Alþýðublaðið - 24.06.1972, Blaðsíða 1
alþýðu
aði
ARDAGUR 24. JÚNi 1972
137. TBL.
HAMRANESINU SfiKKT MEÐ
HEIMATILBÚINNI SPRENGJU?
Sjóprófunum vegna Hamra-
ness er lokiö aö mestu og er nú
taliö fullvist, aö togarinn hafi
sokkið vegna sprengju sem
sprakk um borö i honum, en
ekki utan hans.
1 gær komu til yfirheyrslu viö
réttarhöldin Rudolf Axelsson,
lögregluþjónn og sprengjusér-
fræðingur, og staöfesti hann i
öllu þaö, sem Helgi Hallvarös-
son, skipherra hafði sagt um
sprenginguna.
Báöir fullyrða, aö hér hafi
ekki verið um tundurdufl aö
ræöa, heldur einhverja annars
konar sprengju, og þá heimatil-
búna, og sú sprengja hafi ekki
sprungið utan togarans, heldur
um borö i honum.
Þessar fullyröingar þeirra
félaga fengu enn betri staðfest-
ingu, þegar skipstjórinn á tog-
aranum Fylki, sem lenti á
tundurdufli fyrir sextán árum,
mætti fyrir réttinum i gær.
Allar hans lýsingar á þeim at-
burði voru gjörólikar þvi, sem
haft hefur veriö eftir eigendum
og skipverjum Hamraness.
Siguröur Hallur Stefánsson,
fulltrúi bæjarfógetans i Hafnar-
Framhald á bls. 4
16 UJÚPSPRENGJUR
FUNDNAR í SEYÐIS-
FJARÐARSKIPINU
Þessar myndir af togaranum Úranusi á leið til Eyja tók Guömundur Sigfússon. Er viö ræddum viö
hann laust eftir miönætti i nótt sagöi hann aö búiö væri aö slökkva ailan eld, nema aö smágiæöur væru I
stafni. Taliö er líklegt aö kviknaö hafi f út frá sfgarettu. Togarinn iá innan viö Eiöi er unniö var aö
slökkvistarfi i gærkvöldi og nótt, og fylgdust bæjarbúar nær allir meö slökkvistarfinu, þvf skipiö lá
örstutt undan landi.
Allar likur benda til þess, að
brezka skipið E1 Grillo, sem
liggur á hafsbotni rétt utan við
höfnina á Seyðisfirði, hafi ekki
aðeins verið oliubirgöaskip fyrir
brezka flotann við Island á striðs-
árunum heldur einnig tundur-
skeyta- og sprengjubirgðaskip
fyrir brezka kafbáta og herskip.
Kafari, sem kafaði niður að E1
Grillo i gær, taldi sextán djúp-
sprengjur og eitt tundurskeyti um
borð i skipinu. Auk þess er mjög
mikið af alls konar skotfærum i
skipinu, m.a. fyrir fallbyssuna,
sem er aftan á skipinu og tvær
loftvarnarbyssur, sem staðsettar
eru á hvorum brúarvæng þess.
,,Ef þetta spryngi allt saman,
yrði saga Seyðisfjarðar ekki
lengri”, sagði ÓlafurM. Ólafsson,
útgerðarmaður á Seyðisfirði, i
STORFLDÐ
í KJÖLFAR
FELLIBYLS
Að minnsta kosti 26 hafa látið
lifið og margra er saknaö eftir að
fellibylurinn „Agnes” fór i gær
yfir norðausturhluta Bandarikj-
anna.
I fyrri viku létust 16 er bylurinn
æddi inn yfir Florida.
Meira en 10.000 manns hafa
flúið i skóla og aðrar byggingar
vegna flóða, sem eyðileggja
heimili. Úrkoman er allt að 300
mm á örfáum klukkustundum, og
vatnsmagnið þvi gifurlegt.
Vindhraðinn var fyrr i vikúnni
196 km/klst. , en er nú kominn
niður i 100 km.
1 Virginiuriki eru flóðin sögð
hin mestu i 50 ár.
samtali við Alþýðublaðið i gær-
kvöldi.
Tveir kafaranna, sem nú eru
staddir á Seyöisfirði til þess að
rannsaka herskipið, fyrst og
fremst oliulekann frá þvi, sem
lengi hefur valdið áhyggjum
margra Seyðfirðinga, köfuðu
niður að skipinu i gærmorgun.
Syntu þeir m.a. fram i stafn
skipsins.
Ætluðu þeir að taka ljósmyndir
i þessari ferð, en myndavélar bil-
uðu og varö þvi ekki úr neinum
myndatökum i gær. Könnuðu þeir
hins vegar skipið eftir þvi sem að-
stæður leyfðu, en skipið er mjög
gróið og erfitt fyrir kafarana að
athafna sig þar.
Mikil tæring virðist vera komin
i skipið. Annar kafaranna stakk
t.d. hnif i þilfar skipsins og gekk
hann nokkra sentimetra niður.
Þegar kafarinn þrýsti á loftventil
hrundi hann.
Kafararnir hafa nú tekið tvö
oliusýni til lands frá skipinu. Hið
fyrra tóku þeir fyrsta daginn.
Annar kafarinn sá i gær gat á
einum tanki skipsins, og við það
að stinga hendinni i gatið kom
upp olia. Fylgdarmaður kafar-
anna tók sýni af þessari oliu, þeg-
ar hún kom upp á yfirborðið og þá
sem svartir kögglar.
Ólafur M. Ólafsson sagði i sam-
talinu við blaðið i gær, að djúp-
sprengjurnar sem kafararnir
festu tölu á, væru i rekkum i sitt
hvorum gangi skipsins, og væri
Frh. á bls. 6
HASSID UPP Á
HUNDRUD DLADSIDNA
Allt frá þvi hassmálið kom upp
hafa tugir manna verið yfir-
heyrðir vegna þess og eru gögn
málsins nú upp á mörg hundruð
blaðsiður.
Flestir, sem hafa verið yfir-
heyrðir koma ýmist við sögu mál-
sins sem kaupendur eða
neytendur.
. *
'
DÆJARBUAR HORFDU
A SLOKKVISTARFID
Vestur-þýzki togarinn Uranus
var dreginn i fyrrinótt og allan
gærdag alelda neðan þilja áleið-
is til Vestmannaeyja.
1 kringum niu leytið i gær-
kvöld var búið að draga hann
undir Eiði i Vestmannaeyjum,
þar sem óðara var hafizt handa
um að slökkva eldinn.
Þaö var systurskip togaran^
Sirius.sem dregið hafði hann
alla leið og innanborös voru allir
skipbrotsmennirnir að undan-
skildum tveimur.
Annar furst i brunanum, um
miðnætti á fimmtudag,. en hinn
var illa haldinn af reyk, og flutti
björgunarþyrla varnarliðsins
hann til lands ásamt llki hins
látna.
Alþýðublaðið skýrði frá þessu
i gær og þar kom meðal annars
fram, að niu klukkustunda sigl-
ing væri fyrir næsta varðskip til
Uranusar.
Það var statt á Faxaflóa og
Framhald á bls. 4