Alþýðublaðið - 24.06.1972, Blaðsíða 9
IÞROTTIR 3
Viftureign Englendinga og Vestur—Þjóðverja i knattspyrnu i vor
vakti alheimsathygli, eins og viðureignir þessara þjóða á knatt-
spyrnuvellinum hafa ætíð gert siðustu árin. Viðureign þjóðanna i vor
lauk með sigri Þjóðverja, og komu þeir loks fram fullum hefndum
fyrir ósigurinn i úrslitum Heimsmeistarakeppninnar 1966.
Fyrirliöar þjóðanna, þeir Bobby Moore Englandi og Frans Becken-
bauer Vestur—Þýzkalandi, eru báöir i hópi þekktustu knattspyrnu-
nianna veraldarinnar, enda afburðaknattspyrnumenn. Eftir
myndinni hér að ofan að dæma, má ætla aö litill kærleikur sé með.
þessum tveim frægu knattspyrnumönnum. En þvert á móti, þeir eru
beztu vinir, og baráttan þeirra á milli er aðeins til á knattspyrnu-
vellinum.
Sem dæmi um vináttu þeirra Frans og Bobby, þá dvaldi Bobby og
kona hans Tina nvlega yfir hclgi hjá Frans og Brigitte Beckenbauer,
og voru þá meðfylgjandi myndir teknar.
Eins og gefur að skilja er myndin hér að ofan uppstilling, eins og
menn geta reyndar sagt scr sjálfir. Hér til hliðar sitja þeir félagar að
tafli, og það fylgdi fréttinni að Frans hafi verið fljótur að máta
Bobby, enda mun skákkunnátta þess siðarnefnda ekki upp á marga
fiska.
Litlu myndirnar skýra sig væntanlega sjálfar.
HERNA
HðFUM
VHI
1V0
FRÆGA
KAPPA
OG
KOMUR
ÞEIRRA
80 SKRÁÐIR I
BLÁSKÖGAR-
SKOKKIÐ
Bláskógarskokkið, sem áður
hefur verið greint frá i fréttum,
verður sunnudaginn 2. júli n.k. og
hefst við Gjábakka á Þingvöllum
kl. 14.00.
Nú þegar hafa um 80 manns
látið skrá sig, konur og karlar á
öllum aldri, og vitað er að margir
munu bætast við.
Hjá einstökum fyrirtækjum er
áhugi meðal starfsfólks að taka
þátt i Bláskógarskokkinu,t.d. er
vitað að hópur þátttakenda verð-
ur frá starfsmannafélagi Heklu
h.f.
Allir þátttakendur fá sérstaka
viðurkenningu og auk þess verða
veittir farandbikarar, sem Kaup-
félag Árnesinga og Mjólkurbú
Flóamanna hafa gefið, og
Héraðssambandið Skarphéðinn
mun veita verðlaunapeninga.
/ HREINSKILNI SAGT
ÞVf EKKI TÍMAVðRD?
Mikill úlfaþytur hefur orðið
vegna leiks KR og ÍBK á dögun-
um, og varla þagna þær um-
ræður i bráðina ef ég þekki
islenzka knattspyrnuunnendur
rétt.
Engan undrar allar
umræðurnar sem orðið hafa um
þetta mál. þvi hér er vissulega
stórmál á fcrðinni. Hér er nefni-
lega ekki aðeins um þaö að ræöa
að KR tapi leik, að þvi er félagið
álitur á mistökum dómara,
heldur gefur þetta mál glögga
grein fyrir þvi valdi scm dómari
og linuverðir hafa á vellinum,
vald sem margir telja of mikið.
Það gefur auga leið, að með
núverandi fyrirkomulagi geta
dómarar og linuverðir með
samanteknu ráði ákveðið lengd
leiks, þrátt fyrir að i
knattspyrnulögunum sé skýrt
tekið fram hver skuli vera lengd
knattspyrnuleikja. Það er engiæ
sem getur ráðiö hér nokkru um
nema dómarinn og linuverðir,
þeirra klukkan segir til um
leikinn hversu réttar sem þær
eru eða rangar.
Þannig geta þeir ákveðið
lengd leiks, þessu eða hinu
liðinu i hag, til dæmis Keflavlk i
hag um daginn cins og margir
viidu halda fram. Klukkur
þúsunda vallargesta hafa
ekkert að segja, þrjár klukkur
gilda gegn þúsundum klukkna,
svo framarlega sem dómarar
og linuveröir sverja fyrir rétti
að þeirra klukkur hafi sýnt
réttan leiktima.
Með þessum orðum er undir-
ritaður alls ekki að halda þvi
fram að Valur Benediktsson og
linuverðir hans hafi visvitandi
látið umræddan leik vera of
lengi. Hins vegar bendir margt
til þcss að lcikurinn hafi verið of
langur vegna mistaka þessara
manna. Varla væru þúsundir
vallargesta umrætt kvöld á
þessari skoðun, ef ekki væri
eitthvað sem styddi hana.
Það er mannlegt aö gera mis-
tök, en það er lika mannlegt aö
viðurkenna mistökin, og gera
það strax áður en málið er
komið fyrir rétt. Þaöan verður
ekki aftur snúið, og ljúgvitni er
orðið staðreynd, án þess þó aö
hér sé nokkuð verið aö væna Val
og hans menn um slikt.
Hagkvæmasta lausnin á þessu
vandamáli er að firra dómara
ölium vandamálum við tima-
töku, og fela hana sérstökum
timavörðum einsog gert er bæði
i handknattleik og korfuknatt-
leik. Slikur timavörður gæti
tekið nákvæman tima, og siðan
dregið frá tafir og annaö sam-
kvæmt fyrirmælum dómara.
Þetta fyrirkomulag hefur gefið
góða raun þar sem það tiðkast.
Kannski vilja menn meina að
erfitt geti reynst að fá hlutlausa
mcnn til þess að sjá um tima-
töku. Að visu getur það reynst
erfitt við minni háttar ieiki, en
þetta fyrirkomulag ætti ekki að
reynast erfitt i framkvæmd við
leiki 1. deildar og jafnvel leiki 2.
deildar einnig.
Sigtryggur Sigtryggsson.
Laugardagur 24. júni 1972.