu, sem hann segist eiga, á brott úr Reykjavíkurhöfn aöfaranótt mánudags. Hann telur að tollgæslan í Reykjavík hafi brotiö á sér þegar hún bauð bátinn upp fyrir rúmum þremur árum. Hann fékk franskan þingmann til að reka málið fyrir sig og sendi hann bréf meðal annars til frú Vigdísar Finnbogadóttur, forseta íslands, þar sem hann fór þess á leit að hún hlutaðist til um mál Morverands Hér sést Morverand senda sigurkveðju úr aftursæti lög- reglubílsins sem flutti hann til yfirheyrslu. „Ég á þennan bát,“ sagði Mathi- eu Morverand aðspurður um af hverju hann hafi numið skútuna Söru á brott, þar sem hann var fluttur í lögreglufylgd frá borði Ægis um borð í lögreglubíl um klukkan níu í gærmorgun. Morverand nam Söru á brott ásamt félaga sínum aðfaranótt mánudags. Varðskipið Ægir náði henni svo tæpum 70 sjómílum suður af Selvogi og flutti til hafn- ar. Mennirnir voru yfirheyrðir af Rannsóknarlögreglu ríkisins í gær og tekin af þeim skýrsla. Þeir eru nú lausir allra mála hjá RLR og málið er komið til ákæru- valdsins. Gert er ráð fyrir því að mennirnir verði hér á landi þar til afgreiðslu málsins er lokið. BAÐ VICDÍSI UM AD BJARGA SER Fyrir réttum þremur árum skrifaði franski þing- maðurinn og formað- ur vináttufélags ís- lands og Frakklands, Jean Pierre Fourre, frú Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, bréf fyrir hönd Mathieu Morverand þar sem þess var farið á leit við hana að hún hlutaðist til um mál hans. Bréfinu var, að sögn Sveins Björnssonar for- setaritara, svarað á kurteislegan hátt og skýrt frá því að forset- inn gæti því miður ekki skipt sér af svona málum. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra var einn af þeim sem fengu bréf frá Jean Pierre Fourre þegar hann var formaður utan- ríkisnefndar Alþingis. Hann sagðist í samtali við Póstinn hafa unnið talsvert í málinu á sínum tíma og kannað það rækilega en ekki geta gert neitt í því þar sem málið var komið á það stig. Hann segist hafa rætt við Fourre og gert honum grein fyrir því sem hann hafði gert í málinu. „Það var ekki hægt að sinna er- indinu á þann hátt sem Frakk- arnir vildu þar sem búið var að selja skútuna,“ sagði Björn. Morverand hefur getið sér nokkurt orð vegna ævintýra- legra uppátækja. Það var til dæmis fjallað nokkuð um það í blöðum fyrir nokkrum árum þeg- ar hann sigldi yfir Ermarsund á kajak. ÆTJ-AÐI AD SIGLA FRA FRAKKLANDI TIL ISLANDS — EN KOMST TIL HULL Forsaga málsins er sú að seint á árinu 1990 hugðist Morverand sigla frá Bretagneskaga til ís- lands ásamt tveimur félögum sínum á skútunni Love Love með viðkomu á nokkrum breskum eyjum. Siglingin varð þó enda- slepp og fengu félagarnir og bát- urinn far með Helgafelli, skipi Samskipa, til íslands eftir að hafa lent í hrakningum við England. Morverand hugðist reyna að fá vinnu á íslandi og safna sér fyrir ferð sem hann hafði á prjónun- um, að sigla á milli Bandaríkj- anna og Bretlands á kajak, sem hann mun hafa framkvæmt í fyrra. Báturinn varð eftir á íslandi og lengi vel virtist sem Morverand hefði engan áhuga á að endur- heimta hann. Hann lá á athafna- svæði Samskipa í tæp tvö ár eða þangað til Tollstjórinn í Reykja- vík seldi hann á uppboði í mars 1992 vegna ógreiddra gjalda. Hjá Tollstjóra eru reglur um að ef vara hefur ekki verið tollafgreidd og eigandi ekki sinnt um að greiða aðflutningsgjöld innan Frakka, Georges Kiejman aðstoð- arutanríkisráðherra, sem mun vera góður vinur Francois Mitter- and, auk þeirra Vigdísar Finn- bogadóttur og Björns Bjarnason- ar eins og áður kom fram. „HEFDI KOMIST ALLA LEIÐ" Gunnar Borg, einn þriggja eigenda bátsins, sagðist ekkert hafa vitað um bátinn fyrr en á uppboðinu þar sem hann keypti hann. Hann segir honum finnist málið hið einkenni- legasta. Hann segir að báturinn hafi ekki verið útbúinn til úthafs- siglinga en líklega hefði hann samt komist á leiðarenda. „Þetta er góð- ur bátur og hann hefði komist alla leið fyrst hann var kominn svona langt," sagði Gunnar. Morverand hefur hug á því að kaupa bátinn af Gunnari og Gunnar segir það ekki ólíklegt að af því verði ef semjist um verð. Sara var tæplega 70 sjómílum suð- ur af Selvogi þegar hún náðist. Deilur voru uppi um hvort löglegt hafi verið af Landhelgisgæslunni að taka bátinn þegar hann var kominn út fyrir 12 mílna landhelg- ina. „Það er alveg ljóst að við vor- um í fullum rétti til þess að taka bátinn þó ekki væri nema það að þetta var íslenskt skip með frönsk- um fána og það var ekki haffært," sagði Hafsteinn Hafsteinsson, for- stjóri Landhelgisgæslunnar. Hann sagði að ekki væri hægt að verð- leggja hvað löggæsla á hafinu kost- aði en hjá gæslunni fengust þær upplýsingar að ef sérstaklega hafi verið fcirið í slíkcin leiðangur sem Ægir fór, hefði hann kostað um 700 þúsund. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort krafa verður gerð á Frakkana um að greiða kostnaðinn við tökuna. Hjá franska sendiráðinu fengust þær upplýsingar að þar á bæ þekktu menn ekki alla málavexti og hyggðust ekki skipta sér af mál- inu í bili heldur leyfa íslenskum lögregluyfirvöldum að fara sínu fram. Leitaði Morverand hins veg- ar til þeirra myndu þeir liðsinna honum, til dæmis með því að út- vega honum lögfræðing. árs, þá er hún boðin upp. Farmflytjandi, í þessu tilfelli Samskip, er látinn vita og beðinn um að hafa samband við eiganda. SEGIR AÐ EKKI HAFI VERIÐ HAFT SAMBAND VIÐSIG Morverand heldur því fram að báturinn hafi verið seldur án þess að hann hafi verið látinn vita og finnst það sárt því hann segir að Samskip hafi haft heimil- isfang hans svo að hægur vandi hefði átt að vera fyrir þá að láta sig vita af vandræðunum með bátinn. Þegar Morverand frétti af upp- boðinu reyndi hann mikið til þess að endurheimta bátinn og fékk franska þingmanninn Jean Pierre Fourre til liðs við sig sem sendi svo bréf til Roland Dumas, þáverandi utanríkisráðherra

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.