Helgarpósturinn - 14.09.1995, Side 14
Tveir af þekktustu
snúðum heims,
Kenny Dope og Lillu
Vega, eru væntanleg-
ir til íslands í byrjun
október. Þessir tveir
DJ-ar þykja mikill og
góður hvalreki á ís-
landsstrendur enda
goð nærri allra starf-
andi plötusnúða á ís-
landi. Samkvæmt
heimildum Póstsins
ætla þeir allir að
mæta í Tunglið og
hlýða á goðin. Fleiri
uppákomur standa
fyrir dyrum í Tungl-
inu í október, því fyr-
irhugað er að halda
aðra Party-Zone-há-
tíð vegna útáfu á
samnefndum diski.
Það eru DJ-arnir
Grétar, Árni E. og
Margeir sem hljóð-
blanda diskinn en
hönnuður hans er
eins og síðast Jökull
Tómasson, sem þótti
þá takast einstak-
lega vel upp. Búist
er við sama fjörinu
nú og í fyrra, en þá
troðfylltist húsið af
fólki og gleði.
lUqrðrinn fegv
snöggt ancHát
VÍKIIUCASAGA
LAUGARÁSBIÓI
Nokkrir amerískir kvikmynda-
gerðarmenn einhenda sér í að
drepa „norðrann" endanlega —
en til hvers? Var ekki nóg að
Hrafn Gunnlaugsson væri búinn
að blása lífsanda í þessa grein á
meiði kvikmyndalistarinnar —
og reyna að kæfa hana aftur? Er
verið að narrast að íslendinga-
sögunum? íslenskum leikurum?
íslendingum? Eða er það rétt
sem heyrst hefur fleygt að mynd-
in sé gerð til að útvega framleið-
andanum skattatap, til að bók-
aldararnir vestra fái eitthvað til
að moða úr?
Nú hefur maður sannfrétt að
myndin verði aldrei sýnd í bíói
neins annars staðar en á íslandi.
Engin vídeóleiga með sómatil-
finningu mun hafa hana í hillum.
Raunar bárust fréttir af því að í
vetur hefði henni verið hent út
með ruslinu í Hollywood. En þeg-
ar það kom hingað var kvik-
myndagerðarfólkinu ameríska
tekið eins og þar væru heims-
frægir virðingarmenn á ferð —
það breyttist ekki einu sinni þeg-
ar kom á daginn að aðalleikarinn
væri þýskt kraftatröll sem heitir
Möller. Sumir vonuðu kannski að
hérna yrði skilinn eftir einhver
vottur af raunverulegri kvik-
myndafrægð; að minnsta kosti
hafa birst lýsingar í blöðum á því
hvílíkt ævintýri þessi kvik-
myndagerð var og hversu fag-
mannlega hafi verið staðið að
öllu.
Því er haldið fram að leikstjóri
myndarinnar, kvikmyndatöku-
maður sem einhvern tíma vann
með Scorsese, hafi lesið íslend-
ingasögur sér til ánægju. Nær
væri þó að halda að hann hafi
lesið þessar bókmenntir í Sí-
gildra sagna-blaði, skoðað
myndirnar en látið textann eiga
sig. Möller kraftamaður, sem
heitir Kjartan í myndinni (borið
fram Kjortan), á sjálfsagt að vera
einhvers konar hliðstæða við
nafna sinn eða Gunnar á Hlíðar-
enda. Hann er handhafi „huliðss-
verðsins" (the ghost sword) sem
enginn getur verið án ef hann á
að ráða yfir íslandi. Fúlmennið
Ketill (frb. Kettilt) er andlega
venslað Merði Valgarðssyni, en
Magnús lögsögumaður (frb.
Magnus the Lawgiver) minnir á
skeggjaðan Njál; hann á soninn
Bolla (frb. Bólí) sem ferst með
honum í nokkurs konar Njáls-
brennu og dótturina Guðrúnu
sem er ófeimin við að kasta
klæðum fyrir framan myndavél-
ar. Sé þetta kjánalegt lið er þó
kjánalegust jjularröddin sem
liggur eins og mara yfir landinu
og segir söguna eins og maður
eigi að taka þetta alvarlega:
„Þeirra verður minnst sem
mestu hetja sem uppi hafa verið
á íslandi, o.s.frv..."
Listrænar eiga sjálfsagt að telj-
ast myndir af þungbúnum fjöll-
um, þungu skýjafari og þung-
lyndislegum sköflum; það er hið
frábæra íslenska landslag sem
allir eru sammála um að sé til
sóma í hverri kvikmynd. Myndir
af íslenska hestinum minna
mann hins vegar á að í útlöndum
er hann kallaður the Iceland
pony.
Víkingasaga er öllum til háð-
ungar sem nálægt henni komu;
næst þegar kemur svpna flokkur
frá útlöndum verða íslendingar
að kunna að segja nei — og vita
að nei þýðir nei...
- EGILL HELGASON
I Ijós
a hjðí þéri
- að nóttu
degi
‘ET 896 8965
til þin
Fáðu hann lánaðan heim
i 12 daga fyrir
6.800 kr.
- aðeins
570 kr.
ádag!
•mr
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
KÍMA VEISLUR 06 PARTV
FYRIRTÆKI - FJÖLSKyLDUR - STARFSMANNAHÓPAR
Frébær matur é góðu verðí
Okkar veislum fylgir ýmislegt til aö skapa rétta stemmningu:
M.a. spákökur - heitar handþurrkur
kínversk stjörnuspeki á diskamottum
og að sjálfsögðu prjónar
og ofl. og ofl.
Leitið tilboða - Sendum frítt heim.
Metnaður í matargerð
Suðurlandsbraut 6 - Pantanasími 588 9899 - Fax 588 9997
Skólaostur kg/stk.
R U M L E G A
15%
LÆKKUN
VERÐ NU:
VERÐ AÐUR:
ÞU SPARAR:
585 kr.
kílóið.
■ kílóið.
103 kr.
á hvert kíló.
OSTA 0G
SMJÖRSALAN SE