Helgarpósturinn - 14.09.1995, Blaðsíða 5
jullandi leiklistaráhugi
! virðist vera um land allt.
'Eitt hinna fjölmörgu leik-
húsa sem ætla að frumsýna um
helgina er Furðuleikhúsið. Leikrit-
ið heitir Bétveir og er nýtt ís-
lenskt barnaleikrit byggt á sam-
nefndri bók Sigrúnar Eldjárn.
Leikritið, sem unnið er í sam-
vinnu við Leikfélag Akureyrar,
verður frumsýnt í Samkomuhús-
inu þar í bæ á laugardag. Bétveir
fjallar í stuttu máli um tvíhöfða
geimstrák sem kemur til jarðar-
innar til að kynnast nokkru sem
ekki er til á stjörnunni hans. Jón
St. Kristjánsson er leikstjóri, um
tónlist sér Valgeir Skagfjörð og
umsjón með búningum hefur
Helga Rún. Alls koma fimm leik-
arar við sögu í sýningunni.
lUýtt blóð í Unun
A laugardagskvöld ætlar
hljómsveitin Unun að halda tón-
leika í Rósenbergkjallaranum og
tilkeyra þar erlent tónleikapró-
gramm sitt, en á döfinni er tón-
leikaferð Ununar um Evrópu.
Af Unun er það helst að frétta
að tveir nýir tónlistarmenn hafa
fengið inni í hljómsveitinni,
trommarinn Matthías M.D. Hem-
stock og Valgeir Sigurðsson hljóm-
borðsleikari. Þeir verða á tón-
leikunum á laugardaginn og því
gullið tækifæri fyrir íslendinga,
sem vilja fylgjast með, að berja
þá augum.
Aundanförnum tveimur
árum hafa verið stöðug
samskipti milli íslands
og Kína og sér tæpast fyrir end-
ann á ferðalögunum þar á milli.
Nú er ljóst að enn ein ferðin
stendur fyrir dyrum þar sem
þeir Böðvar Bragason, lögreglu-
stjóri í Reykjavík, og Bogi Nilsson
rannsóknarlögreglustjóri leggja
land undir fót til að sitja þing
Interpol. Kínverjar hafa staðið
framarlega í lögregluaðgerðum
hverskonar og ekki að efa að tví-
menningarnir geti lært sitthvað
gagnlegt af þeim.
Tíð bifreiðakaup æðstu
manna landsins ættu að
gleðja Heklumenn þar
sem flestir virðast kaupa hjá
þeim Audi. Af fréttum að dæma
hafa þeir Davíð Oddsson, Friðrik
Sophusson, Björn Bjarnason og
Halldór Blöndal pantað sér bíl hjá
Heklu. Einhverra hluta vegna
hefur Þorsteinn Pálsson sjávarút-
vegsráðherra ekki gefið upp fyr-
irætlanir sínar í bílakaupum.
Gott fyrír gólid
Senn fer í hönd tími hósta og
hæsi. Þótt vísindunum fleygi
stöðugt fram hefur þeim þó ekki
enn tekist að ná utan um kvef-
pestina. Eitt sem ef til vill getur
þó haldið henni niðri eru Sopr-
ano-fjallagrasahálstöflur. Fyrir
utan að vera unnar úr ómenguð-
um íslenskum náttúruafurðum
hefur því löngum verið haldið
fram að fjallagrasaseyði mýki
upp hálsinn og sé þar af leiðandi
sérstaklega gott fyrir röddina.
Rannsóknir á íslenskum fjalla-
grösum benda að auki til að í
þeim séu efni sem geta hindrað
vöxt baktería og krabbameins-
frumna og örvað virkni ónæmis-
frumna. Alltént eru Soprano-
hálstöflur merki um frumlegt ís-
lenskt hugarflug.
\1clí±:lLclil^u LííLl
Þegar þú eignast góðan,
notaðan bíl frá okkur, getur
þú valið annað tveggja:
DÆMI UM GREIÐSLUR
af vaxtalausu láni
Verð bíls 800.000 kr.
Útborgun 200.000 kr.
_______Eftirst. 26.313 kr.
á mánuði í 24 mánuði
Allur lántökukostnaður
innifalinn
Vaxtalausf lán til
24 mánaða að upphæð
allt að 600 þús. kr.
Ríflegan aukaafslátt
NOTAÐIR BILAR
SUÐURLANDSBRAUT12
SÍMI: 568 1200 beint 581 4060
Opið laugardag kl. 10-17
og sunnudag kl 13-17,
virka daga til kl. 19.
DAIMCALL
radiomidun
Grandagaröi 9 • 101 Fteykjavík
Sími 511 10^0
HVERNIG
ERÞAÐ
PÉTUR,
VARSTU
EKKI
BÚINN
AÐSJÁ
FYRIR
LÖNGU
AÐ ÞEIR
VORU AÐ
MÆMA?
„Neinei góði minn,
ég sá þá í sumar og sá
þá að hver einasta
nóta var spiluð á
staðnum og blæs á
annað. Ég heyrði
þetta í útvarpinu í
morgun og hef ekki
heyrt aðra eins vit-
leysu fyrr né síðar. Ég
er búinn að vera í
bransanum í þrjátíu
ár og maður veit hve-
nær spilað er af teipi
og hvenær læf. Eg
þekki það vel til gítar-
leiks og annars í
bransanum. Þetta er
mesta rugl sem ég hef
heyrt. Ég var nú ekki
mikill Stones-aðdá-
andi hér áður fyrr en
er orðinn það núna
og segi hiklaust að
þeir séu „The great-
est rock’n roll band
in the world“ nú sem
fyrr.“
Blaðið Der Spiegel
heldur því fram fullum
fetum að tónleikar The
Rolling Stones séu að
stórum hluta leiknir af
bandi. Pétur Kristjáns-
son, rokkhestur íslands
númer eitt, er einn af
meiri Stones-aðdáend-
um á landinu auk þess
að vera atvinnumaður t
faginu.
■ I