Helgarpósturinn - 07.09.1995, Page 4

Helgarpósturinn - 07.09.1995, Page 4
4 FIMWTUDyGUR~7rSEPTEIVIBER-lW5l I ikið magn | af bensín- menguðu hassi er í umferð í Reykjavík. Hassið hefur verið í sölu undanfarnar vikur og er algengt verð fyrir grammið í kringum 1.800 krónur. Hassið er talið komið frá Marokkó en ekki er vitað hverning það mengaðist bensíni. Björn Halldórsson, yfirmaður fíkninefna- lögreglunnar, sagði hana hafa haft af- spurnir af bensín- mengaða hassinu en sem komið er hefur lögreglan ekki gert nokkuð af því upp- tækt. Samkvæmt heimildum PÓSTSINS var nýlega smyglað 10 kílóum af hassi í bensíntanki á bíl sem fluttur var til landsins og er hassið sem nú er á götum Reykjavíkur hluti af þeirri sendingu. Ekki er ljóst hvaða áhrif það hefur á hass- neytendur að reykja efni blandað bensíni en stórhættulegt er að sniffa bensín eins og kunnugt er... Fjármál Alþýðuflokksins eru enn á ný í' brennidepli vegna átaka í kringum fjármálastjórn flokks- ins sem farið hafa fram bak við tjöldin að undanförnu Greiðslur til gjakl- keranstil skoðunar Starfslokasamningur sem gjaldkeri Alþýðufokksins, Sigurð- ur E. Arnórsson, virðist hafa unnið eftir síðustu mánuði verður tek- inn til umfjöllunar á næsta fundi framkvæmdastjórnar flokksins. Þessi samningur var óstaðfestur þar til fyrir viku en kratar hafa túlkað orð formanns flokksins, Jóns Baldvins Hannibalssonar, hér í Póstinum á þá vegu að samning- urinn sé staðreynd. Þar sagði Jón Baldvin: „Sigurður Arnórsson hafði sjálfur frumkvœði, að því er varðaði hans starfa fyrir kosning- ar, að fara að tillögu sem var lögð fram í framkvœmdastjórn. Hann sagði upp. Þrír mánuðir eru liðnir. Guðmundur Oddsson, lykil- maður í fjármálum Alþýðu- flokksins. Lúðvík Bergvinsson vann sæti fyrir flokkinn á Suður- landi en það er talið hafa kostað tvær milljónir króna. Hann er ekki á launum hjá Al- þýðuflokknum. “ Það sem menn telja alvarlegt við samninginn — fyrir utan það að Sigurður virðist hafa gert hann við sjálfan sig — er að framkvæmdastjórn hafði áður verið búinn að hafna slíkum samningi og Jrriggja mánaða biðlaunum. A fundi fram- kvæmdastjórnar flokksins í apríl síðastliðnum voru starfsmanna- mál flokksins til umræðu. Lá þar fyrir tillaga gjaldkera flokksins um biðlaun í þrjá mánuði og fylgdi formaður framkvæmda- stjórnar henni úr hlaði. Henni var hafnað og var litið svo á að Sigurður væri ekki á launaskrá eftir 30. apríl en þá átti öllum launasamningum sem rekja mátti til kosningabaráttunnar að vera lokið. Voru sérstakar bók- anir þar um á fundinum. Af samtölum við krata að ráða virðist þeim brugðið yfir því að gjaldkeri flokksins hafi haldið áfram að greiða sér laun í þrjá mánuði þvert á vilja fram- kvæmdastjórnar. Hafa menn gjarnan bent á að Sigurður er í trúnaðarstörfum fyrir flokkinn á öðrum vettvangi og nefna þar til stjórnarformennsku í Alprent hf. sem er útgáfufélag Alþýðublaðs- ins. Eru heimildir fyrir |rví að fyr- ir störf sín fyrir Alþýðublaðið hafi Sigurður greitt sér laun en hann staðfestir aðeins að hafa fengið greiddan kostnað. Allar þessar launagreiðslur til Sigurð- ar hafa farið í gegnum hann sjálf- an en ekki framkvæmdastjórann, sem einn annar hefur prókúru á aðalskrifstofu. Menn innan flokksins hefur rekið í rogastans yfir því að Sigurður skuli vera í aðstöðu til að greiða sér laun eft- ir samningum sem enginn kann- ast við að hafi verið samþykktir í stjórnum félagsins. Sigurður kom til starfa fyrir flokkinn síðasta haust en þá lagði hann fram drög að starfs- samningi þar sem hann fór fram á að vera ráðinn framkvæmda- stjóri þingflokks og erindreki flokksins. Þessum drögum var hafnað af tveim þingflokksfor- mönnum, þeim Rannveigu Guð- mundsdóttur og síðar Sigbirni Gunnarssyni. í þessum drögum var meðal annars farið fram á þriggja mánaða uppsagnarfrest. I framhaldi af því gerði Sigurður og Guðmundur Oddsson, formað- ur framkvæmdastjórnar, sam- komulag um að Sigurður yrði launaður fjármálastjóri kosn- ingabaráttunnar og starfaði hann sem slíkur í vor. Menn hafa hins vegar verið að furða sig á því að hann væri launaður starfsmaður — með um það bil 200 þúsund krónur á mánuði auk greiðslna vegna kostnaðar út af akstri og dagpeningum — vegna þess að Sigurður hefur haft litla viðveru á skrifstofum flokksins. Um tvo til þrjá tíma að morgni hvers dags, segja heimildir. TÓK ÞÁTT í SIÐVÆÐ- ll\IGARUMRÆÐUIUI\ll Allt þetta mál blandast inn í siðvæðingarumræðu sem flokk- urinn fór í gegnum síðasta haust vegna mála Guðmundar Árna Stef- ánssonar. Segja menn að Sigurð- ur hafi gjarnan fylkt sér með þeim sem harðastir voru gegn Guðmundi og þess vegna séu efasemdir um heilindi hans enn alvarlegri nú. Þá er greinilegt að ekki er gróið um heilt frá því síð- asta haust þar sem mikil átök urðu um varaformanninn. Hafa menn orðið til að rifja upp að kjördæmum hafi verið mismunað fjárhagslega í kosn- ingabaráttunni. Eru heimildir fyrir því að talsvert hærri fjár- munir hafi farið til Reykjavíkur, Suðurlands og Vestfjarða en til annarra kjördæma. Reykjanes hafi þar til dæmis orðið afskipt enda viðurkennd stefna í kosn- ingabaráttunni að halda Guð- mundi Árna til hliðar. Mun þetta hafa verið sérlega áberandi á Suðurlandi þar sem nýr maður, Lúövik Bergvinsson, vann sæti fyr- ir flokkinn með um 800 atkvæð- um. Vann sætið en missti at- kvæði frá því í síðustu kosning- um. Hefur því verið haldið fram að herkostnaður í kjördæminu hafi verið um tvær milljónir króna. Þess má geta að Lúðvík er bróðursonur Guðmundar Odds- sonar sem var einn þeirra sem stjórnaði útstreymi peninga í kosningunum. REIKIUINGAR SÍQUSTU KOSMINGABARATTU Reikningar og uppgjör síðustu kosningabaráttu hafa ekki komið fyrir sjónir framkvæmdastjórn- ar, þingflokks né annarra stjórn- arapparata flokksins. Mjög lok- aður hópur í kringum formann framkvæmdastjórnar hefur einn yfirlit yfir þessi fjármál. í þessum hópi er meðal annars Stefán Friö- finnsson sem var formaður kosn- ingastjórnar Alþýðuflokksins í Alþingiskosningunum. Allt þetta verður dálítið spaugilegt í ljósi viðtals í Alþýðublað- inu við Sigurð E hugmynda Guðmundar um breytingar á skipulagi flokksins. Fjármál Alþýðublaðsins hafa einnig orðið mönnum tilefni vangaveltna en heimildir eru fyr- ir því að verulega hafi hallað á fjárhagsstöðu blaðsins á þessu ári. Að sögn Sigurðar E. Arnórs- sonar þá er aðalfundur fyrir árið 1994 framundan og sagðist hann ekki sjá annað en þar væru við- unandi tölur. „Þetta blað hefur hins vegar litla útbreiðslu og því reynir mik- ið á auglýsingasölu. Á kosninga- ári er hins vegar ávallt meiri kostnaður vegna stækkunar á ritstjórn og reynslan segir okkur að slík ár séu blaðinu erfið. Ég hef hins vegar engar áhyggjur af framtíð blaðsins." Arnórsson 8. júní 1994 en fyrir- sögn viðtalsins var; „Höfum for- göngu um opnun bókhalds stjóm- málaflokka". í viðtalinu vekur Sigurður athygli á að mikið vanti á að nægilegt aðhald hafi verið í fjármálum flokksins. Sem kunnugt er þá hefur nú- verandi framkvæmdastjóri flokksins, Siguröur Tómas Björg- vinsson, sagt upp störfum en hann er nú í fríi. Heimildir eru fyrir því að ein af ástæðum þess að hann hætti störfum nú var óánægja með hve Sigurður E. Arnórsson sótti stíft inn á það sem var skilgreint starfssvið f ramkvæmda- s t j ó r a n s . Naut hann þar full- t i n g i s G u ð - m u n d a r Oddsson- ar en átök voru milli hans og Sig- u r ð a r Tómas- a r vegna Sigurður E. Arnórsson, gjaldkeri Alþýðuflokksins og stjórnarformaður Alprents, segir að formaður framkvæmdastjórnar hafi samþykkt reikninga hans. Sigurður E. Arnórsson gjaldkeri „Guðmundur samþykkir reikningana mfna" En greiða þeir einhvern kostn- að fyrir þig? „Blaðið hefur greitt fyrir mig bílakostnað.“ Hvert leggurþú reikninga? „Guðmundur Oddsson hefur samþykkt þá og ég tek það fram að Guðmundur gengur frá öllum samningum við mig þannig að það er ekki um að ræða að ég sé að semja við sjálfan mig.“ „Ég mæli með því að þú talir við formann framkvæmda- stjórnar enda er þetta alveg hans mál,“ sagði Sigurður E. Arnórsson, þegar hann var spurður um samninga varðandi hans störf fyrir Alþýðuflokkinn. „Það hefur aldrei verið gerð- ur við mig starfslokasamningur og það er ekki rétt að ég hafi þegið laun þessa þrjá mánuði.“ Nú hafa margir lagt þann skilning í orð formanns flokks- ins í síðasta Pósti að þú hafir þegið laun í þessa þrjá mánuði? „Það er einfaldlega ekki rétt- ur skilningur.“ Hvar þiggur þú laun? „Ég hef verið að vinna í hluta- starfi annars staðar og meðal annars verið að undirbúa stofn- un fyrirtækis,“ sagði Sigurður, sem vinnur einnig að búferla- flutningum slnum og fjölskyldu sinnar suður fyrir heiðar. Þiggur þú laun hjá Alþýðu- blaðinu? „Nei.“

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.