Alþýðublaðið - 19.11.1970, Page 1
✓
- en menn eru að
harðnð f baráttunríi
Bindindi í
Y - Njarbvik
□ Fjórtán starfsmenn í vél-
smiðju einni í Ytri - Njarð-
vík hafa myndað með sér
tóbaksbindindisfélag. Hver fé
lagsmaður leggur daglega til
hliðar fjárhæð, sem nemur
and\árði eins sígarettupakka,
og er féð er þannig safnazt,
greitt í félagssjóð og ávaxtað
í banka. Brot á reglum fé-
lagsins varða fjársektum,
500,00, 1.000,00 eða 2.000,00
krónur. Margítrekað brot
varðar brottrekstri úr félag-
inu. Méð stofnun ifélagsfns
vilja starfsmenn vélsmiðjunn
ar vekja athygli fólks á skað-
semi tóbaksreykinga og verða
öðrum til eftirbreytni með
því að hætta að reykja.
Forystumenn félagsins köll
uðu fréttamenn á sinn fund
fyrir fáum dögum í því skyni
að kynna félagið, sem stofnað
var 9. nóvember s.l., og sögðu
þá m.a.: „Tóbaksreykingar
eru skaðlegar eins og allir
vita bæði heilsu manna og
fjárhag, og þar sem við telj-
um, að fólk eigi ef til vill
auðveldar með að hætta reyk
ingum, ef það stofnar með
sér félög í því skyni að verða
hver öðrum til styrktar, á
meðan ávaninn er yfirunn-
inn, viljum við verða öðrum
til eftirbreytni“.
14 starfsmenn í vélsmiðju
Ól. Olsen í Ytri - Njarðvík
standa að stofnun tóbaks-
bindindisfélagsins og telja
þeir, að miðað við núverandi
starfsmannafjölda í fyrirtæk-
inu, sem aðilar eru að félag-
inu, munu um 300.000,00 kr.
safnast í félagssjóð á einu ári,
sem aðilar hefðu eytt í tóbaks
reykingar.
Hver einstaklingur, sem
reykir einn pakka af sígarett-
um á dag, greiðir 20.000,00—
21.000,00 krónur á ári fyrir
tóbaksnautn'ína, *jg oft feí
a.m.k. helmingi hærri upp-
hæð i reykingar hjá einni og
sömu fjölskyldunni, þegar
bæði hjónin reykja. —
Danskir þing-
menn sjá Ijósið
□ Mikill meirihluti danskra
þingmanna er meðmæltur al-
geru banni gegn tóbaksauglýs-
ingum. Einnig eru þeir fylgj-
andi víðtæknm upplýsingaher-
ferðum um tóbakshættuna í
skólum, öðrum menntastofn-
unum og fjölmiðlum. Þetta
kemur fram í skoðanakönnun,
sem heilbrigðisstofnun Kaup-
mannahafnarháskóla hefur
látið framkvæma meðal þing-
manna. Um það bil 2/3 þing-
mannanna hafa tekið þátt í
skoðanakönnuninni.
í hverjum stjómmálaflokki
eru fleiri með slíku auglýsinga
banni, en á móti því. Einnig
ríkir mikil einúig um þörf-
ina á auglýsingastarfsemi um
tóbakshættuna. Aftur á móti
eru menn ekki sammála um,
hvaðan peningamir til upp-
lýsingastarfseminnar eiga að
koma. Sjötíu og þrír af hundr
aði meðal sósíaldemókrata
vildu, að hluti tóbaksskatts-
ins rynni til þessarar starf-
semi, en fimmtíu og sjö af
hundraði íhaldsmanna voru á
móti því, að skatturinn væri
notaður á þennan hátt.
Næstum helmingur þing-
manna reykir ekki. Margir
þeirra telja, áð reykingasiðir
þjóðarinnar mundu breytast
til batnaðar, ef leiðtogarnir
gæfu gott fordæmi.
Norskir
síldar-
kaupmenn
óhressir
□ í viðtali við norskan síldar-
útflytjanda í norska blaðinu
Fiskeren kemur fram, að íslenzk
ir og færeyskir síldarbátar hafa
að undanförnu selt daglega í
Hirtshals og Skagen í Danmörku
allt að 20.000 kassa af síld, sem
bátarnir veiða á síldarmiðunum
við Hjaltland, en á sama tíma
berist lítil sem engin síld til
Noregs og eigi norskir síldarút-
flytjendur við hráefnisskort að
stríða af þeim sökum.
Segir síldarútflytjandinn, að1
aukinn hlutur íslendinga á
fersksíldarmarkaðinum sé íhug-
unarefni, þar sem' Norðmenn
hafi hingað til átt mjög mikil
ítök á þessum markaði.
í samtalinu upplýsir síldarút-
flytjandinn norskí, að þukinn
síldarafli íslenzkra síldarbáta,
sem veiða við sunnanvert ísland,
og söltun þeirrar síldar, kunni
að hafa talsverð áhrif á síldar-
markað Norðmanna, sem hafi
sökum síldarbrestsins við fsland
í tvö ár, átt meirl ítök á mark-
aðinum en áður. —
Hann er í
opnu i dag
sendir Rúrik
Haraldssyni
hjartanlegar
hamingjuóskir og þakkar
honum marga ánægjustunð.
ÆIÍKYÐlö
> c> OPNA