Helgarpósturinn - 14.09.1995, Page 10
ikil óá-
nægja
ríkir
meðal aimennings í
Ólafsvík vegna upp-
sagnar Ragnars Jör-
undssonar sparisjóðs-
stjóra. Ragnar hefur
gegnt starfinu í um
tvö ár og var vel
þokkaður af íbúum
kaupstaðarins. Hann
hefur hins vegar
ákveðið að láta af
störfum í Ólafsvík og
ganga aftur í starf
sparisjóðsstjóra á
Súðavík. Ástæða
uppsagnar Ragnars
er ágreiningur við
stjórn sparisjóðsins
og þá sérstaklega
Bjarna Ólafsson. Segja
menn í Ólafsvík það
hart að örfáir menn
geti hrakið jafnvin-
sælan mann og
Ragnar ku vera úr
byggðarlaginu.
íslendingar telja sig vera yfirburðaþjóð sem býr í nafla alheimsins. Þeim fínnst kynlíf góð
skemmtun, drekka áfengi til þess eins að verða fullir, en verður seint borið á brýn að
þeir séu kurteisir í venjulegum skilningi þess orðs. Þetta eru niðurstöður Richards Sale,
bresks ferðabókahöfundar sem hefur komið hingað margoft, bæði sumar og vetur.
Richard Sale er höfundur bókarinnar Xenophobe ’s Guide to the Icelanders sem er skrifuð af ást
til íslendinga en þó af nokkurri gagnrýni. Hér fara nokkrir valdir kaflar úr bókinni, en hún fæst
í flestum
betri bókabúðum.
r
„íslendingur hefur verið handhafi titilsins Sterkasti
maður heims og tvær íslenskar stúlkur hafa verið Ung-
frú heimur..."
SAIUIUIR ÍSLEIUDIIUGAR
„íslendingur hefur verið handhafi titilsins Sterkasti maður í
heimi og tvær íslenskar stúlkur hafa verið Ungfrú heimur. Þjóð-
in á líka furðumarga stórmeistara í skák miðað við stærð. Þess-
ar staðreyndir styrkja íslendinga í þeirri trú að þeir séu sterk,
gáfuð og falleg þjóð. Við þessa eiginleika er hægt að bæta hug-
takinu þungbúinn. Séu skoðaðar hópmyndir af íslendingum
dettur manni varla annað í hug en að þeir séu viðstaddir jarð-
arför eða aftöku sameiginlegs vinar.“
„Ef maður spyr hvort þeir velti fyrir sér bragðinu horfa
þeir á mann eins og maður sé bjáni. Hvað kemur
bragðið þessu við?
ÁFEIUGI
„íslendingar skilja ekki merk-
ingu þess að drekka í hófi. Þeir
drekka til þess eins að verða
drukknir, og það er ástand sem
þeir reyna að komast í með mikl-
um ákafa en helst sem minnstum
tilkostnaði. Ef það kostar 10 pró-
sent minna að verða fullur af gini
en viskíi, þá drekka þeir gin. Ef
maður spyr hvort þeir velti fyrir
sér bragðinu horfa þeir á mann
eins og maður sé bjáni. Hvað
kemur bragðið þessu við? Sam-
ræður við fullan íslending eru
annaðhvort ógjörningur eða vita
gagnslausar."
ÍSLEIUSKA
„Það er næstum átakan-
legt hvað íslendingar
verða glaðir ef útlendingur
leggur það á sig að læra
málið þeirra. 1993 fréttist
að lögfræðingur frá Georg-
íu hefði lært íslensku af
eigin rammleik. Hann
þekkti enga íslendinga og
hafði gert þetta sjálfum
sér til yndisauka. Islend-
ingar voru djúpt snortnir
og fullir af þakklæti. Þeir
buðu manninum og konu
hans til íslands á kostnað
ríkisins og héldu þeim
uppi í mat og drykk í tvo
mánuði."
„Þeir eru afkomendur víkinga sem eru merkastir allra
fornþjóða, orðlagðir fyrir hreysti, þrautseigju, líkams-
fegurð og karlmennsku..."
FRÆIUDÞJÓDIR
„íslendingar hlæja að Norðmönnum vegna áhuga þeirra á útivist sem er talinn renna stoðum
undir þá skoðun að Norðmenn séu ieiðinlegir og vitlausir. Uppgötvun Norðursjávarolíunnar og sú
staðreynd að Norðmenn eru moldríkir hefur leitt til ákveðinnar viðhorfsbreytingar. Nú eru Norð-
menn taldir leiðinlegir, vitlausir og ógeðslega heppnir.
Ekki færri en 10 þúsund íslendingar fiuttu til Kanada í lok síðustu aldar og því sambandi hefur
verið viðhaldið. Þegar íslendingur hittir Kanadamann ætlast íslendingurinn til þess að Kanadamað-
urinn þekki ættingja sína vestra."
SJÁLFSMYIUD
„íslendingar hafa einstaklega mikið álit á sjálfum sér. Þeir eru
afkomendur víkinga sem eru merkastir allra fornþjóða, orð-
lagðir fyrir hreysti, þrautseigju, líkamsfegurð og karlmennsku.
Ekki er mikið rætt um þá staðreynd að víkingar voru líka þekkt-
ir fyrir að ræna og nauðga og að viðhorf þeirra til kvenna var í
besta falli vafasamt. Sem sannindamerki þess að íslendingar
séu yfirburðaþjóð benda þeir á að ísland sé nafli alheimsins. Ef-
ist maður um þessa fullyrðingu þarf maður ekki annað en að
fletta upp í íslendingasögunum, merkustu bókmenntaverkum
undir sólinni, þar sem þessari skoðun er haldið fram ótal sinn-
um meðal langdreginna frásagna af morðum og blóðhefnd."
-»