Alþýðublaðið - 15.06.1972, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 15.06.1972, Blaðsíða 9
fMrtmn i FRJÁLSfÞROTTAÞJÁLFARAR STOFNA EIGID FÉLAG 1. júni s.l. var haldinn stofn- fundur Félags frjálsiþróttaþjálf- ara. A fundinn komu fjórtán manns. Kosinn var formaður félagsins, Jóhannes Sæmundsson iþróttakennari. Akveðið var, að meðstjórnendur skyldu kosnir á næsta félagsfundi, en til frekari undirbúnings skyldu starfa ffauk ur Sveinsson og Karl Stefánsson. Haukur Sveinsson iþróttakennari hélterindi um nokkur atriði þjálf- fræði. Markmiðfélagsins: l.Stuðla að framgangi frjálsra iþrótta á ts- landi. 2. Koma á samstarfi þeirra, er áhuga hafa á frjáls- iþróttaþjálfun, og auka tengsl Reykjavíkursvæðisins og land- sbyggðarinnar á þessu sviði. 3. Auka þekkingu félgsmanna á iþróttaþjálfun og stuðla að skoðanaskiptum. Leíðir: 1. Haldnir verði fundir reglulega einu sinni i viku i fundarherbergi FRI á miðviku- dagskvöldum kl. 21.00. 2. Stefnt skal að þvi að halda tvö þing, ann- að að vori^hitt að hausti. 3. Stefnt skal að útgáfu félagsbréfs og öðrum ritsmiðum. Ollum er heimilt að mæta á fundi félagsins. Einnig er hægt að hringja i sim 83377 á fundar timum til að fá frekari upplýsing- ar eða senda bréf til félagsins i pósthólf FRI 1099. Allir áhugamenn eru hvattir til að gerast félagsmenn. Félags- gjald er 200 kr. á ári. ALLS STAÐAR • tþróttablað ISI er komið út. Er það 5. tölublað 32. árgangur. Meðal efnis er: Ritstjórnar- spjall Sigurðar Magnússonar um Olympiuleikvanginn i Munchen. Svipmyndir frá Munchen. Ars- þing UMSE og 50 ára afmælishóf. Grein um blak eftir Albert H. N. Valdimarsson. Grein um minnis- stæða glímumenn eftir Kjartan Bergmann. Þjálfaraþáttur um hinn svokallaða Fosbury — stil i hástökki, eftir dr. Ingimar Jóns son. Ýmislegt fleira er i blaðinu, en sjón er sögu rikari. 0A iþróttamóti i Helsingborg s.I. mánudag reyndi Sviinn Kjell Isaksson að setja nýtt heimsmet i stangarstökki, en án árangurs. Átti hann góðar tilraunir við 5,60 London 14/6. Flugmenn hjá brezka flugfé- laginu British European Airways, hafa samþykkt að hefja verkfall frá og með 23. júni n.k. hafi samn- ingar um kaup þeirra og kjör ekki náðst fyrir þann tima. Helztu kröfur flugmannanna eru um hærri laun og betri starfs- skilyrði. BEA er stærsta flugfélag Evrópu og er farþegafjöldi þess á viku um 250.000. Verkfallshótunin er gerð rétt áður en aðalannatimabil i fluginu hefst, en samkvæmt upplýsingum fulltrúa flugfélagsins, myndi þetta verkfall bæði áhrif á allt á- ætlunarflug og leiguflug. Mikill meirihluti hinna 1.350 flugmanna, sem starfa á vegum félagsins, höfnuðu siðasta kaup- hækkunartilboði stjórnar flugfé- lagsins og samþykktu verkfalls- boðunina. — m. en þvi miður tókst honum ekki að stökkva þá hæð. Hann sigraði þó á mótinu stökk 5,55 m. I öðru sæti varð A-þýzki Evrópumeistarinn og fyrrverandi heimsmethafi Wolfgang Nord- wig, stökk 5,40 m. Þriðji varð svo Ingemar Jernberg Sviþjóð stökk 4,85 m. •Eftir siðustu opnu keppni i golfi, sem fram fór um siðustu helgi, eru 10 efstu menn i Stiga- keppni Golfsambands fslands þessir: Stig Mót Björgvin Hólm, GK 30,5 4 Einar Guðnason, GR 29,5 3 Þorbjörn Kjærbo, GS 23,5 3 Július R. Júliusson.GK 18,5 4 Sigurður Héðinsson, GK 18 3 Jóhann Ó.Guðm.son.GR 16 3 Óttar Yngvason.GR Gunnlaugur 15 3 Ragnarsson.GR 10,5 4 Jón H.Guðl.son.GV 10 2 Atli Aðalsteinsson.GV 8 1 Alls hafa 23 menn fengið stig i þessari keppni, en nú er lokið fjórum mótum af niu, sem tekin eru gild. Af þessum 23 mönnum hafa 6 þeirra, sem urðu i 10 efstu sætunum i keppninni i fyrra, og skipa landsliðiö i ár, fengiö stig. Þar af eru 5 á þessum lista hér fyrir ofan. #1 s 1 a n d s m e i s t a r a m ó t i stangarköstum, verður haldið dagana 24. og 25. júni á Laugardalstúninu við iþróttahöll- ina. Tilkynna skal þátttöku: Sigurbirni Eirikssyni S. 34205 Ástvaldi Jónssyni S. 35158 Héraðssambandsins Skarphéð- ins efnir til móts fyrir almenn- ing sunnudaginn 2. júli n.k. og hefur það hlotið nafnið Blá- skóga-skokk, en að fornu var svæðið I kringum Þingvallavatn nefnt Bláskógar. Leiðin, sem skokkað verður er nánar tiltekið sú, sem I daglegu tali er nefnd Lyngdalsheiöi. Lagt verður af stað Þingvalla- megin og endað að Laugarvatni. (Sjá meðf. kort.) Varla gefur að lita fegurri og sögufrægari göngu- eða hlaupaleiö. Vega- lengdin er 16.8 km. Fólki i i sjálfsvald sett, hvort það gengur eða hleypur eða hvorutveggja, en vegalengdina verður að fara á 3. klst. eða skemmri tima. AUir þátttak- endur munu fá sérstakt heiður- skjal, og auk þess munu hinir 3 fyrstu i hverjum aldursflokki hljóta sérstök verðlaun. Þátttakendum verður skipt i flokka eftir aldri, sem hér segir: A. flokkur 14—15 ára B. flokkur 16—18 ára C. flokkur 19—34 ára D. flokkur 35ára og eldri. öllum er heimii þátttaka, konum ogkörlum, innlendum og útlendum. Þetta verður fyrsta mót sinn- ar tegundar hér á landi, en viða erlendis eru þau afar vinsæl og þátttaka mikil. Almennur áhugi fyrir útivíst og hreyfingu, sam- hliða ekki of erfiðu viðfangsefni, gera það að verkum, að fjöldinn getur verið meö. A leiðinni verða staðsettir bil- ar eða tjöld, þar sem þátttak- endur geta fengið sér hressingu ef þeir vilja. Við endastöðina að Laugarvatni geta svo allir farið i gufubaö og sund. Það er ætlun Trimmnefndar HSK, aö Bláskógaskokkið verði árlegur viöburður. Þátttökutilkynningar þurfa að berast simleiðis eða bréflega fyrir 25. júni til Brynleifs Steingrimssonar, læknis Selfossi eða Leifs österby, Sel- fossi. Einnig má tilkynna þátt- töku til skrifstofu ISI, i Laugar- dal, Reykjavik. IBK 3 KR 1 * KORTHI FÆR VALUR BEN. RAUÐA FVRIR KNNAN lilK? Leikur KR og tBK á Laugar- dalsvellinum s.l. þriðjudags- kvöld, varð all sögulegur. Þó var leikurinn skemmtilegur og bauð upp á mörg tækifæri á báða bóga, þrátt fyrir það að dómari leiksins, Valur Benedikts- son.gerði sitt til að eyðileggja hann. Tækifæri Keflvikinga voru fleiri og hættulegri en KR-inga virtust Keflvikingar hafa meira vald yrir sóknarspili sinu en ungu ljónin. KR-ingar eru mjög létt leikandi lið, og voru varnarmenn Keflvik- inga ekki of sælir af þvi að þurfa að stöðva þá, enda tiltektir KR- inga aldrei þær sömu. Brugðu varnarmenn ÍBK þá á það ráð, sem hefur gefist fyrirliða þeirra svo vel, að renna sér ,,rass- skriðu” knöttinn, þá er hann kom nálægt þeim. Þó var mér oft til efs hvorum væri ætluð „rassskrið an ’, knettinum eða fótum KR- inga. Strax á fjórðu minútu áttu KR- ingar skot á mark, sem Reynir varði vel. Siðan einkenndist leik- urinn af sóknum og gagnsóknum á báða bóga, og skapaðist oft hætta við KR-markið, en vörn KR var ávallt vel á verði, enda stóð hún sig með ágætum i þessum leik, miðað við fyrri leiki. Á fertugustu minútu, eða var það eftir að leikhlé átti að vera byrjað, er skotið á KR-markið. Magnús markvörður hafði hönd á knettinum, en missti hann fyrir fætur Friðriks Ragnarssonar, sem spyrnti honum i opiö markið. 1:0 fyrir IBK! ?!, Augnabliki seinna er llerði Markan visað af leikvelli, fyrir ljótt orðbragð aö sögn dómarans. Tveim minútum seinna fær Jón Ölafur knöttinn á vinstri kanti, og skýtur góðum bolta vinstra megin i markið. Hafði Magnús hlaupið út til vinstri, og þvi ekki vel stað- settur gagnvart skoti Jóns. Halldór Björnsson var á marklinu og varði með höndum, og dæmdi Valur réttilega mark. 2:0 fyrir ÍBK. Augnabliki seinna átti KR hættulegt skot, en markvörður IBK var vel á verði. Það voru heldur óhressir KR- ingar sem mættu til seinni hálf- leiks, enda einum manni færri en Keflvikingar og þar að auki með tvö mörk á sér, sem vafamál var að hefðu verið skoruð i réttum leiktima. Á tólftu minútu misnota Kefl- vikingar upplagt tækifæri. A tuttugustu og fimmtu minútu kemst Steinar innfyrir vörn KR en skaut framhjá. KR-ingar höfðu skipt um markvörð i seinni hálf- leik og kom Pétur Kristjánsson i markið. Voru sum úthlaup hans hálf ævintýraleg. Á þritugustu og þriðju minútu á Steinar skot á mark, sem mark- vörður KR kom höndum á, en hélt ekki, og rúllaði knötturinn i mark. 3:0 fyrir Keflavik. Á þritugustu og sjöttu minútu fá KR-ingar aukaspyrnu inn á vita- teig Keflavik, alveg út við enda- mörk. Var knötturinn gefin vel fyrir markið út við endamörk. Var knötturinn gefinn vel fyrir markið, þar sem Þórður Jónsson skailaði hann i mark. 3:1 fyrir IBK. Bæði liðin sýndu á köflum mjög góðan leik, en úrslitin voru sann- gjörn. Keflavik var sterkari aðil- inn, og átti sigur skilið. Beztu menn IBK voru Ölafur Júliusson, Steinar Jóhannsson og fyrirliðinn Guðni Kjartansson. KR-liðiö sýndi i þessum leik að þeir kunna og geta leikið knatt- spyrnu, ef viljinn er fyrir hendi, beztu menn voru Atli Þ. Héðinsson, Halldór Björnsson og Gunnar Gunnarsson. Að flestra dómi var fyrri hálf leikur leikinn tiu minútum um- fram eðlilegan leiktima, og á þessum tima sigraði Keflavik leikinn. Frétzt hefur að KR-ingar séu búnir að kæra leikinn, og veröur gaman að fylgjast með þvi kærumáli. Skyldi Valur Ben. fá rauða kortiö af dómurum máls- ins? — f.k. Fimmtudagur 15. júni 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.