Helgarpósturinn - 17.10.1996, Page 18
FIMMTUDAGUR17. OKTÓBER1996
A Spike
Lee Joint...
Girl 6
Ari Eldjárn
skrifar um
Aðalleikendur: Theresa Randle, Naomi
Campbell, Madonna, Quentin Tarantino,
Spike Lee og fleiri.
Leikstjórn: Spike Lee.
Einn sérstæðasti bandaríski
leikstjóri síðari tíma, Spike
Lee, er löngu búinn að skipa
sér þann sess í kvikmynda-
heiminum að gera ekkert nema
voðalega umdeildar kvikmynd-
ir, flestar hverjar ágætar og
nokkrar frekar misheppnaðar.
Nýjasta afurð hans, Girl 6, er
kannski misheppnaðasta
mynd hans til þessa og leiðin-
legt að jafngóður leikstjóri og
Spike skuli geta klúðrað hlut-
unum svo auðveldlega.
Myndin á að sýna að síma-
vændi sé varhugaverður
bransi og að það geti verið
hættulegt að ánetjast honum.
Því miður einblínir myndin á
alltof margt, leiklistarferil aðal-
persónunnar, einkalíf hennar,
nágranna hennar, fyrrverandi
sambýlismann hennar sem
hún elskar og hatar á víxl og
vinnu hennar: Símavændi.
Langar senur með „fastakúnn-
um“ símaþjónustunnar
skemma mikið fyrir og hræði-
lega lélegur húmor myndarinn-
ar ætlar að ríða henni að fullu.
Madonna og Quentin Tar-
antino (sem leikur sjálfan sig
og er kallaður QT) eru í smá-
hlutverkum og er erfitt að
skera úr um hvort þeirra leikur
verr. Það er synd að myndin
skuli vera svona mislukkuð því
upphaflega átti hún að ryðja
leiðina fyrir nýja og djarfari
tegund af bíómyndum en ég
vona svo sannarlega að þetta
sé ekki upphafið að kynslóð
nýrra bíómynda því þá væri
það svo sannarlega óbærilegt
að horfa framar á kvikmyndir.
Það eru þó tvö fyndin atriði í
allri myndinni: Draumórar að-
alpersónunnar þar sem hún
leikur aðalhlutverkið í
„blcixploitation“-mynd í ætt við
Coffy og einnig draumurinn þar
sem hún leikur í sjónvarps-
þætti sem minnir á The Cosby
Show.
Niðurstaða: Girl 6 er senni-
lega versta mynd Spikes Lee
og myndi ég glaður þiggja aðra
mynd af hans hálfu eins og Do
The Right Thing“.
Myrkar miðaldir
v Líffæraflutningar, eldur og brennisteinn
Dragonheart er nýjasta af-
sprengi leikstjórans Robs
Cohen og leikarans Dennis
Quaid. Báðir eru harðir naglar
í bransanum og í pokahorni
leikstjórans er að finna myndir
eins og Running Man með
Schwarzenegger og Ironweed
með Jack Nicholson, auk þess
sem hann leikstýrir næstu
mynd Sylvesters Stailone.
Þetta ævintýri á að gerast á
11. öld og fjallar um samband
Quaids og síðasta alvöru drek-
ans sem Sean Connery „talar
fyrir“. Drekinn er góður,
reyndar svo góður að hann
gefur hálft hjarta sitt fyrir
rétta málstaðinn. Sögusviðið
minnir óneitanlega á sögur
J.R. Tolkiens og eru aðstand-
endur myndarinnar fullkom-
lega sáttir við þá samlíkingu.
Hinn stórkostlegi Pete Post-
lethwaite leikur einnig hlut-
verk í myndinni, en erlendis
hefur helst verið tekið eftir
ungri leikkonu, Dinu Meyer,
sem þykir sanna sig rækilega í
hlutverki hinnar ungu og
næstum óspjölluðu miðaldaj-
ómfrúr. Sú staðreynd að dreki
leikur eitt aðalhlutverkanna í
myndinni ætti að tryggja at-
hygli barnsins í okkur, en að
sama skapi gæti það valdið
vandræðum. Drekinn er teikn-
aður í tölvu og fullt af fólki á
mjög erfitt með að kyngja
þeirri lausn mála — ekki síst
eftir hina hryllilegu vitleysu
sem Spílberg kallaði Jurassic
Park.
Dragonheart verður sýnd á
næstunni í Háskólabíói. -ak
Reynt að
vera fyndinn
Kevin Kostner í gamanmyndinni Tin Cup
Anæstunni gefst íslenskum
k
.kvikmyndaáhugamönn-
um tækifæri til þess að berja
Kevin Kostner augum í nýrri
gamanmynd. Tin Cup fjallar
um kylfinginn Roy (Kostner),
sem má muna sinn fífil fegurri,
og hvernig honum vegnar í
golfmóti þar sem ekki er ein-
ungis keppt um verðlaun —
Tveir vinir...
The Nutty Professor
■k
Aðalleikendur: Eddie Murphy
í flestum hlutverkum.
Leikstjórí: Tom Shadyac.
Iargir muna eftir hinni
stórskemmtilegu grín-
mynd Jerrys Lewis The Nutty
Professor, sem kom út 1963,
þar sem hann lék prófessor
sem var feiminn við stelpur og
algjört nörd en breyttist í töf-
fara um leið og hann saup á
meðali sem hann bjó til. Þessi
sniðuga saga var tekin og um-
skrifuð fyrir Eddie Murphy af
leikstjóra myndarinnar, Tom
Shadyac, og Steve Oedekerk
(sem leikstýrði, á sinn einstaka
og hroðvirknislega máta,
mynd Jims Carrey Ace Vent-
ura, When Nature Calls) ásamt
nokkrum öðrum álíka lélegum
handritshöfundum.
Murphy er alltaf að hrapa
niður á við og er sífellt að reyna
að sanna sig með því að sýna
hvað hann getur leikið margar
persónur í einu. Það getur verið
þreytandi að horfa upp á kvöld-
verðaratriðin hans þar sem
hann leikur næstum allar per-
sónurnar og enn meira pirrandi
að sjá hann leika leikfimiskenn-
arann Lance Parker. Á dögum
Saturday Night Live lék Eddie
Murphy hvítan mann og gerði
það á mjög fyndinn máta en sá
karakter verður sífellt ófyndn-
ari með árunum.
Nóg um það. Hérna er Eddie
Murphy ekki nörd heldur er
hann feitur en grennist um leið
og hann sýpur á meðali (samt
skildi ég ekki af hverju hárið á
honum varð allt í einu styttra)
og verður um leið allt annar
persónuleiki. Myndin er sífellt
að reyna að vera fyndin og það
vella út úr henni vondir brand-
arar líkt og á færibandi. En við
hverju getur maður svo sem
búist þegar maður blandar
saman leikstjórn Shadyacs,
hræðilegu handriti fullu af lé-
legum bröndurum og Eddie
Murphy að reyna að vera fynd-
inn með sama brandaranum
aftur og aftur? Ekki miklu, en
það skiptir þessa kalla engu
máli, því að þeir stórgræða á
þessu hvort sem er.
Niðurstaða: The Nutty Pro-
fessor er mynd sem er ófyndn-
ari en hún er léleg; enn eitt mis-
heppnað „remake“. Leitið frek-
ar að frumútgáfu Jerrys Lewis á
myndbandaleigu til saman-
burðar.
heldur hylli sálfræðings sem
leikinn er af Rene Russo. Þeir
sem sáu Happy Gilmore, ung-
lingamyndina óborganlegu, í
sumar vita líklega hvernig
mynd þetta er. En eitt er víst;
áhorfandinn verður að búa sig
undir óvæntari endalok —
það er frekar ólíklegt að gert
verði út um leikinn með hnef-
unum eins og í fyrrnefndri
mynd.
Gamli refurinn Cheech Mar-
in (Cheech & Chong) leikur
aðstoðarmann (caddy) Kostn-
ers og herma sögur að hann
sé óborganlegur í því hlut-
verki. Don Johnson leikur
einnig í myndinni, en hann
hefur maður ekki séð í al-
mennilegri mynd síðan Miami
Vice var og hét. Leikstjórinn
Ron Shelton ber ábyrgð á Tin
Cup, en hann vann síðast með
Kostner í myndinni Bull Dur-
ham, frekar slappri mynd sem
einnig snerist um íþróttir.
Shelton þessi hefur þó skrifað
nokkur ágætis handrit og
verður forvitnilegt að fylgjast
með útkomu myndarinnar.
Tin Cup verður sýnd í SAM-
bíóunum um mánaðamótin.-ak