Helgarpósturinn - 28.11.1996, Side 6
6
¥mm
FlMIVmJDAGUR 28. NÓVEMBER1996
Fréttastjóri DKbeggja vegna borös; fordæmir kvótakerfiö í skrifum sínum en:
j&nut xirtmimR&mmr ynr
iit Hanis er jrtoadi og það
Uuklnwtaa
ir;
ariius fiðsl
Eignast kvóta
Aldrei hefur eins mikið verið
leigt eða selt af þorskkvóta og
á síðasta fiskveiðiári, en um
52.000 tonn af þeim gula gengu
kaupum og sölu eða voru leigð
á tímabilinu. Árið þar á undan
var magnið um 36.000 tonn.
Leiguverð á þorskkvótanum
var í hærra lagi eða frá 90-120
krónur kílóið, þannig að við-
skipti með þorskkvóta á síð-
asta fiskveiðiári námu um
fimm milljörðum íslenskra
króna. Stór hluti þessara við-
skipta fór þannig fram að
menn fengu kvóta á aðrar fisk-
tegundir í staðinn, en áætlað
er að allt að þriðjungi þessara
viðskipta geti eingöngu hafa
verið bein leiga eða sala á
kvótanum. Það þýðir að tæpir
tveir milljarðar hafi verið
greiddir í leigu eða kaup á
þorskkvóta á síðasta fiskveiði-
ári. Margir þorskkvótaeigend-
ur hafa því haft góðan pening
upp úr krafsinu vegna kvóta-
kerfisins.
Fyrirtæki Einars Odds
fékk góðan kvóta
Fiskveiðiárið hófst nú í byrj-
un september og verður fróð-
í! h&m aö fcwá telit
vanmdiö gr*3iM'ag*á-
maimlnum tar svo
maife bSsaaa.
vfír ish'Mma i
var !jM aft
um áh«»rslur ef
að kmnfls! dvprn I
ínhsfn* flann lanðt
hfeá s!» I teiaferettf
' 'HktígrætM tisata o®
'tmá mÉkm Émm k&m
legt að sjá hvernig kvótavið- milljarð króna. Eins hefur línu
skiptin eiga eftir að ganga fyrir
sig í ár. Nú hefur steinbíturinn
verið settur á kvóta og víða um
land hafa menn fengið glaðn-
ing frá stjórnvöldum í formi
kvótaeignar. Úthlutunin hljóð-
aði upp á 9.450 tonn, sem
skiptist á milli þeirra sem aflað
hafa sér reynslu á veiði stein-
bíts. Verðmæti upp á tæpan
»~%r
MUOARDAGUH K. OKTÖBER UM
f ír*r-tárí r,38oni •-* «-«—• ^ **
a ™ rym &m t>a hviltr virövleik&bínar yfír {xsssum (It. Msnn er róandi ot) þaO tcr en0inn s taogum í návist narts. FlöskugraBnrt or tískulrlurínn.” OV-
Sölumaður grætur
Reynir Traustason, fréttastjóri DV, segir það „sálrænt áfall“ að hafa fengið úthlutað kvóta. Kunnáttusamlega samin grein um jeppakaup í DV í síðasta
mánuði er vísbending um það hvernig maður getur jafnað sig eftir slíkt áfall.
SÍIWffi W'
hfee5*''
.4
ifet “
krðr
Fjifsi
„Þettí -
geri þisitet
inanaton
toa og h&,
þð gengur
fcra krn tíi
UBl
tvöföldun báta verið afnumin
og kvóti settur á í staðinn. HP
hefur fregnað af einstaklingum
og útgerðum sem fengið hafa
upp í hendurnar steinbíts-
kvóta að verðmæti frá nokkr-
um milljónum króna upp í tugi
milljóna. Eins hefur þorskkvóti
fengist vegna afnáms línutvö-
földunarinnar. Margir hafa
þegar selt eða leigt þennan
kvóta og hagnast vel á. Fyrir-
tækið Hjallanes, sem hjónin
Reynir Traustason, blaðamað-
ur og fréttastjóri hjá DV, og
Halldóra Jónsdóttir eiga, er
eitt þeirra fyrirtækja sem
fengu steinbítskvóta. Þau hjón-
in keyptu fyrir nokkrum árum
bát, Jón Trausta, sem á var lít-
ill sem enginn kvóti. Reynir
reri í tvö ár frá Flateyri þar
sem hann veiddi upp í leigu-
kvóta frá öðrum. í vor ætlaði
Reynir að selja bátinn sinn en
ákvað að bíða með það, sem
betur fer fyrir hann, því í haust
fékk hann úthlutað steinbíts-
kvóta vegna þeirrar veiði-
reynslu sem hann hafði aflað
sér. Kvótinn hljóðaði upp á
rúm 56 tonn í byrjun, sem er
um áttatíu prósent af endan-
legum kvóta. Auk þess fékk
hann tæp níu tonn af langlúru.
Verðmæti þessa gæti verið allt
að tíu milljónum króna ef selt
yrði. Reynir hefur hugsað sér
að selja bátinn með kvótanum
sem honum fylgir en er ekki
enn búinn að því. Þykir þetta
nokkuð skondið því Reynir
hefur verið mjög harður and-
stæðingur kvótakerfisins og
gagnrýnt það harðlega. Reynir
vildi ekki gera mikið úr þessu
máli og telur sjálfan sig aðeins
lítið dæmi miðað við það sem
gerist annars staðar. „Ef þið
viljið einhver alvörumál ættuð
þið að leita eitthvað annað.
Nóg er af dæmunum," segir
tetta tíibo*
Reynir. „Kvótinn sem við feng-
um er auðvitað veiðireynsla
sem við höfðum aflað okkur og
er ef til vill um sjö milljóna
króna virði ef við seljum. Ef ég
veiði hann fæ ég ekki neitt eins
og gefur að skilja. Við ætlum
vissulega að selja útgerðina en
erum ekki enn búin að því.“
Gaman verður að sjá hvort
kvótamál og gagnrýni á þau
verða til umfjöllunar í DV á
næstunni, en það hlýtur að
vera erfitt að gagnrýna eitt-
hvað harðlega á sama tíma og
maður er sjálfur þátttakandi í
því!
Það fyrirtæki sem fékk út-
hlutað mestum steinbítskvóta
var útgerðarfyrirtækið Kamb-
ur á Flateyri, en Einar Oddur
Kristjánsson alþingismaður er
stjórnarformaður þess. Kamb-
ur fékk um 560 tonn, sem er
áttatíu prósent af endanlegum
kvóta. Eign upp á um áttatíu
milljónir króna.
Fyrírtæki Einars Odds Kristjáns-
sonar alþingismanns, Kambur, er
eitt þeirra fyrirtækja sem fengu
góðan steinbítskvóta.
Fréttastjóri
Stöðvar 2 hefur
einfaldan smekk
en viil ekki að
Sævar Karl
fatakaupmaður
auglýsi hann
Sævar Kari og Páll Magnússon
í hár saman út af fatareikningi Páls
„Ég hef mjög einfaldan smekk. Ég
vel aðeins það besta. Fötin frá Sævari
Karli.“ Þannig hljóðaði texti einhverr-
ar áhrifaríkustu, eða a.m.k. eftirminni-
legustu, auglýsingar síðustu áratuga.
Auglýsingin skaut upp kollinum nú á
dögunum eftir langt hlé og harkaleg
viðbrögð Páls Magnússonar, frétta-
stjóra Stöðvar 2, hafa vakið athygli.
Það var einmitt hann sem á sínum
tíma léði þessari frægu auglýsingu
rödd sína. Segja má að kaupmaðurinn
og auglýsandi hans séu komnir í hár
saman í fjölmiðlum.
í Kastljóssþætti Sjónvarpsins á mið-
vikudagskvöldið í síðustu viku hafði
Páll Magnússon, fréttastjóri Stöðvar
2, mjög hörð ummæli um endurbirt-
ingu auglýsingarinnar frægu. Hann
sagði Sævar Karl hafa gert sér grikk
með birtingunni nú og minntist á
hugsanlegt lögbann. í sambandi við
þann möguleika að auglýsingin yrði
birt á Stöð 2 sagði Páll: „Þá hótaði ég
hér málaferlum og miklum látum.“
En hvað kostuðu fötin frá Sævari
Karli? Páll Magnússon fullyrðir að
hann hafi ekki fengið greitt fyrir aug-
lýsinguna á sínum tíma. Páli og Sæv-
ari Karli ber saman að því leyti að
Sævar Karl sagði í viðtali á Rás 2 á
fimmtudaginn að Páll hefði aldrei
fengið greitt í peningum en lét hins
vegar mjög sterklega að því liggja að
hann hefði fengið greitt í fötum. Á
Sævari Karli mátti skilja að Páll Magn-
ússon hefði alla tíð, frá því að sam-
starf þeirra hófst, gengið í fötum frá
sér. Fötin frá Sævari Karli munu þann-
ig hafa blasað við augum landsmanna
á sjónvarpsskjánum í rúman áratug,
með einhverjum hléum þó.
Varla getur heitið að þáttur sé
sendur út í sjónvarpi án þess að vera
fyrst auglýstur rækilega í dagskrár-
kynningum þar sem jafnframt kemur
fram hvaða fyrirtækjum við eigum að
auðsýna þakklæti okkar. í þætti sem
sýndur var í sjónvarpi í fyrravetur var
límt yfir vörumerki á örbylgjuofni
sem sást á skjánum í á að giska 2-3
sekúndur. Ástæðan var sú að eitt
þeirra fyrirtækja sem studdu eða
„kostuðu“ þáttinn flutti inn aðra teg-
und örbylgjuofna. í Dagsljósi er þess
getið í skjátexta frá hvaða verslun föt-
in utan á stjórnendum þáttarins séu.
Ekki virðist ólíklegt að „sjónvarps-
stjörnurnar" og/eða sjónvarpsstöðv-
arnar geti sparað sér umtalsverðan
fatakostnað með því að
skipta á fötum og
óbeinum auglýsingum.
Þegar Helgarpósturinn
ræddi við Sævar Karl
Ólason hafði hann engu
við það að bæta sem
hann hafði þegar sagt á
Rás 2. Ekki náðist sam-
band vð Pál Magnús-
son í gær. Við erum
sem sagt enn jafnnær
um það hvað fötin frá
Sævari Karli kostuðu,
hvort Páll Magnússon
kunni að fara að sjást í
fötum frá öðru fyrir-
tæki eða muni halda
áfram að hafa jafn „ein-
faldan smekk“.