Alþýðublaðið - 15.06.1972, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 15.06.1972, Qupperneq 2
ÞETTA GERÐIST LÍKA ... Paö er súkkulaói bragð af kókó mjólkinni Jced í nœstu mjóllmrbúð ÞESSIR HLUTU HNOSSIÐ A iundi stjórnar húss Jóns Siguróssonar ti. júni s.l. var samþykkt að veita eftirtöldum aðilum kost á afnotum af fræð- imannsibúð hússins á timabil inu 1. september 1972 til ill.ágúst 197:t: Steindóri Steindorssyni skóla- meistara frá 1. sept. til 30. nóv. 1972., Sveini Kinarssyni leikhús- stjóra frá 1. des. 1972 til 28. feb. 1973., Haraldi Ásgeirssyni verk- fræðingi frá 1. marz til 31. mai 1973., og Lárusi H. Blöndal bókaverði frá 1. júni til 31. ágúst 1973. SAMNINGUR UM FLUGÞJQNUSTU Hinn 14. júni 1972 var undirrit- aður i Reykjavik samningur milli rikisstjórnar tslands og rikis- stjórnar Sameinaða konungsrik- isins Stóra Bretlands og Norður- lrlands um flugþjónustu og tók hann gildi þann dag. Samningur þessi kemur i stað loftflutningasamnings milli sömu rikja frá 26. mai 1950. Af hálfu rikisstjórnar lslands undirritaði samninginn Einar Ágústsson, utanrikisráðherra, en af hálfu rikisstjórnar Sameinaða konungsrikisins Stóra Bretlands og Norður-trlands John McKenzie, sendiherra. ,,19. júni", ársrit Kvenréttinda- félags islands, 1972, er komið út. Uitið er 64 siður auk kápu. t>etta er i 22. sinn, sem ,,19. júni” kemur út i tilel'ni kvenréttindadagsins. Uitið er efnismikið að vanda og hel'st það með stuttri grein i til- efni af 65 ára afmæli félagsins. 1 ritinu eru m.a. viðtöl við Jó- hönnu Egilsdóttur, Guönýju llelgadóttur og Ingu Birnu Jóns- dóttur. 1 ritinu birtast átta greinaflokk- ar. Har skrifa m.a. Sigurlaug Bjarnadóttir um efnið ,,að spjara sig i lifsbaráttunni", prófessor Tómas Helgason um efnið ,,Lif- fræðilegu hlutverki verður ekki breytt með uppeldi”, Edda Ósk- arsdóttir um efnið „Sömu kröfur lil beggja kynja '. Ejórar konúr sitja fyrir svörum i ritinu. þær Adda Bára Sigfús- dóttir, Ingibjörg U. Magnúsdótt- ir. Vigdis Finnbogadóttir og Steinunn Finnbogadóttir. Auk annars efnis birtist i ritinu grein um byggingu fæðingadeild- ar Lanrispitalans og viðtal við Hóru Einarsdóttur um hjálpar- starf við stúlkur, sem eiga viö á- fengis- og umhverfisvandamál aö striða. Vegna aukinnar aðsóknár verð- ur sýningin ..Norræn grafik” i Norræna Húsinu. framlengd til sunnudagskvölds 18. júni. 30 myndir hafa þegar selzt. Eldur varð laus i Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Akureyri i fyrradag, en hann náði aldrei neinni útbreiðslu. Slökkviliðiö var þegar kvatt á staðinn og reyndist eldurinn hafa kviknaö i kjallara hússins. Slökkviliðsstarfið gekk vel. Nýlega er afstaðinn fundur NOMUS-nefnda Norðurlanda, þ.e. ráögjafanefnda um tónlist- armál og tónlistarsamvinnu Norðurlanda. Uessar nefndir eða ráð starfa á vegum hinna norrænu menntamálaráðuneyta en hafa samt nokkuð ólika af- stöðu hver til sins ráðuneytis. Tónlistarráðin hafa samvinnu við Alþjóða Tónlistarráðið, ICM þ.e. International Council and Music, en forseti þess er Yehudi Menuhin. KARLAKOR RVK TIL AUSTFJARÐA Karlakór Ueykjavikur fer i söngferðalag á Austfirði um næstu helgi og er þetta i fyrsta sinn sem hann syngur á Austur- landi. Kórinn mun syngja i Vala- skjálf á föstudaginn en i Egils- búð á laugardag. A sunnudaginn heldur kórinn svo til Horna- íjaröar og syngur i Sindrabúð um kvöldið. A efnisskránni eru að mestu islenzk lög, auk nokkurra er- lendra. Söngstjóri er Páll Pam- pichler Pálsson. Sjúklingum og starfsfólki staf- aði aldrei nein hætta af eldinum. Þá kom upp eldur i ibúðarhúsi i Ytri-Njarðvik. Eldsupptökin voru i kyndi- klefa hússins og um tima logaði glatt en slökkviliðinu tókst að ráða niðurlögum eldsins fremur fljótt. Eldur í sjúkrahúsi ÞEIR ÞURFA 1000 Á KVðLDI Þúsund áhorfendur á kvöldi nægja til þess að heims- meistaraeinvigiö standi undir sér fjárhagslega, segja for- ráðamenn einvigis þeirra Spasskys og Fischers. Til þess aö þessu marki veröi náö þurfa 20.000 íslend- ingar, eða 10% þjóðarinnar, að koma einu sinni i Laugardals- höilina og fylgjast með einni af þeim tuttugu skákum, sem áætlaö er, að kempurnar tefli. Eitt fyrirtæki i Reykjavík, Breiðholt h.f., hefur keypt að- göngumiða að einni umferð fyrir alla starfsmenn sina, en þeir eru um 200 talsins. Kiwanis klúbburinn Esja i Reykjavik hefur pantað 60—70 miða, sem félagar klúbbsins ætla siðan að dreifa meöal ungra og áhugasamra skák- manna, m.a. til þeirra, sem þátt tóku i skákkeppni skól- anna i vetur. — PODGORNIE GEFUR SKÝRSLU í HANOI Moskva 14/6 Forseti Sovétrikj- anna, Nikolai Podgornie, sem i gær kom til Kalkutta á leið sinni til Hanoi, mun að öllum likindum gefa leiðtogum Norður-Vietnam skýrslu um það, sem fram fór og ákveðið var á fundum Nixons for- seta Bandarikjanna og sovézkra leiðtoga i Moskvu fyrir skömmu. Stjórnmálafréttaritarar benda á, að skömmu eftir heimsókn Nixons til Kina i febrúar, fór Chou-en-Lai, forsætisráðherra Kina i heimsókn til Hanoi. Podgornie heimsótti Hanoi i október i fyrra um svipað leyti og ákveðið var að Nixon færi i opin- bera heimsókn til Kina. Stjórnmálafréttaritarar álita, að ekki sé nauðsynlega samhengi milli ferðar Podgornies til Hanoi og tilkynningarinnar um, að for- maður bandarisku samninga- nefndarinnar um frið i Vietnam hafi snúið aftur til Parisar. En bandariska samninganefndin vis- aði i gær á bug kröfu stjórnar Norður-Vietnam og Sameinuðu þjóðanna þess efnis, að friðarvið ræðurnar hæfust að nýju, en þær hafa legið niðri siðan 4. mai s.l. Opinberlega hefur ekkert verið minnzt á heimsókn Podgornies til Norður-Vietnam, hvorki i Moskvu né Hanoi. Fréttin um ferðalag forsetans er höfð eftir indverskri fréttastofu sem skýrði frá þvi, að hann hefði komið til Kalkútta i gær. AFSAKIÐ - RANGT STRIK Nýlega lét Kópavogsbær merkja rækilega akreinar á Kringlumýrarbrautinni, þar sem ieiðir skiljast inn i gjána til Hafn- arfjarðar, upp á Kópavogsháls og i vesturbæ Kópavogs. 1 gær var hinsvegar unnið að þvi að breyta þessum merking- um, þar sem kom i Ijós, aö þær voru rangar. Sigurður Jóhanns- son, skipstjóri látinn Siguröur Jóhannsson lézt að- faranótt 14. júni s.L, 58 ára að aldri. Sigurður var fæddur i Reykja- vik 25. jan. 1914, sonur hjónanna Jóhanns Guðmundssonar, skip- stjóra, sem lézt 1946 og Sigriðar Dagfinnsdóttur. sem lifir þá feðga nú á niræðisaldri. Sigurður fluttist til Hafnar- fjarðar með foreldrum sinum ár- iö 1916 og útskrifaðist úr Flens- borg sem gagnfræðingur. Starf 5igurðar var lengst af á sjónum og fór hann fyrst til sjós 16 ára og þá á mótorbát, siðan á e/s Esju og þaðan réðst hann til Eimskipafélags Islands og hefur starfað hjá þvi félagi i fimmtiu ár. Fyrst fór hann á e/s Brúarfoss og4ar á honum '34—‘36, en stund- aði jafnframt nám við Stýri- mannaskólann og lauk far- mannaprófi 1937. Að þvi loknu fór hann sem þriðji stýrimaður á e/s Goðafoss og sið- an á Brúarfoss aftur og þá sem þriðji stýrimaður. Þá var hann annar stýrimaður á e/s Fjall- fossi, m/s Dettifossi og m/s Gull- fossi til ársins 1951, en þá varð hann fyrsti stýrimaður á e/s Lag- arfossi og ýmsum öðrum skipum félagsins. Auk þess gegndi hann oft i afleysingum sem skipstjóri. Á árunum 1957 og 58 fór Sigurð- ! ur i land og gerðist yfirverkstjóri hjá Eimskipafélaginu, en fór aft- ur til sjós og þá sem skipstjóri á m/s Goðafossi árin '59—'64. Þá fór Sigurður aftur i land og hefur verið forstöðumaður vöruaf- greiðslu félagsins siðan. Eftirlifandi kona Sigurðar er Hjördis Einarsdóttir Jónssonar fyrrum hafnsögumanns og skip- stjóra i Reykjavik og konu hans tsafoldar Einarsdóttur. Börn þeirra eru: Sigriður, sem verður stúdent nú i vor, tsafold og Erla, sem báðar eru i skóla. Ennfremur átti Sigurður uppkominn son Kari Harry. bankamann, sem kvæntur er Helgu -Hóhannsdóttur Möller, frá Siglufirði. Sigurður var mikill áhugamað- ur um félagsmál og tók þátt i þeim eftir þvi sem timi og geta sjómannsins leyfði. Var hann m.a. i Sjómannafélagi Reykja- vikur, áöur en hann varð yfir- maður á skipum. siðan i Stýri- mannafélagi islands og Skip- stjórafélagi Islands. Sigurður Jóhannsson var mikill persónuleiki, sem tekið var eftir j hvar sem hann fór og ekki sizt i störfum sinum til sjós og lands. Sigurðar verður nánar getið i blaðinu siðar. 0 Fimmtudagur 15. júní 1972

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.