Helgarpósturinn - 07.09.1995, Síða 18

Helgarpósturinn - 07.09.1995, Síða 18
18 mú styttist óð- um í að hinn nýstofnaði hafnfirski leikhópur, Hermóður og Háð- vör, frumsýni sitt fyrsta leikverk. Verkið, sem er eftir Árna Ibsen, sem tal- inn er einn af okkar albestu leikritahöf- undum, eins og leik- rit hans Fiskar á þurru landi þykir bera vitni um, hefur fengið heitið Himna- ríki og hafa gárung- ar bætt því við neð- anmáls að þetta sé geðklofa gamanþátt- ur í tveimur þáttum, enda þykir uppbygg- ing verksins afar sérstæð þar sem heita má að áhorf- endur fái aðeins að fylgjast með annarri hlið mála í einu. En eins og komið hefur fram er leikritið í raun leikið tvisvar og munu áhorfend- ur, sem skipta með sér sætum í hléi, því fá allt aðra sýn fyrir og eftir hlé. Alls taka sex leikarar þátt í sýningunni undir leikstjórn HlLMARS JÓNSSONAR. í fyrstu var ekki ljóst hvern- ig leikfélaginu myndi reiða af fjár- hagslega, en PÓST- URINN hefur heimild- ir fyrir því að þau mál séu nú komin í höfn. Eftir því sem næst verður komist mun bæjarfélagið bakka leikfélagið upp með tveggja milljóna króna styrk, auk þess sem Sparisjóður Hafnar- fjarðar, BYKO og Vífilfell munu leggja sitt af mörkum. Eins og einnig hefur ver- ið greint frá hefur leikfélagið fengið að- stöðu þar sem Bæj- arútgerð Hafnar- fjarðar var áður, en það er við höfnina þar sem útsýni yfir er ægifagurt. Til þess að Hafnfirðing- ar og aðrir nærsveit- ungar megi njóta góðrar stundar í Hafnarfirði ætlar Veitingahúsið A Hansen að bjóða upp á leikhúsmat- seðil... Ertu á leiðinni upp eða niður í lífinu? Ertu á uppleið eða niðurleið í lífinu? Er þér boðið í aðalpart- íin, hlustarðu á al- mennilega músík, ferðu út að borða á bestu stöðunum, held- urðu með góðu félagi, þekkirðu rétta fólkið? Hér er gagnlegur mælikvarði á það hvort þú ert á leiðinni upp eða hvort allt stefnir niður á við. UPPLEIÐ Þér er boðið að koma fram á stand-up kvöldi í Loftkastalanum. NIÐURLEIÐ Þér er boðið að koma fram á hagyrðingakvöldi undir stjórn Ómars Ragnarssonar. UPPLEIÐ Þú ert nýkominn frá Wagner-há- tíðinni í Bayreuth þar sem þú skemmtir þér konunglega við að hlusta á Hringinn í sextán klukku- tíma. NIÐURLEIÐ Þú hittir kunningja þinn sem er nýkominn frá Wagner-hátíðinni í Bayreuth og heldur að hann hafi farið til Beirút. UPPLEIÐ Þú færð póstkort frá Björk Guð- mundsdóttur sem er í hljómleika- ferð í Cleveland. NIÐURLEIÐ Þú færð áritað eintak af plöt- unni sem Kristján Jóhannsson söng inn á fyrir Naxos-útgáfuna. UPPLEIÐ Þú sendir Birni Bjarnasyni skila- boð á Internetinu og hann svarar þér um hæl. Loks býður hann þér að koma niður í ráðuneyti að spjalla. NIÐURLEIÐ Börnin þín fá ekki inngöngu í Menntaskólann í Reykjavík — af því þú fluttir í Garðabæinn. UPPLEIÐ Það má þekkja þig sem eina per- sónuna í bókinni hans Hallgríms Helgasonar. NIÐURLEIÐ Það má þekkja þig sem eina per- sónuna í bók Svavars Gestssonar. UPPLEIÐ Þú færð þér byssuleyfi og veiði- kort og ákveður að skjóta jóla- steikina sjálfur. NIÐURLEIÐ Þú átt þrjá veiðidaga í Elliðaán- um, tímir ekki að sleppa þeim, en hefur ekki lyst á að veiða fisk með kýlapest. UPPLEIÐ Þú lendir í ritdeilu við dr. Benj- amín Eiríksson. NIÐURLEIÐ Þú lendir í ritdeilu við Helga Hálfdanarson. UPPLEIÐ Þér finnst Steinunn Ólína Þor- steinsdóttir flottasta pía á íslandi. NIÐURLEIÐ Þér finnst Ólöf Rún Skúladóttir flottasta pía á íslandi. UPPLEIÐ Þú þegir yfir því, en í hljóði ertu fagnandi vegna þess að Sigurður E. Guðmundsson hjá Húsnæðis- stofnun flutti húsbréfalánið þitt af gömlu íbúðinni þinni yfir á þá nýju. NIÐURLEIÐ Þér er synjað um fyrirgreiðslu hjá Lífeyrissjóði bænda. UPPLEIÐ Þér er gefið árskort í Tennis- höllinni. NIÐURLEIÐ Þér er gefið árskort í Baðhús- inu. UPPLEIÐ Hljómsveitin Kósí spilar í stóraf- mælinu þínu. Þér líður stundar- korn eins og þú sést af kósí-kyn- slóðinni. NIÐURLEIÐ Árni Johnsen tekur nokkur lög í afmælinu þínu. Hann vill ekki hætta og gestirnir fara snemma heim. UPPLEIÐ Þú kynnist viðkunnanlegum manni í golfi á Grafarholtsvelli og hann kynnir sig sem Ásgeir Sigur- vinsson. Þið golfið saman einn hring. NIÐURLEIÐ Þú ferð á völlinn að hvetja Fram, þitt félag í fótboltanum. Þú hittir Einar Kárason í hálfleik og þið ákveðið að fara heim. UPPLEIÐ Þú lætur Kristján Þorvaldsson, ritstjóra Mannlífs, ganga á eftir þér mánuðum saman með beiðni um forsíðuviðtal. Loks segistu ekki hafa tíma. NIÐURLEIÐ Eiríkur Jónsson hringir í þig og biður þig um að koma fram í þætt- inum sínum. Þú hefur óljósan grun af hverju. UPPLEIÐ Þú færð viðurkenningu fyrir óvenju vandaða heimasíðu á Int- ernetinu. NIÐURLEIÐ Þér finnst allt í lagi að segja „al- net“ í staðinn fyrir Internet. UPPLEIÐ Þú hittir Davíð Oddsson á opn- un í Listasafninu og hann heilsar þér innilega, „með þökk fyrir allt gamalt og gott“. NIÐURLEIÐ Þú hittir Pál Pétursson í hófi í Osta- og smjörsölunni, þakkar honum vel unnin störf og segist hjartanlega sammála honum um að íslendingar séu ekki of góðir til að vinna í fiski. UPPLEIÐ Þú ferð til geðlæknis og hann ákveður undir eins að setja þig á prosac. Þú sérð fram á betri tíð. NIÐURLEIÐ Þú ferð til geðlæknis og eftir kortér er hann orðinn óþolinmóð- ur og segir þér að tala við heimil- islækninn þinn. UPPLEIÐ Þú hefur enga skoðun á for- mannskosningunum í Alþýðu- bandalaginu. NIÐURLEIÐ Þú ert að vona að allir séu búnir að gleyma að þú hélst að tími Jó- hönnu væri kominn og starfaðir fyrir Þjóðvaka í þingkosningunum. UPPLEIÐ Þér var boðið á kvennaráðstefn- una í Kína en ákvaðst að vera heima. NIÐURLEIÐ Þú fórst á kvennaráðstefnuna í Kína og þakkaðir Kínverjum fyrir gestrisnina í símaviðtali við út- varpið. UPPLEIÐ Þú ferð að borða á Holtinu og Skúli Þorvaldsson kemur til þín og spyr hvernig þér hafi líkað matur- inn. NIÐURLEIÐ Barþjónarnir á Kringlukránni þekkja þig með nafni og vita hvað þú drekkur. UPPLEIÐ Þú færð ekkert atkvæði í at- kvæðagreiðslu útvarpsráðs um fréttamenn á sjónvarpinu. Þú ákveður að leita þér að vinnu í Noregi. NIÐURLEIÐ Þú færð lektorsstöðu við Há- skólann og hættir á atvinnuleysis- bótum. UPPLEIÐ Þú finnur silfursjóð frá víkinga- öld í kartöflugarðinum þínum og flýtir þér að grafa hann aftur. NIÐURLEIÐ Þú fékkst umboð fyrir franskan camenbert-ost en færð ekki að flytja hann inn — af því svoleiðis ostur er framleiddur á Islandi.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.