Helgarpósturinn - 28.11.1996, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 28.11.1996, Blaðsíða 19
RMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1996 19 Handbolti Karfa „ Alltaf sami vællinn í D ” að fimm. Ja, ef sigurinn gegn Dönum í gærkvöldi reiknast með þá eru það átján sigurleik- ir. Það verður að viðurkennast að nokkrir leikir inni í þessari upptalningu eru gegn slökum þjóðum eins og Grænlending- um og Færeyingum, en það þarf víst að vinna svoleiðis leiki líka. Harka, sannjgirni og ódrepandi sigurvilji (Minning um mann!!) - einkenna Þorbjörn Jens- son, leikmanninn og þjálfar- ann. Tobbi hefur aldrei fegrað eigin handboltahæfileika. „Ég dreg ekki dul á að ég var ekki sá flinkasti í boltanum eða sá teknískasti en ég var alltaf tilbúinn til að selja mig dýrt til að sigra.“ Fyrrverandi samherji hans segist alltaf hafa dáðst að hon- um, hann hafi ekki haft sama hæfileika og margir til að ná varnarhreyfingum og sóknar- fléttum á augabragði, en fáir hafi á endanum kunnað betur til verka en Tobbi, slíkur hafi viljinn og sjálfsaginn verið. „Hann æfði og æfði þangað til an honum, hann gat verið helv... harður í öll horn og skanka að taka.“ Líklega eru ummæli Leifs Mikkelsen, fyrrverandi lands- liðsþjálfara Dana, besta lýsing- in sem til er á Tobba og um leið lýsir hún hvaða hug Danir báru til hans; óttablandna virð- ingu. Þorbjörn Jensson rifjaði þessa sögu upp fyrir HP. „Við höfðum nýlokið við að spila tvo leiki gegn Dönum úti og unnið báða og á blaða- mannafundi eftir leikinn var Leif Mikkelsen að kvarta og kveina yfir því að íslendingar hefðu spilað með vöðvunum og einhverra hluta vegna nefndi hann mitt nafn sérstak- lega (gjörsamlega óskiljanlegt, innsk. blm.). Einn blaðamann- anna tók upp hanskann fyrir mig og segir á ensku: „Well, he is a fighter." Þá svarar Leif: „No, no, he is a killer!" Lífsnauðsynlegl að vera með á stormoium Ólíkt knattspyrnunni er heimsmeistarakeppni í hand- bolta haldin á tveggja ára fresti í leiM kvöldsins og helgarinnar Karls Jónssonar, þjálfara fyrstudeildarliðs Snæfells, en hann fékk á dögunum styrk frá ÍSÍ til að kynna sér körfuboltaþjálfun í Bandaríkjunum. Karl kvaðst óhræddur við að spá í leiki um- ferðarinnar og hér á eftir fer spá hans: „Siggi Ingimundar og Kefl- víkingar verða að halda ein- beitingu, því það er auðvelt að missa hana eftir sigur í keppni eins og Lengjubikarnum. Tak- ist það vinna Keflvíkingar leik- inn. Helsta von Borgnesinga er að halda hraðanum niðri og reyna að koma boltanum inn í boxið á Curtis og nýja útlend- inginn. Bakverðirnir verða að hafa sig alla við til að stoppa þriggja stiga skyttur Keflvík- inga og mikið kemur til með að mæða á Tómasi Holton. Þá er líka lífsspursmál fyrir Borgnes- inga að Bragi Magnússon eigi toppleik, en mikill óstöðugleiki virðist vera í leik hans. Ég hall- ast frekar að sigri Keflvíkinga, en á ekki von á að hann verði stór.“ KR sigrar Stólana fyrir noroan „Heimavöllur Stólanna er gríðarlega sterkur, sérstaklega gegn KR, en áhorfendur á Króknum hafa alltaf haft horn í síðu KR-inga. KR-ingar eru á góðum degi eitt allra besta lið landsins og Vesturbæingar vilja áreiðanlega ná góðum úr- slitum á Króknum eftir hrakfar- irnar í úrslitum Lengjubikars- ins. Það er vænlegt fyrir Stól- ana að leika svæðisvörn gegn KR, því ótrúlegt úrræðaleysi í sókn þeirra gegn svæðisvörn Keflvíkinga varð þeim að falli síðustu helgi. Það var hlægi- legt að þeir skyldu ekki reyna að sækja meira inn í boxið og sækja fimmtu villuna á útlend- ing Keflvíkinga. Ég tippa samt á KR-sigur. Þeir eru betri.“ Þrátt fyrir að vera með gott lio tapar IR fyrir „ÍR-ingar leika kröftuga og skemmtilega vörn og eru með einn besta erlenda leikmann- inn í sínum röðum, hann virð- ist geta unnið leiki á eigin spýt- ur, en leikur þó vel fyrir liðið. Hæðin er vandamál hjá þeim eins og fleiri liðum í deildinni. Njarðvíkingar kunna að nýta sér slíkt og leggi þjálfarinn, Hrannar Hólm, upp með það að koma boltanum undir körf- una uppskera þeir að lokum sigur. Hraður bolti hentar Njarðvíkingum ekki vel gegn ÍR að mínu mati og þeir ættu að varast að hleypa hraðanum um of upp. Njarðvíkursigur þar.“ Nóg komið af niðurlæg- ingu Grindvíkinga „Þarna býst ég við að sigur- ganga Skagamanna verði stöðvuð. Friðrik Ingi lætur sína menn ekki komast upp með að leika annan eins hörm- ungarleik og í undanúrslitum Lengjubikarsins gegn KR. Skagamenn eru með mislita hjörð og þeir fá að kenna á því gegn reiðum og sárum Grind- víkingum. Öruggur sigur hjá Grindavík." ísfirðingar á uppleið „Þetta verður erfið ferð fyrir Haukana vestur. Gegn fullu húsi á Torfunesi og Isfirðing- um kolvitlausum lield ég að Haukar lúti í parket. Nýi út- lendingurinn hjá KFÍ fellur bet- ur og betur að leik liðsins og Friðrik Stefáns hefur leikið vel undir körfunni. Þarna verða óvæntustu úrslit umferðarinn- ar. Heimasigur." Þrautleiðinlegur leikur lélegra liða „Þetta verður trúlega hund- leiðinlegur leikur á að horfa og hrein skotkeppni milli útlend- inga liðanna. Aðrir eru ekki beysnir skotmenn. Fred Willi- ams býr þó að því að leika meira undir körfunni og þar eiga Blikar engan til að stoppa hann og því vinnur Þór örugg- lega.“ Hann er kallaður Tobbi af þeim sem til þekkja og er um margt sérstakur karakter. Yfir- varaskeggið, úfið strýið og grimmur varnarleikurinn voru vörumerki hans og eru enn. Tja, að minnsta kosti strýið og víkingayfirvaraskeggið. Þá er hann einnig þekktur fyrir „360- vítið“ sem hann tók um árið. Tobbi var sigursæll sem leik- maður og ekki snerist stríðs- gæfan gegn honum eftir að hann tók að sér þjálfun. Frá- bær árangur hans með Valslið- ið tryggði honum landsliðs- þjálfarastöðuna síðastliðið sumar. Undir hans stjórn hefur liðið unnið sautján leiki og tap- „No, no, he is not a fighter, he is a killer!“ sagði Leif Mikkelsen um hinn „leikna og léttleik- andjl^obba. hann skildi og gat. Á endanum varð hann toppleikmaður sem var óþolandi að spila á móti en frábært að spila með,“ sagði fyrrverandi mótherji Tobba og samherji í landsliðinu. „Ég skil vel að menn hafi kveinað und- og það jjýðir að ef svo ólíklega fer að Islendingar komist ekki til Japans á HM 1997, þá er næsta keppni EM 1998, þá HM í Egyptalandi árið 1999 og loks ÓL 2000 í Sydney. Þannig að ef vel er á spöðum haldið eiga ís- lendingar að geta verið í fremstu röð fram yfir aldamót. Að sögn Tobba gerir ekki jafn- mikið til ef lið detta úr A-klassa nú og áður. Það er styttra í næstu keppni nú til að hífa sig upp en þá. Þetta er rétt hjá Þorbirni, en það var engu að síður slakt hjá okkar mönnum að klúðra seinni leiknum gegn Grikkjum úti. Það hefur Tobbi viðurkennt og er fyrstur manna til að segja þann leik hafa verið afspyrnuslakan af liðsins hálfu, varla þarf að rifja upp blaðaskrif eftir þann leik. „Sævar Árna hefur komið mest á óvart en Ragnar Oskars og Hlyn- ur Jóhanns og Arnar Péturs mestu efnin“ Það kom mörgum á óvart að Björgvin Björgvinsson úr KA skyldi valinn í hópinn, en hann er rétt að komast á skrið eftir að hafa varið mark Völsunga í fótbolta í sumar. Stöðu hans hefur Sævar Árnason tekið og hann undirstrikaði að hann á að fá séns með landsliðinu um síðustu helgi. Þorbjörn sagði skýringuna á vali Björgvins einfalda; Björgvin hefði tekið þátt í undirbúningi fyrir þessa leiki í sumar og það réði úrslit- um. Hann bætti við að ef Sævar héldi uppteknum hætti fengi hann sinn séns. „Staðan er einfaldlega sú að nú þurfum við á reynslumestu leikmönnum okkar að halda og ég hef trú á að með þessum mönnum nái ég árangri og ég veit að ég mun gera það,“ sagði Þorbjörn, sem reyndar er ekki með samning nema til miðs árs 1997. Líklegt verður þó að teljast að samningur hans verði end- urnýjaður í ljósi góðs sigurs gegn Dönum. Danir þekkja Þorbjörn vel Leikurinn sem við unnum í gær er einungis annar af tveim- ur sem þjóðirnar leika. Seinni leikurinn fer fram í Danmörku um helgina og þar duga heldur ekki nein vettlingatök. Danirnir sjálfir segjast vita vel að íslend- ingar komi til með að leika með vöðvunum og séu undir það búnir. Það er áhyggjuefni að at- vinnumenn Dana spila nú allir mjög vel með liðum sínum, toppliðum í Evrópu. Hvað sem því líður verðum við að vinna Dani um helgina og tryggja að við verðum meðal þeirra bestu um ókomna tíð, annars er hætt við að styrkveitingar og pen; ingaútlát hvers konar til HSÍ minnki um allt að 100%. Krafan er sigur. Tobbi er yfirtöffari landsins, harður nagli sem þekkir vart annað en sigur og lofaði HP á þriðjudaginn sigri gegn Dönum! íþróttir Siqurður Ágústsson sknfar Róbert „Dúndranúna" Dur- anona er kominn aftur í landsliðshópinn og leikmað- ur sem skorar um tíu mörk í hverjum leik ætti auðvitað alltaf að vera í liðinu þótt skotnýting hans sé ekki allt- af til fyrirmyndar. Lesendur láta Ijós sitt HP hafa borist eftirfar- andi bréf. Eins og alltaf fjölyröum viö um inni- hald bréfanna viö til- skrifendur. Tobbi langflottastur Handbolta-Tobbi er maður að mínu skapi Qandsliðsþjálf- ari í handbolta, innsk. HP). Hann er allt það sem Logi er ekki (landsliðsþjálfari í fót- bolta, innsk. HP). a) Hann er svalur b) Hann spilar til að vinna c) Hann tekur menn sem ekkert geta út úr liðinu d) Yngir liðið upp, velur eftir getu en ekki hefð e) Hefur smitandi sjálfs- traust f) Er frískari og unglegri en Logi (eins og það sé erfitt) g) Tobbi er greinilega búinn að stúdera John Travolta og Ford Farlane betur Niðurstaða: Tobbi er ein- faldlega einvaldur sem trúir á að ekkert sé ómögulegt og því síður ósigrandi. Hann smitar út frá sér öryggi og yfirvegun. Enda gildir eitt lögmál öðru fremur í íþróttum, eftir því sem ég best veit; að vera nógu djö... svalur. í það minnsta lét Dagur Sigurðsson hafa það eftir sér í blaðaviðtali eitt sinn að til að vinna Svíana gilti ein- ungis eitt: „Stay cool!“ Kær kveðja, Landsbyggðar-Lýður. Enn og aftur kveður Lands- byggðar-Lýður sér hljóðs á síð- um blaðsins. Til að taka af all- an vafa vill undirritaður taka fram að ekki er um að ræða dulnefni starfsmanna HP. Hvað um það. Reyndar er ég að verða þreyttur á þessu fjasi um Loga, en tek fagnandi undir að Tobbi sé flottur. Tobbi myndi jafnvel ganga sem þungarokkari í dag. Hann er í það minnsta jafn úfinn og yggldur og margir stórspá- manna í grungeinu. Annars vísa ég til viðtalsins og umfjöll- unarinnar um Þorbjörn Jens- son á síðunni. Meiri fótbolta takk! HP fékk símhringingu frá les- anda sem ekki vildi láta nafns getið, en var afar óánægður með að HP fjallaði um hand- bolta og körfubolta. Taldi það óæðri íþróttir og að blaðinu væri hollara að fjalla bara um fótbolta. Lét þessi ágæti les- andi þau orð falla að við „gæt- um alveg eins fjallað um kvennaíþróttir eingöngu, eng- inn myndi kaupa blaðið bara til að lesa um kvennaíþróttir, — hvað þá handbolta og körfu- bolta“. Þessu verður best svarað á þann hátt að það er ekkert ólíklegt að kvennaboltinn myndi selja vel, enda gerir ekk- ert blað stelpunum skil svo nokkru nemi. Hitt er rétt að að- sókn að leikjum í körfubolta og handbolta er vægast sagt léleg og segja má að ekki nokkur maður láti sjá sig fyrr en í úr- slitakeppnunum. Þetta fyrir- komulag er rotið og ekki væn- leg þróun sem á sér stað. Iðk- endafjöldinn í þessum grein- um er talsverður og ótrúlegt annað en menn og konur fylg- ist með sínum liðum.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.