Alþýðublaðið - 24.06.1972, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 24.06.1972, Blaðsíða 4
FRÁ TÆKNISKÓLA ÍSLANDS Skólaárið 72/73 er áætluð þessi starfsemi: 1. Undirbúningsdeild 2. Raungreinadeild 3. Fyrsta námsár af þrem i rafmagns,- reksturs-, skipa- og véltæknifræði (tvö sið- ustu árin oftast við danska tæknifræði- skóla.) 4. 3ja ára nám i byggingatæknifræði (eftir raungreinadeild) — til lokaprófs. Til athugunar er að starfrækja, ef næg þátttaka fæst: 5. Raftæknadeild, 2ja ára framhalds- menntun fyrir iðnaðarmenn i rafmagns- greinum. Fyrra árið fari þessir nemendur i undirbúningsdeild tækniskóla i Reykja- vik, á Akureyri eða á Isafirði, en siðara árið i sérhæft nám. 6. Meinatæknadeild, 2ja ára framhalds- menntun fyrir stúdenta. Umsóknareyöublöö fást aö Skipholti 37, Reykjavik, bæöi i Tækniskólanum og einnig i Iönþróunarstofnuninni. Svo máibiöja um þau i simum 84933 og 81533. Umsóknarfrestur er til 15. júli n.k. og veröur skriflegt svar skólans sent fyrir 1. ágúst. Skólaáriö 72/73 hefst 11. sept. 1972. Skólastjóri Húsbyggjendur - Verktakar Kambstál: X, 10, 12, ll>, 20, 22, og 25 m/m. Klippum og beygjum stál og járn eftir óskum viöskiptavina. Stálborgh.f. Siniðjuvegi 13, Kópavogi. Simi 42480. VERKAMENN — IÐNAÐARMENN Vegna stækkunar Áliðjuversins i Straumsvik, eru um 100 störf laus til um- sóknar,umsækjendur þurfa að geta hafið vinnu i byrjun ágúst, eða eftir samkomu- lagi. Við leitum eftir mönnum i: Kerskála Kersmiðju Skautsmiðju Steypuskála Flutningadeild Véla- og fartækjaverkstæði Þeim, sem eiga eldri umsóknir hjá fyrirtækinu er bent á að hafa samband við starfsmannastjóra. Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti, Reykjavik og bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði. Umsóknir óskast sendar eigi siðar en 7. júli 1972 i pósthólf 244, Hafnarfirði. ÍSLENZKA ÁLFÉLAGIÐ H.F. STRAUMSVÍK Bifreiöaeigendur % BLAUPVNKT Verzlun vor býður mjög fjölbreytt PHILIPS úrval af bílaútvörpum og stereo 4»saivy segulböndum. Einnig er fyrirliggjandi úrval af fylgihlutum: festingum, loftnetum og hátölurum. Verkstæði okkar sér um ísetningar á tækjunum, svo og alla þjóhustu. *TMÐMIP Einholti 2 Reykjavík Sími 23220 Reglugerð um raforkuvirki Út er komín reglugerð um raforkuvirki, útgefin af Rafmagnseftirliti rikisins, sam- kvæmt Stjórnartiðindum B 23 nr. 264 31. des. 1971. Hin nýja reglugerð er sett samkvæmt Orkulögum nr. 58 29. april 1967, til að taka gildi hinn 1. júli 1972 og er birt til eftir- breytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnfrámt er úr gildi felld reglugerð um raforkuvirki nr. 6114. júni 1933 með siðari breytingum. Samkvæmt 41. gr. ofangreindra orkulaga setur hin nýja reglugerð ákvæði til varnar gegn hættu og tjóni af raforkuvirkjun og til varnar gegn truflunum af þeirra völdum á virkjum, sem fyrir eru eða siðar kunna að koma. Reglugerðin er i lausblaðabindi, þannig að unnt er að skipta um einstök blöð ef breyt- ingar eru gerðar. í útgáfu Rafmagnseftir- litsins er auk reglugerðarákvæðanna að finna skýringarblöð með myndum, sem sett eru inn þar sem við á. Hlifðarkápa bindisins er úr endingargóðu plasti, með heftihringum til festingar biöðum. Stærð blaða er staðalstærð A5 (210 mm x 148 mm) samkvæmt is- lenzkum staðli, IST 1 — Stærðir pappirs. Utanmál bindis er nál. 180 x 225 mm. Verð reglugerðarinnar ásamt bindi er 1100 kr. með söluskatti. Bókina er hægt að fá hjá Rafmagnseftirliti rikisins, Skipholti 3 i Reykjavik og á all- mörgum stöðum úti á landi hjá rafmagns- eftirlitsmönnum rafveitna. Einnig má senda pöntun beint til Rafmagnseftirlits rikisins. Rafinagnseftirlit rikisins. Evrópumet Monika Zehrt setti i gær nýtt Evrópumet i 400 metra hlaupi — hún hljóp á 51,1 sek. sem er aðeins 1/10 frá heimsmeti. Þetta var á meistarmóti i frjálsum i Austur- Þýzkalandi. Fyrra metið áttu tvær franskar, Nicole Ducles og Colette Besson, 51,7. ORLOF HUSMÆÐRA Orlofsnefnd húsmæöra i Reykjavik gengst fyrir kynningu á orlofsmálum, og Steinunn Finnbogadóttirj formaöur nefndarinnar, kynnir hina nýju löggjöf um orlof húsmæöra, sem samþykkt var á siðasta þingi. Kynningin veröur að Hótel Sögu mánudaginn 26. júni klukkan 8.30, og að henni lokinni verður kvöld- vaka, þar sem verður m.a. söng- ur Orlofskvartetts og Guðrúnar Tómasdóttur. Bæjarbuar 1 lagði þegar af stað, en sneri skömmu siðar við, þar sem til- kynning barst um, að. i grennd við togarann væri þýzka eftir- litsskipið Poseidon. Það var lóðsinn i Vestmanna- eyjum, sem kom fyrstur að tog- aranum, og var þegar varpað taug yfir i hann. Hún var hins vegar afþökkuð, og að sögn Einars Jóhannes- sonar, sem var um borð i lóðs- inum, mun ástæöan hafa verið sú, að búizt hafi verið við lækni fyrst og fremst en ekki björg- unarskipi. Einar sagði, að þegar lóðsinn hefði verið kallaður til aðstoðar, hefði aldrei verið óskað eftir lækni. Guðmundur Sigfússon i Vest- mannaeyjum fór ásamt nokkr- um öðrúm á móts við togarana i gær, þar sem þeir voru staddir austan við Vestmannaeyjar. Sagði hann, að skipið liti vel út, en mjög mikinn reyk legði úr þvi, Kvaðst hann aðeins einu sinni hafa séð eldglæringa'r i skipinu. ,,Við sáum eldinn standa upp úr skipinu að framanverðu”, sagði Guðmundur, ,,og reyk- urinn var æði mikill”. Lóðsinn frá Vestmannaeyjum kom til móts við togarana sið- degis i gær og aðstoðaði þá: Reyndist nauðsynlegt að ,,halda við” Uranus, þar sem hann vildi hallast, en dráttartaugarnar voru i skutn- um. Einar Jóhannesson fór um borð i togarann i fyrrinótt, og sagði hann, að margir skipverj- anna væru sárir, þótt enginn þeirra væri mikið slasaður fyrir utan þann eina, sem þegar hefur veriö fluttur i land. Skipverjar á Lóðsinum hófu þegar slökkvistarf i togaranum. Notuðu þeir froöu, en hún virtist ekkert vinna á eldinum og eftir nokkra stund bað skip- stjorinn þá um að hætta, þar sem skipiðþyngdisteinungis við þessar aðgerðir. Siðan var skipið yfirgefið og tilraunum til slökkviaðgerða frestað þar til til Eyja kom. Uranus er skuttogari, smið- aður árið 1961. Hann er 952 tonn og 70 metrar að lengd. Hamranesiö i firði, lýsti þvi yfir i viötali við Alþýðublaðið i gærkvöldi, að hann liti svo á, að sjóprófunum væri að mestu lokið. Hann vildi taka það skýrt fram, að hann gæti ekki og það væri reyndar aldrei gert, að gefa upp niðurstöður eða láta i ljósi nokkuð álit að loknum sjó- prófum. Málið verður sent saksóknara rikisins og kvað Sigurður lik- legt, að um það myndu dómstól- arnir siðan fjalla. Þar með er lokið einu af umfangsmestu sjóprófum, sem framkvæmd hafa verið á Islandi. © Laugardagur 24. júni 1972

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.