Helgarpósturinn - 14.11.1996, Qupperneq 24
HELGARPÓSTURINN
14. NÓVEMBER 1996 45. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR.
Yfir kvöldverðarborðum fulltrúa á landsþingi
Alþýðuflokksins I Perlunni um síðustu helgi
sagöi Jón Baldvin Hannibalsson, fráfarandi
formaður, sögu sem vakti athygli og heilabrot.
Söguna hafði Jón éftir austur-evrópskum vini sín-
um og hún var á þá leið að lævirki einn flaug
hátt en lenti í hríðarbyl og féll frosinn til jaröar.
Kýr kom að og skeit á lævirkjann. Ylurinn af mykjunni þíddi
klakabrynjuna og lævirkinn tók flugið á ný, frelsinu feginn. En
refur náði lævirkjanum og beit af honum hausinn. Ferna lær-
dóma má draga af sögunni, sagöi Jón. í fyrsta lagi: Fljúgðu
aldrei hærra en vængirnir geta borið þi_g. I öðru lagi: Þeir vilja
þér ekki endilega illt sem ata þig sklt. í þriðja lagi: Þeir sem
draga þig upp vilja þér ekki endilega vel. í fjórða lagi: Sá sem
er í skít upp fyrir haus ætti ekki að syngja. Jón sagðist tileinka
söguna nýjum formanni Alþýöuflokksins, Sighvati Björgvins-
syni. Margir veislugestir töldu þó aö hún væri ætluö Guð-
mundi Árna Stefánssyni...
Sigrún Benediktsdóttir, nýkjörinn gjaldkeri Alþýðuflokks-
ins, mun fá ærinn starfa. Flokkurinn glímir við verulegar
skuldir og samkvæmt rekstraryfirliti jukust þær um 14 milljónir
á milli áranna 1994 og 1996. Opinbert yfirlit er eitt og rauntöl-
ur annaö. í greinargerð sem forveri hennar, Sigurður E. Am-
órsson, skrifaði fyrir rúmu ári sagöi blákalt að ef flokkurinn
væri hlutafélag færi reksturinn beint í gjaldþrotaskipti...
Císli Rúnar Jónsson þreytti frumraun sína sem stjórnandi
spjallþáttar síðasta sunnudagskvöld á Stöð 2. Gestir þátt-
arins voru Emilíana Torrini, Rúrik Haraldsson og Laddi.
Ljóst er á þessum fyrsta þætti aö þeir veröa ekki neitt í líkingu
við þættina hans Hemma, sem hefur faðmað og kysst gesti
sína í bak og fyrir. Gísli tekur meistara David Letterman sér
greinilega til fyrir-
myndar, en Letter-
man hefur átt það til
að gera lítið úr við-
mælendum sínum.
Og aumingja Emilíana
Torrini fékk heldur
betur gúmoren þarna í þættinum, þvf í miðri senu þar sem
skötuhjúin voru að gæða sér á ólífum og fleira góögæti tók
Gfsli Rúnar allt í einu upp á þvf aö sprauta framan í Emilíönu
matarolíu eöa álíka gumsi. Þessi uppákoma kom söngkonunni
í opna skjöldu og rauk hún út í fússi og renndi sófanum sem
hún sat í með sér út. Sjónvarpsáhorfendur héldu margir hverjir
að þetta atriöi hefði verið sviðsett en svo er ekki. Emilíana var
komin á fremsta hlunn meö að berja Gísla Rúnar þegar hún sá
sig um hönd og ákvað að taka frekar sófann í pant. Hvað ætli
Gísli geri næst?...
Margir urðu hissa þegar þeir opnuðu nýjasta
Fasteignablaðið og við blasti 197 fm rað-
hús á tveimur hæðum með stórum svölum í
norður og suður á Barðaströnd á Seltjarnarnesi.
Húsiö var sagt laust og að þaö fengist á góðu
verði. Eins og kunnugt er á Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, hús á Barðaströnd 5,
en hann hefur fram til þessa sagst ætla aö halda því. Því undr-
uðust það margir að húsið skyldi vera komið í sölu. Þegar bet-
ur var aö gáð reyndist þetta þó ekki hús forseta vors heldur
mun húsiö við hliðina á Ólafi vera til sölu. Samkvæmt fast-
eignasalanum er hér um skemmtilegt hús aö ræða og mun
það án efa seljast fljótt, enda ekki amalegt að búa við hliöina
á sjálfum forsetanum...
Húsnæðisstofnun ríkisins hefur stefnt Húseigendafélaginu
vegna ummæla og gagnrýni Sigurðar Helga Guðjónsson-
ar, formanns félagsins, um lögfræöideild stofn-
unarinnar. Nú hefur Húseigendafélagið skorað á
Pál Pétursson félagsmálaráöherra að skipa þeg-
ar í stað óháða nefnd sérfróðra manna til að
fara ofan í kjölinn á þeim áviröingum sem lög-
fræðideildin og stofnunin hafa verið bornar. Tel-
ur stjórn Húseigendafélagsins að slík rannsókn
sé brýn til þess að öll kurl komi til grafar og til að stofnunin
megi endurheimta þá tiltrú sem hún þarf nauðsynlega að hafa
til að geta gegnt hlutverki sínu...
Félagsmálaráðuneytið er þessa dagana að skoða hverjir
hafa fengið að flytja veð á milli fasteigna hjá Húsnæðis-
stofnun og hvers vegna. Páll Pétursson félagsmálaráðherra
hefur ekki farið leynt meö að veöflutningar stofnunarinnar séu
óeölilegur viðskiptamáti sem beri ekki að nota nema í náttúru-
hamförum. Hann er ekki ánægður með hve lítið er minnst á
Hundruð þúsunda karla,
kvenna og barna eru á
vergangi vegna átakanna í
Saír. Umfangsmikillar
neyðaraðstoðar er þörf.
Rauði kross Islands leitar
liðsinnis Islendinga vegna
hjálparstarfsins og hvetur
landsmenn til þess að bregðast
Söfnunarsíminn
í bönkum og sparisjóðum
Reikningur
Hjálparsjóðs:
ávísanareikn. nr.12
í SPRON, Seltjarnarnesi
RAUÐI KROSS ISLANDS
Framlögin renna óskert til hjálparstarfsins
veðflutninga í stjómsýsluúttekt Ríkisendurskoð-
unar og bíður nú eftir frekari upp-
lýsingum um málið. Ljóst er að
þessi athugun félagsmálaráðu-
neytisins er mikið áfall fýrir Sigurð
E. Guðmundsson, framkvæmda-
stjóra Húsnæðisstofnunar, og
stjórn stofnunarinnar, sem hefur
ekki komið sér saman um reglur þar að lútandi
þrátt fyrir athugasemdir Ríkisendurskoðunar og
félagsmálaráðuneytisins á síðustu misserum...
Hér kemur ein sæt úr skamm-
deginu. Við hér á HP höfum
fylgst með úr fjarlægð, á skemmt-
anasíðum blaðsins, óléttu leikkon-
unnar Tristan Gribben, hinnar
írskættuöu eiginkonu athafna-
mannsins Ingvars Þórðarsonar i
Loftkastalanum. Og það er skemmst frá því að
segja að hún varö léttari í vikunni, nánar tiltekiö
snemma á þriöjudagsmorgun. Þá fæddist þeim
hjónum myndarleg stúlka, sem fróðir menn telja
að hljóti brátt viröulegt nafn úr íslendingasögun-
um. Stjórnlaus af föðurlegu stolti mun Ingvar,
sem auk þess rekur Kaffibarinn í félagi við aðra,
hafa troöið vindlum upp í alla sem ráku þar inn
nefið á þriöjudagskvöld...
Flokksþing krata er nýafstaðið og þótti það
fjölmennt og ákaflega glæsilegt með 357
fulltrúa. Nú er komiö í Ijós að félagar í Alþýðu-
flokksfélagi Hafnarfjarðar voru í raun allt of marg-
ir á þinginu miöað við félagafjölda og hefur svo
verið í nokkur ár. Samkvæmt heimildum HP voru
félagar í FUJ í Hafnarfirði ennfremur alltof margir.
Olli þessi tilraun Hafnarljarðarkrata til að sýna
mátt sinn og megin skipuleggjendum flokks-
þingsins miklum vandkvæðum, því ekki höfðu all-
ir greitt flokksgjöld. Var þvf mikil áhersla lögð á
aö atkvæöaseölar færu aðeins til þeirra sem
greitt hefðu öll sfn gjöld. Það hefur nefnilega vilj-
að brenna við á fyrri flokksþingum aö óskilvísir
flokksmenn hafi fengiö atkvæðaseöla f hendur...
Blaðamaður Helgarpóstsins fór á dögunum á
dekkjaverkstæði hér í borg til að skipta yfir á
vetrardekkin. Allt gekk vel og voru menn fljótir aö
umfelga og setja gömlu vetrardekkin undir bílinn.
Þremur dögum seinna sprakk hjá blaöamanni.
Fannst honum það nokkuð skrýtið svo stuttu eft-
ir umskiptin. Þegar sprungna dekkið var svo
skoðað aö innan kom I Ijós tappi af tveggja Iftra
kókflösku sem gleymdist að fjarlægja við um-
skiptin. Að sjálfsögöu var viðgerð dekksins
ókeypis...