Alþýðublaðið - 17.05.1972, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 17.05.1972, Blaðsíða 12
alþýðu mnm m, Alþýóubankinn hf ykkar hagur/okkar metnaöur KÓPAVOGS APÓTEK Opið öll kvöld til kl. 7. Laugardaga til kl. 2. Sunnudaga milli kl. 1 og3. SEMDIBIL ASTÖÐIN HF • • HKJALD BILABODLAMA GETUR ORDIB HIMINHATT DEILA RISIN UM MÁTSTEINAHÚS Kisif) hefur mikil óánægja meðal eigenda mótsteinshúsa, sem Jón Loftsson h.f. er að reisa við Skógarlund i Garðahreppi, en við þá götu á að afhenda 12 slik hús fokheld i vor. Óánægja er sprottin af þvi, að eigendur halda þvi fram að hleðslan á húsunum sé ekki nógu góð, en einnig er ágreiningur um hvernig beri að túlka byggingarsamninginn. Flestir húseigendanna hafa nú hundizt samtökum með að fá dómkvadda matsmenn, og hafa þeir þegar hafið störf. ,,Þetta er allt sprottið af þvi að þeir vilja fá meira en samningar hljóða upp á”, sagði Loftur Jóns- son, forstjóri Jóns Loftssonar h.f., er Alþýðublaðið sneri sér til hans i gær. Sagði hann að upphaflega hafi einn húseigandinn orðið óánægð- ur er selja varð ofan af honum húsið, þegar hann stóð ekki i skil- um. Á hann þá að hafa gengið á milli hinna húseigendanna og magnað upp óánægju meðal þeirra. Fékk hann með sér um helming þeirra, að sögn Lofts, og fóru þeir m.a. fram á að fá þak- rennur innifaldar i kaupverðinu, en það var fyrir utan umsamið verð. Einnig kvörtuðu þeir yfir vitlaust isettum gluggum, en það hafði byggingameistarinn lofað að laga, sagði I.oftur Jónsson. Þá hafði Alþýðublaðið samband við lögmann húseigendanna, Gunnar M. Guðmundsson og staðfesti hann, að flestir þeirra væri með i þessu, aðeins tveir eða þrir væru unda nskildir. Hann staðfesti og að um ágrein- ing um samning væri að ræða og frágang á hleðslu mátsteinanna. Þar sem þessi hús á ekki að múrhúða þurfa fúgur á milli steina að vera beinar og jafnar, en að sögn Gunnars eru þær bæði bognar og misbreiðar. Einnig vildi hann álita, að steinarnir hefðu skemmst i flutningi, horn brotnað af þeim o.fl., og sé það til mikilla lýta nú, þegar búið sé að hlaða húsin. Þegar niðurstöður matsmanna liggja fyrir verður reynt að ná sáttum, en takist það ekki verður málið rekið fyrir dómstólunum. CUNNALLY UR STIÓRNINNI NÚÁ AÐ FARA AÐ GRILLA í HANN „Hvenær verða vinnupall- arnir við turn Hallgrimskirkju teknir niður”? Þannig hafa margir spurt og oft. Allar líkur eru nú á þvl, að á næstu dögum og vikum verði pallarnir fclldir niður I 45 m hæð turnsins eða þangað, sem múr- húðun er að fullu lokið. Takist að húða turninn allan I sumar, verða vinnupallarnir felldir jafnóðum. Næsti áfangi kirkjubygg- ingarinnar er að koma henni undir þak. A það verður lögö höfuðáherzla I næstu framtíð og þvi verki hraðað eins og nokkur kostur verður á og fjárhagur byggingarsjóðsins leyfir. Viö margvislegar fram- kvæmdir við innréttingu kirkju- turnsins er unniö af fullum krafti. Verið er að mála kapellusal I syðri turnálmu, en að tréverki á þeim sal hefur veriö unniö frá áramótum. Þá er og að Ijúka frágangi á útsýnisaðstöðu á 7. og S. hæð. Mun lyfta ganga upp á sjö- undu hæðina, en síðan tekur við hringstigi lengra upp. öllum er nú Ijóst aö Hallgrfmskirkja á Skólavörðu- hæö verður fullgerð. Það er þvl aðeins spurning um tlma. Og flestir munu telja æskilegt og veröugt að kirkjan verði fullbyggð I aðalatriðum þjóðhátiðarárið 1974 á 300 ára afmæli sr. Haligrims Péturs- sonar. Það eru engin takmörk fyrir þvl hvað iögjöldin geta hækkað, hækkunin fylgir óhappatiðninni algjörlega eftir, sagði Bjarni Pétursson, deildarfulltrúi hjá SJO HLUTU STARFSLAUN Starfslaunanefnd hefur ákveðiö úthlutun starfslauna til lista- manna fyrir árið 1972. Eftirgreindir listamenn hijóta starfslaun að þessu sinni: Jón Óskar, rithöfundur, og Vilhjálmur Bergsson, listmálari I 12 mánuði. Starfslaun til sex mánaða hlutu: Agúst Petersen, listmálari, Magnús Tómasson, listmálari, Nina Björk Árnadóttir, skáld- kona, Steinar Sigurjónsson, rit- höfundur, Hafliði Hallgrimsson, tónskáld, hlaut þriggja mánaða laun. Alls bárust 30 umsóknir. Til út- hlutunar voru 1.5 millj. kr. í starfslaunanefnd eiga sæti: Framhald á bls. 4 Samvinnutryggingum, I viðtali við Alþýöublaðið i gær. Hann bætti þvl við, að hæsta iðgjald, sem greitt hafi verið á þessu ári hjá þeim, sé fjórfalt grunngjald, eða 300% álagning, en siðan afsláttarkerfinu var breytt 1966 hefur hækkunin oft orðið miklu meiri er þetta. Afsláttarkerfinu var aftur breytt 1. mai sl., eins og mönnum er kunnugt, og lækkuðu bónus- flokkarnir þá um 10% hver. önnur breyting, sem tryggingafélögin höfðu farið fram á, var lika gerð. En á æðstu stöðum var fullyrt við Alþýðu- blaðið að þær kröfur hefðu ekki verið samþykktar I ríkisstjórn- inni. Þar var um að ræöa viöbóta- gjald við grunniðgjald þeirra, sem valda flestum tjónum, og var þetta gjald 20% og 40% á grunnið- gjaldið. Við breytinguna um slð- ustu mánaðamót var þetta viö- bótargjaid hækkað i 40% og 60%. Til þess aö komast I þennan gjaldaflokk þurfa menn að valda þremur tjónum á tveimur árum, og þar af nægir að eitt tjón verði af sérstaklega vitaverðum akstri. Ef farið er uppfyrir þessi tjóna- mörk eru ökumennirnir teknir sérstaklega fyrir hjá tryggingar- félögunum og metið hvað á að margfalda iðgjaldið þeirra mikið. Að sögn Jóns Rafns Guðmunds- sonar, deildarstjóra hjá Samvinnutryggingum, eru um 600 slíkir ökumenn teknir til athugunar á hverju ári hjá þvi félagi. NYTT FELAG: BÖRNIN OG ÞJÓÐFÉLAGIÐ „Börnin og þjófélagið" heitir nýtt félag, sem hefur starfað I þrjá mánuði og hefur að mark- miði að leita réttar foreldra og barna þeirra i málum sem varða yfirráðarétt yfir börnum þeirra. „Þvi miður fara dómstólarnir og barnaverndarnefnd ekki alltaf að lögum i þesskonar málum, og við ætlum okkur það hlutverk að koma fólki til hjálpar”, sagöi Karl Eiriksson, einn stjórnarfor- maður félagsins, I simtali við Alþýðublaðið i gær. Það voru fjórir, sem stofnuðu félagið um mánaðamótin jan. - feb., og allir höfðu þeir orðið fyrir þvi að þeirra dómi að lög um yfir- ráðarétt fyrir börnum þeirra og mannréttindi voru brotin á þeim. Á aðalfundinum, sem var hald- inn sl. sunnudag, voru félagarnir orðnir 39 talsins, og mun þetta fólk starfa I sjálfboðavinnu við að hjálpa foreldrum að ná rétti sin- um. Eini demókratinn I stjórn Nix- ons, John Connally, fyrrum rikis- stjóri i Texas og sá er var I bil með Kennedy, er hann var myrt- ur, hefur vikið úr stjórninni. Connally var fjármálaráðherra i 15 mánuði, og við því embætti hefur nú tekið George Schultz, en Connally mun veita ráðuneytinu forstöðu þar til öldungadeildin hefur fallizt á þessa nýju skipan. Nixon sagði, er hann tilkynnti þetta, að eftir að hann kæmi frá Sovétrikjunum myndi hann veita Connally nýtt embætti. Á SAMA MÁLI OG GRÖNDAL Eins og Alþýðublaðið hefur greint frá skrifaði Benedikt Gröndal grein um landhelgis- málið I vikurit brezka Verka- mannaflokksins, „Labour Weekly”, og birtist greinin þann 28. april s.l. t þessu sama blaði frá 12. mai s.l. birtist lesendabréf frá fiski- mannssyni i Huli, þar sem tekið er undir ýmis rök Benedikts og sjónarmið. Lesendabréfið fer hér á eftir i islenzkri þýðingu: „ÞARSEM ég er sonur fiskimanns frá Hull þá gæti það litið út sem hálfgert skrum af mér að taka i sama streng og Benedikt Gröndal (28april). Samt sem áður er samúð min ekki fyrst og fremst með tslendingum — heldur vil ég styöja allar ráðstafanir sem hindra eyðingu fiskistofnanna i Norður—Atlantshafi. Ég get ekki verið sammála Hr. Gröndai um að Sameinuðu þjóðirnar muni koma með nýjar lagareglur fyrir úthöfin. Gagn- kvæmt vantraust gerir alþjóö- legt samkomulag mjög örðugt og nærfellt ómögulegt I fram- kvæmd. Víkkun fiskveiðilögsögunnar úti 50 milur eða fram á brún landgrunnsins veldur þvi að við- komandi land sér sér hag i að vernda fiskistofnana á þvi haf- svæði. Ef þetta þýöir að stofninn vcrður nýttur skynsamlega — með langtima sjónarmið fyrir augum fremur en stundargróða — þá geng ég I lið með þeim málstað. L.S.Rial”.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.