Alþýðublaðið - 08.12.1970, Blaðsíða 1
ÞRItfJODAGUR 8. DESEMBER 1970 — 51. ÁRG. — 276. TBL.
Gamla fólkið
ær hækkun
Mengunarhætta á
Það er ekki aðeins við bryggjuf og hafnargarða,
sem við íslendingar þurfum að fara að taka til hend-
inni ti;! þess að sporna við mengun. Þær takmörk-
uðu rannsóknir, sem þegar hafa verið gerðar, sýna,
að mengun lofts, láðs og lagar hefur þegar hafið
innreið sína á íslandi og er í sumum tilvikum orðin
mjög veruleg. Landsmenn hafa hingað til verið
næsta sinnulitlir um þessi mál og talið, að engin
hætta væri á ferðum. En svo er þó. Nýlega gerðar
rannsóknir leiða þannig í Ijós í fyllsta máta
alvariegar niðurstöður og nefnd sérfræðinga, sem
kynnt hefur sér þessi mál upp á síðkastið hvetur
eindregið til þess að Þegar verði brugðið við svo
afstýra megi því stórkostlega tjónj, sem mengun
frá úrgangi og eiturefnum hefur þegar valdið í ná-
lægum löndum.
□ Fjárveitinganefnd hefur gert
að tillögu sinni í sambandi við af-
greiðslu f'járlaga, að elli- og ör-
orkulífeyrir verði haekkaður um
LIÐSAUKI
AÐSUNNAN
□ Bændur í Austur-Skafta-
fellssýslu hafa nú lýst yfir
stuðningi við Mývetning-a í
baráttu þeirra fyrir venidum
Laxár og umhverfis liennar.
í úrdrætti úr fundargerð frá
fulltrúafundi bænda í Aust-
ur-Skaftafellssýslu, sem hald-
inn var í Mánagarði dagana
14. og 15. nóv. s.I., og Al-
þýðublaðinu hefur borizt,
segir:
„íFulltrúafundur bænda í
Austur-Skaftafellssýslu hald-
inn að Mánagarði dagana 14.
og 15. nóvember 1970 lýsir
yfir fullum stuðningi við
Þingeyinga í baráttu þeirra
fyrir verndun Laxár og um-
hverfis hennar.
Þá skorar fundurinn á alla
þá, sem meta fegurð og tign
íslenzkrar náttúru að vera
vel á verði um að þeim verð-
mætum sé ekki á glæ kastað
að ástæðulausu“. —
8,2% eða um 41 milljón króna.
Er hér um að ræða sömu hækkun
og launþegar hafa fengið á kaupi
sínu í sumar og haust til þess að
mæta verðhækkunum, sem orðið
hafa. Með hækkuii þessari verður
gamla fólkinu og öryrkjunum
bættar verðhækkanirnar í sumar
á sama hátt og launþegar hafa
fengið þær bættar þannig að kaup
máttur bótanna verður sá sami og
hann var er ríkisstjórnin ákvað
hinar mildu hækkanir á bóta-
greiðslum þessum í vor í kjölfar
kjarasamuinganna. sem þá voru
gerðir. Er hækkun þessi með
þeim mestu, sem orðið hafa á
einstökum útgjaldaliðum fjárlaga
frumvarpsins í meðförum f járveit
inganefndar.
Efíjr að fjárveitingarnefnd hef
ur fjallað um f járlagafrumvarpið
og þegar tekið hefur verið tillit
til tillagna nefndarinnar í heild
ásamt tillögum meiri hluta nefnd
arinnar nemur greiðsluafgangur á
fjárlagafrumvarpinu 398 m. kr.
og er 85 m. kr. hærri en hann var
áætlaður uppbaflega í frv. þessi
greiðsluafgangur er m. a. ætlaður
til þess að mæta væntanlegum
launal-ækkunum hjá opinberum
starfsmönnum ásamt fjárveiting-
um til nýbyggingar skólahúsnæð-
is, sem afgreiddar verða við
þriðju umræðu fjárlaga. Þessar
upplýsingar komu m. a. fram í við
tali, sem Alþýðublaðið átti viff
Framli. á bls. 3,
Undir smásjá
um allt land
□ „Skattalögreglan“ svonefnda
liefur í ár haft meff höndum
rannsókn fleiri mála en nokkru
sinni fyrr, og er það að sögn
Ólafs Níelssonar skattrannsóknar
stjóra, m.a. vegna þess að fleiri
starfa nú við rannsóknardeild
skattamála en áður, þótt fjöldi
mála, sem tekin eru fyrir gefi
ef til vill ekki réttasta mynd af
afköstum deildariimar.
Ekki kvað Ólafur nákvæma
skýrslu um starfsemina ligg.ja
fyrir, en ætlunin væri eftir ára-
mót að gera nokkurs konar út-
tekt á starfseminni til bessa og
væri þeirrar skýrslu að vænta
upp úr áramótum.
Starfmenn rannsóknardeildar-
innar hafa á þessu ári gert meira
af því en fyrr að ferðast um land
ið og vinna að rannsóknum í
samráð!< við skattstofmi livers
umdæmis, þannig að segja
mætti að skattarannsókn á veg-
um deildarinnar séu nú í gangi
í öllum skattaumdæmu,m.
ITURF
— Nýverið hafa verið gerð-
ar rannsóknir á því, hve mik-
iff fyndist af varasömum eitur
efnum í mjólkurvörum á ís-
landi. í Ijós kom, að í nokkv-
um sýnum af mjólkurfitu
smjörs var þaff mikiö af efn-
inu Hexecíd (lindan), jnem
notað er til sauðfjárþöðunar,
að það nálgast það, sem var-
hugavert er talið til mann-
eldis. Er hér um allsterkt
eyðingarefni að ræða og eru
flutt til landsins um 12 tonn
af efnínu annað hvort ár.
Þetta kemur m.a. fram í
skýrslu nefndar, sem Rann-
sóknarráð ríkisins, skipaði s.l.
haust til þess að athuga vanda
mál mengnnar í náttúru
landsins. í nefndinni eiga sæti
Eyþór Einarsson, grasafræð-
ingur, Eggert Ásgeirsson,
frkvstj., Guðiaugur Hannes-
son, gerlafræðingur, Pétur
Sigurjónsson, forstjóri Rann-
sóknarstofnunar iðnaðarins
og Þorkell Jóhannesson, pró
fessor. Leggur nefndin til að
þegar verði liafnar rannsókn-
ÞÖRF Á MEIRI
RANNSÓKNUM
ir á hug-sanlegri mengun mat
væla af völdum Hexacíds,
livort efninu væri að lokinni
notkun veití beint út í næsia
læk eða á þar sem það gæti
gert skaða og jafnframt verði
raimsökuð hugsanleg meng-
un mjólkur af sýklalyfjum.
Ýmislegt fleira athyglisvert
kemur fram í niðurstöðum
„mengunarnefndarinnar“ og
virðast þær renna stoðum
undir grunsemdir margra um
að hér á landi sé ekki jafn
Framhald bls. 3.
SKATTARNIR DUGA EKKI FYRIR NIÐURGREIÐSLUM
c> BAKSIÐA