Helgarpósturinn - 14.11.1996, Síða 23

Helgarpósturinn - 14.11.1996, Síða 23
FIMMTUDAGUR14. NÓVEMBER1996 23 \ Ekki missa a ÉÉ il ii Platan nefnist 77/ hamingju með fallið. í því tilefni ætlar Megas ásamt Tryggva Hiibner gítarleikara og Haraldi Þor- steinssyni bassaleikara að flytja nýtt og gamalt efni í bland. Viðburðurinn verður í Listaklúbbi Leikhúskjallarans á mánudagskvöldið og hefst klukkan 21. Á þessu Megasar- kvöldi verður einnig boðið upp á valda kafla úr verki Megasar Gefin fyrir drama þessi dama (— og öllum stendur svo inni- lega á sama). Stripshow með leikhúsrokk „Ef Boris Karloff, Chariie Chaplin, Salvador Dali og Tracy Lords hittust og gæfu út plötu myndi hún hljóma eins og okkar,“ segir Ingólfur Geirdal, gítarleikari hljómsveitarinnar Stripshow, en fyrsta plata þeirra, Late Night Cult Show, er nýkomin á markað. Næstkom- andi mánudagskvöld halda þeir útgáfutónleika ásamt hljóm- sveitinni Dead Sea Apple í Borg- arleikhúsinu og hefjast tónleik- arnir stundvíslega klukkan níu. Tökulið Stöðvar tvö verður á svæðinu og festir tónleikana á filmu. Verða þeir svo sýndir einhvern tímann fyrir jól. „Þeim hjá Stöð tvö virtist líka platan okkar svo vel að þeir buðu okkur að halda útgáfutón- leika í Borgarleikhúsinu, þar sem þeir munu taka upp sýn- inguna,“ segir Ingólfur. „Þetta verða ekki beint tónleikar, held- ur meira en það. Sumir hafa kallað tónlistina okkar sirkus- rokk eða leikhúsrokk, enda hef- ur platan þema, sem eru frík alls kyns. Frík-karakterarnir á plötunni verða meðal annars hluti af sviðsetningunni. Hér áður fyrr tíðkaðist nokkurs konar leikhússtemmning á tón- leikum margra frægra poppara, David Bowie var trúlega þeirra frægastur og eins Alice Coo- per. Þá gerðu menn myndræna tónlist. Við verðum að gera svipað á mánudaginn á tónleik- unum okkar.“ Bókakvöld áSúfistanum í kvöld, í hinu þægilega bókakaffi Súfistanum á annarri hæð bókabúðar Máls og menn- ingar á Laugaveginum, munu rithöfundarnir Thor Vilhjálms- son, Ólafur Gunnarsson, Þór- arinn Eldjárn og Böðvar Guð- mundsson lesa úr nýjum verk- um sínum. Upplesturinn hefst klukkan hálfníu og stendur til tíu. Aðgangur er ókeypi. Kyrrðarstund í Kristskirkju Þeir sem áhuga hafa á trúar- legri tónlist ættu að leggja leið sína í Kristskirkju í kvöld þegar kvennakórinn Vox Feminae heldur þar tónleika. Meðal efn- is er nýlegt verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson sem nefnist Salve Regina. Á tónleikunum leikur Stefán S. Stefánsson saxófónleikari af fingrum fram á sópransaxófón í einu verk- inu. Svana Víkingsdóttir leikur á orgel kirkjunar en Margrét J. Pálmadóttir stjórnar. Tónleik- arnir hefjast klukkan 21. Tískan hjá eskimóum Á Tvíhöfðauppistandi fyrir nokkru á Borginni gerði Steinn Ármann Magnússon, Radíus- bróðir og Akranesmóðgari, heilmikið grín að tískusýning- arsamtökunum Eskimo mod- els. Við förum ekki nánar út í brandara Steins Ármanns, en eitthvað minntist hann á Grænlendinga, án þess þó að vera með kynþáttafordóma. Ekki mikla. Altént sýna Eskimo models í kvöld föt frá ýmsum vestrænum tískubúðum á Borginni. Eins verður boðið upp á vínkynningu á staðnum og til að trekkja betur verður krúttið Emilíana Torrini feng- in til að syngja nokkur lög fyrir gesti. Polyester Day frumsýnd Nýjasta mynd Bernardos Bertolucci, Stealing Beauty, verður frumsýnd í Regnbogan- um á morgun, föstudag. Á und- an myndinni verður sýnd ný stuttmynd Gus-Gus-hópsins, Polyester Day. Myndin er tæp- ar sjö mínútur að lengd og er í formi tónlistarmyndbands. „Stuttmyndin er án orða og fjallar um stúlkuna Pollý, unga stúlku sem býr hjá ríkum for- eldrum og fær ekki ást,“ segir Daníel Ágúst Haraldsson Gus- Gus maður. „Hún leitar ástar- innar ákaft og beitir ýmsum brögðum til þess. Hún ákveður að stela bíl pabba síns og þá upphefst eltingaleikur sem endar með ósköp- um. Vítamannobb kemur þá til skjalanna og bjargar henni með lifnipillum sínum. Vít- amenn eru nokkuð margir, en Vítamann- obb er einn þeirra. Þeir geta lesið í skyggnilýsingablaði þar sem sagt er frá hvað gerist daginn eft- ir.“ Að sögn Daníels hefur stutt- myndin verið sýnd alloft á evr- ópsku M7V-sjónvarpsstöðinni að undanförnu og verið nokk- uð vel tekið. „Ég er að minnsta kosti búinn að sjá myndina tvisvar á skömmum tíma,“ seg- ir hann. Kirkja tveggja alda Dómkirkjan í Reykjavík er tvö hundruð ára um þessar mundir og hefur verið mikið um dýrðir af því tilefni. Tón- listardagar Dómkirkj- unnar standa nú sem hæst og eru lokatón- leikar hátíðarinnar næstkomandi laugar- dag, 16. nóvember, klukkan 17 í Dómkirkj- unni. Flutt verða ýmis verk: Sextándu aldar mótettan Pater Noster fyrir áttraddaðan kór eftir Jakob Handl; Sálmar um lífið og Ijós- ið, þrjú lög fyrir barna- kór eftir Hjálmar H. Ragnarsson; Leyfið börnunum að koma til mín fyrir kór, barnakór, einsöngvara og orgel eftir Jón Ásgeirsson; einsöngsverkið 0 Salutaris hostia eftir Ga- briel Fauré; kórverkin Aldasöngur eftir Jón Nordal og The wall is down eftir Knut Ny- stedt. Flytjendur á þessum lokatónleikum Tónlist- ardaga Dómkirkjunnar eru Dómkórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar, Kór Vesturbæjarskólans í Reykja- vík undir stjórn Kristínar Vals- dóttur og einsöngvararnir Bergþór Pálsson, Marta Guð- rún Halldórsdóttir og Sigrún Vala Þorgrímsdóttir. Organisti er Pavel Manásek. Fjörið verður í Rósenberg- kjallaranum aðfaranótt sunnu- dags, því hljómsveitin Soma heldur tónleika í þeim mæta kjallara strax eftir miðnætti á laugardagskvöld. Að sögn Þor- láks Lúðvíkssonar, hljóm- borðsleikara sveitarinnar, flyt- ur sveitin „öðruvísi dægurflug- ur með áherslum" (hvað sem það nú þýðir). Soma sigraði í hljómsveitakeppni sem haldin var í vor á Akureyri. „Við vær- um þakklátir ef þú minntist ekki á hvað keppnin er kölluð, því nafnið er mjög vont,“ segir Þorlákur. Blaðamaður gat því ekki staðist að segja frá nafn- inu, sem er Fjör-unginn. Á sunnudaginn frumsýnir leikhópurinn Draumasmiðjan verkið Safnarinn eftir John Fowles í Höfðaborginni í Hafn- arhúsinu. Leikritið er sálfræði- tryllir um ungan mann sem er ástríðufullur fiðrildasafnari. Hann vinnur mikla peninga í lottói, kaupir stórt hús í útjaðri Lundúna og notar það til að halda fanginni stúlku sem hann elskar og hefur numið á brott. Að sögn Magnúsar Árna Magnússonar, eins aðstand- enda sýningarinnar, er leik- gerðin eftir Dofra Hermanns- son og fékk leikgerð hans sér- stakt samþykki höfundarins. „- Þetta er tiltölulega fræg skáld- saga og var meðal annars gerð kvikmynd eftir sögunni," segir Magnús. „Síðan var gerð leik- gerð sem sett var upp í Lond- on við góðar undirtektir í ein- hver ár þangað til höfundurinn sá leikritið. Honum leist víst svo illa á það að hann bannaði leikgerðina. Dofri skrifaði John Fowles og sagði honum frá hugmyndum sínum um leik- gerð og John varð svo hrifinn að hann hafði samband við Dofra og sagði að þeir mættu setja leikritið upp út frá þess- um hugmyndum. Og nú verður leikritið frumsýnt á sunnu- dagskvöldið og allir að sjálf- sögðu velkomnir." Ný plata með manninum sem sumir kalla meistara, sjálf- um Megasi, er að koma í búðir. Lífoglóð Ofgamál elsti galli félags- ■ Blega kerfisins er sá, að það eyddi sátt mannsins við lóð sitt. Horfin er auð- mýkt mannkindar- innar gagnvart örlögum sín- um. Það er sama hvaða lítil- ræði bjátar á í lífi fólks; heimil- ismissir, helsýki, húsbrunar, heyleysi, hamfarir; strax er rekið upp ramakvein og heimt- að að hið opinbera breyti ör- lögum þeirra, þeim að endur- gjaldslausu. Fólk heldur að fæðing þeirra kaupi kaskó- tryggingu gegn lífinu sjálfu. Þessi misskilningur, því mis- skilningur er það; náttúran gerði aldrei ráð fyrir að það væru engin afföll; þessi mis- skilningur veldur því að sífellt er verið að agnúast út í sparn- aðaraðgerðir. Eins og t.d. nauðsynlegan niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Þjóðin þjarkar og þrefar og þrasar og þvertekur fyrir að koma auga á að eina skynsamlega sparnað- arleiðin liggur í gegnum sjúkra- húsin. Hér áður fyrr, þegar fólk kunni að lúta höfði og lifa með lóði sínu, var heilsa mann- skepnunnar látin ráðast, eins og náttúran gerði ráð fyrir. Bæklaðist einhver af því að hestvagn dytti á hann var hann ekki settur á neinn þriggja ára biðlista, nei. Hann var borinn heim, þar sem hann átti heima og var hvort eð er búinn að borga fyrir að vera, og þar fékk hann að gróa eins hratt og hann lysti. Og eins og hann lysti. Reyndist hann að því loknu ófær um að bera bagga eða grafa skurði snikk- aði einhver honum nákominn ódýrt trébretti með hjólum sem hann virkjaði strax til að ýta sér út um allar trissur og njóta hollrar útiveru á meðan hann betlaði sér til viðurværis. Það var ekki setið heima og beðið eftir bílastyrk. Eigi var heldur hangsað á stofnunum á meðan tíu manns höfðu fulla vinnu af að smíða tölvuvædda tæknilimi undir óhappagemsa. Nei. Mamma þeirra fór með spotta til tré- smiðsins og bað um svona langan tréfót. Þetta réð fjöl- skyldan við að fjármagna án þess að skila umsóknum í átj- án mánuði samfleytt á meðan menn húktu einfættir á rúm- bríkinni. Trésmíðaverkstæði með sjálfsvirðingu áttu birgðir tréfóta í öllum stærðum og við- artegundum, annað en í dag, þegar almennt dugleysi veldur að þau dudda í innfluttu par- keti. Menn voru sízt verr settir með tréfót, við minnum á hvað Audur Haralds skrifar Long John Silver gerði það gott. Nú á að loka gigtardeild um áramótin og veinin rísa þegar til himins yfir því. Meðan skyn- semi réð í heilbrigðismálum „Fólk fékk auðvitað síður gigt, það dó snemma. En þeir sem fengu hana samt höfðu hana þá bara. Þegar þeir höfðu stirðnað og kreppst svo að þeir komu ekki lengur að almennu gagni var þeim komið fyrir í hornunum, þar sem þeir héldu uppi barnakennslu og -gæzlu og leystu þannig af hólmi tvær dýrar stofn- anir nútímaþjóðfélagsins.“ var engin gigtardeild til. Fólk fékk auðvitað síður gigt, það dó snemma. En þeir sem Íengu hana samt höfðu hana þá bara. Þegar þeir höfðu stirðnað og kreppst svo að þeir komu ekki lengur að almennu gagni var þeim komið fyrir í hornunum, þar sem þeir héldu uppi barna- kennslu og -gæzlu og leystu þannig af hólmi tvær dýrar stofnanir nútímaþjóðfélagsins. Entist þeim svo ævi að þeir næðu fullri stirðnun voru þeir nýttir sem snagar undir fatnað og þar sem vottaði fyrir vel- megun voru þeir skreyttir á jólum. Kvalakurr þeirra, því ekki var bruðlað með verkja- stillandi, kom í stað síbyljunn- ar í útvarpinu, sem heldur ekki var til þá. Hver sá sem er orð- inn þreyttur á innihaldsleysi afþreyingarrásanna ætti að nota tækifærið og fá sér gigtar- sjúkling í hornið um áramótin. Menn ráku heldur ekki dýrar geðdeildir. En hver einasta húsaþyrping átti sér sinn þorpsfávita. Þeir sáu svo rit- höfundum fyrir söguefni og Isaac Bashevis Singer fékk Nóbelinn, þökk sé framlagi sturlaðra í heimasveit hans. Rís íslenzk list hærra eftir því sem fleiri deildum er lok- að? Höfundur er rithöfundur. ARABISKT- ISLENSKT KVOLD á veitingastaðnum MARHABA Rauðarárstíg 37, fimmtudaginn 14. nóvember kl. 18-21. Matseðill: 15 arabískir réttir frá ýmsum arabalöndum. Skemmti- og menningaratriði: KK leikur og syngur. Ólafur Gunnarsson rithöfundur les úr nýrri bók sinni. Arabískur magadans o.fl. Verð með mat 1.400 kr. - Allir velkomnir. FÉLAGIÐ ÍSLAND/PALESTÍNA

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.