Helgarpósturinn - 17.10.1996, Blaðsíða 6
6
FIMIVmiDAGUR 17. OKTÓBER1996
Lögfræðingar Húsnæöisstofnunar glata milljónatekjum
Starfsmenn og endurskoðendur Húsnæðisstofnunar
sleppa með skrekkinn. Ríkisendurskoðun kaus að
„núllstilla" vandamál á bak við tjöldin
Hjá Húsnæðisstofnun ríkis-
ins var tekin sú ákvörðun
að innheimtuþóknun vegna
vinnu lögfræðinga við upp-
boðsbeiðnir og kröfulýsingar
skyldi renna í sérstakan sjóð
sem yrði notaður sem launa-
uppbót fyrir lögfræðinga Hús-
næðisstofnunar. Einn lögfræð-
inganna hyggst gera kröfu um
sinn hlut upp á nokkrar millj-
ónir en bæði Hákon Hákonar-
son, formaður stjórnar HR, og
Sigurður Þórðarson ríkisend-
urskoðandi segja slíkan sjóð
heyra sögunni til. „Þetta fé er
hvergi til á bók núna. Það var
gert þannig að allt var núll-
stillt,“ sagði ríkisendurskoð-
andi. Heimildir HP innan Hús-
næðisstofnunar staðhæfa að
sjóðurinn hafi verið til og num-
ið milljónum króna. Bókhald-
slykill hans hafi verið nr.
352405 og peningarnir varð-
veittir á sérstökum banka-
reikningi. Sé búið að núllstilla
reikninginn telja bókhaldsfróð-
ir menn að það hljóti að hafa
verið gert fyrir skömmu.
Lofað hlutdeild
Samkvæmt heimildum innan
úr Húsnæðisstofnun var það
árið 1990 sem lögfræðingar
stofnunarinnar hófu inn-
heimtu vegna vinnu við upp-
boðsbeiðnir og innheimtu-
þóknun samkvæmt gjaldskrá
Lögmannafélags íslands. Tóku
þeir þar við af lögmönnum
veðdeildar Landsbankans,
Sigurður Þórðarson, forstjóri Ríkisendurskoðunar:
Peningarnir farnir í rekstur
Við vorum búnir að afgreiða
mál tvímenninganna með
skýrslugerð og úttekt á lög-
fræðideildinni á sínum tíma.
Málið er nú komið til RLR og er
þar í meðhöndlun. Við töldum
okkur því búna að afgreiða
þann þátt sem sneri að veð-
flutningum og þau hættumerki
sem voru innan stofnunarinnar
hvað það varðar," sagði Sigurð-
ur Þórðarson, forstjóri Ríkis-
endurskoðunar, í samtali við
HP.
KPMG Endurskoðun er samn-
ingsbundinn endurskoðandi
Húsnæðisstofnunar ríkisins og
hefur fyrirtækið verið sakað um
hagsmunaárekstur þegar það
tók að sér sérstaka rannsókn á
störfum og bókhaldi lögfræði-
deildar. Helgarpósturinn spurði
Sigurð um þetta atriði, hvort
ekkert væri aðfinnsluvert við
að KPMG færi með fjárhagsend-
urskoðun í umboði Ríkisendur-
skoðunar.
„Við kaupum þjónustu þeirra
til þess að vinna endurskoðun
á Húsnæðisstofnun fyrir okkur.
Við kaupum ennfremur þjón-
ustu af mörgum endurskoðun-
arskrifstofum sem sjá um end-
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi: „Þessir peningar eru ekkert inni
og það er sennilega búið að eyða þeim í rekstrargjöld."
urskoðun í okkar umboði. Það
gildir um 10% af okkar heildar-
vinnupakka.“
Um fjárhæðirnar sem söfnuð-
ust upp vegna gjaldtöku lög-
manna Húsnæðisstofnunar
sagði Sigurður að ekkert yrði
gert með þær fjárhæðir.
„Þessir peningar eru ekkert
inni og það er sennilega búið að
eyða þeim í rekstrargjöld. Einn
af þeim aðilum sem lentu í
vandræðum hefur haldið því
fram að hann ætti inni fé hjá
stofnuninni fyrir innheimtu-
störf. Því var meðal annars
haldið fram að peningarnir
hefðu verið settir í einhvern
pott en það var skoðað og í ljós
kom að svo var ekki. Þetta fé er
hvergi til á bók núna. Það var
gert þannig að allt var núllstillt.
Þetta fór í gegnum ákveðinn
bankareikning, en það liggja
engir sjóðir þar inni. Við skoð-
uðum það sérstaklega. Þessar
kröfur mannsins áttu sér því
ekki stoð í raunveruleikanum."
sem fram til þessa höfðu séð
um slíka innheimtu. Með því
að nota starfsréttindi lög-
manna gat Húsnæðisstofnun
notast við gjaldskrá Lög-
mannafélags íslands (því
stofnunin sjálf hafði vitanlega
ekki lögmannsréttindi). Lög-
fræðingarnir áttu að fá inn-
heimtukostnað í sinn hlut ef
lán stofnunarinnar færu í van-
skil eða til uppboðs kæmi.
Uppboð táknaði að þóknun til
þeirra hækkaði. í staðinn borg-
aði stofnunin ársgjald í Lög-
mannafélaginu fyrir alla lög-
fræðingana. Að loknu uppboði
fóru vanskilin inn á lánið en
þóknun lögfræðinganna var
varðveitt samkvæmt sérstök-
um bókhaldslykli hjá HR.
Sama heimild HP sagði blað-
inu að samhliða ritun kröfulýs-
inga hefðu fjórir lögfræðingar
stofnunarinnar séð um inn-
heimtu skyldusparnaðar fyrir-
tækja. Á hann lagðist kostnað-
ur og vanskil samkvæmt gjald-
skrá Lögmannafélags íslands,
sem kom í hlut þessara starfs-
manna lögfræðideildarinnar.
„Þar kann fordæmið að því að
þeir fengu ofangreindan kostn-
að greiddan sem launauppbót
að hafa skapast," segir viðmæl-
andi Helgarpðstsins. Að sögn
hans hækkaði þessi inn-
heimtuþóknun stöðugt vegna
fjölda, en innheimtur gátu
hlaupið á tugum í viku hverri.
Engar greiðslur voru hins veg-
ar inntar af hendi en árið 1990
var álagning Húsnæðisstofn-
unar á vanskilin kærð til um-
boðsmanns Alþingis.
Engin lagaheimild
í skýrslu umboðsmanns Al-
þingis árið 1992 kemur fram að
árið 1990 hafi borist kvartanir
til hans um að lagður hafi verið
innheimtukostnaður á bygg-
ingarsjóðslán sem hafði kom-
ist í vanskil. Skuldararnir töldu
að lögmenn Húsnæðisstofnun-
ar hefðu ekki lagaheimild til
gjaldtöku vegna vanskila
skuldara. Lögmenn væru ríkis-
starfsmenn sem ekki hefðu
heimild til gjaldtöku af neinu
tagi og laun þeirra ættu að
greiðast úr ríkissjóði sam-
kvæmt gildandi kjarasamning-
um. Umboðsmaður Alþingis
komst að þeirri niðurstöðu að
stofnunin hefði ekki heimild í
lögum til að beita fyrir sig
taxta starfandi manna í einka-
geiranum til innheimtu. í því
efni skipti ekki máli þótt þeir
starfsmenn stofnunarinnar
sem nú störfuðu að innheimtu
hefðu fengið leyfi til málflutn-
ings.
Lögum breytt
Umboðsmaður taldi hins veg-
ar að Húsnæðisstofnun gæti
krafið skuldara um greiðslu
kostnaðar við innheimtu lána
sem væru í vanskilum við þá
sjóði sem stofnunin féll undir,
þannig að stofnunin yrði ekki
fyrir neinu tjóni. Þeir áttu hins
vegar ekki að geta hagnast á
gjörðum sínum. Umboðsmaður
taldi að engin lagaheimild væri
Hákon Hákonarson, stjórnarformaöur
Húsnæöisstofnunar:
Lögmenn
Mei, mér er ekki kunnugt
um að umtalsvert fé hafi
safnast saman á sérstökum
bankareikningi sem kom til
vegna gjaldtöku lögmanna
Húsnæðisstofnunar. Ég veit að
allir peningar sem koma inn í
stofnunina renna saman við
allar tekjur hennar. Gert er
upp um hver áramót og þessir
peningar renna hreinlega sam-
an við aðra gjaldstofna stofn-
unarinnar. Þessu er haidið
eyrnamerktu í tekjuflæðinu á
einhverjum bókhaldslykli til
aðgreiningar, til að menn átti
aldrei fengid neitt
____________... , .: -. .
Hákon Hákonarson, formaður
stjórnar Húsnæðisstofnunar: „Mér
er ekki kunnugt um að umtalsvert
fé hafi safnast saman á sérstökum
bankareikningi...“
sig á hvað kemur inn í gegnum
þessa þætti."
Hákon sagði að lögmenn
stofnunarinnar hefðu aldrei
fengið neitt af þeirri upphæð
sem kom inn vegna gjaldtök-
unnar. „Ég segi þetta sam-
kvæmt bestu samvisku vegna
þess að reikningar stofnunar-
innar eru endurskoðaðir af lög-
giltum endurskoðendum. Það
er því ekki neitt óeðlilegt þar á
ferð.“
Ekki náðist í Sigurð E. Guð-
mundsson en hann var erlend-
is.