Helgarpósturinn - 07.09.1995, Page 28
FIMMTUDAGUR
16.40 Einn-X-Tveir (e)
17.30 Fréttaskeyti
17.35 Leiðarljós
223. þáttur. Nú fer að draga til
tíðinda, ekki seinna vænna.
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Ævintýri Tinna
Skurðgoðið með skarð í eyra.
19.00 Matador
Danskur framhaldsmyndaflokkur,
20.00 Fréttir
20.30 Veður
Sól fyrir norðan og austan, skúrir
sunnanlands.
20.35 Nýjasta tækni
og vísindi
Umsjón Sigurður H. Richter.
21.05 I sólskinsskapi
Bandarísk gamanmynd.
23.00 Ellefufréttir
FÖSTUDAGUR
17.30 Fréttaskeyti
17.35 Leiðarljós
224 þáttur. Það gerist örugglega
eitthvað núna.
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Litli lávarðurinn
19.00 Væntingar
og vonbrigði
Muniði eftir Fame-þáttunum,
þessir eru í svipuðum dúr. Hvað
varð um leroy?
20.00 Fréttir
20.35 Veður
20.40 Kjól og kall
Breskur orðaleikur.
21.15 Lögregluhundurinn Rex
Hundurinn Rex og Moser lög-
regluforingi í góðum svíng.
22.15 Kavanaqh lögmaður
Inspector Morse.
23.35 Carole King
00.35 Útvarpsfréttir
LAUGARDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
10.55 Hlé
14.00 íslandsmótið
í knattspyrnu
Bein útsending frá 16. umferð Is-
landsmótsins.
15.50 Hlé
17.30 Mótorsport
Áhugamenn um felgur og vélar
fá fullnægt sínum hvötum.
18.00 íþróttaþátturinn
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Flauel
19.00 Geimstöðin
Dásamlegir þættir.
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Lottó
20.40 Hasar á heimavelli
21.10 Aðeins þú
Bandarisk bíómynd um vandann
að velja milli tveggja kvenna.
22.45 Við dauðans dyr
Sharon Stone og Dylan McDer-
mott leiða hvort annað í freistni.
01.15 Útvarpsfréttir
SUMMUDAGUR
09.00 Morgunsjónvarp
barnanna
10.30 Hlé
15.30 Djasstónleikar
Margir snillingar leika listir sinar.
17.55 Hollt og gott
18.10 Hugvekja
18.20 Táknmálsfréttir
18.30 Alexandra
19.00 Úr ríki náttúrunnar
Refurinn og kanínan.
19.25 Rosanne XXL
20.00 Fréttir
20.30 Veður
20.35 Náttúruminjar
og friðlýst svæði
Frá Arnarstapa að Dritvik.
20.55 Til hvers er lífið? -
Flæmskur myndaflokkur.
22.50 Ferð forseta Islands
til Kína
Vigdís á kvennaráðstefnu.
22.10 Helgarsportiö
22.35 Systurnar
Bresk sjónvarpsmynd um systur
sem hittast eftir langan aðskiln-
að. Önnur er orðin fræg leikkona
en hin er þjónustustúlka.
00.00 Útvarpsfréttir
Sá gestur sem mesta athygli
vekur á bókmenntahátíð sem
hefst í Norræna húsinu á sunnu-
daginn er án efa læknirinn og rit-
höfundurinn Taslima Nasrin frá
Bangladesh. Taslima er 33 ára
og eins og frægt er orðið vann
hún sér það til óhelgi að skrifa
skáldsögu sem ber heitið
Skömmin og fór mjög fyrir
brjóstið á íslömskum bókstafs-
trúarmönnum um víða veröld.
Stuttu eftir að ofsatrúarmenn
uppgötvuðu hvaða efni bókin
hefði að geyma fóru þeir út á
göturnar í flokkum, heimtuðu að
Taslima Nasrin yrði líflátin og
veifuðu sumir meira að segja kó-
braslöngum máli sínu til árétt-
ingar. Sjálf hefur Nasrin sagt frá
því þegar allt gekk af göflunum
vegna bókarinnar:
„ímyndið ykkur hvernig mér
leið þegar 200 þúsund karlmenn
heimtuðu dauða minn í nafni
Allah? í ágúst á síðasta ári var ég
í felum í kjallara í höfuðborginni
Dakka og heyrði hrópin í þeim:
„Drepum Taslima, hengjum
hana, nauðgum henni, rífum
hana í tætlur." Þá skildi ég hvað
einmanakennd er.“
Að endingu kváðu trúaryfir-
völd upp þann dóm að Taslima
Nasrin væri réttdræp hvar sem í
hana næðist. Síðan þá hefur hún
átt athvarf í Svíþjóð, en hefur
ferðast mikið á Vesturlöndum og
skýrt mál sitt fyrir þjóðarleiðtog-
um og forsvarsmönnum mann-
réttindasamtaka. Hún er undir
mjög strangri lögregluvernd
hvert sem hún fer, líkt og skáld-
bróðir hennar Salman Rushdie.
Samkvæmt upplýsingum frá
Norræna húsinu verður hennar
líka vandlega gætt hér.
Fleiri nafntogaðir höfundar
koma hingað á bókmenntahátíð-
ina, þar eru máski athyglisverð-
astir tveir: Jostein Gaarder, höf-
undur Veraldar Soffíu sem varð
óvænt metsölubók víða um álf-
ur, og Martin Amis sem er meðal
þekktustu rithöfunda Bretlands
og var nýskeð mjög í fréttum
vegna sögulegrar tannviðgerðar.
Taslima Nasrin gaf út skáldsög-
una Skömmina fyrir tveimur árum
og var stuttu síðar lýst réttdræp af
íslömskum bókstafstrúarmönnum.
Hennar er gætt af lögreglu hvert sem hún
fer — líka á íslandi.
Hvemig fannst þér veridð
í djúpi daganna?
Erlingur Gíslason, leikari:
„Ég er mjög kunnugur þessu
verki, hef bæði séð það í Frakk-
landi og svo lék ég í því í Þjóð-
leikhúsinu fyrir um tuttugu ár-
um. Mér leist vel á sýninguna í
Lindarbæ, hún er svolítið
öðruvísi en þessar sem ég hef
séð. Þýðingin er fín hjá Megasi.
Þótt þessi aðferð við þýðing-
una sé dálítið vafasöm sleppur
hún oftast. Það má þó finna að
því að það sé of langt gengið
sums staðar. En í heildina
finnst mér þetta skemmtileg og
kraftmikil sýning."
Hulda Stefánsdóttir, myndlist-
arnemi:
„Ég var mjög ánægð með
sýninguna. Mér fannst þýðing-
in hjá Megasi frábær og skipta
öllu máli. Annars fannst mér
sýningin öll vel unnin, leik-
mynd, búningar, leikstjórn og
leikur. Mér finnst Harpa Arnar-
dóttir alltaf mjög góð en það
sem kom mér mest á óvart var
ieikur Þorsteins Bachmann,
hann var mjög góður. Annars
var leikurinn góður yfirhöfuð
þótt Harald G. Haralds hafi
virst svolítið tilgerðarlegur
með sína lífsspeki innan um
hinar persónurnar en það er
hlutverkinu að kenna, ekki
leiknum. Ef ég ætti að finna
eitthvað að þá fannst mér helst
að sýningin rúllaði ekki nógu
vel til að byrja með, það voru
nokkrum sinnum óþarfar sen-
ur fyrir hlé.“
Sigurður Hróarsson, leikhús-
stjóri Borgarleikhússins:
„Mér fannst þetta fallega
unnin sýning og áberandi sterk
í leik. Ég hafði sérstaklega gam-
an af því að sjá þarna marga
unga leikara, sem ekki hafa
fengið fasta búsetu í stórum
leikhúsum, skila sínum hlut-
verkum með mikilli prýði.“
Ingunn V. Snædal, skáld:
„Mér fannst mjög gaman. Ég
var sérstaklega ánægð með
persónusköpun Hinriks Ólafs-
sonar og Þorsteins Bachmann.
Sviðsmyndin var frábær, mjög
hrá og skemmtileg og kom fí-
lingnum vel til skila. Búning-
arnir voru sumir mjög flottir en
annað fannst mér síðra eins og
búningur Sigrúnar Sólar fannst
mér of druslulegur, hann var
eins og búningur á geimveru.
Textinn fannst mér eðlilegur
og skemmtilegur hjá Megasi.
Mér finnst ekkert að því að
staðfæra og færa hlutina í nú-
tímalegra horf og það var vel
gert hjá honum. Ég var ekki al-
veg nógu ánægð með Harald G.
Haralds, mér fannst hann dauf-
legur þótt það sé kannski hlut-
verkinu að kenna. Hann er
þessi Jesú-týpa sem veður um
og reynir að gera gott fyrir alla,
það var svolítið leiðinlegt.“
Agnes Kristjónsdóttir, dansari:
„Mér fannst sýningin mjög
athygliverð. Búningarnir voru
sérstaklega skemmtilegir og
það sama má segja um sviðs-
myndina. Það eina sem mér
fannst að var að sýningin datt
svolítið niður á köflum, það
hefði mátt vera meira „power"
á stundum, en ég var á general-
prufu þannig að það getur hafa
breyst. Mér fannst Benedikt Er-
lingsson afskaplega skemmti-
legur í sínu hlutverki og sömu-
leiðis Sigþór Albertsson og
Steinunn Ólafsdóttir, þótt
reyndar allir hafi staðið sig vel.
Þýðingin var mjög skemmtileg
og öðruvísi miðað við þá
gömlu.“
„Þú ert mjög fallegur. Hvað
ertu gamall? Ertu ekki
sterkur?"
Calvin Klein
feryfir
strikið
Tískukóngurinn Calvin Klein er
frægur fyrir auglýsingar sem
þykja í djarfari kantinum og hef-
ur hann ekki síst látið mynda fyr-
irsætuna lystarstola Kate Moss á
mismunandi stigum nektar. Nú
þykir Klein hins vegar hafa farið
rækilega yfir strikið. Honum
þótti vörurnar sínar ekki seljast
nógu vel og kvaddi til unglinga
sem hann lét mynda í lostafull-
um stellingum. Sú auglýsing sem
þótti einna grófust var ætluð til
birtingar í sjónvarpi. Hún sýnir
ungan pilt sem er á svipinn eins
pg hann sé að leika í dónamynd.
Á bak við myndavél heyrist full-
orðinn maður segja: „Þú ert
mjög fallegur. Hvað ertu gamall?
Ertu ekki sterkur? Heldurðu að
þú getir rifið skyrtuna utan af
þér? Þetta er fallegur líkami.
Ferðu ekki oft í líkamsrækt? Ég
sé það.“
Ymsum fjölskyldu- og barnar-
verndarsamtökum í Ameríku var
ekki skemmt. Tímarit og verslan-
ir þverneituðu að taka þátt í aug-
lýsingaherferðinni. Öflug samtök
hafa meira að segja farið fram á
það við dómsmálayfirvöld að
þau athugi hvort Klein hafi brot-
ið lög um barnaklám.
Calvin Klein er hins vegar ekki
af baki dottinn, því sala á vörum
hans hefur raunar aukist í fjöl-
miðlafárinu — sem hann segir
byggt á misskilningi.
...fær Súsanna Svavars-
dóttir fyrir að vera eilíf upp-
spretta frétta og slúður-
sagna. Þá var sætt af henni
að hampa grettumeistaran-
um Ladda um leið og hún
skaut föstum skotum á neð-
anþindarbrallarana og klof-
kjaftana Radíusbræður í síð-
asta sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins. Tvær Súsönnur í
viðbót og við myndum
gleyma efnahagsvandanum.