Helgarpósturinn - 24.08.1995, Blaðsíða 13
FIMMTuDAGu R’24TAGÚ ST'1995
verið frá Tælandi1
Það er þekkt meðal þeirra
sem eru kunnugir félags-
lega kerfinu hérlendis að í
mörgum tilfellum ganga að-
stæður skjólstæðinga kerfis-
ins í arf til afkomenda
þeirra. Þannig er talað um
þriðju kynslóð og jafnvei
Qórðu kynslóð sem allar eru
eða hafa verið að mestu eða
öllu ieyti háðar félagslega
kerfinu um afkomu sína.
Þetta er auðvitað mörgum
áhyggjuefni, sérstaklega
þegar haft er í huga að yfir-
lýst markmið þessa kerfis er
að hjálpa fólki til að standa
á eigin fótum.
Það er erfitt að áætla hve stór
þessi hópur er en eins og fram
kemur í viðtali Póstsins hér að
neðan við starfsmann sem hefur
áralanga reynslu af störfum í
þessu kerfi er þessi hópur um-
talsverður og stærri en menn
halda.
Myndin sem þessi starfsmað-
ur, sem hefur mikla innsýn í að-
stæður þessa hóps, dregur upp
er ískyggileg. Svo virðist sem
hópur fólks sé að slitna úr sam-
bandi við okkur hin og skapa
sér og börnum sínum tilveru-
grundvöll sem einhvers konar
„félagslegir kerfisfræðingar“.
Það skal skýrt tekið fram, að
hér að neðan ræðir heimilda-
maður okkar fyrst og fremst um
þennan afmarkaða hóp en ekki
skjólstæðinga stofnunarinnar
almennt.
„Spurningin er fyrst og fremst
um stefnumótum í félagslega
kerfinu. Er markmiðið aðeins að
halda lífinu í fólki eða á raun-
verulega að breyta aðstæðum
þess?“ spyr heimildarmaður
Póstsins. „Þetta er alveg ofboðs-
lega háð þörfum vinnumarkað-
arins. Þegar atvinnuleysi ríkir,
eins og nú, er öll áhersla lögð á
að ausa út peningum og fólk þar
með gert áskrifendur að félags-
legri aðstoð,“ segir viðmælandi
okkar.
HÓPUR RÓLKS FER
AJLDREI UT A VHUMU-
MARKAÐINIU
„Það sem gengur í erfðir hjá
þessum fjölskyldum er úrræða-
leysið og metnaðarleysið. Þetta
er bara eins og með börn lækna
og lögfræðinga, að þau fara í há-
skólanám, en börn þessa fólks
fara bara að dæmi sinna for-
eldra. Það er áhyggjuefni ef
maður hugsar um þessi börn að
þau alast upp í menningarlegri,
tilfinningalegri og félagslegri fá-
tækt.
Það skiptir miklu máli hvernig
þjónusta er veitt og hvert mark-
miðið er með henni. Þegar regl-
unum var breytt í vor sagði for-
maður félagsmálaráðs að fólk
væri aðeins á fjárhagsaðstoð í
skamman tíma. Þetta er einfald-
lega ekki rétt. Það er umtals-
verður hópur, mun fleiri en fólk
gerir sér grein fyrir, sem aldrei
haslar sér völl á vinnumarkaði
en er bara meira og minna á fjár-
hagsaðstoð," segir viðmælandi
okkar.
MISNOTKUN Á KERF-
INU HEFUR MARG-
FALDAST
„Við erum vestræn menning-
arþjóð í þróun og því fylgir sí-
fellt stærri og stærri hópur sem
fyrst og fremst lifir á öðrum.
Það eru önnur norm sem gilda
hjá þessu fólki og það er andfé-
lagslega sinnað í þeim skilningi
að það leggur ekkert af mörkum
til samfélagsins heldur notar
bara. Þegar öðru fólki finnst það
bæði hafa réttindi og skyldur
gagnvart samfélaginu lítur þetta
fólk þannig á hlutina að það hafi
réttindi en engar skyldur. Þetta
fólk stendur æpandi á Félags-
málstofnuninni og æpir á pen-
ing fyrir mat en er búið að borga
af afruglaranum og viðgerð á
honum líka.
Misnotkun á opinberri þjón-
ustu hefur margfaldast í gegn-
um tíðina."
SKJÓLSTÆÐINGARNIR
GÆTU ALLT EINS
VERIÐ TÆLENSKIR
„Það hefur verið yfirlýst mark-
mið að koma fólki út úr kerfinu
sem fyrst en maður spyr sig
hvort það sé líka hið raunveru-
lega markmið. Líberalístískur
þankagangur er þannig að menn
séu misgóðir og að það sé í lagi
að henda bara afgöngunum í
aumingjana. Þessi félagslega að-
stoð hefur alltaf heitið hjálp til
sjálfshjálpar en í hverju hefur
hún falist og á forsendum
hverra hefur hún verið veitt?“
spyr heimildarmaður okkar.
„Hérlendis er í gangi þjóðsögn
um það að í landinu búi ein
þjóð, bókmenntaþjóð, sem öll
hefur sama gildismatið og sið-
ferðismatið.
í þessum bransa er starfsfólk-
ið flest úr efri eða neðri milli-
stétt og þetta fólk gengur út frá
sínum eigin gildum í samskipt-
um sínum við skjólstæðingana
sem oft á tíðum eru jafn fjarlæg-
ir þeim menningarlega og fólk
frá Tælandi eða einhverri annari
Asíuþjóð.“
FJÓRAR HEITAR MÁL-
TIÐIR A DAG
„Sem skýrt dæmi um þetta vil
ég nefna konu eina. Hún á fullt af
börnum sem eru öll ofboðslega
vannærð. Þau eru blóðlaus og
máttlítil og halda varla höfði
þegar þau mæta í skólann. Þeg-
ar þetta var borið undir konuna
sagðist hún ekkert skilja í þessu
því börnin fengju alltaf fjórar
heitar máltíðir á dag! Þetta sýnir
bara hvenig veröld þetta fólk lif-
ir I, þessi kona gerir sér ekki al-
mennilega grein fyrir hvernig
hlutirnir ganga fyrir sig hjá
„normal" fólki en hefur þó heyrt
einhvern ávæning af því að fólk
borði einhvern tiltekinn fjölda
af heitum máltíðum á dag og yf-
irbýður það bara. Þetta sýnir
hve nauðsynlegt er að talað sé
mál sem báðir aðilarnir skilja.“
HVORKI LÆSIR NÉ
SKRIFANDI
„Þetta fólk sendir börn sín
fimmtán og sextán ára til Félags-
málastofnunar til að reyna að fá
pening út á sjálf sig en þeim er
náttúrlega bara vísað heim aftur
því foreldrarnir eru skyldugir til
að framfleyta börnunum til átj-
án ára aldurs.
Opinberlega er sagt að ekki sé
til ólæsi á íslandi — við erum jú
fólkið sem skrifaði íslendinga-
sögurnar á sínum tíma. Aður,
þegar fólk þurfti að fylla út um-
sóknirnar sínar sjálft, kom það
oft á daginn að það var ekki
skrifandi. Þetta fólk gat ekki
skrifað nöfn barna sinna, heimil-
isfang sitt eða orð eins og öryrki
og atvinnulaus. Sumir gátu ekki
einu sinni skrifað sitt eigið nafn.
Sumt af þessu fólki á stóra og
mikla og drauma og hjá nokkr-
um rætast þeir og aðrir þokast í
átt að uppfyllingu þeirra. Það er
stór áfangi fyrir suma að flytja
úr leiguhúsnæði borgarinnar í
íbúð hjá verkamannabústöðun-
um og það kemur hingað inn á
gólf með glampa í augunum,"
segir heimildarmaður okkar að
lokum.
Rekstrargjöld Félagsmálastofnunar 1990 til 1995 - og hlutfall atvinnulausra á höfuðborgarsvæðinu á sama tíma.
Rekstrargjöld 1995 eru áætluð. Atvinnuleysistölur 1995 liggja ekki fyrir.
en vonast er til að með nýja kerfinu
heyri það sögunni til þótt ekki sé
komin full reynsla á það ennþá,“
segir Lára.
ATVINNULEYSJ OG
QLDRUNARÞJONUSTA
ASTÆQA STORHÆKK-
UNAR UTGJALDA
Útgjöld til Félagsmálastofnunar
voru 1.093 milljónir króna árið
1990. Árið 1994 var þessi upphæð
komin í 1.788 milljónir króna. Þetta
þýðir að útgjöldin hafa aukist um 61
prósent á fimm árum. Og útlit er fyr-
ir að útgjöldin á þessu ári verði enn
meiri, eða um 1.840 milljónir.
Hvernig skýrir Lára þessa hækkun?
„Ástæðan fyrir gífurlegri hækkun
útgjalda Félagsmálastofnunar
síðustu fimm árin er í meginatrið-
um tvíþætt. Annars vegar hefur
bein fjárhagsaðstoð aukist gífurlega
í kjölfar aukins atvinnuleysis og
efnahagskreppu," segir Lára. „Hins
vegar er það öldrunarþjónustan
sem hefur aukist jafnt og þétt.“
„Þessu til viðbótar má nefna auk-
in umsvif í heimaþjónustu við fatl-
aða en almennt má segja að mjög
margar breytingar hafi átt sér stað
á þessu tímabili, meðal annars
margvíslegar lagabreytingar,“ segir
Lára.
„Að mati starfsfólks hafa þessi
auknu verkefni stofnarinnar ekki
haft í för með sér samsvarandi fjölg-
un starfsmanna og því er vinnuálag-
ið meira en áður. Meðal annars
þess vegna er nauðsyn á vinnuhag-
ræðingu og aukinni tölvuvæðingu,“
segir Lára.
FJÓRÐA KYNSLÓÐ ,
SKJOLSTÆÐINGA FE-
LAGSMALASTOFNUIUAR
Dæmi eru þekkt um að börn skjól-
stæðinga verði sjálf skjólstæðingar
stofnunarinnar þegar þau komast á
fullorðinsár og jafnvel dæmi um að
allt að fjórar ló'nslóðir sömu fjöl-
skyldu séu eða hafi verið á mála hjá
stofnuninni. Hvað segir Lára um
það?
„Jú, maður sér náttúrlega dæmi
þess að það að vera skjólstæðingur
Félagsmálastofnunar gengur í erfðir
í einstaka tilfellum. í fræðibókum er
talað um hinn félagslega arf. Þar
sem langvarandi fátækt er fyrir er
erfitt að vinna á henni. Það er sífellt
verið að reyna að byggja fólk upp
en það gerir okkur erfitt fyrir þegar
svona gífurlega mikil aukning er á
skjólstæðingum. En það er ýmislegt
reynt eins og til dæmis að styrkja
fólk í atvinnuleit,“ segir Lára.
„Ég hef oft haldið því fram að því
betur sem fólki er hjálpað í upphafi
því betur gengur því að komast á
réttan kjöl aftur.
En þetta er nú alveg öfug kenning
við þá kenningu sem margir aðrir
hafa um það að taka beri á móti
fólki með fálæti þegar það snýr sér
til stofnunar eins og okkar í fyrsta
skipti. Og ég vinn að sjálfsögðu eftir
minni kenningu í starfi mínu sem fé-
lagsmálastjóri,“ segir Lára Björns-
dóttir.
oc| Felo tok
Það er misinunandi hvaða áhrif hinar nýju
starfsreglur Félagsmálastofnunarinnar hafa
á afkomu skjólstæðinga hennar. Hér að neð-
an eru nefnd nokkur raunveruleg dæmi
fengin frá stofnuninni sjálfri.
1. 54 ára karlmaöur, fráskilinn, atvinnulaus í leiguhús-
næði á almennum markaði. Barnlaus. Þessi maður hefur
engar tekjur.
í gamla kerfinu fékk hann 70.460 krónur mánaðarlega en
hann lœkkar um 9.864 krónur og fær aðeins 60.596 krónur
til ráðstöfunar í nýja kerfinu.
2. 22 ára kona, ógift og barnlaus, nemi sem dvelur hjá
ættingjum.
Þessi stúlka hefur 17.539 krónur í mánaðartekjur. Sam-
kvæmt gamla kerfinu fékk hún 25.409 krónur í aðstoð og
hafði því samtals 42.948 krónur til ráðstöfunar áöur. f clag
fær hún hins vegar 36.057 krónur i bætur og hefur því
samtals 53.596 krónur úr að moða mánaðarlega. Ráðstöf-
unartekjur hennar hœkka því um 10.648 krónur.
3. 23 ára gömul kona sem er ógift og atvinnulaus. Hún
býr í leiguhúsnæði á almennum markaði og á eitt barn.
Þessi einstæða móðir hefur 25.865 krónur mánaðarlega
í tekjur, þar af 21.778 krónur vegna barnsins (meðlög,
barnabætur og þess háttar). Hún fékk áður 62.484 krónur í
aðstoð og hafði því alls 88.349 krónur á mánuði. I dag fær
hún 54.070 krónur í aðstoð og lœkkar því um 8.415 krónur
og hefur alls 79.934 krónur til ráðstöfunar.
4. 44 ára kona, fráskiiín, verkakona í hlutastarfi. Býr í
íbúð frá húsnæðisnefnd (verkamannabústaður) og á þrjú
börn.
Þessi kona hefur 85.913 krónur í tekjur á mánuði. 75.479
krónur af tekjum hennar eru vegna barnanna og þar af
20.647 í mæöralaun, en þau teljast konunni tii tekna. Hún
fékk áður 1.446 krónur í aðstoð og hafði því 87.375 krónur
til umráða á mánuði. í dag fær hún 22.515 krónur f aðstoð
og hefur 108.428 krónur til umráða og hœkkar um 21.053
krónur.
5. 43 karlmaður, sem er í sambúð. Hann er atvinnulaus
eins og sambýliskona hans. Þau eiga tvö börn og búa í eig-
in íbúð.
Þetta fólk hefur 53.907 krónur í tekjur á mánuði, þar af
14.992 krónur vegna barnanna. Þau fengu 41.809 krónur í
aðstoð áður og höfðu því samtals 95.716 krónur í ráðstöf-
unartekjur. í dag nemur aöstoðin 57.488 krónum og þau
hækka því unr 15.679 krónur og fá til ráðstöfunar 111.395
krónur á mánuði.
PÁLI PÉTURSSYNI
félagsmálaráð-
herra er ekki
alls varnað þegar at-
vinnuleysið er ann-
ars vegar. í gær tók
hann að sér forystu-
hlutverk innan ríkis-
stjórnarinnar til
lausnar á atvinnu-
leysisvandanum og
auglýsti í raðauglýs-
ingum Moggans að
næga vinnu væri að
hafa. Öfugt við aðra
atvinnurekendur
sem auglýsa eftir
fólki í vinnu var Páll
ekki að auglýsa laus
störf á vegum félags-
málaráðuneytisins
heldur hjá fisk-
vinnslustöðvum víða
um land. Eigendur
fiskvinnslunnar eru
að vonum kátir að fá
ókeypis auglýsingar
á kostnað félags-
málaráðuneytisins
en fæstir þeirra hafa
hingað til litið á
bóndann á Höllu-
stöðum sem stærsta
bandamann sinn...
1 1