Alþýðublaðið - 17.05.1972, Side 9

Alþýðublaðið - 17.05.1972, Side 9
iMðTTIR 1 GETRAUNIR HRðPUÐU NIÐUR IÍR ÖLLU VALDI Sala getraunaseðla hrapaði niður úcöllu valdi i siðustu leik- viku, enda var um að ræða danska seðla. Aðeins voru seldir um 16 þúsund seðlar. Þetta var siðasti seðillinn að sinni, þvi get- raunirnar fara nú i þriggja mán- aða sumarfri. Aðeins fundust tveir seðlar með 10 leiki rétta, og fær hvor um sig 70 þúsund krónur i sinn hlut. 20 seðlar fundust með 9 leiki rétta, og fær hver um sig 3 þúsund krón- ur i sinn hlut. Fyrir þá sem ekki hafa ennþá athugað seðlana sina, verður úr- slitaröðin talin upp: xxl-xxl-lxx- x2x. Nú liggur fyrir Alþingi frum- varp um getraunir. 1 þvi frum- varpi er aðeins verið að lögfesta ýmis framkvæmdaatriði UWE KVADDIIR MEU VIRKTUMl Annað slagið hverfa úr röðum knattspyrnumanna menn sem skarað hafa fram úr i Iþrótta- greininni, þeir leggja skóna á hilluna einn og einn. Skærustu stjörnur fimmta áratugsins eru allar hættar, siðastur þeirra var spænski snillingurinn Gento, sent hætti i fyrra. Nú eru sem óðast að hætta þeir knattspyrnusnillingar sem komu fram á seinni hluta fimmta áratugsins, stjörnur sjötta áratugsins. Kinn þeirra er l>jóðverjinn Uwe Seeler, sent nýlega lék sinn siðasta leik. Hann lék þá itteð félagi sinu llamburger Sport Verein (HSV) gegn úrvali nokkurra fremstu knattspyrnumanna Evrópu, svo sent Bobby Charlton, George Best, Euscbio, Bene, Beckenbauer og Snellinger svo einhverjir séu nefntlir. A sinum langa knattspyrnu- ferli lék Seeler alls 72 landsleiki fyrir Þýzkaland, og i þessum leikjunt skoraði hann alls 43 ntörk. Fyrrir félag sitt HSV hefur Seeler alls skorað um 700 mörk. Seeler hefur kontið hing- að til lands, fyrir einum 12 árum siðan, og vakti hann þá ntikla athygli. Eins og gefur að skilja, var siðasti leikur Uwe Seeler aðeins vináttulcikur. Markatöluna 7:3 fyrir Evrópuúrvalið ber þvi ekki að taka ntjög alvarlega. Geoff Hurst skoraði 1:0 Bene 2:0 og Beckenbauer 3:0 áður en heimamenn koniust á blað. Það var Seeler sent skoraði 3:1 Gerd Muller skoraði 4:1, Zaczyk (HSV) skoraði 4:2, Meszöly skoraði 5:2 fyrir Evrópuliðið, Best 6:2 og Eusebio skoraði 7:2. En síðasta orðið í leiknunt á Seeler, þegar hann skoraði 7:3. Á efri ntyndinni labba leik- mennirnir inn á völlinn nteð Seeler og Bobby Charlton i fararbroddi, en á neðri ntynd- inni sést Seeler skora fyrir Þvzkaland. NM METIO AF ÖÐRU í LYFTINGUNUM r SKARÐSMOT UM HELGINA Skarðsmótið svonefnda verður að vanda haldið á Siglufirði yfir Hvitasunnuna. Skarðsmótið er siðasta punktamótið að sinni, og þvi er til mikils að vinna fyrir skiðamennina. Veittur verður bikar fyrir samanlagðan árangur i Alpatvikeppni á punktamótun- um, og koma margir skiðamenn til greina með að hljóta þann bikar. Skarðsmótið hefst á laugardag, og verður þá keppt i svigi karla og kvenna. Á sunnudaginn heldur mótið áfram, og verður þá keppt i stórsvigi karla og kvenna. Allir beztu skiðamenn landsins verða með i mótinu. Á laugardaginn verður brugðið á smá glens, og keppt i knatt- spyrnu. Eigast þar við skiða- menn, — heimamenn mæta að- komumönnum. ÞEIR SVARA í DAG Knattspyrnuráð Akranes hefur ekki ennþá sent dagblöðunum greinargerð vegna málsins sem kom upp milli þess og landsliðsins um siðustu helgi. Stóð til að svar frá ráðinu birtist i blaðinu i dag, en af þvi gat ekki orðið. Knattspyrnuráðið mun hafa haldið fund i gærkvöldi, og á þeim fundi hefur svar væntanlega verið samið. Birtist það að öllum lik- indum hér á siðunni á morgun. Um siðustu helgi fór fram i KR húsinu Kraftlyftingameistaramót Islands. Þar fuku metin eins og endranær, og talið er að á mótinu hafi verið sett alls fjögur Norður- landamet, og auk þess fjöldi Is- landsmeta. Þar sem Norður- landametin eru ekki skráð i kraftalyftingum, verður að taka þau með fyrirvara, þvi upplýs- ingar frá öðrum löndum eru af skornum skammti. Einar Þorgrimsson KR var mesti afreksmaður mótsins, setti alls þrjú Norðurlandamet i milli- vigt. Þá setti Gústaf Agnarsson Norðurlandamet unglinga i þungavikt. Öskar Sigurpálsson og Guðmundur Sigurðsson tóku ekki þátt i mótinu vegna utanfarar á Evrópumeistaramót i lyftingum. Hér á eftir fer frá sögn Ómars Úlfarssonar af kraftalyftinga- mótinu: í Fluguvigt sigraði ungur og efnilegur lyftingamaður frá UM Selfossi, Kristinn Ásgeirsson, hann lyfti á bekk 50 kg. i hnébeigju 80 kg. og i réttstöðu- lyftu 100 kg. sem er nýtt isl. met og fékk i samanlögðu 230 kg. i Dvergvigt sigraði Gunnar Jóhannesson KR, hann pressaði á bekk 70 kg., lyfti i hnébeigju i fyrstu tilraun 85 kg., annarri 90 kg., nýtt isl. met og i þriðju til- raun 92.5 kg., og bætti þar með isl. metið um 7.5 kg., i réttstöðulyftu 130 kg., og i samanlögðu 292.5 kg. i Fjaðurvigtsigraði Vilhjálmur H. Gislason KR, hann pressaði á bekk 60 kg. nýtt isl. met lyfti i hnébeigju 90 kg., i réttstöðulyftu 135 kg. isl. met og fékk i saman- lögðu 285 kg. i Léttvigt sigraði stálmúsin Skúli óskarsson ÚIA, hann lyfti á bekk 100 kg., I hnébeigju i fyrstu tilraun 155 kg., nýtt isl. met og bætti enn betur i annarri tilraun og lyfti 160 kg., isl. met, i rétt- stöðulyftu þribætti Skúli fyrra isl. metið er hann átti sjálfur úr 212.5 kg. i 215 kg. i fyrstu tilraun i ann- arri tilraun i 225 kg. og þriðju til- raun i 230 kg. og setti einnig isl. met i 210 kg., sem var jöfnun á eigin isl. meti, i samanlögðu fékk hann 552.5 kg., sem er nýtt isl. met og jafnframt Norðurlanda- met, Einar setti samtals 5 isl. met og 3 Norðurlandamet, sem má telja mjög góðan árangur á einu móti. Léttþungavigt (75 kg. til 82.5 kg.). Sigurvegari var Július Bess LH. Július lyfti á bekk 125 kg., i hnébeygju 145 kg., i réttstöðulyftu 200 kg. og i samanl. 470 kg. Nr. 2 varð Sigurður Stefánsson KR, ungur og efnilegur lyftingamað- ur, hann lyfti á bekk 85 kg. og i hnébeigju 140 kg. og i réttstöðu- lyftu 172.5 kg. og fékk i saman- lögðu 490 kg. samtals 6 isl. met. t Millivigt (67.5 kg. til 75 kg.). Sigurvegari varð Einar Þorgrimsson KR. Einar byrjaði að pressa á bekk 137 kg. og setja þar nýtt isl. met, en það fyrra var 135 kg. og átti Einar það sjálfur, i annarri tilraun lyfti Einar 142.5 kg., nýtt isl. met og i þriðju til- raun reyndi hann við Norður- landamet 145.5 kg., en mistókst. I hnébeigjunni byrjar Einar i 185 kg. og lyftir þvi, i annarri tilraun reyndi hann við nýtt Norður- landamet 192.5 kg. og átti létt með það, en fyrra Norðurlandametið "» átli F.inar bað siálf- ur, í þriðju tilraun lyfti Einar 200 Ul, . ---- kg. og setti þar með glæsilegt Norðurlandamet, i réttstöðulyftu 397 5 kg. Milliþungavigt (82.5 kg. til 90 kg.). Sigurvegari i þessum flokki varð Guðmundur Guðjónsson KR, en hann hefur til þessa keppt i léttþungavigt. Guðmundur press- aði á bekk 150 kg, lyfti i hné- beygju 230 kg., i réttstöðulyftu 235 kú. og fékk samanl.iil5 kg. Þungavigt (90 til 110 kg.). Sigurvegari varð hinn ungi og efnilegi lyftingamaður Gústaf Agnarsson A. Gústaf pressaði á bekk 140 kg., lyf-ti i hnébeygju 220 kg., i réttstöðulyftu 275 kg., sem er nýtt norðurlandamet unglinga i þessari grein og talinn frábær árangur af svo ungum manni, i samanlögðu fékk Gústaf 635 kg. Framhald á bls. 4 FER ASGEIR TIL CELTIC í HAUST Eins og við skýrðum frá i gær, hefur skozka liðið Morton mikinn áhuga á þvi að fá Asgeir Sigur- vinsson frá Vestmannaeyjum út til Skotlands i sumar. Einnig sýndi Morton áhuga á þvi að fá félaga hans örn óskarsson út. En þetta er ekki eina boðið sem Ásgeir á lil Skotlands, þvi hann á inni heimboð frá þvi I fyrra sum- ar. Þetta boð er frá ekki ófrægara félagi en Celtic. Fékk Asgeir boð- ið i fyrra þegar hann var með Tý úr Vestmannaeyjum I keppnis- ferð I Skotlandi. öðrum Eyjapilti var einnig boðið, Þóröi Hallgrimssyni. Nú mun ákvcðið aö Asgeir fari ekki út til Skotlands fyrr en i haust, ef hann þá fer, og þá aö öll- um likindum til Celtic. „Aðeins það bezta er nógu gott fyrir okkar menn”, segja þeir I Eyjum. Miövikudagur 17. maí 1972 o

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.