Helgarpósturinn - 07.09.1995, Side 26

Helgarpósturinn - 07.09.1995, Side 26
26 'FIMMTLiD*A*GUR*7TSEPTEIvlBER1^ag Heitt kalt V ÞAÐ ER TOPPURINN AÐ VERAí TEINÓTTU sungu Helgi Björns og félagar fyrir ekki mikið meira en tveimur árum síðan. Þá var einmitt toppurinn að vera í teinóttu. Það er ef til vill merki um hug- myndafátækt mestu tískumógúla heims að nú, svona örskömmu síðar, er aftur toppurinn að vera í teinóttu þótt snið- ið á klæðnaðinum, það er; jakkafötun- um, hafi ef til vill eitthvað breyst. Þá er barasta um að gera að skella sér til saumakonunnar á horinu og láta breyta hinum tveggja ára jakka- fötum sinum í takt við tímann. BLÓMARÓSIR Eins og sú sem kjörin var Blóma- rós Hveragerðis síðastliðið föstu- dagskvöld á Hótel Örk. Þetta er ein- hver alhallærisleg- asti fegurðar- drottningatitill sem um getur, svo hall- ærislegur að hann er orðinn heitur að nýju. Lengi lifi keppnin um Ung- frú Hveragerði. BEIB Bara til að ít- reka það að beiþin séu komin vel und- ir frostmark má geta þess að heimasíðan hennar Pamelu Anderson á Internetinu er ekki nándar nærri eins vinsæl og heimasíða Terry Hatcher sem nú leikur í Louis Lane í Superman-þátt- unum á Stöð 2. Terry þessi hefur greindarlegt og sjarmerandi útlit sem byggir vænt- anlega á að eitt- hvað sé að gerast þar fyrir innan. segir Margrét Vilhjálmsdóttir, sem fer með hlutverk Línu langsokks. „Þetta er flottasti femínisti allra tíma, fyrir mér er hún frelsið," seg- ir Margrét Vilhjálmsdóttir sem á sunnudaginn bregður sér i draumahlutverk sitt en þá verður leikritið um Línu langsokk frum- sýnt í Borgarleikhúsinu. Börnum og fullorðnum ætti flestum að vera vel kunnug saga stelpunnar Linu, sem býr á Sjónarhóli með apanum sínum og hesti. Lína er engri lík, óvenjuleg, uppátækjasöm og skemmtileg stelpa og hefur verið fyrirmynd ungra stúlkna árum saman rétt eins og Florence Night- ingale er fyrirmynd eldri kvenna. Með hlutverk Línu fer Margrét Vil- hjálmsdóttir en hún þykir passa sérstaklega vel í hlutverkið. Ekki aðeins að Margrét líkist Línu í út- liti heldur þykir margt í fari Margr- étar sambærilegt við Línu. Hvort Margrét loftar hesti eins og Lína kemur væntanlega í ljós í Borgar- leikhúsinu á sunnudaginn. þarff ekki að láta passa sig. Blaðamaður Time gefur lesend- um þá þörfu ábendingu að nafn poppstjörnunnar sé borið fram „Bee-yerk“, hvað sem íslendingum kann svo að finnast um þá kenn- ingu. Hann fer afar lofsamlegum orðum um nýju plötuna hennar, Post, og segir að hún sé þroskaðra og snjallara verk en fyrri sólóplata hennar, Debut. Hann segir enn- fremur að hún hafi meira vald yfir röddinni sinni en áður, hún renni sér ekki bara upp tónstigann, heldur noti röddina til að túlka áleitnar myndir sem komi fram í textum hennar. Blaðamaðurinn ræðir við Björk í setustofu glæsihótels í Hollywood og segir að hún eigi ekki vel heima í slíku umhverfi. Hún segir honum að mamma sín sé kennari í jap- önsku bardagalistinni akido, en pabbi sinn sé formaður Rafvirkja- sambandsins á íslandi. Einu sinni hafi hún verið gift strák sem heitir „Thor“ en nú heiti kærastinn hennar Tricky og sé lagahöfundur. Vinum sínum finnist hún vera jarð- bundin og raunsæ, hún sé einstæð móðir og vinnusjúklingur en marg- ir sjái hins vegar eitthvað dular- fullt í fari sínu. Hún segir að fólki á íslandi finnist hún skrítin. Blaðamaður Tirne er greinilega stórhrifinn og lýkur greininni með svofelldum orðum: „Björk kann að sýnast fremur rýr og auðsæranleg, en kona sem er svo ákveðin að hún segir skilið við hljómsveitina sína, landið sitt og mann sem heit- ir Thor og tekst af eigin rammleik að verða alþjóðleg poppstjarna þarf varla neinn til að gæta sín.“ Hingað til hafa blaðamenn á heimspressunni ekki oft þurft að slá stafinn „ö". Nú eru breyttir tímar og nú síðast þurfti blaða- maður Time að nota þetta einkennilega tákn. Þú kemst ekki í qeqnum vikuna... .. .án þess að yppta öxlum yfir kvenna- ráðstefnunni í Kína, sérstak- lega yfir hin- um áberandi íslensku þátt- takendum. ...nemaað þú breytir um stíl. .. .án þess að snúa tímaglas- inu við. .. .án þess að breyta um drykkjusiði, eins og árstíðaskipti hafa gjarnan í för meo sér. í stað svaladrykkjanna skal nú taka upp drykkju á þung- um síðkvölda- drykkjum.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.