Helgarpósturinn - 14.11.1996, Page 11

Helgarpósturinn - 14.11.1996, Page 11
FlMIVnUDAGUR 14. NÓVEMBER1396 11 ■ þjóðernishyggja Stjórnmálamenn sem eru læsir á þjóðarstemmning- una vita að skynsamlegt er að vera í fararbroddi fyrir fyrir- sjáanlegum breytingum en hvorki fara of geyst né draga lappirnar. Það skilur á milli árangurs og áhrifaleysis í stjórnmálum að skynja tíðar- andann og draga af rétta lær- dóma. Með sannindi af þessu tagi í huga verður skiljanlegri óbjörguleg staða vinstri- manna annars vegar og hins vegar pólitískt forræði Sjálf- stæðisflokksins. Á sama hátt og við fengum innlendan hæstarétt áður en heilbrigt réttarkerfi festi hér rætur, háskóla áður en há- skólasamfélag myndaðist og nútímatækni áður en tækni- menning þróaðist þá var efna- hagskerfið frumstætt löngu eft- ir að við töldum okkur trú um að það væri orðið vestrænt. Ekki fyrr en með þjóðarsátt- inni 1989 um afnám verðbólg- unnar var kinnroðalaust hægt að nefna íslenska hagkerfið í sömu andrá og nágrannaþjóð- anna. Byltingunni í efnahags- málum fylgdu verulegar breyt- ingar í erlendum samskiptum. Bandaríkin hættu að skipta jafnmiklu máli og áður en Evr- ópusambandið komst í for- grunn. EES-samningurinn var málamiðlun milli þeirra sem vildu inngöngu í ESB og hinna sem vildu sneiða hjá Evrópu- samrunanum. Annar alþjóða- samningur, GATT, hafði veru- leg áhrif á innanlandsmál, enda töldu efasemdarmenn að fríverslun með landbúnaðaraf- urðir stefndi búsetu í sveitum í hættu en talsmenn þröngra neytendasjónarmiða voru sannfærðir um að samningur- inn myndi lækka matvöruverð og flýta óhjákvæmilegri upp- stokkun í landbúnaði. Ofan á þetta bætist að aðalatvinnu- vegur þjóðarinnar er í upp- námi. Engin sátt er í sjónmáli um fiskveiðistjórnunina þótt umræðan hafa staðið í meira en áratug. Um stórkostlega hagsmuni er að tefla, ekki að- eins í útgerð og vinnslu heldur blandast inn í umræðuna staða byggðarlaga og þróun heilla landsfjórðunga. Fyrir þjóðarsáttartímabilið voru teikn á lofti um að hálf- gerður gangsterismi næði tök- um á viðskiptalífinu. Óðaverð- bólga áranna á undan brengl- Stiórnmál Páll VilHjálmsson skrifar aði bæði verðskyn og siðvit- und, sem leiddi til þess að í góðærinu upp úr miðjum síð- asta áratug bar nokkuð á við- skiptaháttum sem iðulega sjást meðal nýfrjálsra ríkja þriðja heimsins og Austur-Evr- ópuþjóða sem sögðu skilið við úrelta þjóðfélagshætti. í flest- um tilvikum voru sukkið og spillingin tengd smárekstri af ýmsu tagi, s.s. myndbandaleig- um, veitingahúsarekstri og heildverslunum. En stærri mál komu einnig við sögu. Tugir og hundruð milljóna króna töpuð- ust í verðbréfafyrirtækinu Ávöxtun og verktakafyrirtæk- inu Hagvirki. Viðskipti Stöðvar 2 við Verslunarbankann eru einnig dæmi um ævintýra- mennsku tímabilsins. Undir formennsku Davíðs Oddssonar tileinkar Sjálfstæð- isflokkurinn sér stefnu sem má kalla borgaralega þjóðernis- hyggju. Helstu drættir þessar- ar stefnu eru þjóðleg gildi, fast- heldin fjármálapólitík, var- kárni í erlendum samskiptum og íhaldssöm viðhorf til félags- og menntamála. Sjálfstæðis- menn kenna stefnuna við stöð- ugleika og út á hana stóðu þeir uppi sem sigurvegarar síðustu þingkosninga. Svo frábitin var þjóðin hvers kyns léttúð og framandi pólitík að hún veitti Framsóknarflokknum brautar- gengi, næst á eftir Sjálfstæðis- flokknum, fremur en að kjósa yfir sig Evrópustefnu Alþýðu- flokksins, útflutningsleið Al- þýðubandalagsins, samfylking- arpólitík Þjóðvaka eða kynja- stefnu Kvennaiistans. Vangasvipur borgaralegrar þjóðernishyggju getur auð- veldlega orðið búralegur. Snjallir áróðursmenn eins og Jón Baldvin Hannibalsson, fráfarandi formaður Alþýðu- flokksins, vita það og eru með á takteinunum uppnefni eins og „vaðmálshugmyndafræði" og fleira í þeim dúr. Tilvísunin er til vanmetakenndar þjóðar sem veit að þrátt fyrir mann- dómstákn eins og vestræna velmegun og tæknivæðingu er stutt síðan hún bjó í torfkofum við miðaldamenningu. Rang- hverfa vanmetakenndar er Undir formennsku Davíðs Oddssonar tileinkar Sjálfstæðisflokkurinn sér stefnu sem má kalla borgaralega þjóðernishyggju. Helstu drættir þessarar stefnu eru þjóðleg gildi, fastheldin fjármálapólitík, varkárni í erlendum samskipt- um og íhaldssöm viðhorf til félags- og mennta- mála. Morgunblaðið vakti athygli á því í leiðara á þriðjudag að ekki væri óhugsandi að Sjálf- stæðisflokkur og Alþýðubandalag öðluðust sama skilning á stjórnmálum samtímans. mikillæti þeirra sem sannfærð- ir eru um að ísland geti staðið jafnfætis meginlandsþjóðum Evrópu í samrunaferli álfunn- ar. Aukið sjálfstraust og meiri veraldarvafstur skjóta stoðum undir borgaralega þjóðernis- hyggju. Smuguveiðarnar og fiskveiðideilur við Rússa og Norðmenn eru til marks um út- þenslumátt atvinnulífsins; sömuleiðis kaup akureyrsku útgerðanna á þýskum útgerð- arfélögunum, landvinningar ís- lenskra sjávarafurða á Kamt- sjatka og fleiri fyrirtækja á fjar- lægum slóðum. Frumkvæðið að þessum viðskiptum kom í flestum tilfellum frá fyrirtækj- unum sjálfum og í sumum til- vikum dró forysta Sjálfstæðis- flokksins lappirnar, t.d. Þor- Vangasvipur borgaralegrar þjóðernishyggju get- ur auðveldlega orðið búralegur. Snjallir áróð- ursmenn eins og Jón Baldvin Hannibalsson, frá- farandi formaður Alþýðuflokksins, vita það og eru með á takteinum uppnefni eins og „vað- málshugmyndafræði" og fleira í þeim dúr. Til- vísunin er til vanmetakenndar þjóðar sem veit að þrátt fyrir manndómstákn eins og vestræna velmegun og tæknivæðingu er stutt síðan hún bjó í torfkofum við miðaldamenningu. Rang- hverfa vanmetakenndar er mikillæti þeirra sem sannfærðir eru um að ísland geti staðið jafn- fætis meginlandsþjóðum Evrópu í samrunaferii álfunnar. Hugmyndafræðin á bak við landvinningastefn- una var ekki Sjálfstæðisflokksins. Útflutnings- leið Alþýðubandalagsins og framganga Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi formanns fiokksins, á alþjóðavettvangi var miklu nær því að túlka sjónarmið þeirra sem hugðu á erlend- ar fjárfestingar og brjótast úr viðjum viðskipta- legrar vanahugsunar. En Sjálfstæðisflokkurinn mun, þegar til lengri tíma er litið, hafa mestan pólitískan ávinning af breyttri heimssýn íslend- inga. það átt traustan stuðning í samtökum launafólks. Morg- unblaðið vakti athygli á því í leiðara á þriðjudag að ekki væri óhugsandi að Sjálfstæðis- flokkur og Alþýðubandalag myndu öðlast sama skilning um stjórnmál samtímans og hvert skuli stefnt. Á fyrsta þingi nýrrar ríkis- stjórnar reyndi stjórnarand- staðan að festa merkimiðann kyrrstaða og afturhald við ráðuneyti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þjóðin keypti ekki skilgreiningu stjórnarandstöðunnar. Eftir umrót síðustu ára kaus hún kjölfestu og íhaldssemi og eftir öllum sólarmerkjum að dæma er hún sátt við sitt hlutskipti. Sjálfstæðisflokkurinn las þjóð- ina rétt. steinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra í upphafi Smugu- veiða. Hugmyndafræðin á bak við var heldpr ekki Sjálfstæðis- flokksins. Útflutningsleið Al- þýðubandalagsins og fram- ganga Ólafs Ragnars Gríms- sonar, þáverandi formanns flokksins, á alþjóðavettvangi var miklu nær því að túlka sjónarmið þeirra sem hugðu á erlendar fjárfestingar og brjót- ast úr viðjum viðskiptalegrar vanahugsunar. En Sjálfstæðis- flokkurinn mun, þegar til lengri tíma er litið, hafa mestan pólit- ískan ávinning af breyttri heimssýn íslendinga. Sjálfstæðisflokkurinn mun eftir sem áður þurfa á banda- mönnum að halda og ekki endilega víst að það verði Framsóknarflokkurinn til lang- frama. Verkefni borgaralegrar þjóðernishyggju er að treysta innviði stjórnkerfisins og festa í sessi hugmyndir og gildi vest- rænnar stjórnmálamenningar, t.a.m. um ábyrgð opinberra aðila, upplýsingaskyldu stjórn- valda og sanngjarnar leikregl- ur í viðskiptalífinu. En meira þarf til. Án lifandi sambands við mikilvægustu þætti samfé- lagsins fær engin stjórnmála- stefna staðist. Sjáifstæðisflokk- urinn er veikur fyrir á lands- byggðinni og í verkalýðshreyf- ingunni. Framsóknarflokkur- inn var til skamms tíma öflug- astur flokka á landsbyggðinni en fékk aldrei neina stöðu í verkalýðshreyfingunni. Víða úti á landi er Alþýðubandalag- ið orðið sterkara en Framsókn- arflokkurinn og alltaf hefur Sj álfvirkniverkfræði og skyr! Skövde er lítill og fallegur bær í Vestur-Gotlandi, mitt á milli vatnanna stóru Vánern og Váttern. Hér búa fimmtíu þúsund manns og þar af eru um hundrað og fimmtíu íslend- ingar. Mér finnst bærinn minna um margt á Akureyri. Háskóli og menntaskólar setja sterkan svip á Skövde, eins og höfuðstað Norðurlands, og svo er hér mikið menningarlíf miðað við stærð bæjarins. Hér er listasafn, leikhús, skipulagt tónleikahald og kvikmyndahá- tíðir. Ástæður fyrir fjölda fyrrver- mdi Frónbúa hér á svæðinu :ru aðallega tvær. Margir ís- enskir læknar hafa sest hér að :ftir nám og svo eru um fjöru- íu íslendingar hér í háskólan- ím. íslenskur kennari við skól- mn, Ingi Jónasson, hefur farið til Islands undanfarin ár og kynnt starfsemi skólans, sem býður meðal annars upp á fjöl- breytt nám í ýmsu sem ekki er hægt að nema á íslandi. Há- skólinn er ekki nema tíu ára og sérhæfir sig í tölvu- og tækni- fræðum. Skólinn er vel tækjum búinn og kennararnir ungir og metnaðarfullir. íslendingarnir eru að læra til dæmis tölvunar- fræði, kerfisfræði, hugfræði og sjálfvirkniverkfræði. Alveg er það merkilegt hve fljótt maður fer að sakna þess að borða íslenskan mat. Ég held ég hafi ekki verið búin að vera hér nema í tvo mánuði þegar mig var farið að dreyma um skyr og nýjan fisk. Því var kærkomið að heyra um Guð- björn Elísson, íslending sem hefur undanfarin sex ár keyrt milli bæja hér í Svíþjóð og selt íslendingum góðgæti að heim- an. Ýsa og lambakjöt eru efst á vinsældalistanum en svo selur Bréf frá Skövde Sigríður Pétursdóttir sknfar hann líka rækjur, saltfisk, lifr- arpylsu, malt og sælgæti. Fyrir nokkrum dögum kom hann í söluferð og íslendingarnir söfnuðust saman við sendi- ferðabílinn hans, flestir að ná sér I fisk í soðið. Ég stakk því að einni frúnni að nú vantaði ekkert nema blessað skyrið. Hún brosti leyndardómsfullu brosi og sagðist kunna ráð við því. Ég átti að sía hreina jógúrt yfir nótt og hræra síðan sykri saman við það sem eftir sæti í bleyjugasinu J)egar mysan hefði síast frá. Eg lét ekki segja mér það tvisvar og fór að ráð- um hennar. Ég segi nú ekki að Skövde-skyrið sé alveg eins og það íslenska, en með miklum rjóma og góðum ásetningi slær það á söknuðinn eftir frumút- gáfunni. Aðalfundur íslendingafélags- ins hér var haldinn einn laug- ardaginn fyrir skemmstu og um kvöldið var árshátíð. Auk árshátíðarinnar stendur félag- ið meðal annars fyrir þorra- blóti og sveitaballi og svo er bakað hér laufabrauð fyrir jól- in. Ekki má gieyma að nefna saumaklúbb kvennanna hér, sem er stór, hláturmildur og kemur saman einu sinni í mán- uði. Það var skondið að fylgjast með Svíunum hér um daginn þegar gaus í Vatnajökli. Þá „Ég segi nú ekki að Skövde-skyrið sé alveg eins og það íslenska, en með miklum rjóma og góðum ásetningi slær það á söknuðinn eftir frumútgáfunni." varð nú lítil fjöður að vænum strúti. Bekkjarfélagar mínir í kvikmyndafræði og fjölmiðla- tækni fylgjast auðvitað vel með fjölmiðlum og sáu frétt á einni sjónvarpsstöðinni þar sem sagt var frá gosinu og því bætt við að búist væri við miklu flóði, sem að öllum líkindum færði eyjuna í kaf. Þeim fannst ég bera mig ansi vel miðað við aðstæður og skildu ekkert í að ég væri ekki búin að gera ráð- stafanir til að bjarga því sem ég ætti á íslandi frá vatnselgn- um. Það tók mig langan tíma að sannfæra þau um að þau gætu sleppt því að búa um gestarúm fyrir landflótta íslendinga. Bekkjarfélagar mínir vita nú ekki mjög mikið um ísland en kunna þó flest að segja „túngur knívur“. Þau höfðu séð kvik- mynd Hrafns Gunnlaugsson- ar, Hrafninn flýgur, en gátu ekki nefnt mér aðrar íslenskar kvik- myndir. Þá varð ég hissa. Mörg þekkja þau til nóbel- skáldsins okkar og nokkur hafa meira að segja lesið bækur eft- ir Laxness. Flestir Svíar sem ég hef talað við þekkja Vigdísi Finnbogadóttur og vita að það er kalt á íslandi, en svo er það upptalið. Bekkjarfélagar mínir eru þó óþreytandi að spyrja mig um allt milli himins og jarðar varð- andi ísland og finnst gaman að læra íslensk orð. Svo er bara að vona að eitt- hvert þeirra verði í framtíðinni frægur kvikmyndaleikstjóri eða fjölmiðlastjarna og geri sér mat úr íslandsáhuganum. Höfundur stundar nám í Skövde í Svíþjóð.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.