Helgarpósturinn - 28.11.1996, Page 24

Helgarpósturinn - 28.11.1996, Page 24
HELGARPÓSTURINN 28. NÓVEMBER 1996 47. TBL. 3. ÁRG. VERÐ 250 KR. Páll Baldvin Baldvinsson, dagskrárstjóri Stöðvar 2, sagði hátíðlega á ráðstefnu útvarpsréttarnefndar I síðasta mán- uði að Stöö 2 væri hætt að sýna myndir bannaðar börnum um miðjan dag þegar foreldrar geta vart komið við eftirliti með börnum sínum. Útsendingar Stöðvar 2 höfðu verið gagnrýndar víða í þjóðfélaginu. Páll Baldvin erekki maður orða sinna. Samkvæmt auglýstri dagskrá sýndi Stöð 2 kvikmynd stranglega bannaða börnum miðvikudaginn 20. nóvember klukkan eitt eftir hádegi og mynd bönnuð börnum er aftur á dagskrá á morgun klukkan eitt eftir hádegi... eikindi Margrétar Frimannsdóttur, for- manns Alþýðubandalagsins, koma í veg fyrir að hún geti setið á þingi. Óttast var að veikindi Margrétar myndu koma I veg fyrir samstarfsvið- ræður stjórnarandstöðunnar, en frá sjúkrabeði á Stokkseyri símar Margrét í allar áttir og er með fingurna á púisinum... Heitt er í kolunum í Islendingafélaginu í Kaupmannahöfn þessa dagana og eru deilurnar um Jónshús hvergi nærri út- kijáðar. Þórdís Bachmann, sem kjörin var formaður félagsins í haust, er líkleg til að láta af því embætti með góðu eða illu, segja heimildirí Kaupmannahöfn... Innan úr Garðastræti virðist rikja mikill söknuður eftir hagfræð- ingnum Ásmundi Stefánssyni úr starfi fo'rseta ASÍ, en hann starf- ar nú hjá Islandsbanka. Að sögn var Ásmundur tal- inn hafa skiigreint hiutverk sitt sem forseti launþegahreyfingar ákaf- lega vel. Þeim í Garðastrætinu er aftur minna gefið um eftirmenn hans, Benedikt Davíðsson og síðar Grétar Þorsteinsson, sem báðir eru taldir hafa orðið að reiða sig meira á sérfræði- þekkingu annarra innan ASÍ og haft fremur almennt sjónarmið til einstakra mála... |"hópi ótal skálda sem gefa út eigin verk fyrir jólin eru ekki nema örfáar konur. Hafa margir velt því fyrir sér hver sé skýr- ingin. Ýmsar tilgátur eru á lofti, meðal annars sú að konur séu ragari við að taka áhættu; haldi stöðugt áfram að yfirfara verk sín fremur en að eiga það á hættu að verða rifnar niður. Aftur á móti séu karlmenn ekki haldnir sömu fullkomnunaráráttu og ávallt tilbúnir á vígvöllinn. Þessar fáu skáldkonur hafa, til að vekja á sér athygli, ákveðiö að efna til síðkjólakvölds á Hótel Borg um miöjan desember. Þær sem ætla með ýmsum hætti að skemmta fólki eru Vigdís Gríms- dóttir, Elísabet Jökulsdóttir, Gerður Kristný, Linda Vil- hjálmsdóttir, Nína Björk Ámadóttir, Jóhanna Kristjóns- dóttir og Vilborg Dagbjartsdóttir... Fjölmargir hafa haft samband við HP til þess að lýsa furðu sinni á því að gamli rokkarinn og róttæklingurinn Bubbi Morthens, sem fyrir allmörgum árum söng af mikilli innlifun og reiði baráttusöngva á borð „Þið munuð öll, þið munuð öll, þið munuð öll deyja..." og marga texta um lítilmagnann T þjóð- félaginu, skuli nú vera farinn að syngja lofsöng um stórveldið Hagkaup. Vissulega hafi Bubbi smátt og smátt, frá því hann kyrjaði með Egó og Utangarðsmönnum, allur verið að mildast og markaðsvæðast. Margir velta fyrir sér hvaða peningasummu eða hve margar matarkörfur félagi Bubbi hefði þegið frá Hagkaup fyrir lofsöng- inn. En það er bæði gömul saga og ný aö róttæklingar mildist með aldrinum... Deilur Húsnæðisstofnunar við Húseigendafélagið virðast ætla að draga verulegan dilk á eftir sér, meðai annars með þeim afleiöingum að afgreiðsla mála gagnvart Húsnæðisnefnd ReykjavTkur er farin í hnút. Telja margir að ástæðan sé sú að Guðrún Ámadóttir, starfandi framkvæmdastjóri, erjafnframt í stjórn Húseigendafélagsins. Titringur þessi hefur auk þess beinst gegn húseigendamönnunum Karli Axelssyni og Bene- dikt Bogasyni, sem sitja í kærunefndum fjöleignahúsamála og húsaleigumála, sem eru á könnu Húsnæöisstofnunar. Greinilegt er að deila þessi er að komast á alvarlegt stig... ■ http://this.is/ne lifandi vefur um Internetið, fólkið, fyrirtækin og framþróunina Reykjavíkurborg hefur á undanförnum árum komið myndarlega til móts við þörfina á fleiri bílastæðum í hjarta borgarinnar meðal annars með byggingu bílahúsa, sem hafa fjölmarga kosti framyfir önnur bílastæði. Fátt er skemmtilegra en að rölta um miðborgina og njóta mannlífsins, verslananna og veitingahúsanna. Þeim fjölgar stöðugt sem hafa upp- götvað þau þægindi að geta lagt bílnum í rólegheitum inni í björtu og vistlegu húsi og síðan sinnt erindum sínum áhyggjulausir. I bílahúsi rennur tíminn aldrei út, þú borgar aðeins fyrir þann tíma sem notaður er. Og síðast en ekki síst eru bílahúsin staðsett með þeim hætti að frá þeim er mest þriggja mínútna gangur til flestra staða í miðborginni. Nýttu þér bílahúsin. Þau eru þægilegasti og besti kosturinn! Bílastæðasjóður Njótið - notið Sex glæsileg bílahús í lífsins húsin hjarta borgarinnar Staðsetning bílastæða er á götukortum flMÓ Þjónustuskrá Gulu linunnar Vitatorg, bflahús með innkeyrslu frá Vitastíg og Skúlagötu. 223 stæði. Traðarkot, Hverfisgötu 20, gegnt Þjóðleikhúsinu. 271 stæði. essa dagana eru aðilar vinnumarkaðarins að koma sér saman um leiðir í vinnustaða- samningunum og viröist það ganga fremur seint. Frá aðalstöðvum VSÍ heyrast þær raddir að ASÍ hafi dregið lappirnar og vinnuveitendur í raun tekið frumkvæðið í þessum málum. Sjálfsagt svíður ASÍ-mönnum að heyra slíkar fullyrðingar, en þeir hafa meðal annars bent á að umræöan um vinnustaðasamningana hafi staöiö yfir frá því á síðasta Alþýðusambands- þingi... Seifyssingum og nágrönnum gefst um helgina kostur á að sjá mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Djöfla- eyjuna á allnýstárlegan hátt. Vegna kvikmyndahúsaleysis á Suðurlandi hefur verið ákveðið að sýna myndina í bílabíói á íþróttavelli UMFS á Selfossi. Trúlega eiga Sunnlendingar eftir að hópast á bílum sín- um á völlinn um helgina til að beija myndina augum og bætast þannigí hóp 65.000 manna sem séö hafa Djöflaeyjuna. Vonandi snjóar ekki... Innan úr Garðastræti virðist ríkja mikill söknuður eftir hagfræðingnum Ásmundi Steflánsvsyni úr starfi forseta ASÍ, en hann starfar nú hjá íslands- banka. Að sögn var Ásmundur talinn hafa skil- greint hlutverk sitt sem forseti launþegahreyfing- ar ákaflega vel. Þeim í Garðastrætinu er aftur minna gefið um eftirmenn hans, Benedikt Davíðs- son og síðar Grétar Þorsteinsson, sem báðir eru taldir hafa orðið að reiða sig meira á sérfræði- þekkingu annarra innan ASI og haft fremur al- mennt sjónarmið til einstakra mála...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.