Alþýðublaðið - 16.12.1970, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.12.1970, Blaðsíða 1
BHIÐ MIDVIKUDAGUR 1G. DESEMBER 1970 — 51. ÁRG. 293. TBL, HÓTA AÐ LÍF- LÁTA BUCHER ,□ Blaðið Jornal do Brasil upp- lýsti í nótt, að fundizt hefði bréf l>ar sem segir að svissneski amb- assadorinn Giovanni Enrico Bu- cher væri í lífshættu. Ekki hefur fengizt á því staðfesting að bréf- ið sé frá ræning|um Buchers. Segir í bréfinu að líf Buchers pé í alvarlegri hættu, ef ekTu verði gengið að öllum kröfum ræningjanna innan 24 kiukku- Tvær íkveikjur á söína svæði □ Laust fyrir kl. 8 í gær- kvöldi var slöklcviliðið kvatt •að húsi Sölufélags garðyrkju- manna við Reykjanessbraut, en þar hafði verið kveikt í drasli við lagerdyi; á bakhlið hussins. Hafði eldurinn náð að læsast í dyrnar og í gegn, en þar fyrir innan var þó ekkert, sem brunnið gæti, og tókst að ráða .niðurlögum eldsins á skömmum tíma. En bílamir voru vart komn- ir til baka inn á slÖkkvistöð, er hringt var öðru sinni og til- kynnt að mikill reykur kæmi frá bragga í sunnanvcröri Öskjuhlíð. Einnig þar var u,m íln'eikju að ræða. Hafði verið kveikt í skán, en svo nefnist það sem stungið er út úr fjár- liúsum á vorin, þurrkað og haft til eldsneytis. Logaði skánin vel og var seinlegt að ráða við eldinn og þurfti að rjúfa gafl braggans og tvær plötur. Líkur benda til, að sami að- ili kunni að vera valdur að báðum íkveikjunum. þar sem stutt er milli þessara tveggja staða og tilkynnt tii slökkvi- liðsins með aðeins 13 mínútna millibili. stunda. Bæningjarnir krefjast þess að 70 pólitískir fangar verði látnir lausir í skiptum við Bu- cher. Stórir hópar lögreglumanna og fallhlífarhermanna umkringdu í gær þorp í grennd við Rio de Janeiro þar sem áfltið er að amb assadorinn sé hafður í haldi. Ræn 1 ingjamir hafa lýst þid yfir að' þeir mimi taka Bucher af lífi, ef tilraun verði gerð til að ráðast inn í hús það sem þeir halda til í. Brasilíska stjómin mun taka um það ákvörðun í dag hvort hún eigi að, verö’a við kröfum ræn ingjanna eða ekki. — Og nú eru jólin að koma. Þá er gam- an að fá að fara með pabba og mömmu að velja jólatré. Það er bara verst, að þau vilja sjaldnast kaupa eins stórt tré og maður vill sjálfur fá. En maður verður jú að sætta sig við slfkt á meðan maður er lítill sjálfur. NÚ MÁ ENGAN TÍ Baráttan gegn „dauða" hafsins að verða kapphlaup við tímann □ Frétt Alþýðublaðsms s.l. laugardag um niðurstöður rannsókna djúpsjávarkömmð- arins Cousteau á mengun hafs ins heíur vakið rnikla athygli. í skýrslu sinni segir vísinda- maðurinn, að öllu iífi í höf- unum sé gífurleg hætta búin bæði vegna ofveiði og meng- unar. Þegar er Iiafinn undirbún- ingur að baráttu gegn því, að höfin „deyi“ út og allt iíf slökkni í þeim í næstu fram- tíð. Alþýðublaðið skýrði frá því í fréttinni á laugardag, að í byrjun desember hafi verið haldin þingmannaráðstefna um hafsbotninn og mengun hafsins á vegum Evrópuráðs- ins í Strassborg, þar sem fjall að var um skýrslu Cousteaus, en skýrslan var fyrst flutt á ráðstefnu Evrópuráðsins fyrr í vetur. Önnur ráðstefna um mengun hafsins verður hald- in á vegum Evrópuráðsins í janúar og væntanlega verður mengun hafsins eitt af aðal- málum á dagskrá næsta þings Evrópuráðsins. T\'ær alþjóðlegar mengim- arráðstefnur á vegum Sam- einuðu þjóðanna eru í undir- búningi. Á þeirri fyrri, sem haldi yerður S' Stokkliólmi 1972, verður fjallað um um- liverfi mannsins, en á síðaii ráðstefnunni, sem lialdin verð ur 1973, verður fjallað um meng-un hafsins. Sérfræðinga nefnd á vegum Alþjóða sigl- ingamálastofnunarinnar, en forseti hennar er Hjálmar R. Bárðarson, undirbýr síðari ráðstefnuna. Að sögn Jóns Ármanns Héðinssonar, sem var einn ís- lenzku þingmannanna, sem þátt tóku í ráðstefnu Evrópu- ráðsins í byrjun desember, var markmiðið með ráðstefn- unni fyrst og fremst að þrýsta á löggjafa í aðildarlöndum Evrópuráðsins til að fylgjiist » » » 8 Fiskafli í heiminum minnkar í fyrsta sinn í 25 ár 0 BAKSÍDA

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.