Helgarpósturinn - 28.11.1996, Page 17

Helgarpósturinn - 28.11.1996, Page 17
1= HMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER1996 i i i ) > í ) > * > \ m ÍÍ 17 við sig hitaeiningarnar er gleymnara en aðrir á talnarað- ir og því um líkt. Þetta felur ekki síst í sér ákveðin skilaboð til kvenna, sem fremur en karl- ar láta til skarar skríða til verndar línunum með ströng- um matarkúrum. Farið ykkur hægt. Það er allt í lagi að spara við sig hitaeiningar, en eitt pund á viku í minni vigt er hæfilegt, það veikir hvorki lík- ama né sál. * ' / Hér kemur stuttur minnis- leikur: l)Ertu orðinn seinn að skilja? 2)Er eins og hugsunin stíflist annað veifið, líkt og þegar tölva tekur ekki iengur við einu einasta bæti í við- bót? Ef þú ert eins og fóik er flest eru svörin væntanlega 1) já svolítið og 2) já stundum, hvemig vora spurningamar aftur? Stressaðir Bandaríkjamenn, þjakaðir af of mikilli vinnu og of litlum svefni, hafa á tilfinn- ingunni að það að muna hluti sé líkt og að skjóta á mark; annaðhvort hittir þú eða hittir ekki. Það er algengt að fólk klúðri spurningum, þar sem það er beðið að rifja upp hiuti sem það var að gera fyrir stuttri stundu. Svo segir Dr. Alan Searleman, prófessor í sálfræði við St. Lawrence-há- skólann í Canton, NY. Á hinn bóginn muna flestir afar skýrt hve fúlir þeir urðu þegar þeir týndu bíllyklunum. Og hver man ekki þessa óþægilegu stund þegar gamall kunningi var allt í einu orðinn Man-ekki- hvað-þú-heitir-en-ég-kannast- svo-vel-við- svipinn? Barry Gordon, sérfræðingur í minni og höfundur bókarinn- ar Minni og gleymska í daglegu lífi, segir að mannsheilinn sé gerður fyrir miklu einfaldara líf en nútímamaðurinn lifir. „Auð- vitað hefur stress fylgt mann- inum alla sögu hans,“ segir hann, „en fyrr á öldum þurfti enginn að muna leyniorð vegna heimilis og vinnutölva, póstföng, faxnúmer eða svæð- is- og landsnúmer símans". Hér á eftir fylgja tíu góð ráð til að hressa upp á minnið. 1. Slappaðu af Hormónar sem losna vegna streitu, tveir símar hringjandi í einu, æpandi börn að reyna að ná athygli þinni, — þetta er ekki hollt fyrir heilafrumurnar. Tilraunir á dýrum sýna að streituhormónar komast auð- veldlega inn í mikilvægar minnisstöðvar í heilanum. Ef það gerist í miklum mæli geta frumur minnisstöðvanna rýrn- að og jafnvel dáið. Rannsóknir á mönnum hafa sýnt að miklar áhyggjur skerða minni tímabundið. Þess vegna eru slökunaræfingar það fyrsta sem sjúklingum er boðið upp á í rannsóknarstöð öldrunar- sjúkdóma í Læknaháskólanum í Kalíforníu. 2. Sofðu betur Bandarískir sérfræðingar álíta að of lítill svefn hrjái bandarísku þjóðina. Rann- sóknir benda til þess að Bandaríkjamenn sofi að meðal- tali 6,4 tíma á sólarhring, en eðlilegur svefn sé 8 tímar. Sérfræðingar hafa lengi álitið að þegar einstaklingurinn lærir eitthvað, eins og nafn eða símanúmer, taki þær upplýs- ingar sér fyrst bólfestu í kjarna minnisstöðvanna. Til að þær festist í minninu þurfa þær hins vegar að færast yfir í „langtímageymslu" í heilanum, annars hverfa þær eins og snjór sem bráðnar á heitu þaki. Þessi tilfærsla á sér eink- um stað á meðan á djúpsvefni stendur og truflanir á svefni geti því leitt til minnistaps. Svefn er forsenda góðrar hvíldar. Forðastu því allt sem rænir þig svefni, gerðu ekki Iík- amsæfingar skömmu áður en þú leggst til hvílu og drekktu ekki kaffi eftir klukkan 18.00. 3. Ræktaðu líkamann Settu þér það markmið að gera líkamsæfingar að minnsta kosti þrisvar í viku, hálftíma í hvert sinn. Dr. Robert Dustman, kunnur taugasálfræðingur í Bandaríkj- unum, segir að það sé óþarfi að þræla sér út til að öðlast betra minni. Dustman rannsak- aði hóp fyrrverandi kyrrsetu- fólks sem tók að ganga daglega í klukkustund og jafnvel skokka inn á milli. Eftir fjóra mánuði hafði þessi hópur tek- ið meiri framförum en saman- burðarhópur sem stundað hafði teygjuæfingar, sem ekki kröfðust raunverulegrar áreynslu. Dustman skýrir þetta með því að vissar æfing- ar, svo sem hlaup, sund og hjólreiðar, auki streymi súrefn- is til heilans. 4. Æfið hugann Æfingar eru bráðnauðsyn- legar fyrir heilastarfsemina, að sögn Dr. Sherry Willis þróun- arsálfræðings. Hún mælir með æfingum sem sameina rök- hugsun og ímyndunarafl: Hún segir: „Ræðið stórvirki bók- menntanna, skoðið listsýning- ar, púslið, spilið brids. Fjöl- breytnin er mikilvæg, því fólk þarfnast margs konar hugs- anaþátta til að styrkja minni og rökhugsun. Rannsóknir Sherry Willis sýna að fólk sem stöðugt beitir hugarorku sinni heldur minn- inu betur við en hinir sem ekki eru eins virkir andlega. Ráð hennar til þeirra sem vilja þroska minni sitt er svipað og þau sem gefin eru á líkams- ræktarstöðvum: „Notið það, ella týnist það“. 5. Borðið vel Vísindamenn hafa ekki enn fundið upp neitt sem kalla mætti matseðil fyrir minnið, en á hinn bóginn telja þeir sýnt að langir og strangir megrunar- kúrar veikla hugann jafnt sem líkamann. Það þykir nú sýnt að fólk sem stöðugt er að skera niður 6. Skynsamleg lyflanotkun Sumar tegundir lyfja hafa áhrif á heilastarfsemina Ró- andi lyf og kólesteróllækkandi lyf geta haft áhrif á minnið. Ef þú óttast að lyf sem þú notar hafi áhrif á hugarstarfsemina, ræddu það þá við lækni þinn og kannaðu hvort til greina kemur að minnka skammtinn eða breyta um lyf. Óhófleg áfengisnotkun getur valdið óafturkræfri minnis- röskun. Meira að segja hafa verið leiddar líkur að því að „sósíaldrykkja“ — einn til þrír á dag — hafi áhrif á minnið, þótt óljóst sé hvort það er alkóhólið sjálft eða streitan sem e.t.v. veldur drykkjunni sem hefur þessi áhrif. 7. Fáðu hjálp við þunglyndi Þunglyndi dregur úr hugar- orkunni. Tökum dæmi af bandarískri konu á sextugs- aldri sem leitaði aðstoðar vegna þunglyndis. Hún hafði gott starf sem ritari samtímis því sem hún ól upp þrjú börn. En stöðugt tal um niðurskurð á skrifstofunni byrjaði að valda höfuðverkjar- og geðofsaköst- um. Að lokum varð hún að segja starfi sínu lausu og upp frá því hætti hún að aka bíl og elda mat. Hún skýrði sálfræð- ingi sínum frá því að hún hefði gleymt því hvernig ætti að nota örbylgjuofn. „Heilinn í mér er að bráðna," sagði hún. Sálfræðingurinn komst að þeirri niðurstöðu að konan þjáðist af þunglyndi með með- fylgjandi svefnleysi og sjálf- morðshugleiðingum. Eftir eins árs meðferð hafði konan tekið miklum framförum og sagðist sjálf vera ný kona. Og til að öllu sé til skila haldið: með- ferðin við þunglyndi hafði í för með sér að konan endurheimti minni sitt. 8. Taktu þér tíma „Að gleyma er óaðskiljanleg- ur hluti þess að læra,“ segir dr. Harry Barrick, prófessor í sál- fræði í Ohio. „Ef þú þarft til dæmis að festa þér í minni ræðu eða efni sem þú þarft að kynna, byrjaðu þá á því nokkr- um vikum áður en stundin rennur upp. Rannsakaðu efni þitt vel, rifjaðu það síðan upp tveimur dögum síðar eða svo, og þannig áfram. Með þessu móti lærirðu efnið mun betur en ef þú reynir að læra það í eitt skipti fyrir öll. 9. Allt á sínum stað Bahrick setur jafnan bíllykl- ana sína á merktan stað nálægt útidyrunum, og þar setur hann einnig ýmislegt fleira; bók sem þarf að skila, minnismiða um fundi og þess háttar. Hann ráð- leggur fólki að hafa fasta staði fyrir hluti sem eru gjarnir á að týnast, eins og gleraugu, lykla og veski. Til að festa sér í minni nýtt nafn er gott að setja það í sam- band við eitthvað sérstakt. Jón við Jón Sigurðsson forseta, Ei- rík við ríkidæmi og svo fram- vegis. 10. Minnisatriði í kassa „Lítill kassi á borðinu mínu hjálpar mér að muna það sem mestu máli skiptir,“ segir Ba- hrick. „Utan á honum er mynd af börnunum mínum á strönd- inni. 1 kassanum eru ýmis minnisblöð; á einu stendur til dæmis til hamingju með af- mælið, þar er líka fallegur steinn og blómkróna, svo eitt- hvað sé nefnt. Þegar ég opna hann finn ég vakna hlýjar til- finningar bundnar því sem í kassanum og utan á honum er. Það minnir mig jafnframt á það sem ónefndur höfundur sagði eitt sinn: „Það þarf fleira en gott minni til að eiga góðar minningar.““ (jj~ APÓTEKGARBABÆJAR (£ ALLT AÐ 100% AFSLÁTTUR af hlut sjúklings við kaup á lyfseðilsskyldum lyfjum EINNIG 25% AFSLÁTTUR AF NIKÓTÍNLYFJUM Góð þjónusta, mikið vöruúrval. Verið velkomin <D APÚTEK GARDABÆJAR, Garðatopgi <£

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.