Helgarpósturinn - 15.05.1996, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR15. MAÍ1996
OHga
Romanho
Juuho
Shiokauia
Andre/s
Serrano
Miðasalan opin
Bankastræti 2
sími: 552 8588
Nokkrir tugir kjósenda hafa þegar greitt
atkvæöi utan kjörstaða í forsetakosn-
ingunum þótt framboðsfrestur sé ekki
útrunninn. Sæmundur Guövinsson
ræddi við Jón Steinar Gunnlaugsson, formann
yfirkjörstjórnar í Reykjavík, sem segir að undir-
búningur forsetakosninga sé nokkuð frábrugð-
inn því sem gerist fyrir þingkosningar.
Tugir búnir
að kjósa
Samkvæmt lögum skal skila framboð-
um til forsetakjörs í hendur dóms-
málaráðuneytinu ásamt samþykki for-
setaefnis, nægilegri tölu meðmælenda
og vottorðum yfirkjörstjórnar um að
þeir séu á kjörskrá, eigi síðar en fimm
vikum fyrir kjördag. Sá frestur rennur út
24. maí. Við óskum eftir því að þessum
meðmælendalistum verði komið til okk-
ar á föstudaginn eða mánudaginn svo
manntalsskrifstofan í Reykjavík geti ver-
ið búin að fara yfir þetta fyrir fund sem
við höldum næstkomandi þriðjudag,"
sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, for-
maður yfirkjörstjórnar, í Reykjavík.
Nú er ekki nema rúm vika þar til fram-
boðsfrestur fyrir forsetakosningarnar,
sem fram fara 29. júní, rennur út. Yfir-
kjörstjórnir eru því í óða önn að undir-
búa sín störf. Það hefur vakið nokkra
undrun að utankjörstaðaatkvæða-
greiðsja við forsetakjörið er hafin hjá
sýslumönnum þótt framboðsfrestur sé
ekki útrunninn. Hjá embætti sýslu-
manns Reykjavíkur fengust þær upplýs-
ingar að lögum samkvæmt megi utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðsla hefjast átta
vikum fyrir kjördag. Kjósendur riti jafn-
framt undir yíirlýsingu um að þeir verði
ekki heima á kjördag. í Reykjavík hafa
nokkrir tugir manna þegar greitt at-
kvæði utan kjörstaðar í forsetakosning-
unum.
Sérstaða forsetakosninga
Jón Steinar Gunnlaugsson sagði það
vissulega nokkuð sérstakt að kjósendur
gætu farið að greiða atkvæði áður en
framboðsfrestur rennur út og því óvíst
að allir frambjóðendur væru komnir
fram. En þetta væri til þess að þeir sem
væru á förum af landinu og yrðu ekki
heima á kjördag gætu greitt atkvæði. Ef
kjósandi verður síðan kominn heim fyrir
kjördag geti hann mætt á kjörstað og
greitt atkvæði á ný, hafi honum snúist
hugur. Þá yrði utankjörstaðaratkvæði
hans ekki talið með. En forsetakosningar
og undirbúningur þeirra er í nokkru frá-
brugðinn þingkosningum.
„Framboð til forsetakjörs taka til
landsins alls, en í alþingiskosningum eru
framboð bundin við kjördæmi. Fram-
boðum við forsetakosningar er þar af
leiðandi skilað til dómsmálaráðuneytis-
ins en ekki til yfirskjörstjórna. Lögin um
kjör forseta íslands eru óbreytt frá því
þau voru sett 1945 og orðin nokkuð
gamalleg. Það er gert ráð fyrir að yfir-
kjörstjórnir gefi vottorð um meðmæl-
endalista, sem er nokkuð erfitt í fram-
kvæmd, því jafnframt er gert ráð fyrir að
fjöldi meðmælenda sé að lágmarki og
hámarki úr hverjum landsfjórðungi, en
ekki úr kjördæmum," sagði Jón Steinar.
En það eru ekki yfirkjörstjórnir yfir
hverjum landsfjórðungi við forseta-
kjör?
„Nei, það eru átta yfirkjörstjórnir í
landinu sem stjórna þessum kosningum,
ein í hverju kjördæmi eins og í alþingis-
kosningum. Frambjóðendur eiga því að
koma með lista meðmælenda úr Reykja-
vík til okkar í yfirkjörstjórninni hér og fá
vottorð. Sama á við um önnur kjördæmi,
en þetta er nokkuð erfitt í framkvæmd.“
Hæstiréttur sem landskjörstjórn
Til að skýra þetta nánar nefndi Jón
Steinar Gunnlaugsson dæmi um Suður-
landsfjórðung.
„í Suðurlandsfjórðungi eru hvorki
fleiri né færri en fjögur kjördæmi sem
koma við sögu: Suðurlandskjördæmi,
Reykjaneskjördæmi, Reykjavík og hluti
af Vesturlandskjördæmi. Frambjóðend-
ur þurfa því að koma með meðmælend-
ur til yfirkjörstjórna í hverju kjördæmi,
því Reykjavík getur til dæmis ekki gefið
út vottorð um aðra en Reykvíkinga. Síð-
an er þetta talið saman eftir fjórðungum
þegar þessu er skilað til dómsmálaráðu-
neytisins. Þetta er fyrirkomulag sem er
sérstakt fyrir forsetakosningar. Þá er
það einnig sérstakt að við þær kosning-
ar er engin landskjörstjórn starfandi
heldur er það Hæstiréttur sem gegnir
störfum landskjörstjórnar. En að öðru
leyti eru allar venjulegar reglur í gildi er
varða kjördeildir, kosningaathöfnina og
talningu atkvæða. Það verður alit með
hefðbundnu formi sem við þekkjum úr
þingkosningum."
Má mæla með ölium
Einn þeirra sem bjóða sig fram til
kosninga og eru að safna meðmælend-
um, Guðmundur Rafn Geirdal, hefur
skráð sig á meðmælendalista allra hinna
frambjóðendanna. Jón Steinar var
í Austfirðingafjórðungi þurfa
frambjóðendur minnst 77
meðmælendur, segir Jón
Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttarlögmaður og
forinaður yfirkjörstjórnar i
Reykjavík.
spurður hvort þetta væri heimilt.
„Mér er ekki kunnugt um að neinn
formlegur úrskurður hafi gengið um
það. En það er ekkert í lögunum sem
bannar það í sjálfu sér. Þar er hvergi tek-
ið fram berum orðum að hver og einn
megi bara mæla með einum frambjóð-
anda.“
En getið þið sannreynt að nöfn á
meðmœlendalistum séu ekki bara
heimatilbúin?
„Það er ekki auðvelt. Við verðum bara
að álykta að nafnritanir séu ófalsaðar og
höfum enga aðstöðu til að gera neina
könnun á þessu. Yfirkjörstjórnin í
Reykjavík getur aðeins vottað að með-
mælendur úr borginni séu þar búsettir."
Hvernig skiptist fjöldi meðmœlenda
frambjóðenda eftir fjórðungum?
„Úr Sunnlendingafjórðungi, það er
Vestur-Skaftafellssýsla til Borgarfjarðar-
sýslu að báðum meðtöldum, skal vera
minnst 1.141 meðmælandi og mest
2.282. Úr Vestfirðingafjórðungi, það er
Mýrasýsla til Strandasýslu, skal lág-
markið vera 88 meðmælendur og að há-
marki 176. í Norðlendingafjórðungi, það
er Húnavatnssýsla til Suður-Þingeyjar-
sýslu, er lágmarkið 194 meðmælendur
og hámark 387. í Austfirðingafjórðungi,
sem er Norður-Þingeyjarsýsla til Austur-
Skaftafellssýslu, að báðum meðtöldum,
er lágmarkið 77 meðmælendur og að há-
marki 155.“
Þú sagðir í upphafi að þið vilduð fá
lista yfir meðmœlendur um nœstu
helgi, föstudag eða mánudag. En er
ekki nœgilegt að skila fyrir lokun 24.
maí, þegar framboðsfrestur rennur
út?
„Eins og ég sagði þá viljum við að
manntalsskrifstofan geti farið yfir þetta
fyrir fund yfirkjörstjórnar á þriðjudag.
Frambjóðendur hafa þá ráðrúm til að
bæta úr ef eitthvað er að meðmælenda-
listunum. Við reynum því að vinna þetta
af einhverri skynsemi; en vitaskuld er
hægt að skila inn alveg þar til framboðs-
frestur rennur út. En ég vona samt að
enginn láti sér detta í hug að skila ekki
inn 1.500 nöfnun fyrr en síðdegis föstu-
daginn 24. maí.“
Fyrstu tölur
Sem fyrr segir fer kosning til forseta
síðan fram með hefðbundnum hætti
laugardaginn 29. júní. Talning fer fram í
kjördæmunum átta og tölur birtar það-
an.
Hvenœr má búast við að úrslit liggi
fyrir?
„Við reynum að venju að undirbúa
taininguna vel svo hún gangi sem greið-
legast. Hér í Reykjavík verður safnað
saman atkvæðum úr öllum kjördeildum
sem hafa verið greidd fram til klukkan 17
eða svo. Flokkur manna verður síðan
lokaður inni til að byrja að telja þau at-
kvæði. Það má því búast við að talning
þeirra atkvæða verði langt komin klukk-
an 22, þegar kjörfundi lýkur, og þá verða
þær tölur birtar. Síðan heldur talning
áfram og ef allt gengur vel gæti þetta
verið búið milli klukkan þrjú og fjögur
um nóttina.
Það verður ekki talið í Ráðhúsinu eins
og í síðustu borgarstjórnar- og þing-
kosningum, því húsnæðið hefur ekki
reynst heppilegt fyrir þetta. Við erum að
reyna að fara með talninguna inn í Kjar-
valsstaði og telja í austursalnum. Þessi
talning er bara í kosningu milli einstak-
linga og því ekki þær flækjur sem eru í
alþingiskosningum um úthlutun þing-
sæta, uppbótarmanna og flakkara. Sá
verður kjörinn forseti sem flest atkvæði
hlýtur og í þessum kosningum ganga all-
ir landsmenn jafnir til leiks. Vægi at-
kvæða er það sama hvar á landinu sem
kjósendur búa,“ sagði Jón Steinar Gunn-
laugsson.
æskuhetjan
• Birna Þórðardóttir
Samkomulag um ekki neitt
Æskuhetja ungra róttæklinga á sínum tíma
var tvímælalaust Bima Þórðardóttir. Hún
var jafnan í fremstu víglínu þegar verið var aö
mótmæla hernum, aðildinni að NATO og öðru
því sem vinstra fólk vildi ekki sætta sig við.
Birna tók virkan þátt í bardögum við lögregl-
una sem brutust stundum út í kjölfar mót-
mælaaögerða og þótti afar herská. Hún var
starfsmaður Fylkingarinnar fyrir um tuttugu
árum og ritstjóri málgagns hennar, Neista.
Birna átti sæti í miðstjórn Samtaka her-
stöðvaandstæöinga og sat sömuleiðis I mið-
stjórn og framkvæmdastjórn Alþýðubanda-
lagsins um skeiö. Nú er Birna ritstjóri Frétta-
bréfs lækna og það fer ekki jafnmikið fyrir
henni og áður, enda virðast mótmælagöngur
hafa lagst af. Wsló á þráðinn til Birnu og
spuröi hvort hún hefði lagt baráttuna á hill-
una.
„Ég veit ekki hvaö skal segja. Svo er aö sjá
að það séu ekki ýkja margir sem vilja vera
menn í dag. En öll barátta gengur mikið I
bylgjum. Diskókynslóðin og allt það lið var
ekki mikið að spekúlera í því sem var fyrir ut-
an eigin nafla. En mér finnst unga fólkið í
dag horfa aðeins víðar."
Hvað erþér minnisstœðast frá baráttuárun-
um þar sem þú varst í fytkingarbrjósti?
„Þaö var ofsalega gaman þegar við tókum
sjónvarpsstöð hersins á Keflavíkurflugvelli og
lokuðum henni. Svo eru átökin vlö Árnagarö
þegar Rogers, utanríkisráðherra Bandarikj-
anna, kom hingaö og náði ekki að skoða
þessi gömlu skinnblöö. Þá tókst okkur að
virkja fólk mjög vel. Við notfæröum okkur þaö
að lögreglan hleraöi slmana hjá okkur.
Hringdum hvert I annað til aö skammast yfir
því aö enginn nennti að gera nokkuð til að
mótmæla heimsókninni. Lögreglan var því
næsta grandalaus þegar við létum til skarar
skrföa."
Hvernig kanntu oið að stýra blaði lœkna?
„Þaö er aö mörgu leyti gott starf. Þetta eru
ágætismenn sem ég á samskipti við, en viö
ræðum ekki mikið um pólitík. En það að þeir
skuli hafa mig I vinnu ber þess vott hversu
margir þeirra eru frjálslyndir. Ég hef ekki get-
að gengiö I vinnu hvar sem er I samfélag-
inu.“
Þú ert ennþá íAlþýðubandalaginu?
„Þaö er á mörkunum. Ég hætti aö starfa þar
þegar Ólafur Ragnar setti bráöabirgöalög á
opinbera starfsmenn og ég hef aldrei kunnað
mjög vel við mig I návist hans. En ég hef ekki
starfað I Alþýðubandalaginu eftir slðasta
landsfund þar sem hann lét af formennsku.
Ég rekst illa I samtökum þar sem málin
ganga oft út á það að gefa skoðanir upp á
bátinn til þess að ná samkomulagi um eitt-
hvaö sem er ekki samkomulag um neitt,
nema þá aö þegja," sagði Birna Þórðardóttir.
-SG