Alþýðublaðið - 11.05.1972, Page 9
ÍMtmR 2
LEE UR LEIK OG
SNELLINGER
FER Á BEKKINN
Á laugardaginn fara fram fjórir
mikilvægir landsleikir i Evrópu.
Eru þetta leikir i undankeppni
Evrópukeppni landsliða, seinni
leikirnir. Að sjálfsögðu mun leik-
ur Vestur Þjóðverja og Englend-
inga draga að sér mesta athygli.
Fyrri leik liðanna á Wembley
lauk óvænt 3:1 bjóðverjunum i
hag, svo segja má að möguleikar
Englands séu litlir
En liðið verður að standa sig að
dómi Englendinga, og Sir Alf
Ramsey getur átt i erfiðleikum
með að koma saman liði, einkum
framlinu. Francis Lee er meidd-
ur, sömuleiðis Allan 'Clarke.
Helmuth Schön einvaldur Þjóð-
verja á hins vegar ekki i vand-
ræðum, hann hefur óbreytt lið, og
jafnvel stjarnanri Snellinger
verður að sitja á varamanna-
bekknum.
Ráðgert er að halda
Minni—Bolta mót á næstunni.
bátttökutilkynningar þurfa að
hafa borizt til Körfuknattleiks-
sambands tslands fyrir 15. mai.
Dómaranámskeið
Dómaranámskeið i körfuknatt-
leik verður haldið i íþrótta-
miðstöðinni i Laugardal helgina
20. og 21. mai, nánar auglýst sfð-
ar.
K.K.l.
KNATTSPYRNA
Á BRYGGJUBRÚN
Fáir sýnast standa Vestmanna-
eyingum framar að hugmynda-
auðgi. Meðan knattspyrnumenn i
Eyjum bíða eftir að grasvöllurinn
þeirra komist i nothæft ástand,
liafa þeir brugðið á það ráð að æfa
á einni bryggjunni.
Bryggja þessi nefnist Friðar-
hafnarbryggja, og er á henni
ræktaður grasblettur. Fengu
knattspyrnumennirnir leyfi
hafnaryfirvalda til þess að æfa á
þessum bletti, og settu þeir upp
mörk þar í gærkvöldi og byrjuðu
æfingar.
Grasblettur þessi er að fullri
vallarlengd, en nokkuð vantar
upp á að breiddin náist. Aðeins
eru 20 metrar fram á bryggju-
brún, svo háspyrnur verða varla
vinsælar þar.
Vestmannaeyingar léku bæjar-
keppni við Akureyringa á mánu-
dagskvöld, og lauk leiknum með
sigri heimamanna 3:2. Fimm
vindstig voru ■ þegar leikurinn
byrjaði, en þegar honum lauk
voru vindstigin oröin tíu.
IflNDSLIÐIÐ STÓÐST BARA
PRÖFIÐ AD HÁLFII LEYTI
„Prófraun islenzka lands-
liðsins” auglýstu þeir leikinn við
Morton. 4000 manns komu að
horfa á þessa prófraun, og höfðu
litla skemmtun af. 1 fyrsta lagi
sýndu erlendu gestirnir ekki
neinar kúnstir sem yljuðu i kulda-
nepjunni, og i öðru lagi sýndu is-
lenzku leikmennirnir að þeir eru
ennþá i vorhaminum, og þvi ekki
liklegir til stórræða.
Allt frá byrjun mæddi mjög á
islenzku vörninni, en hún svaraði
öllum sóknarlotum Skotanna og
lét engan bilbug á sér finna. Ein-
staka sinnum sluppu skozku leik-
mennirnir inn fyrir vörn Is-
lendinga, en þar var Siguröur
Dagsson til staðar og bjargaði
hann oft gullfallega. Þaö var
eirikum vel gert þegar hann varöi
skot miðherjans Osborne
snemma i leiknum.
Sóknarlotur islenzka liðsins
voru fáar og strjálar og það var
eins og miðjumennirnir gætu alls
ekki komið boltanum frá sér svo
vit væri i. Gamla sagan, sem við
þekkjum svo vel endurtók sig,
boltinn gekk i mesta lagi tvisvar
milli samherja, en siðan beint til
mótherja. t framlinunni var
Teitur Þórðarsson sá eini sem
barðist, og hann var maðurinn
bak við hættulegasta upphlaup
landans á 35. minútu, en ekki gaf
það upphlaup mark. Myndin er af
Teiti (t.v.).
Lið Mortons var hvorki fugl né
fiskur, og það var dæmigert að
beztu menn liðsins voru ,,gömlu
mennirnir” úr Celtic, Chalmes og
Clark. Sigurmarkið, og eina mark
leiksins skoraði útherjinn Gillies
á 30. minútu seinni hálfleiks,
greinilega rangstæður.
1 heild verður aðeins sagt að
islenzka liðið hafi staðist þessa
„prófraun” að hálfu leyti. Vörnin
kom þokkalega út, miðjan brást
og framlinan að nokkru leyti
einnig. Samt eru ekki likur á þvi
að Hafsteinn Guðmundsson geri
breytingar fyrir landsleikina við
Belgiu.
í mestri hættu eru þeir
Haraldur Sturlaugsson og Teitur
Þórðarson, og yrðu þeir þá
væntanlega settir út fyrir Guð-
geiri Leifssvni og Elmari Geirs-
syni. Teitur sýndi i þessum leik að
hann er verðugur þess að reyna
sig i landsliði, og ekki var að
marka geta Haraldar f leiknum,
þvi hann meiddist snemma.
1 lokin var úthaldið búið hjá
nokkrum leikmönnum, en samt
var engum skipt inn á, jafnvel
ekki óskari Valtýssyni sem kom-
inn var frá Vestmannaeyium
gagngert til þess að leika.-SS.
i kvöld klukkan 20 leika
islandsmeistara ÍBK gegn skozka
liðinu Morlon. Leikurinn verður á
Laugardalsvellinum. Þriðji leik-
ur Mortons verður gegn KR, og
fer hann fram næsta sunnudag.
HVERJIR UNNU - HVERJIR
FÖRU UPP UG HVERJIR NHtUR?
Það hefur verið vani okkar hér
á íþróttasiðunni að taka saman á
liverju vori iokaúrslit i öilum
heiztu knattspyrnumótum Bret-
lands. Keppnistimabilinu ytra er
nýlega lokið, og liggja úrslit þvi
fyrir. Fyrst eru það úrslitin i
Englandi.
1. deild: Þar sigraði Derby
mjög óvænt eins og fram hefur
komið i fréttum. Derby blandaði
sér ekki alvarlega i toppbar-
áttuna fyrr en seint i mótinu, og
vann hvern sigurinn á fætur öðr-
um, þrátt fýrir að framkvæmda-
stjóri liðsins, Brian Clough héldi
þvi statt og stöðugt fram að liðið
væri ekki nógu gott til þess að
vinna.
Derby var með 58 stig, og hafði
lokið leikjum sinum löngu á und-
an Leeds og Liverpool. Tvö þau
siðastnefndu hlutu 57 stig ásamt
Manchester City. Þetta er i
fimmta sinn á átta árum sem
Leeds lendir i öðru sati i
deildinni.
Niður i 2. deild falla Notting-
ham Forest og Huddersfield,
Huddersfield eftir tveggja ára
veru i deildinni en Forest eftir 15
ára veru.
2. dcild: 1 2. deild sigraði
Norwich, og leikur næsta
keppnistiinabil i 1. deild, en þaö
hefur liðið aldrei gert áður. Upp i
1. deild fer einnig Birmingham,
en það lið hefur áður leikið i 1.
deild. Milwall, sem lengi hafði
möguleika á þvi að komast upp,
lenti i þriðja sæti, einu stigi á eftir
Birmingham.
Niður i 3. deild falla tvö Lund-
únarlið, Watford og Charlton.
3. deild: Þessi deild sigraði
sögufrægt lið, Aston Villa sem er
frá Birmingham. Hlaut félagið 70
stig úr 46 leikjum, sem er nýtt
stigamet fyrir deildina. 1 öðru
sæti lenti Brigthon eftir harða
baráttu við Bournmouth, og fer
einnig upp i 2. deild.
Neðst i 3. deild varð Torquay, of
fellur það niður i 4. deild ásamt
Bradford City, Barnsley og
Mansfield.
4. deild: 1 þessari deild vann
Grimsby, sem er frá togara-
bænum samnefnda. Southend,
Brentford og Scunthorpe fara
ásamt Grymsby upp i 3. deild.
Fjögur neðstu liðin i 4. deild,
Crewe, Stockport, Barrow og
Northampton verða að fara fram
á endurkjör i deildina, og verður
kosið um liðin á aðalfundi deild-
anna bráðlega. Barrow er i
mestri hættu.
Bikarar: Eins og flestum er i
fersku minni, sigraði Leeds i
ensku bikarkeppninni i ár, og
margir muna það eflaust lika, að
Stoke sigraði i deildabikarnum.
Hvorugt þessar-ra liða hafa áður
Hvorugt þessara liða hafa áður
keppni áður. Þá er i gangi keppni
milli enska og skozka liða,
Texaco cup, og sigraði Derby þar
að þessu sinni.
Skotland: 1 skozku bikarkeppn-
inni sigraði Celtic Hibernian i
úrslitunum 6:1, en Pathrick
Thistle sigraði Celtic i deildar-
bikarnum. Celtic sigraði einnig i
skozku deildarkeppninni með
yfirburðum, en Aberdeen varð i
öðru sæti. t 2. deild féllu Dun-
fermline og Clyde.
1 2. deild sigraði Dumbarton, og
upp i 1. deild fer einnig Arbroath.
St. Mirren, hið gamla félag
Þórólfs Beck tapaði þar naum-
lega af strætisvagninum, og verð-
ur að leika i 2. deild áfram næsta
keppnistimabil. —SS.
NORÐMAÐUR
MED NÁM-
SKEIÐ í
hei
Fimleikasamband Islands
stendur fyrir námskeiði fyrir
iþróttakennara, þjálfara, ung-
linga og fimleikafólk nú i lok
mai mánaðar
Námskeiðið mun hefjast
laugardaginn 20. mai og standa
til 27. mai og starfað alla daga
kl. 13.00-17.00 (18.00) og á kvöld-
in kl. 20.00 — 22.00 (ekki hvita-
sunnudag.)
Kennt verður i íþróttahúsinu
á Seltjarnarnesi.
Aðalkennari verður Norð-
maðurinn Tore Johansen, fim-
ieikakennari við Iþróttaháskól-
ann i Oslo, með honum kemur 15
ára landsliðs stúlka sem aðstoð-
ar hann við kennsluna.
Ná mskeiðsatriði verða:
1. Grundvallarþjálfun fyrir
áhaldafimleika, fyrir stúlkur og
pilta.
2. Skóialeikfimi — sérstök
áherzla lögð á uppbyggingu
flokkafimleika.
3. Framhaldsþjálfun fyrir
áhaldafimleika — stúlkur og
piita.
4. Fimleikakerfi kynnt — fim-
Framhald á bls. 4
Fimmtudagur 11. mai 1972